22.03.1962
Efri deild: 68. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1585 í B-deild Alþingistíðinda. (1523)

110. mál, ríkisreikningurinn 1960

Frsm. meiri hl. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Hv. frsm. 1. minni hl. fjhn. kvartaði yfir því í fyrri ræðu sinni, að í málflutningi mínum hér og framsögu fyrir meiri hl. n. hefði verið mikið logn, eins og hann orðaði það, og verða naumast orð hans skilin á annan veg en þann, að honum hafi þótt ástæða til, að ég hefði verið hvassari í orðum mínum, er ég talaði fyrir meiri hl. Ég sá ekki ástæðu til á því stigi málsins að vera að efna til neinna eldhúsumræðna, því að sannast sagna gefur málið, sem fyrir liggur, ekki tilefni til þess. Ég ræddi því málið á sama hátt og gert hefur verið, þegar talað hefur verið fyrir ríkisreikningi á undanförnum þingum, og hefur stundum fallið í minn hlut að gera það og ríkisreikningur jafnan verið afgr. án þess, að mikið stórviðri geisaði í deildum þingsins, þegar það var gert. Og ef hefði verið farið að venjulegum starfsháttum í þingi á undanförnum árum og ekki komið annað til, þá átti það auðvitað einnig að vera svo nú, enda lá ekki fyrir nein gagnrýni frá minni hl. n. á nokkrum einstökum atriðum reikningsins sjálfs, og er það út af fyrir sig eftirtektarvert, ekki sízt þegar lögð var á það áherzla hér áðan af frsm. 2. minni hl., að þessi reikningur væri merkilegur að því leyti, að hann væri fyrsti reikningur viðreisnarstjórnarinnar. Engin gagnrýni á efni reikningsins hefur komið fram og því ástæðulaust að vera með neinn eldhúsdagsblæ á sinni ræðu. Hitt er svo aftur annað mál, að málflutningur minnihlutamanna hér og þá fyrst og fremst málflutningur hv. 1. þm. Norðurl. e. (KK), þegar hann talaði fyrir sínu nál. og nú í síðustu ræðu hans, er með þeim hætti, að það gefur fullt tilefni til þess að taka nokkuð harðara til orða en ég gerði í minni frumræðu, og er mér þó, held ég, ekkert sérstaklega gjarnt til að nota stærri orð en tilefni gefst til. Hitt er annað mál, ef haldið er fram málflutningi, sem ósæmandi má teljast, þá hlýtur það af eðlilegum ástæðum að leiða til þess, að svarað verði með nokkuð ákveðnara orðalagi.

