02.04.1962
Neðri deild: 81. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1529 í B-deild Alþingistíðinda. (1291)
169. mál, síldarútvegsnefnd
Lúðvík Jósefsson:
Hæstv. forseti. Meginefni þessa frv. um síldarútvegsnefnd og útflutning saltaðrar síldar er að lögbinda nú til frambúðar þá skipan, sem sett var á í Þessum efnum með brbl. á s.l. ári í öllum aðalatriðum. En með þeirri skipan var ákveðið, að í síldarútvegsnefnd skyldu vera 7 menn í stað 5, sem áður höfðu skipað n. Og þar með var ákveðið, að þeir fulltrúar, sem Alþ. kýs í síldarútvegsnefnd, skyldu vera þar í minni hluta, en þeir fulltrúar, sem þar til greindar stofnanir tilnefna í n., skyldi skipa meiri hl. þessarar nefndar.
Þegar þetta mál var fyrr til umr. á Alþ., benti ég á, að ég teldi, að Þetta fyrirkomulag; væri mjög vafasamt, að ætla að halda sér við það skipulag, sem starfsemi síldarútvegsnefndar hefur verið byggð á til þessa, en það er, að n. sé ríkisstofnun, sem hafi fullkomið einokunarvald, ef maður mætti svo að orði kveða, um alla þá starfsemi, sem fellur undir n. lögum samkvæmt. En það er þessi ríkisstofnun, sem raunverulega hefur ein með að gera sölu á allri saltsild og stjórnar að verulegu leyti framleiðslu saltsíldar í landinu. Ég hef alltaf verið á þeirri skoðun, að menn yrðu í þessum efnum að velja á milli þess, hvort þeir vilja hafa fullkomin ríkisafskipti af afurðasölumálum eða hvort á að heimila framleiðendum að byggja upp sitt eigið skipulag og þá verði aðeins um að ræða eftirlit frá hálfu ríkisins. Þannig er þessu nú varið í flestum greinum varðandi sjávarvöruframleiðslu, að framleiðendur hafa rétt til þess að byggja upp sín framleiðenda- og sölusamtöl, og ríkið hefur þar ekki annað að gera en hafa hönd í bagga með rekstrinum, getur áskilið sér ákveðinn rétt til eftirlits. En þessu er í rauninni á allt annan veg farið varðandi síldarútvegsnefnd. Þar hefur verið og þar er raunverulega um ríkisstofnun að ræða. Nú eru hinir einstöku framleiðendur ekki sjálfráðir um það, hvernig þetta kerfi skuli starfa, og þeir verða. yfirleitt í einu og öllu að beygja sig undir þær reglur, sem þessi ríkisstofnun setur samkv. all víðtæku valdi, sem stofnunin hefur samkv. lögum. Að breyta svo þessu á þann hátt, sem gert hefur verið, að Alþ. skipi aðeins minni hl. n., en. meiri hl. komi frá þar til nefndum félagasamtökum, það tel ég mjög óeðlilegt og í rauninni ólýðræðislega uppbyggingu. Ég held líka, að ástæðan til þess, að farið var inn á þessa braut nú að breyta þessu svona í grundvallaratriðum, að setja fulltrúa Alþ. í minni hluta hafi verið sú, að vissir stórir framleiðendur þessarar vöru vildu seilast til meira áhrifavalds innan þessarar valdamiklu stofnunar og komast inn í nefndina, því að það er auðvitað enginn vafi á því, að sú hefur verið reynslan á undanförnum árum, að aðilar meðal framleiðenda, sem bezta hafa haft aðstöðu í n., hafa á ýmsan hátt í raun og veru notið forgangsréttar fram yfir aðra framleiðendur. Og þó að einstakir saltsíldarframleiðendur hafi verið óánægðir með störf Þessarar ríkisstofnunar, a.m.k. sem heildar, hafa þeir litlu fengið þar um þokað, því að þarna hafa þeir sem framleiðendur ekki haft nema lítið um að segja, þar sem hér var um ríkisstofnun að ræða.
