13.03.1962
Efri deild: 63. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1628 í B-deild Alþingistíðinda. (1547)
170. mál, Stofnalánadeild landbúnaðarins
Bjartmar Guðmundsson:
Herra forseti. Hæstv. landbrh. hefur gert svo rækilega grein fyrir þessu frv. og rakið efni þess, að ég tel ekki ástæðu til að fara um það mörgum orðum til viðbótar, en vildi þó segja örfá orð, sem ætti þá að vera að einhverju leyti annað en ræða hans, því að ég vil ekki vera að endurtaka það, sem hann hefur sagt.
Á umliðnum aldarfjórðungi eða svo hefur gerzt mikið ævintýri hér á landi á sviði verklegra umbóta og tækniumbóta, en varla þó annars staðar eins mikið og í sveitunum, miðað við alla aðstöðu þar. Á þessum tíma hefur bóndinn orðið að byggja upp hvert hús á jörð sinni í gerbreyttu formi frá því, sem var um aldaraðir, rækta völl handa tvöfalt, þrefalt, fjórfalt stærri bústofni en jörðin áður bar, kaupa vinnuvélar fyrir 100, 200, 300 þús. kr., miðað við núgildandi verðlag, til þess að geta skilað fullu dagsverki á nýræktinni. Allt þetta hefur kostað hann í minnsta lagi 1 millj., 2 millj., 3 millj. kr., miðað við núv. verðlag. Samhliða þessu hefur svo uppvaxandi æska horfið þaðan jafnt og þétt yfir í aðra atvinnuvegi, þegar búið var að ala hana upp, svo að annar hver bóndi hefur verið einyrki. Það er þess vegna alveg furðulegt, hverju þeir hafa getað komið í verk.
En hvers vegna standa sveitabændur í þessu stímabraki, erfiði og tilkostnaði við að byggja hús og rækta jörð? Þeir gera það auðvitað af ýmsum ástæðum, en öðrum þræði og einkum þó margir hverjir til að búa í haginn fyrir eftirkomendurna, hverjir sem það verða. Aðrar stéttir búast við að geta selt sín handaverk fullu verði, jafnvel með ágóða. Allir vita, að ekki verður sveitabýli selt, þegar bóndinn hættir að geta búið þar, fyrir heila millj. eða meira, í mesta lagi af Því. sem búið er að leggja í jörðina. Uppbygging sveitanna hefur ekki verið fyrst og fremst fyrir liðandi stund. Sé hún reist á réttum grunni, er hún fyrst og fremst fyrir framtíðina.
Þegar lög voru gerð um byggingarsjóð sveitabæja og ræktunarsjóð nokkru síðar, eða 1935, vakti sá skilningur undir, að bændur væru ekki að byggja fyrir sjálfa sig aðeins, heldur einnig fyrir komandi tíma. Hið sama liggur til grundvallar smávægilegum styrkjum, sem þeir hafa fengið fyrir jarðabætur samkv. jarðræktarlögum. Búnaðarsjóðirnir hafa af þessum ástæðum jafnan verið látnir lána til langs tíma með vægari vöxtum en aðrar lánastofnanir til að dreifa skuldaþunganum á lengri tíma og flytja nokkuð af honum yfir á þann, sem koma skyldi. á eftir þeim, sem framkvæmdina gerði. Að þessu hefur orðið mikill styrkur og hvöt til athafna. Jafnan hafa þessir sjóðir þó verið mjög févana og ekki getað lánað líkt því eins mikið og þurft hefði, og í reynd hefur það orðið, að hið opinbera hefur greitt þann kostnað, sem af starfsemi þeirra stafaði, og nokkurn mismun vaxta. En er fram leið, fóru framkvæmdir, einkum í byggingum, mjög vaxandi. Þá fóru að myndast skuldir á vegum sjóðanna, sem aka varð með einhverju móti áfram, unz taka varð til skóflunnar og moka frá. Við og við hefur ríkisvaldið létt Þannig af sjóðunum nokkrum upphæðum. Það skal hér fyllilega viðurkennt, að talsvert hefur á þennan hátt verið greitt af almannafé til stuðnings þeirri ótrúlegu fjárfestingu, sem búið er að gera á tveim til þrem áratugum í sveitunum. Fjarri fer því. að ég vilji fara út í meting um eitt eða neitt, en minni aðeins á, að Það eru þær aleinu ríkisábyrgðir, sem fallið hafa á ríkissjóð vegna bænda og raunar þó ekki þeirra bænda, sem unnið hafa verkin, heldur þeirra, sem á eftir koma.
