22.03.1962
Efri deild: 68. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1568 í B-deild Alþingistíðinda. (1520)

110. mál, ríkisreikningurinn 1960

Frsm. 2. minni (Björn Jónsson):

Herra forseti. Það mun vera næsta fátítt, að ágreiningur verði hér á hv. Alþingi um afgreiðslu ríkisreiknings, eins og nú hefur orðið að þessu sinni. Og það vill svo til, að þessi óvenjulegi atburður á sér stað, þegar reikningurinn fyrir fyrsta viðreisnarárið liggur fyrir. Til þessa ágreinings liggja ástæður, sem hv. frsm. 1. minni hl. hefur að verulegu leyti gert grein fyrir, en ég hlýt þó einnig að gera, þar sem ég stend að sérstöku nál.

Þegar frv. til samþykktar á ríkisreikningnum var lagt fram hér í hv. deild snemma í desembermánuði, var ljóst, að því fylgdu óvenjulegar og harðorðar athugasemdir frá yfirskoðunarmönnum, en allir vita, sem einhver kynni hafa haft af Þeim mönnum, sem nú gegna Því starfi, að Þeir eru mjög langt frá Því að vera sérstakir orðhákar eða árásarseggir, heldur eru það aldurhnignir og orðvarir sómamenn, sem hafa vafalaust á langri endurskoðunarævi sinni séð ýmislegt misjafnt, séð sitt af hverju af misjafnri fjármálastjórn, og þeir hafa sýnt það, að þeir kunna manna bezt að stilla orðum sínum í gott hóf, þó að jafnvel hafi verið stundum vikið af þrengsta vegi dyggðarinnar hvað fjármálastjórnina snerti af þeirra hálfu, sem hafa haft hana á hendi. Það vakti Þess vegna vissulega athygli og það langt út fyrir sali Alþingis, Þegar athugasemdir yfirskoðunarmanna nú urðu kunnar, og það alveg sérstaklega athugasemdirnar varðandi hinn víðfræga rekstur togarans Brimness. En það voru nokkrar aðrar athugasemdir, sem einnig vöktu nokkra athygli, t.d. eins og aths. nr. 36 við ríkisreikningana, þ.e.a.s. varðandi útgáfu áróðursbæklingsins „Viðreisnar“, og reyndar mætti þar telja fleiri. En það er þó eingöngu Brimnesmálið, sem varðar afgreiðslu Þessa máls, og ágreiningur um það, sem hefur klofið fjhn. um afgreiðslu þessa frv. til samþykktar á ríkisreikningnum, því að þar skilur á milli, að Brimnesmálið er að ýmsu leyti óupplýst, en hvað viðkemur öðrum aths. yfirskoðunarmanna, þá liggja málin miklu ljósar fyrir og raunar að mestu leyti í augum uppi, hvað Þar er um að vera.

Eins og öllum má vera ljóst, eru yfirskoðunarmenn ríkisreikninga fyrst og fremst trúnaðarmenn kosnir af Alþingi, til þess kjörnir að hafa sem nánasta gát á því, að ríkisstj. fari með fjármálavald sitt eftir fyrirmælum Alþingis, eins og þau felast í fjárlögum og öðrum lögum, sem varða fjárhagsmál, og til þess að gæta hagsmuna ríkisins í hvívetna og til þess að gefa Alþingi skýrslu í formi athugasemda, þegar þeir telja, að brugðið sé út af fyrirmælum Þess eða vanrækt að gæta hagsmuna ríkisins í fjármálaviðskiptum þess við aðra aðila, hvort sem þeir eru innlendir eða erlendir. Mér finnst, að Brimnesmálið sé alveg táknrænt dæmi um Það, að ríkisstj. geri hvort tveggja í senn — og það án nokkurrar nauðsynjar — að fara langt út fyrir takmörk þeirra heimilda til fjárútláta, sem fjárlög setja, og jafnframt að halda alveg sérstaklega illa á málum með hliðsjón af beinum hagsmunum ríkisins. Þetta mál er þess vegna stórmál, ekki fyrst og fremst vegna þeirra fjárhæða, sem um er að ræða, því að þær eru ekki stórar, miðað við annað á þessum síðustu tímum, heldur vegna þess, að afdrif þess hljóta að marka eða geta a.m.k. markað það mjög í framtíðinni, hvað einni ríkisstj. telst sæmandi að ganga langt út fyrir allar heimildir, sem henni hafa verið veittar af Alþingi, og hve illa hún má gæta beinna hagsmuna ríkisins í viðskiptum við aðra aðila, án þess að hv. Alþingi telji sér skylt að gera sérstakar ráðstafanir. í slíku máli hlýtur það að vera höfuðatriði, að það sé upplýst fyrir Alþingi, að það fái vitneskju um öll málsatriði, svo að það geti byggt hugsanlegar aðgerðir sínar á staðreyndum í öllum atriðum.