Mér er Það alveg ljóst, að það er ýmislegt, sem mælir með því, að slík stofnun sem þessi, sem hefur með alla saltsíldarsöluna að gera, sé hrein ríkisstofnun, skipuð mönnum, sem Alþ. hefur valið til þess að stjórna þeirri stofnun, og miða allan rekstur stofnunarinnar við hagsmuni þjóðarheildarinnar, þar sem sérsjónarmið einstakra framleiðenda fái ekki að yfirgnæfa. En hins vegar neita ég því ekki, að hin aðferðin er líka fyllilega til, að framleiðendurnir, í þessu tilfelli saltsíldarframleiðendurnir í landinu, geti fengið að byggja sér upp samtök á lýðræðislegum grundvelli og ráða sjálfir sínum framleiðslu- og afurðasölumálum aðeins undir almennu eftirliti ríkisins. En þá geta vitanlega hinir einstöku framleiðendur átt það við sjálfa sig á sínum árlegu aðalfundum, hvernig framkvæmdin hefur farið úr hendi. En sem sagt, að blanda saman þessum skipulögum báðum þann hátt, sem gert er ráð fyrir með þessu frv., það tel ég óheppilegt og óeðlilegt.
Í tilefni af því, sem hér kom fram í ræðu hv. frsm. sjútvn. um hin ágætu störf síldarútvegsnefndar á undanförnum árum, vil ég segja Það, að ég er að vísu samþykkur því, að margt af því, sem n. hefur gert, hefur verið gott. Og ég tel, að þegar litið er á heildina, þá verði maður að segja, að þar hafi miklu fremur tekizt sæmilega til um stjórn þessara mála. En það er þó alls fjarri því, að ég vilji skrifa undir það, að þar sé allt gott. Og ég hygg, að það séu fáir, einnig í hópi framleiðenda eða Þeirra, sem bezt þekkja til í þessum efnum, sem vilja lýsa blessun sinni yfir störfum n. í öllum greinum.
Ég álít, að það hafi verið talsverð ástæða til þess að breyta nokkuð um í skipulagi þessara mála frá því, sem var. Því taldi ég, að endurskoðun á þessum l. mætti gjarnan fara fram. En mér sýnist, að harla lítil endurskoðun á skipulaginu sem heild hafi farið fram, þó að því hafi verið gefið nafn á þann hátt, sem greinir nú í grg. þessa frv., Því að eins og ég sagði áður, þá er útkoman sú, að hér er í rauninni ekki gerð nein önnur breyt. en að staðfesta það, sem gert var með ákveðnum brbl. á s.l. sumri, fjölga um tvo menn í nefndinni.
Vald síldarútvegsnefndar er, eins og ég sagði, mjög mikið. Það kemur t.d. fram í því, að síldarútvegsnefnd hefur nú orðið einkarétt til þess að flytja inn allar síldartunnur til landsins. Þar geta ekki aðrir komið til. Þetta varð til þess á s.l. ári, að það tókst ekki að salta neitt nándar nærri því, sem hefði verið hægt að salta af síld, vegna Þess að það varð tunnulaust á miðri síldarvertíðinni. Og þegar einstakir aðilar í landinu bentu á, að þeir gætu tryggt, þótt seint væri, nokkurn innflutning á tunnum, þá var því lengi vel neitað af síldarútvegsnefnd að heimila slíkt.
Þannig mætti í miklu fleiri efnum nefna ýmiss konar mistök, sem gert hafa vart við sig í starfi n. á undanförnum árum. Og segi ég þetta aðeins til að benda á Það, að það er alls fjarri því að mínum dómi, að það sé rétt, sem hv. frsm. sjútvn. sagði í þessum efnum. Ég skal nefna annað ákvæði, en bæði þessi atriði, sem ég nefni hér, eru einmitt þess eðlis, að ég tel, að það hefði í endurskoðuninni á þessari löggjöf þurft að setja þar viss ákvæði, sem kæmu í veg fyrir slík mistök, Því að það er hægt með því að breyta hér nokkuð um skipulag.