Ég mun ekki í þeim orðum, sem ég mæli hér, ræða sérstaklega um það atriði, sem var nokkuð veigamikið í ræðu hv. 1. Þm. Norðurl. e., að hv. fjmrh. hefði neitað um upplýsingar, sem honum hafi verið skylt að gefa fjhn. Hæstv. ráðh. hefur svarað því sjálfur svo rækilega, að það er ástæðulaust, að ég taki upp hans rök fyrir því máli. Ég vil taka það fram, að ég hef ekki séð heldur það bréf, sem hann minntist hér á. Ég hef hins vegar séð þær athuganir, sem gerðar hafa verið á reikningum Brimnesútgerðarinnar, og þó að ég hafi ekki skoðað það allt niður í kjölinn, hef ég haft eins og aðrir nm. fulla aðstöðu til þess að skoða þau gögn öll, og ég verð að taka algerlega undir það með hæstv. ráðh., að það væri í alla staði fjarstæða, að hann færi að birta þingnefnd, hvort sem það væri í trúnaði eða ekki, bréf, sem er á Þann hátt og þannig til komið eins og hann lýsti hér í sinni ræðu. Það væri fráleitt, að það væri gert. Og þingnefnd á sannarlega enga kröfu á, að slíkt sé gert. Hitt er allt annað mál, sem er auðvitað jafnrétt, að ef um er að ræða rannsóknir og niðurstöður rannsókna í sambandi við efnisatriði máls sem þessa, þá tel ég það jafnsjáifsagt, að n. þingsins fái rétt til að skoða það. Það, að trúnaðarmenn ráðh. hverju sinni og embættismenn, sem eru nánir samstarfsmenn hans, megi vænta þess, að hugleiðingar, sem þeir kunna að vilja koma á framfæri við ráðh. og eins og hér hefur verið upplýst af hæstv. ráðh. snerta formsatriði þessa máls og eru nánast hugleiðingar um, hvernig eigi að vinna að einstökum þáttum þess, — ef embættismenn ættu það í húfi, að slíkar upplýsingar yrðu ætíð birtar þingnefnd eða einhverjum öðrum aðilum, sem þóknaðist að heimta þær, þá hygg ég, að það geti skapað mikil vandkvæði og erfiðleika. Ég hef sjálfur starfað í stjórnarráði og unnið að ýmsum skýrslugerðum fyrir ráðh., og ýmsar þær athuganir eru þess eðlis, að það væri fráleitt og ég hefði talið það fjarstætt með öllu og alls ekki hægt að vinna að málum og koma fram ábendingum, sem eðlilegt var að fram kæmu og óskað var eftir af ráðh., ef slíkar skýrslur hefði átt að nota á opinberum vettvangi. Það er fjarstætt að ætla að fara að gera. það að meginatriði máls hér, að það séu framin einhver stórvægileg afbrot af ráðh. að neita. um upplýsingar, sem eru af þessu tagi. Það tel ég svo fjarstætt, að það sé alls ekki þinglegt að halda fram slíkum fullyrðingum.

Það var upplýst og hefur enda ekki verið mótmælt hér af talsmönnum minni hlutanna, að í fjhn. hafi verið sýnd mikil tillitssemi með frestun á afgreiðslu þessa máls, — frestun, sem var þó raunar ástæðulaus. Allir, sem hafa kynnzt meðferð ríkisreikninga á þingum á undanförnum árum, vita, að hvað eftir annað hafa komið þar fram ýmsar ábendingar og aðfinnslur og það oft í töluvert veigamiklum málum, sem beinlínis hefur verið vísað til aðgerða Alþ. Það hefur aldrei komið fyrir, að það hafi komið fram sú hugmynd, sem enda hefði verið fráleit. að fresta afgreiðslu ríkisreikningsins út af slíkum athugasemdum. Þótt slíkar aths. komi fram. geta þær ekki, eins og hæstv. ráðh. réttilega upplýsti, haft nokkur áhrif á niðurstöður reikningsins sem slíks. Hitt er allt annað mál, að athugasemdir sem þessar geta vel gefið tilefni til, að gerðar verði sérstakar ályktanir á Alþ., sem alls ekki er efnislega hægt að koma að í sambandi við afgreiðslu frv. um staðfestingu ríkisreiknings. Það er naumast hægt að hugsa sér, að formlega sé hægt að koma slíkum bollaleggingum að í sambandi við það frv. eða afgreiða það efnislega. Þegar slíkar aths. koma fram, sem endurskoðendur benda á, þá er auðvitað sjálfsagt, eftir því sem þm. og þingn. telja tilefni til, að það sé tekið til athugunar og eftir atvikum þá gerðar sérstakar ályktanir, lagðar fram sérstakar ályktunartillögur, jafnvel þáltill., til að marka afstöðu Alþ., ef ástæða þykir til.