Það er langt frá því að vera rétt, sem hv. frsm. meiri hl. fjhn. hélt hér fram áðan, að það væri ekki hægt í sambandi við afgreiðslu ríkisreiknings að gera neinar sérstakar ráðstafanir af hálfu Alþingis. Fyrst og fremst er um það að ræða, að oft og tíðum beina yfirskoðunarmenn athugasemdum sínum til sérstakra aðgerða Alþingis, og þó að slíkt sé ekki um að ræða að þessu sinni, er það vitanlega alltaf á valdi Alþingis hverju sinni að gera sínar ráðstafanir, jafnvel þótt yfirskoðunarmenn hafi engar tillögur um það gert. En til þess að Alþingi sé fært um það að gera slíkar ráðstafanir, hlýtur það að vera höfuðatriði, eins og ég sagði, að það fái allar hugsanlegar upplýsingar, sem fyrir liggja, og það virðist alveg óhugsandi annað en alþm., nefndir, sem ætlað er að fjalla um ríkisreikninginn, og hv. Alþingi í heild eigi bæði stjórnarfarslegan og siðferðilegan rétt á að fá í þvílíku máli allar þær upplýsingar, sem eru fyrir hendi, því að annars er í raun og veru verið að gera þessum aðilum algerlega ófært að gegna skyldum sínum, þeim skyldum sínum að gera viðeigandi ráðstafanir eða tillögur um ráðstafanir í samræmi við sannfæringu sína og samvizku. En nú hafa þau undur, vil ég segja, skeð, að hæstv. fjmrh. hefur synjað minni hl. fjhn og í raun og veru nefndinni allri, því að ég ætla, að það sé ekki rangt, að meiri hl. hafi einnig verið því mjög hliðhollur, að nefndin fengi þær upplýsingar, sem við í minni hl. fórum fram á, og ég vil ekki — reyndar andstætt því, sem hv. frsm. 1. minni hl. hélt fram, skella þar skuldinni á meiri hl. nefndarmanna, því að ég get alveg viðurkennt það, að það var rétt, sem hv. 6. þm. Norðurl. e. sagði hér, að það var full tilhliðrunarsemi sýnd af hálfu meiri hl. n., og ég hef fulla ástæðu til þess að halda, að þeir hafi verið sama sinnis og við, að þeir hafi talið, að það væri óhæfa, að nefndin fengi ekki þessi gögn í hendur. En eins og ég sagði, þá hefur það nú skeð, að hæstv. fjmrh. hefur synjað þeirri nefnd, sem um þetta mál átti að fjalla, um að fá að sjá þau málsskjöl, sem vitað er að eru fyrir hendi og e.t.v. — Það er ekki hægt að fullyrða um, fyrr en menn fá að sjá skjölin — geta skýrt þetta mál allt til fulls eða a.m.k. að svo miklu leyti, sem það yfirleitt verður skýrt. Ég tel, að þessi ráðabreytni hæstv. ráðh. sé svo fráleit, að engu tali taki. Ríkisreikningur, sem lagður hefur verið fram á Alþingi til samþykktar, til synjunar eða til sérstakra aðgerða af hálfu Alþingis í einstökum atriðum, er vissulega ekki orðinn neitt einkamál hæstv. ráðh., og hann er yfirleitt ekki fremur í hans höndum en hvers annars hv. alþm., sem vera skal. Og hann hefur þá heldur engar heimildir til þess að halda neinu, sem ríkisreikninginn varðar, leyndu fyrir Alþingi, hvorki skýrslum umboðslegu endurskoðendanna né öðrum gögnum, sem geta haft áhrif á afstöðu til reikningsins í heild eða geta haft áhrif á aðgerðir Alþingis varðandi eitthvert sérstakt mál, sem reikningurinn felur í sér.

