19.12.1961
Neðri deild: 39. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1517 í B-deild Alþingistíðinda. (1252)
118. mál, Iðnaðarbanki Íslands
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Hæstv. forseti. Frv. þetta er flutt að beiðni Iðnaðarbankans eða stjórnar bankans, bankaráðs, bankastjóra, en eins og fram kemur í grg., þá kom það fram á aðalfundi bankans, þeim síðasta, að æskilegt væri að auka hlutafé bankans, og var gerð ályktun um að gera ráðstafanir til þess, að svo mætti verða, nú fyrir næsta fund, en óskin um möguleika til þess að auka hlutaféð er fram borin vegna þeirra verðbreytinga, sem orðið hafa, frá því að bankinn er stofnaður, og verðfalls krónunnar, ef miðað er við erlenda mynt, en í lögunum um Iðnaðarbankann var hlutaféð að hámarki 61/2 millj. kr. Nú vilja þeir, sem standa að bankanum og hafa þar af leiðandi mestan áhuga á að efla hag hans, fá heimild til þess að safna eða bæta við hlutaféð, og þá eiga að sjálfsögðu hluthafarnir fyrst og fremst forkaupsrétt í hlutfalli við hlutabréfaeign í bankanum. En ríkissjóður mun eiga þarna 3 millj. kr., og kemur þá til álita á síðara stigi málsins, hvort ríkissjóður óskar að auka sitt hlutafé í hlutfalli við aðra hlutafjáraukningu. Hins vegar er það svo, að ríkisstj. hefur aldrei beitt til hins ýtrasta aðstöðu sinni við atkvgr. á hluthafafundum í samræmi við hlutaféð, og ég hygg, að það sé rétt, að almennt hafi verið litið svo á hér, þegar lögin voru sett, að þátttaka ríkissjóðs væri fyrst og fremst miðuð við það að koma þessari bankastofnun af stað og á fót. Það eru engin tilsvarandi ákvæði eða takmörkun í löggjöfinni um Verzlunarbanka, sem afgreidd var hér nýlega á Alþ., og Það virðist eðlilegt að heimila þessa breyt. á löggjöfinni. eins og lagt er til, og eina efnisbreytingin er sú, að það verður engin takmörkun lengur á upphæðinni, en hluthafafundirnir hverju sinni mundu ákveða, hvað hlutaféð mætti auka mikið, og forkaupsrétt hafa þeir, sem eru hluthafar fyrir, en síðar má bjóða hlutaféð út, ef þeir óska ekki að neyta síns forkaupsréttar.
Ég vil að svo mæltu leggja til, að málinu verði vísað að lokinni þessari umr. til 2. umr. og til iðnn.