26.03.1962
Neðri deild: 74. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1594 í B-deild Alþingistíðinda. (1529)
110. mál, ríkisreikningurinn 1960
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Hæstv. forseti. Þetta frv. til laga um samþykkt á ríkisreikningnum fyrir árið 1960 er að vanda samið eftir ríkisreikningi. Frv. til fjáraukalaga eftir tillögum yfirskoðunarmanna ríkisreiknings var um leið og þetta frv. lagt fyrir þingið og hefur þegar verið afgreitt í Sþ. sem lög. Í athugasemdum yfirskoðunarmanna er að þessu sinni engu máli vísað til aðgerða Alþingis. Ég sé ekki ástæðu til að ræða þetta frv. nánar að sinni og legg til, að því sé vísað til 2. umr. og hv. fjhn.