09.04.1962
Neðri deild: 87. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1516 í B-deild Alþingistíðinda. (1246)

77. mál, Hæstiréttur Íslands

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég hygg, að Það sé misskilningur hjá hv. Þm., að skattfrelsi hafi verið ákveðið handa hæstaréttardómurum. Það kom til orða hjá n., sem fjallaði um tekjuskattslögin, en sú till. var ekki borin fram, og það hefur a.m.k. farið fram hjá mér, hafi hún komið fram á Þinginu og verið samþ. Ég bið afsökunar á Því, ef ég misskil Það, en ég hygg, að Það hafi ekki einu sinni komið til umr. á Þinginu.

En hvað sem því líður, Þá held ég, að Það sé bezt að fresta Þessari umr. nú og athuga Þetta mál nokkru nánar í sambandi við Þá ákvörðun, sem stendur fyrir dyrum og er nú verið að vinna að varðandi tillöguflutning um laun opinberra starfsmanna.