Um nokkur ár hefur það verið svo, að síldarútvegsnefnd hefur selt allverulegan hluta af saltsíldinni úr landi með þeim skilyrðum, að hinir erlendu kaupendur, þó aðeins í ákveðnu landi, hafa fengið rétt til þess að velja úr tiltekna framleiðendur hér innanlands, tiltekna Síldarsaltendur, sem ættu að framleiða upp í þessa samninga við hina erlendu aðila. Á þennan hátt hefur íslenzkum saltsíldarframleiðendum verið stórlega mismunað. Sem sagt, stofnun, sem hefur haft hið mikla vald að mega ein ráða yfir sölunni út úr landinu, hefur hagað sölunni þannig, að hún hlaut í þessum tilfellum að koma fram sem stórkostleg mismunun á milli einstakra framleiðenda á saltsíld í landinu. Að þessu hefur auðvitað oftlega verið fundið, en eigi að síður hefur þetta staðið svo, og það hefur mjög verið á það bent, að einmitt þeir aðilar í síldarútvegsnefnd, sem jafnframt eru framleiðendur að síld, nytu sjálfir mjög góðs af þessum einkennilegu ákvæðum í þessum samningum.
Ég álít því, að það hafi verið full ástæða til þess að láta fara fram endurskoðun á þessari gömlu löggjöf um síldarútvegsnefnd, fulla og alvarlega endurskoðun á löggjöfinni, sem hefði náð lengra en það að fallast á þessa skyndibreyt., sem gerð var á s.l. ári, að fjölga í n. með þessum hætti um tvo menn úr hópi síldarframleiðenda og að gera skipulagið á þann hátt að alveg sérkennilegu skipulagi í sambandi við sölu á okkar sjávarafurðum, þannig að það á sér ekkert fordæmi í neinni annarri grein.
Þá vil ég einnig benda á það, að ein önnur breyt. er í þessu frv. frá því, sem verið hefur. Nú er hér svo fyrir mælt í 1. gr. frv., að Landssamband ísl. útvegsmanna skuli hafa rétt til Þess að tilnefna einn mann í síldarútvegsnefnd. En áður var það svo, að það voru útgerðarmenn þeirra síldveiðiskipa, sem þátt höfðu tekið í veiðunum, sem áttu rétt til þess einir að tilnefna einn fulltrúa af sinni hálfu í n. En á þessu er allmikill munur. í Landssambandi ísl. útvegsmanna eru miklu fleiri aðilar en aðeins þeir, sem gera út báta á síldveiðar. í Landssambandi ísl. útvegsmanna eru m.a. — og það mjög áhrifamiklir — Þeir aðilar, sem velja menn í nefndina gegnum önnur samtök, eins og samtök síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi og síldarsaltenda á Suðvesturlandi. í Landssambandi ísl. útvegsmanna eru flestir frystihúsaeigendur í landinu og fjöldamargir aðrir aðilar, sem engan þátt eiga beinan í síldarútgerð. Ég álít, að það skipulag, sem á var í þessum efnum áður, hafi verið miklu réttlátara en það, sem tekið er upp í 1. gr. frv. Það var mjög eðlilegt, að þeir útgerðarmenn, sem skip eiga á síldveiðum, fengju einir sér að velja einn fulltrúa í síldarútvegsnefnd, sem hefur jafnmikið vald yfir síldveiðunum og lögin segja til um og reynslan hefur sýnt. En ég álít, að með því að breyta þessu á þennan hátt, að Landssamband ísl. útvegsmanna hafi rétt til þess að tilnefna þennan fulltrúa, sé engan veginn víst, að það verði maður úr hópi síldarútvegsmanna, sem þaðan kemur. E.t.v. getur ráðh. sett ákvæði um Það í reglugerð, að fulltrúinn, sem kemur frá Landssambandi ísl. útvegsmanna, skuli vera einn úr hópi þeirra, sem gera út á síld, og þannig gæti hann einnig kannske í reglugerð sett strangari ákvæði um það, hvernig menn í nefndina yfirleitt væru valdir. Slíkt er að vísu hugsanlegt. En ég efast um, að reglur verði settar um það, miðað við þá framkvæmd, sem verið hefur á þessum málum fram til þessa, ekki aðeins af núv. hæstv. sjútvmrh., heldur og öllum fyrirrennurum hans, þá hafa menn ekki yfirleitt blandað sér í það, hvernig þau samtök velja sína fulltrúa, sem til þess hafa rétt samkvæmt lögum.
