22.03.1962
Efri deild: 68. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1557 í B-deild Alþingistíðinda. (1518)

110. mál, ríkisreikningurinn 1960

Frsm. meiri hf. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Svo sem nál. meiri hl. fjhn. á þskj. 410 ber með sér, stendur n. ekki öll að Þeirri till. um afgreiðslu ríkisreiknings eða frv. um staðfestingu á ríkisreikningi, sem þar um ræðir, en meiri hl. n., sem stendur að þessu nál., leggur til, að reikningurinn verði samþ. óbreyttur.

Það er rétt að taka það fram, að svo sem kemur fram í nál., hefur farið fram samanburður, svo sem venja er, um niðurstöðutölur ríkisreikningsfrv. og ríkisreikningsins sjálfs, sem er fskj. með frv., og hefur um allar niðurstöðutölur borið saman. Ágreiningur er því raunverulega enginn í n. um það, að reikningurinn sé að efni til að þessu leyti réttur og frv. því tölulega rétt.

Frv. um staðfestingu á ríkisreikningi var vísað til fjhn. nokkru fyrir jól, og var þá óskað eftir því af hæstv. fjmrh., að frv. yrði afgreitt þannig, að það hlyti staðfestingu fyrir áramót, og var það í samræmi við þá stefnu hans að flýta framlagningu og staðfestingu ríkisreiknings, sem að sjálfsögðu horfir mjög í jákvæða átt frá því, sem áður var, því að það hefur litla þýðingu að vera mörgum árum eftir á að fjalla um reikningsskil, og er harla fánýtt hlutverk að vera að rifja allar slíkar tölur upp á nýtt eftir að mörgum árum er lokið frá því að reikningsskil voru gerð.

Ástæðan til þess, að nál. er ekki skilað fyrr en nú, er sú, að af hálfu tveggja nm., þeirra hv. 1. Þm. Norðurl. e. og hv. 5. þm. Norðurl. e., var óskað eindregið eftir því, að frv. yrði ekki afgreitt úr n. fyrir áramót vegna upplýsinga, sem þeir töldu sér nauðsynlegt að fá í sambandi við vissar aths. í reikningnum, sem ég mun síðar koma að, og var orðið við þeim óskum. Það er enn í dag, eins og kemur fram á nál. frá hv. 1. minni hl. fjhn., talið af hans hálfu, að enn sé ekki auðið að afgreiða ríkisreikninginn, og byggir hann það á þeim röksemdum, sem þar eru tilgreindar í nál., sem hann mun gera hér vafalaust nánari grein fyrir á eftir. Ég vík að þessu máli hér vegna þess, að ég tel, að af hálfu meiri hl. n. hafi verið sýnd öll sú tilhliðrunarsemi, sem auðið var að sýna, og raunverulega meir en það, vegna þess að það, sem hér var um að ræða, snerti alls ekki afgreiðslu frv. sjálfs efnislega. En þó þótti rétt að gefa mönnum færi á að afla allra þeirra upplýsinga, er þeir teldu nauðsynlegt að fá í sambandi við þá aths. endurskoðenda ríkisreiknings, sem raunverulega allar umr. hafa snúizt um, en það er aths. þeirra um rekstur á botnvörpungnum Brimnesi á sínum tíma.

Engar aðrar aths. hafa verið gerðar við ríkisreikninginn í n., enda er engum af till. endurskoðenda beint til aðgerða Alþingis, eins og stundum hefur verið gert, og eigi heldur þeirri aths., sem varðar togarann Brimnes, sem mjög er rakið ýtarlega þó í aths. endurskoðenda, og þær aths. hafa valdið þessari seinu afgreiðslu n. á ríkisreikningnum.

