05.04.1962
Efri deild: 79. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1520 í B-deild Alþingistíðinda. (1276)

16. mál, veiting ríkisborgararéttar

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Frv. þetta hefur verið samþ. í hv. Nd. og var upphaflega samið af dómsmrn. eftir sömu reglum og fylgt hefur verið um veitingu ríkisborgararéttar undanfarin ár. Síðan var nokkrum mönnum bætt við í Nd. með tilvísun til þessara sömu reglna. Ég hygg, að n. í Nd. hafi haft samstarf við n. hér í d. um athugun á umsóknunum. Ég veit ekki annað en samkomulag hafi verið um þær till., sem fluttar voru. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um málið og legg til, að því verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.