Það eru auðvitað mörg atriði í þessu frv., eins og það liggur hér fyrir, sem bera þess alveg glögglega merki, að það hefur, eins og ég sagði, engin raunveruleg endurskoðun farið fram á þessum l. Það er aðeins verið að leggja samþykki sitt á efni brbl. frá s.l. sumri. í 1. gr. segir enn fremur, að síldarútvegsnefnd skuli hafa aðsetur sitt á Siglufirði á síldarvertíð norðanlands og nm. eða varamenn þeirra dveljast þar þann tíma. Það er ekki einu sinni farið að tala um það hér, að þessi síldarvertið, sem hér er um að ræða, sé norðan- og austanlands, þó að reynslan sé nú orðin sú, að þessi síldveiði fari ekki minna fram fyrir norðausturhluta og austurhluta landsins. En það var nefnilega svo hér í gamla daga, að þessi sumarsíldveiði fór aðallega fram fyrir Norðurlandinu, og því er Þessu orðalagi auðvitað haldið óbreyttu enn. Og svo á að ákveða Það, vegna þess að það var réttmætt einu sinni, að síldarútvegsnefndarmenn eða varamenn þeirra væru staddir á Siglufirði, aðalsíldarsöltunarbænum, yfir síldveiðitímann, þá skal það vera ákveðið enn, að þar skuli þeir vera yfir sumarið, jafnvel þó að svo færi, sem hæglega gæti gert af þeirri reynslu, sem við höfum séð, að þar yrði sáralítil síldarsöltun. Ég hefði hins vegar talið miklu eðlilegra við endurskoðun að fenginni reynslu að ákveða það, að nm. í síldarútvegsnefnd skyldu yfir sumarsíldveiðitímabilið vera á þessu síldveiðisvæði eftir nánari ákvörðun n. í heild. Ef svo færi, að síldarsöltunin yrði að langmestu leyti annars staðar á síldarsvæðinu en t.d. á Siglufirði, væri ekkert við því að segja, þó að n. héldi sig þar. En samkv. l. er beinlínis til Þess ætlazt, að hún dúsi á Siglufirði, hvað sem öllu öðru líður. Orðalagið bendir til þess, þó að framkvæmdin kynni nú kannske að verða eitthvað önnur.
Þessi atriði, sem ég hef aðeins minnzt á, sýna það ásamt mörgum öðrum í frv., að það hefur engin raunveruleg endurskoðun farið fram á þessari gömlu löggjöf, sem hefði þó verið full ástæða til og samþ. hafði verið hér á Alþ, að skyldi gert. Og ég hygg líka, að þó að svo hafi verið fyrir mælt í samþykktinni frá Alþ., að Þessi endurskoðun skyldi gerð í samráði við þar til greinda aðila, síldarútvegsnefnd, Landssamband ísl. útvegsmanna, Alþýðusamband Íslands og félög síldarsaltenda, þá hafi samráðin ekki verið önnur en þau, að þeir menn, sem ríkisstj. til þess valdi, hafi rétt aðeins orðað það lauslega, einu sinni eða svo, við flesta þessa aðila, en alls ekki gefið þeim kost á því að vera með í sjálfri endurskoðuninni.