Það er auðvitað alger misskilningur hv. 1. þm. Norðurl. e. á mínum orðum, að ég telji það eitt hlutverk Alþ. að bera saman niðurstöðutölur á reikningnum við frv. og að það eigi ekki að skoða málið efnislega. Það liggur í augum uppi, að fjhn. þingsins hljóta að skoða efnislega og athuga athugasemdir trúnaðarmanna Alþ., yfirskoðunarmanna, og svör ráðh. við þeim athugasemdum. Það hygg ég að jafnan sé gert í fjhn. og oft í framsöguræðum vikið að, ef sérstakar ástæður þykja til að ræða þau efni, og því út af fyrir sig ekkert við það að athuga, þó að t.d. hefði verið vakið máls og vakin athygli á athugasemdum — í þessu tilfelli varðandi útgerð Brimness. Það er síður en svo og ekki nema eðlilegt, að það sé gert. En að fresta ríkisreikningi vegna þess, að það séu einhverjar slíkar athugasemdir, sem fram koma, og getið um, að séu viss mál, sem séu í rannsókn eða athugun, annaðhvort hjá ríkisstj. eða endurskoðendum ríkisreiknings, — að fresta ríkisreikningi af þeim sökum er auðvitað gersamlega fráleitt, því að það getur ekki haft nokkur áhrif á gang málsins.

Það er í rauninni ákaflega einkennileg ályktun, þegar hv. 1. þm. Norðurl. e. segir hér með miklum þunga, að ef þessi hv. d. ætlaði að fara að afgr. ríkisreikninginn núna, þá væri hún að leggja blessun sína yfir þær misfellur, sem hafa átt sér stað. Ég skil ekki, hvernig er hægt að draga slíka ályktun, vegna þess að með samþykkt ríkisreikningsins er að sjálfsögðu einnig lagt samþykkt á aths. endurskoðenda, og í þeim athugasemdum, sem þessir hv. minnihlutafulltrúar einmitt byggja rök sín á, er einmitt sú áherzla lögð á rannsókn þessa máls og að fá niðurstöður í því máli svo fljótt sem verða má og undir það tekið í svari fjmrn., að með samþykkt reikningsins er beinlínis verið að staðfesta, að það sé vilji þingdeildarinnar, að þessu máli sé fylgt eftir eins og þar er gert ráð fyrir. En að þingdeild eða fjhn. Alþ. fari að vera rannsóknaraðili á eitthvert einstakt mál af því tagi, sem er um að ræða, það held ég að sé algerlega einstakt fyrirbrigði, svo að ég taki nú upp orð hv. 1. þm. Norðurl. e., sem mikið vitnaði um fordæmalausa hluti. Það er gersamlega útilokað, að þingnefnd geti framkvæmt slíka athugun. Það er þá nær lagi, eins og lagt hefur verið til í ályktun hér á Alþ., að sett verði upp sérstök rannsóknarnefnd skv. stjórnarskránni á vegum Alþ. til að rannsaka þetta mál. Það er að sjálfsögðu formlega rétt, en hitt atriðið er fráleitt og útilokað, að hægt sé að framkvæma málið þannig.

Af þessu er því augljóst, að því fer víðs fjarri, að Alþ. með því að samþ. ríkisreikninginn, sem hér liggur fyrir, sé að taka á sig ábyrgð á þeim misfellum, sem hér kunna að hafa átt sér stað í sambandi við útgerð Brimness. Það er eiginlega litt skiljanlegt, að menn skuli geta dregið slíkar ályktanir af meðferð málsins. Það er auðvitað ekkert nýtt, að það hafi komið fram ýmiss konar misfellur eða grunur um misfellur í sambandi við ýmis atriði, sem beinlínis snerta ríkið eða ríkissjóð, og þeim málum hefur af eðlilegum ástæðum verið þannig hagað, að þau hafa verið rannsökuð eftir venjulegum leiðum, annaðhvort af ríkisendurskoðun eða ráðuneytið hefur látið sérstaklega athuga þau mál.

