31.10.1961
Efri deild: 10. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 136 í B-deild Alþingistíðinda. (144)
3. mál, bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga
Frsm. meiri hl. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Fjhn. hefur haft til meðferðar frv. það, sem hér liggur fyrir, en eins og nál. þau, sem útbýtt hefur varið, nál. meiri hl. á þskj. 59 og nál. minni hl. á þskj. 65 og 66. bera með sér, hefur ekki orðið samkomulag í n. um afgreiðslu málsins. Við þrír, sem að meirihlutanál. á þskj. 59 stöndum, leggjum til, að það verði samþ. óbreytt, en á það telja tveir hv. nm., þeir 1. og 5. þm. Norðurl. e., sig ekki geta fallizt. Aðalásteytingarsteinninn hefur verið það ákvæði í 5. gr. frv., að viðbótarsöluskatturinn er nú tekinn inn í þetta frv. Meiri hl. n. telur það eðlilegt og getur ekki á það sjónarmið fallizt, að með þessu sé verið að festa söluskattinn sérstaklega í sessi, þar sem þessi lög munu framvegis eins og hingað til verða framlengd frá ári til árs og því auðvelt að fella ákvæðið um viðbótarsöluskattinn niður síðar, ef fært þykir af öðrum ástæðum. Meiri hl. getur vissulega á það sjónarmið fallizt, að æskilegt sé að afnema þennan skatt við fyrsta tækifæri, því að aðflutningsgjöld eru þegar orðin hærri en góðu hófi gegnir, þannig að æskilegt væri, að á þeim væri hægt að framkvæma lækkun í einhverri mynd, ekki sízt með því að fella þennan viðbótarsöluskatt niður. En enn sem komið er er afkoma ríkissjóðs því miður ekki slík, að hann megi við því að missa þennan tekjustofn, að öðru óbreyttu. Ef fella á hann niður, verður að gera annað af tvennu að skera niður útgjöld ríkissjóðs eða sjá ríkissjóði fyrir öðrum tekjustofnum. Að leggja hins vegar til, að skatturinn verði felldur niður með öðru móti, getur varla talizt ábyrg afstaða. En svo mjög sem hv. stjórnarandstæðingar hafa barizt á móti þessum viðbótarsöluskatti, hefur mér vitanlega ekki enn þá í sambandi við það verið bent á ákveðnar leiðir til þess að lækka útgjöld ríkissjóðs né heldur til þess að sjá ríkissjóði fyrir öðrum tekjustofnum, og meðan svo er ekki, verður sú andspyrna að mínu áliti tæpast tekin alvarlega.