Eins og fram hefur komið, er nú ekki frekar en áður um það að ræða, að það sé ágreiningur um tölulega niðurstöðu reikningsins, og þess vegna hefðu án efa allir getað mælt með samþykkt hans. En það, sem nú orðið a.m.k. er orðið aðalatriði þessa máls, er synjun hæstv. fjmrh. á þeirri kröfu minni hl. í fjhn. að láta henni í té fyrirliggjandi gögn varðandi óupplýst atriði, sem gætu varðað hugsanlegar aðgerðir af hálfu Alþingis. Og ég vil segja a.m.k., að eftir að þessi synjun er komin fram, þá er það atriði, sem varðar meðferð hæstv. ríkisstj. á fyrirmælum Alþingis í sambandi við Brimnesmálið, í raun og veru orðið aukaatriði, sem engin ástæða er þó til að gleyma. Það skal alveg fúslega viðurkennt af mér, að ég hef ekki kynnt mér þetta svonefnda Brimnesmál til neinnar hlítar og raunar alls ekki að öðru leyti en því, að ég hef lesið vandlega yfir þær athugasemdir, sem koma fram í ríkisreikningnum frá yfirskoðunarmönnum. Og það er því fjarri mér, að ég ætli að gerast einhver dómari um það, hvað hugsanleg og meint brot Axels Kristjánssonar eru alvarleg, því að eins og hefur komið fram, bæði í aths. yfirskoðunarmanna og raunar eins í bréfi skilanefndar, sem hér var lesið áðan, þó að vissulega megi segja, að ekki batni málið við það að hafa hlýtt á þann lestur, að samt sem áður er málið, eins og það liggur fyrir í aths. ríkisreikninga, enn á athugunarstigi, rannsóknarstigi að ýmsu leyti og mjög margt óljóst.

Það er líka augljóst, að hæstv. fjmrh., bæði núv. og fyrrv., verða út af fyrir sig ekki sakfelldir fyrir það, þó að misferli eigi sér stað hjá einhverjum viðskiptaaðila ríkisins, og jafnvel ekki þó að ríkið verði fyrir beinu tjóni af þeim sökum, ef hann hefur í þeim viðskiptum frá upphafi til enda farið eftir fyrirmælum Alþingis og leitazt við að tryggja hagsmuni ríkisins á hverju stigi viðskiptanna, eftir því sem unnt var og krafizt verður. En nú sýnist mér, að það liggi augljóst fyrir, að hvorugt Þetta hafi átt sér stað í Brimnesmálinu, þegar m.a. eftirfarandi staðreyndir eru hafðar í huga: í fyrsta lagi, að í 22. gr. fjárlaga 1959 var ríkisstj. heimilað að gera botnvörpunginn Brimnes út til 1. sept. 1959, en hann var hins vegar gerður út í algeru heimildarleysi frá 1. sept. 1959 til maíloka 1960, og eins og kunnugt er, fóru tveir fjmrh. með völd á því tímabili. Það er af þessu augljóst, að útgerð togarans í níu mánuði af röskum tólf, sem útgerð hans stóð yfir, hefur verið með öllu heimildarlaus. Og það tjón, sem vafalaust er mjög mikið, sem ríkissjóður hefur beðið við það, að farið hefur verið svo geipilega langt út fyrir þá heimild, er því raunverulega á ábyrgð hæstv. ráðh. eða ríkisstj. þeirra. í öðru lagi er það, að engir skriflegir samningar voru gerðir um útgerðina, Þegar hún var fengin Axel Kristjánssyni í hendur, hvorki um það, hvernig útgerðinni skyldi hagað í aðalatriðum, né neitt annað, ekki heldur um svo sjálfsagt atriði eins og það, hvaða þóknun viðkomandi maður skyldi fá fyrir að gegna Þessu starfi að sjá um útgerðina. Og í þriðja lagi, að ekkert eftirlit hefur nokkru sinni á því tímabili, sem þarna ræðir um, verið haft með útgerðinni af hálfu hæstv. ríkisstj., og engra reikningsskila virðist hafa verið krafizt, fyrr en Axel Kristjánsson eftir eigin ákvörðun, en ekki eftir ákvörðun hæstv. ríkisstj. eða ráðh., hætti að reka skipið og tilkynnti ríkisstj. það með bréfi 25. maí 1960. Það virðist sem sagt hafa verið meiningin, að hann skyldi halda áfram að reka Þessa útgerð algerlega eftirlitslaust, svo lengi sem honum þóknaðist. A.m.k. liggur fyrir, að það er ekki að tilmælum hæstv. ríkisstj., að þessi maður hættir útgerðinni. Hann hefði þess vegna getað haldið henni áfram enn í dag á ríkisins kostnað.