Það liggur vitanlega í augum uppi, að ef það væri niðurstaða þessarar hv. d. að taka undir þá kröfu hv. minnihlutamanna í fjhn., að það verði að stöðva ríkisreikninginn og að fjhn. eigi að taka þetta mál að einhverju leyti í sínar hendur, þá er það um leið að sjálfsögðu fullkomin vantraustsyfirlýsing á hæstv. fjmrh., að honum sé ekki treystandi til þess að framkvæma þá skyldu sína, sem á honum hlýtur eðlilega að hvíla, að þetta mál verði rannsakað til hlítar og að menn verði látnir sæta ábyrgð, eftir því sem efni standa til, ef um sök er að ræða. Þetta held ég að hljóti að liggja í augum uppi. Því er það meir en lítil — ég vil segja nánast ósvífni að gera þá kröfu hér, sem er auðvitað fjarstæða, til hæstv. forseta, að hann beiti forsetavaldi til þess að hindra, að það séu gerðar ályktanir hér um þetta mál. Slíkt væri náttúrlega einsdæmi, og getur engum hugkvæmzt í alvöru að bera fram slíka kröfu. En þessi málflutningur, einkum hv. 1. þm. Norðurl. e., gæti helzt valdið því, að mætti sjá eftir því af hálfu okkar meirihlutamanna í fjhn. að hafa verið að gefa allt þetta tóm, sem gert hefur verið, og fresta þessu máli, svo sem var gert, í þeirri trú, að hér væri hv. 1. þm. Norðurl. e. að sækjast eftir að vilja afgreiða málið á eðlilegan máta og með eðlilegum röksemdum, og í því trausti voru Þessir frestir gefnir, en ekki til að nota það með jafneindæma furðulegum og óvenjulegum hætti og hann hefur gert hér með ræðum sínum í dag.

Ég held, að það geti naumast dulizt nokkrum hv. þm., að það mál, sem hér er verið að blása út, sem verður auðvitað látið lúta alveg sömu lögum um rannsókn og önnur slík mál hljóta og eiga að fá, að allt moldviðrið út af þessu máli í sambandi við ríkisreikning er auðvitað borið fram af allt öðrum hvötum en svo einlægri réttlætisást, að menn geti ekki af þeim sökum hugsað sér að afgreiða efnislega ríkisreikning. Það held ég að engum geti dulizt, að það er allt annað, sem liggur að baki. Það er full ástæða til þess að álíta, að ítrekaðar tilraunir og aðgerðir hv. framsóknarmanna, sem hafa sérstaklega gengið fram fyrir skjöldu til þess að hindra afgreiðslu ríkisreiknings nú í tvö skipti, stafi að verulegu leyti af því, að þeim mislíkar það, að sú mikla breyting hefur orðið á reikningshaldi ríkissjóðs, að nú er farið að afgreiða ríkisreikning með eðlilegum hætti. En ég verð mjög að harma það, að slík afstaða hefur veríð tekin. Það hefur ekki verið venja á undanförnum árum, hvaða ráðh. sem hefur haft með ríkisreikning að gera, annað en að ríkisreikningur væri afgreiddur með eðlilegum hætti. Vitanlega hefði æ ofan í æ verið hægt að gera svipaðar aths. við ríkisreikning eins og gerðar hafa verið bæði nú og í fyrra. Ég skyldi leika mér að því að taka hvern einasta ríkisreikning, sem hæstv. fjmrh. Framsfl. lagði hér fyrir Alþ., og gera hann upp með Þeim aðferðum, sem hér hafa verið notaðar. Það eru mýmargar ástæður í þeim reikningum til þess að viðhafa slíkan málflutning, ef menn á annað borð vilja fá sig til þess. Þetta hefur ekki verið gert, vegna þess að menn hafa ekki talið það eðlileg vinnubrögð að gera þetta á þennan hátt og fara að nota ríkisreikninginn út af fyrir sig sem einhvern grundvöll til eldhúsumræðna.

