29.03.1962
Neðri deild: 79. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1520 í B-deild Alþingistíðinda. (1269)
16. mál, veiting ríkisborgararéttar
Frsm. (Alfreð Gíslason bæjarstjóri):
Hæstv. forseti. Frv. þetta hefur verið nokkuð lengi í n. Það barst þinginu í haust, en var ekki afgr. fyrir áramót af þeim ástæðum, að ekki var talið rétt að samþ. tvö frv. um veitingu ríkisborgararéttar á sama ári.
Frá því að frv. kom til nefndar, hafa komið allmargar umsóknir til viðbótar, sem n. hefur tekið til greina. N. hefur ekkert við sjálft frv. að athuga, en hefur flutt 2 brtt. á þskj. 426 og viðbótartill. á þskj. 526. N. mælir með, að samtals 42 nýir umsækjendur verði teknir með í frv. Það eru þá samtals 54 umsækjendur um ríkisborgararétt, sem n. leggur til að verði bætt við frv., og mælir hún eindregið með, að frv. verði samþ. með þeim breytingum.