10.04.1962
Efri deild: 84. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1537 í B-deild Alþingistíðinda. (1300)
169. mál, síldarútvegsnefnd
Frsm. (Jón Árnason):
Herra forseti. Frv. þetta, sem hér er til umr., er ætlað að komi í staðinn fyrir lög um síldarútvegsnefnd frá 1934. Lögin, sem nú eru í gildi, eru sem sagt 28 ára gömul, svo að það er eðlilegt, að endurskoðun á þeim hafi farið fram og þurft að breyta ýmsu.
Á síðasta þingi flutti ég ásamt hv. 10. þm. Reykv. frv. um Þetta sama efni, sem gekk mjög í sömu átt. Það, sem sérstaklega er breytt frá fyrri I., varðar skipun nefndarinnar, að fulltrúum er nú fjölgað úr fimm upp í sjö. Tveir nýir koma til viðbótar, annar frá Félagi síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi og hinn frá Félagi síldarsaltenda á Suðvesturlandi. Aðrir, sem skipa n., eru: þrír, sem kosnir eru í Sþ., einn frá Alþýðusambandi Íslands og einn frá Landssambandi ísl. útvegsmanna.
Samkvæmt þessu frv. er ekki kveðið á sérstaklega um það, á hvern hátt eigi að tilnefna þessa fulltrúa frá hinum ýmsu félagssamtökum. Við hefðum talið eðlilegt, eftir því sem því yrði við komið, að það væru aðalfundir félaganna, sem kysu fulltrúana, en n. taldi þó ekki ástæðu til að flytja um það sérstaka brtt., Þar sem eins er hægt að hafa þetta reglugerðarákvæði. En það var álit n., að það væri eðlilegast, að aðalfundirnir, sem haldnir eru í flestum tilfellum árlega, — að vísu ekki hjá Alþýðusambandi Íslands, — að það væru þeir, sem tilnefndu mennina í síldarútvegsnefnd. Að öðru leyti mælir n. eða fjórir nm. með því, að frv. verði samþ. eins og það var afgr. frá Nd., en þar var gerð nokkur breyt. á 3. og 9. gr. frv., sbr. þskj. 602. Einn nm., Björn Jónsson, tók ekki afstöðu til málsins á fundi nefndarinnar.