Með frv. því, sem hér liggur fyrir til umræðu, er gert mjög myndarlegt átak og leitazt við að tryggja starfsgrundvöll stofnlánasjóða landbúnaðarins, byggingarsjóðs og ræktunarsjóðs, og breyta báðum í eitt með nýju nafni, stofnlánadeild landbúnaðarins. Markmið þeirrar deildar er nokkurn veginn það sama og hinna gömlu sjóða, lánveitingar út á umbætur á sveitabýlum, en nokkru þó við bætt frá því, sem áður var, og tilætlunin að lána út á margt fleira en til þessa hefur reynzt fært, þótt lög væru fyrir því, og olli þar féleysi. Af töflum, sem fylgja með athugasemdum um þetta frv., er sýnt á reikningslegan hátt, hvernig lánadeildinni er ætlað að byggja sig upp með tímanum, er hún hefur fengið fasta tekjustofna árlega, sem nú eru mjög auknir með þessu frv., eða a.m.k. 25 millj. og þar að auki 60.5 millj. til þess að mæta gömlum skuldum, sem hvíla á stofnlánasjóðunum. Það mun varla leika á tveim tungum, að hér er um mjög mikla umbót að ræða frá eldri lögum og lagður grundvöllur að nauðsynlegri lánastarfsemi Búnaðarbankans og hann mjög treystur, ef frv. verður að lögum. Athugasemdir, sem fylgja, eru ýtarlegar og allvel sannfærandi. Hins vegar dylst ekki, að það muni taka nokkurn tíma að byggja upp stofnlánadeildina, svo að hún þurfi ekki á miklum lántökum að halda fyrst í stað til að geta valdið hlutverki sínu, en það er það að lána verulega miklu hærri upphæðir en verið hefur út á íbúðarhús, einkanlega þau, og einnig út á peningshús og um leið að taka upp lánveitingar út á vélar til landbúnaðarstarfa og til bústofnskaupa. Þetta kallar mjög á að auka lánveitingar til Þessara hluta vegna aukinnar dýrtíðar.
Um einstakar greinar frv. skal ég ekki vera fjölorður. Ég vil þó aðeins minnast á 12. gr., en þar er gert ráð fyrir, að stofnlánadeildin geti að fengnu ríkisstjórnarleyfi tekið allt að 300 millj. kr. erlend lán og endurlánað síðan, „fyrst og fremst til vinnslustöðva og vélakaupa,“ segir í greininni. Þetta „fyrst og fremst“ hefði ég viljað láta fella niður úr gr., enda er gert ráð fyrir í athugasemd við þessa grein, að einungis verði lánað með gengisáhættu til vinnslustöðva og vélakaupa. Ég hefði kosið, að það yrðu tekin af öll tvímæli um þetta. Ég get verið því samþykkur, að lánað sé á þennan hátt til vélakaupa og vinnslustöðva, því að það er allt annars eðlis en til fjárfestingar í húsum og ræktun.
Í öðru lagi tel ég rétt að minnast á 4. gr., 2. tölulið. Get ég búizt við, að um það atriði verði margt sagt og allskiptar skoðanir, því að þar er gert ráð fyrir að leggja 1% gjald á söluvörur landbúnaðarins til styrktar stofnlánadeildinni. Þetta er alveg nýtt í lögum um stofnlánasjóði Búnaðarbankans, en ég lít svo á, að bændur eigi ekki að víkjast illa við þessu ákvæði, vegna þess að hér er verið að gera það stórt átak til umbóta að því er snertir lánveitingar til landbúnaðarins og þetta er einn liður af mörgum, og að nokkru leyti má segja, að það geti verið metnaðarmál bænda að taka einhvern Þátt í þessari uppbyggingu. En ég vil taka það fram, að þetta er talsvert tilfinnanlegur útgjaldaliður fyrir bændur, því að það mun gilda í kringum 2% af kaupi þeirra, því að þetta er tekið af brúttóframleiðslunni, ekki sízt þegar þetta bætist við önnur 2%, sem fyrir eru, af kaupi þeirra til búnaðarmálasjóðs. En þrátt fyrir þetta tel ég einboðið að samþykkja þetta atriði sem einn lið í þeim nauðsynlegu aðgerðum, sem hér er verið að gera.
Ég er því mjög samþykkur, að ekki er tekið fram í lögunum eða frv. um, hverjir vextir skuli vera af stofnlánum, vegna þess að yfirstandandi tími er sérstakur að því leyti er vexti snertir á lánum og þess vegna ekki skynsamlegt að binda vexti í lögum nú um langan tíma, sem e.t.v. yrðu þá óhagstæðari en kynni að geta orðið, þegar betri tímar renna upp. En ég vil taka það fram sérstaklega, að vegna þess hlutverks, sem ég lýsti hér í upphafi, vegna þess hlutverks, sem stofnlánadeildin hefur gagnvart fjárfestingu í sveitum, sem er ekki fyrir líðandi stund, heldur einnig og jafnvel kannske meira fyrir framtíðina, þá tel ég afar nauðsynlegt, að vextir af lánum til þeirra hluta geti verið sem allra lægstir og lánstími sem lengstur, svo að eitthvað færist yfir á þá, sem á eftir koma. Og ég vænti þess, að þegar fjárhagsmöguleikar þessarar stofnlánadeildar leyfa, verði vextir færðir eins mikið niður og mögulegt er.
Ég vil svo aðeins bæta því við að lokum, að ég fagna þessu frv. og tei það mjög mikils virði fyrir landbúnaðinn.