Ég vil fyrir mitt leyti láta það koma fram hér, að ég tel þetta óheppilegt og að eftir standi málið raunverulega þannig, að það þarf að láta þessa endurskoðun fara fram. Og þá held ég, að það eigi ilka að taka afstöðu til þess, að hvoru þessu skipulagi á að hallast, sem ég nefndi hér í upphafi míns máls, því að byggja hér upp raunverulega ríkisstofnun með kosnum fulltrúum frá Alþ., eða hvort á að byggja upp hitt kerfið, að gefa samtökum framleiðendanna, sem hér eiga hlut að máli, kost á því að byggja upp sín lýðræðislegu samtök og annast þessi sölumál þá sjálf, aðeins með hinu almenna eftirliti og þá nauðsynlegri íhlutun ríkisins, þegar ríkinu þykir það vera nauðsynlegt.
Ég fyrir mitt leyti hef rekið mig á það, að það er mjög hættulegt að blanda þessu valdi saman á þann hátt, sem gert er ráð fyrir í þessu frv. Ég skal nefna mönnum hér eitt dæmi, sem mætti kannske verða til þess, að þeir glöggvuðu sig betur á þessu. Samkv. því skipulagi, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., hafa aðilar utan Alþ. meirihlutaaðstöðu í n., en hins vegar gildir áfram það gífurlega mikla vald, það ríkisstofnunarvald, sem síldarútvegsnefnd var upp byggð á og hinir einstöku framleiðendur eiga tiltölulega erfitt með að hnekkja á nokkurn hátt á sínum félagslega grundvelli. Nú er það svo, að hagsmunir hinna einstöku framleiðenda eru mjög misjafnir og jafnvel breytilegir frá ári til árs varðandi síldarsöltun. Það kemur stundum fyrir, að síldarsaltendurnir sjálfir eru orðnir algerlega á móti því, að það sé haldið áfram söltun á síld, jafnvel þó að hægt sé að tryggja meiri sölu. Ég veit, að þetta hljómar heldur einkennilega í eyrum ýmissa, en við höfum alveg skýr dæmi af þessu. Þegar svo hefur til tekizt, að saltendur vita það, að þeir hafa gengið nokkuð nærri hráefninu, þeir hafa orðið nokkuð djarftækir, þá er þeim mjög illa við það, að söltunin verði þá mikil, úr því að svo er komið. Þá vita þeir, að öll yfirtaka, eins og skipulagið er byggt upp nú, verður torveldari og þeim kannske hættuleg. Það hefur því komið fyrir oftar en einu sinni, að Það hafa orðið nokkur átök á milli ríkisvaldsins annars vegar og framleiðenda í þessum tilfellum, þar sem þeir, sem höfðu gengið lengst í þessum efnum, beittu sér fyrir því að stöðva framleiðslu á þessari vöru, þjóðarheildinni til ógagns og auðvitað fiskimönnum sérstaklega til ógagns. Ég álit því, að slíkt feiknavald sem síldarútvegsnefnd er fengið samkv. þessum l. og eldri i., þá sé mjög vafasamt að ætla að færa meirihlutavaldið í n. út fyrir hið opinbera og til vissra framleiðendasamtaka.
Ég skal ekki tefja þessar umr., enda liðið nokkuð á nóttu, en ég vildi láta þessar athugasemdir mínar koma hér fram í framhaldi af því, sem ég hef sagt um þetta mál hér áður, að ég tel, að sú breyting, sem hér er gerð, sé mesta hálfkák, það hafi enn þá ekki verið tekið á sjálfu verkefninu, hvorki að Því leyti að endurskoða þessa löggjöf, sem þó var Þörf á, né heldur taka ákvörðun um það, hvaða raunverulegt skipulag á hér að leggja til grundvallar varðandi framleiðslu og sölu á saltsíld. Ég hefði því talið miklu eðlilegra, að þetta mál fengi að bíða enn um sinn og fram yrði látin fara sú endurskoðun, sem Alþ. hafði gert samþykkt um, sem ég álít að hafi raunverulega ekki farið fram enn Þá nema að nafninu til.