Eins og ég sagði í framsöguræðu minni, er það að sjálfsögðu skoðun meiri hl. fjhn., sem leggur til, að þetta frv. til staðfestingar ríkisreikningi verði samþ., að málum verði haldið áfram eins og fjmrh. hefur lýst yfir að gert verði og beinlínis er tekið fram í aths. með reikningnum. Það er beinlínis með hliðsjón af þessu og af því að við viljum taka undir þær aths., að við sjáum ekki ástæðu til að fara að breiða sig yfir þetta mál á þessu stigi, þegar málið er alls ekki fullathugað. Það gefast áreiðanlega tækifæri til þess, þegar öll kurl eru til grafar komin, ef menn telja, að vanrækt hafi verið af hálfu hæstv. fjmrh. að fylgja máli eftir á eðlilegan hátt, að gagnrýna það. En þessi stund er ekki hin rétta stund til að gagnrýna þá málsmeðferð, meðan niðurstöður alls ekki liggja fyrir og ekkert er vitað um það, hvað af ráðuneytisins hálfu verður gert í þessu máli, og ekkert liggur heldur fyrir, sem gefur tilefni til Þess að halda, að af ráðuneytisins hálfu sé málinu seinkað, — ekki neitt. Það er því að eyða tíma Alþingis algerlega að ástæðulausu og ég vil segja á ósæmilegan hátt, hvernig reynt er að nota þetta mál til að halda uppi þeim málflutningi, sem hér hefur verið gert og þá fyrst og fremst af hv. 1. minni hl. fjhn.

Það er svo mál út af fyrir sig, sem hlýtur að valda því, að manni verði að brosa, a.m.k. með sjálfum sér, þegar maður hlustar á hv. framsóknarmenn, þegar þeir æ ofan í æ á þingi nú síðustu árin, síðan þeir urðu áhrifalausir, hafa breitt úr sér af vandlætingu yfir meðferð, aðgerðum eða aðgerðaleysi hæstv. ríkisstj. í einstökum málum. Ég skal ekki á þessu stigi fara út í þá sálma, en manni kynni nú kannske að leyfast að láta í ljós þá spurningu, hvort það sé í huga hv. framsóknarmanna sú hugsun, að það gæti verið, að valdhafar létu sér detta í hug að svæfa mál, sem væri eitthvað hæpið. Ég skal ekkert segja, af hverju sú hugsun kemur sérstaklega fram hjá þeim, það verða þeir að eiga við sjálfa sig. En það er ekki skoðun okkar, sem skipum meiri hl. fjhn., að þetta mál, sem hér er um að ræða, verði látið sæta nema eðlilegri meðferð og viðkomandi aðilar, ef Þeir reynast sannir að einhverri sök, verði látnir sæta ábyrgð. Það er hinn eðlilegi háttur, hverjir sem hlut eiga að máli. Og það er fullkomlega í trausti þess, sem við viljum afgr. þetta mál og teljum gersamlega ástæðulaust á Þessu stigi málsins að vera með nokkrar fullyrðingar eða aðdróttanir um það, að þessu máli verði ekki haldið til réttra laga, eftir því sem tilefni gefst til, þegar endanlegar niðurstöður liggja fyrir.

Ég vil aðeins að lokum endurtaka Það, að ég harma Það mjög, að svo mætur maður sem hv. 1. þm. Norðurl. e. skuli ljá sig til þess að taka upp orðræður sem þessar í sambandi við Það mál, sem hér liggur fyrir formlega að afgreiða, og skuti nota svipaðan málflutning og ég vil nú ekki segja röksemdir, heldur tilraunir til röksemda, sem hann hefur gert í þessu sambandi. Ég held, að það sé í rauninni andstætt skoðunum hans sjálfs, sem lengi hefur haft afskipti af þessum málum og veit, hvað eðlilegir starfshættir eru í sambandi við afgreiðslu máls sem þessa, og það hljóti því að vera önnur öfl, sem þar standa að baki, að þess hafi verið krafizt af honum, að hann færi að gera hér eitthvert eldhús út af Þessu máli, reyna að tefja það með öllu móti, að það fái eðlilega afgreiðslu, og reyna að gera tortryggilega hluti, sem gersamlega er ástæðulaust að halda að verði ekki leystir með eðlilegum og lögmætum hætti.