Ég hjó eftir því, þegar bréf skilanefndarinnar var lesið hér áðan, að þar var talið, að 31. maí hefðu átt að vera allt að 600 Þús. kr. í sjóði hjá útgerðinni, og virðist af því og ýmsu öðru, að Það sé ekki svo litið tjón, — og getur hver maður sagt sér það sjálfur, — sem orðið hefur á útgerðinni á því tímabili, sem hún var rekin í algeru heimildarleysi. Og Það er a.m.k. algerlega augljóst, að þessi sjálfskaparvíti hæstv. ríkisstj. og reyndar þeirrar fyrrv. einnig eigi mjög drjúgan þátt í þeirri óreiðu, sem hefur átt sér stað í þessari útgerð, og misferli, sem hefur átt sér stað í sambandi við hana. í aths. yfirskoðunarmanna er það svo rakið, eftir því sem fyrirliggjandi gögn þá bentu til, að mikil óregla hafi verið á bókhaldi útgerðarinnar, og eftir að hafa skilað útgerðinni af sér, þá séu óumdeilanlega bókhaldsskekkjur og aðrar skekkjur, sem ekki séu rannsakaðar til hlítar, að upphæð a.m.k. 660 þús. kr., sem allar halli á ríkissjóð, en auk þess fleiri, sem séu grunsamlegar og nemi hundruðum þúsunda. Eftir að yfirskoðunarmennirnir hafa rakið þetta, ljúka þeir svo aths. sinni með svofelldri ályktun:

„Yfirskoðunarmenn álíta, að ekki sé viðunandi, að þessu máli sé ekki ráðið til lykta svo fljótt sem verða má og það rannsakað til fulls. Frekari dráttur á afgreiðslu málsins getur ekki orðið til gagns eða neinum til góðs.“

Hæstv. fjmrh. svarar svo þessari niðurstöðu yfirskoðunarmanna með eftirfarandi: „Ráðuneytið hefur fullan hug á því, að reikningsskilum þessarar útgerðar ljúki sem allra fyrst. Hefur ríkisendurskoðanda verið falið mátið, og vinnur hann nú að því að upplýsa þau atriði, sem enn eru óljós eða eigi hafa Verið skýrð á fullnægjandi hátt, og leggur ráðuneytið áherzlu á, að Þeirri rannsókn sé hraðað svo sem verða má.“

Í till. yfirskoðunarmanna, eftir að Þessi yfirlýsing frá hæstv. ráðh. liggur fyrir, segir svo að lokum, að rn. hafi lýst því yfir, að reikningsskilum og rannsókn þessa máls verði hraðað svo sem föng eru á og það upplýst til fulls, afgreiðsla málsins sé því til athugunar framvegis. Í svari rn. segir, eins og ég las, að ríkisendurskoðanda hafi verið falið málið og hann vinni nú, þ.e.a.s. væntanlega í byrjun desembermánaðar s.l., að því að upplýsa það að fullu. Síðan er nú liðið á fjórða mánuð, og eins og hv. frsm. 1. minni hl. fjhn. upplýsti hér áðan, barst fjhn. sú vitneskja fyrir alllöngu, að ríkisendurskoðandi hefði lokið sínu verki, sem væntanlega hefur verið í því fólgið, eins og hæstv. fjmrh. tók fram í svari sínu, að upplýsa málið til fulls, og að hann hafi sent ráðh. endanlegar niðurstöður þessarar rannsóknar.

Þegar Þessi vitneskja hafði borizt okkur í n., þá er Það, að við í minni hl. krefjumst Þess, að n. fái að kynna sér þessa lokaniðurstöðu þessarar athugunar, sem fjmrh. hafði í svari sínu við aths. ríkisendurskoðanda talið að mundi upplýsa málið til fulls. Við fengum fljótlega þau svör við Þessu, að hæstv. ráðh. hefði enn ekki haft tíma til að kynna sér skýrsluna og niðurstöður þessarar rannsóknar og við gætum því ekki fengið að sjá þetta að svo stöddu. Síðan eru liðnar nokkrar vikur, og annaðhvort er, að hæstv. ráðh. hefur ekki enn getað leyft sér sakir embættisanna við önnur störf að kynna sér þetta mál, eða þá, sem virðist líklegra, þegar svo langur tími er liðinn, að hann vilji alls ekki, að þn. eða hv. Alþingi fái þær upplýsingar, sem í Þessari fullnaðarrannsókn felast, og fyrirheit hans um það að upplýsa þetta mál að fullu og svo fljótt sem verða má eru sem sagt efnd á þann hátt að halda leyndu fyrir hv. Alþingi skýrslum og upplýsingum og jafnvel endanlegum niðurstöðum í málinu. Það er fyrst og fremst þetta, sem við í minni hl. viljum ekki una, og þess er vissulega að vænta, að hv. þd. vilji ekki heldur una því, að hún sé leynd mikilsverðum gögnum, sem henni eru nauðsynleg, til þess að hún geti byggt afstöðu sína á öruggum staðreyndum. Eða er e.t.v. svo komið, að sérstaklega þurfi að minna meiri hl. hv. alþm. á það, að þeir eru miklu fremur húsbændur hæstv. fjmrh. en hjú hans, og þá jafnframt hæstv. fjmrh. á það, að hann er enginn einræðisherra, sem getur leyft sér að storka þingheimi með því að neita að upplýsa mál eins og það, sem hér ræðir um, og halda leyndum gögnum, sem yfirskoðunarmenn ríkisreikninga leggja áherzlu á að sé aflað og vitað er, að eru fyrir hendi? Eða telur hæstv. ráðh., að viðskipti hans og fyrirrennara hans við Axel Kristjánsson séu ríkisleyndarmál? Telur hann það? Og hverju getur yfirleitt verið hér að leyna, sem Alþingi og raunar öll þjóðin, úr því sem komið er, hafa ekki fyllsta rétt á að fá að vita?