Það er eindregin skoðun okkar, sem skipum meiri hl. n., að raunverulega hafi engin ástæða verið til þess að biða svo lengi með afgreiðsluna. þó að rétt þætti að gera það í þeirri von, að það gæti orðið samkomulag í n. um endanlega afgreiðslu, og ástæðan er skiljanlega sú, að þessa aths. og sérstaka meðferð á því máli, sem þar um ræðir, er í rauninni ekki hægt að taka formlega upp í sambandi við þetta frv. Hins vegar er það eðlilega svo, að ef eitthvað þykir aðfinnsluvert við reikningshald ríkissjóðs, svo sem t.d. hér á sér stað, þá er að sjálfsögðu í fyrsta lagi það hlutverk endurskoðunarmanna Alþingis, sem eru sérstaklega kjörnir sem trúnaðarmenn þingsins, að gera þá till. um meðferð þess máls. Það hafa Þeir gert í aths. sinni, þar sem þeir leggja áherzlu á, að þetta verði kannað til hlítar og þeirri athugun hraðað sem mest, og jafnframt er Því svarað af hálfu ráðh., að það muni verða hagað sér í samræmi við þá niðurstöðu ríkisendurskoðenda. Það gefur auga leið, að verði ekki svo, þá hljóta ríkisendurskoðendur að fylgjast með framhaldi Þess máls og gera þá sínar aths. á sínum tíma, eftir því sem þeir telja ástæðu til. Að auki er svo auðvitað opin leið fyrir hv. þm. að vekja máls á því með öðrum hætti hér í Alþingi, ef þeir telja, að taka þurfi til meðferðar einhver sérstök atriði, hvort sem það er í sambandi við ríkisbúskapinn eða annað. En þar sem hér er ekki neinn ágreiningur um tölulegar niðurstöður ríkisreiknings né tölulegar niðurstöður þess frv., sem hér er um að ræða, þá getur það ekki á neinn hátt verið eðlilegt að stöðva staðfestingu ríkisreikningsins, þó að aths. sem þessar komi fram, sem hafa ekki nein áhrif á Þær niðurstöður. Það er því skoðun okkar í meiri hl., að ekki hafi lengur verið auðið að bíða eftir þessum hugleiðingum og athugunum hv. minnihlutamanna, og teljum við, að við höfum sýnt fullkomna tillitssemi með Því að biða allan þennan tíma með afgreiðslu reikningsins.

Varðandi viðskipti hv. 1. minni hl. við hæstv. fjmrh., þá hef ég ekkert um það mál annað að segja en það eitt, að af hálfu formanns n. var gert allt, sem í hans valdi stóð, til þess að greiða fyrir því, að hv. 1. þm. Norðurl. e., sem stendur að áliti 1. minni hl., fengi aðstöðu til að kynna sér öll skjöl og gögn varðandi rekstur Brimnessins, og það mun hafa staðið þessum hv. þm. algerlega opið að gera og hafa fengið af hálfu n. og formanns hennar alla þá fyrirgreiðslu, sem í n. valdi stóð að veita. Þetta tel ég rétt að hér komi fram, til þess að ljóst verði hv. þm. öllum um meðferð málsins í fjhn.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fara um þetta mörgum fleiri orðum, herra forseti. Það er till. meiri hl., að ríkisreikningurinn, sem tölulega er enginn ágreiningur um að sé réttur og frv. í samræmi við reikninginn, verði samþ. Það er hins vegar rétt að taka það fram, að auðvitað göngum við í meiri hl. út frá því, að framfylgt verði þeim aths., sem hv. yfirskoðunarmenn ríkisreiknings gera, bæði í sambandi við það mál, sem ég hef hér að vikið, og einnig annað það, sem þeir kunna að telja athugunarvert, og að sjálfsögðu er þess að vænta varðandi þetta sérstaka mál, að því verði framfylgt eftir því, sem öll efni standa til. Og við teljum ekki nokkurt tilefni til þess og fullkomlega ástæðulaust að láta afgreiðslu ríkisreikningsins og frv. um staðfestingu á honum bíða eftir endanlegri athugun og niðurstöðu þess máls. Legg ég því til f.h. meiri hl., herra forseti, að frv. verði samþ. óbreytt.