02.04.1962
Efri deild: 77. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1550 í B-deild Alþingistíðinda. (1470)
204. mál, vernd barna og ungmenna
Frsm. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Menntmn. hefur haft þetta frv. til athugunar, og eins og fram kemur í aths. og fram kom við 1. umr. málsins í þessari hv. þd., er hér nánast um að ræða leiðréttingu á mistökum. Menntmn. leggur einróma til, að frv. verði samþ. óbreytt, en einn nm. var fjarverandi, þegar málið var afgr. í n., eins og fram kemur í nál.