12.04.1962
Neðri deild: 90. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1610 í B-deild Alþingistíðinda. (1536)

110. mál, ríkisreikningurinn 1960

Jón Pálmason:

Hæstv. forseti. Þessi upplestur hv. siðasta ræðumanns úr aths. og skýrslum varðandi þetta Brimnesmál raskar engu af því, sem ég tók hér fram áðan. Ég fór ekkert inn á það og geri heldur ekki að verja þetta vandræðamál, hvorki reikningshald né annað. en hitt stendur og er sjálfsagt: Það, sem óupplýst er í þessu máli, á að upplýsast og það til fulls, og Það raskar ekki neinum reglum frá því, sem verið hefur, þó að það sé látið bíða yfirskoðunar og afgreiðslu næsta ríkisreiknings. — Hv. þm. sagði, að það væri liðið á annað ár, síðan þetta hefði gerzt, að hér væri um þessar aths. að ræða. Það er alger misskilningur. Okkar aths. eru undirskrifaðar 21. nóv. og okkar úrskurðartillögur 7. des. s. l. Það er þess vegna fjarri því, að það sé liðinn mjög langur tími síðan, og málið hefur verið í áframhaldandi athugun og endurskoðun hjá endurskoðunardeild fjmrn., og eins og þegar hefur komið fram, þá er þeirri rannsókn ekki lokið. En að fara að heimta það, að afgreiðslu ríkisreikningsins sé frestað vegna þess, að upplýsingum er ekki að fullu lokið um þetta mál, það er alveg ný aðferð. Og það hefur ekkert komið fram, hvorki frá minni hl. fjhn. né öðrum, sem hér hafa um þetta talað, að þeir efist um, að þessar 497 þús. kr., sem var greitt sem ábyrgðarskuld við þetta, það hafi verið borgað, og það er það eina, sem í ríkisreikningnum er. Allt, sem við höfum fundið að og er í þeim skýrslum, sem hv. þm. var að lesa upp úr, það er í reikningum fyrirtækisins og þeim skýrslum, sem um Það hafa komið fram. Hér er þess vegna engu spillt varðandi upplýsingar í þessu máli, þó að þessi ríkisreikningur sé samþykktur eins og hann liggur fyrir og þess krafizt, eins og við gerum, að málið sé athugað í sambandi við næsta reikning.