Vissulega er öll forsagan í þessu máli og frammistaða tveggja fjmrh. í því þvílík, að þar virðist ekki vera á neitt bætandi fyrir þá um auknar grunsemdir, heimildarlaus hallarekstur, afhending milljóna af almannafé án trygginga og eftirlits eða samninga af nokkru tagi virðast vera alveg nægileg sakarefni, þó að eftirleikurinn sé ekki eins og þessi síðustu viðbrögð benda til að þau verði.

Engan veginn getur verið um það að ræða, að dragi úr grunsemdum, hvorki í garð hæstv. ráðh. né heldur þess manns, sem þarna á sérstakan hlut að máli, við slík vinnubrögð. Ef Axel Kristjánsson er ekki sekur eða minna sekur en yfirskoðunarmenn gefa tilefni til að álíta, þá virðist mér eina leiðin til þess að hreinsa hann af ásökunum um misferli, sem hann kann að vera saklaus af, að fram fari fullkomin rannsókn, réttarrannsókn, ef ekki vill betur til, nema þá því aðeins að endanleg rannsókn ríkisendurskoðanda, sem átti skv. fullyrðingum hæstv. ráðh. að upplýsa málið til fulls, hafi kollvarpað öllum ásökunum yfirskoðunarmanna ríkisreikninganna í garð þessa manns og í garð hæstv. ríkisstj. Og ef svo er, þá er það vissulega ekki lítill ábyrgðarhluti af hálfu hæstv. fjmrh. að halda leyndum gögnum, sem gætu hreinsað þennan mann af þungum ásökunum. Ef hins vegar rannsókn ríkisendurskoðanda staðfestir þær ásakanir, sem yfirskoðunarmenn bera á þennan viðskiptaaðila ríkisins, þá er það auðvitað líka augljós skylda hæstv. ráðh. eða Alþingis eftir atvikum að gera viðeigandi ráðstafanir í samræmi við það.

Það er þess vegna alveg sama, hvernig þetta mál er skoðað, að sú ákvörðun hæstv. fjmrh. að neita að gefa upplýsingar, sem hann hefur í höndum, er óverjandi með öllu og hlýtur að ýta undir enn þá verri grunsemdir en enn hafa komið fram í þessum málum. Eins og þetta mál liggur nú fyrir, virðist mér, að engin sæmileg leið sé til fyrir hv. þd. til þess að afgreiða það endanlega eins og sakir standa. Hv. d. hlýtur að gera þá kröfu til hæstv. fjmrh., að öll fyrirliggjandi gögn séu lögð á borðið, svo að hún fái eftir réttum upplýsingum mótað sína afstöðu. Til þess að þrýsta á þá kröfu, sem virðist ekki vera vanþörf á, sýnist mér eðlilegast, að hv. d. samþykki að fjalla ekki frekar um þetta frv., fyrr en hæstv. ráðh. hefur veitt fjhn. eða allri hv. d. þær upplýsingar, sem enn er haldið leyndum fyrir okkur.

Ég hef þess vegna leyft mér að flytja með nál, mínu, sem að vísu hefur enn ekki verið útbýtt, dagskrártillögu, sem felur slíka frestun í sér, og ég tel, að ef hv. d. féllist á þá till., þá væri skapað glöggt fordæmi og eftir því sem nú virðist alveg nauðsynlegt fordæmi um það, að hv. Alþingi eigi fullan rétt á því að fá í sínar hendur allar fyrirliggjandi upplýsingar varðandi ríkisreksturinn og að ráðh. verði ekki, hvorki nú né síðar, liðið að ögra valdi Alþingis með því að halda slíkum upplýsingum leyndum.