13.03.1962
Efri deild: 63. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1679 í B-deild Alþingistíðinda. (1554)
170. mál, Stofnalánadeild landbúnaðarins
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Ég hélt nú satt að segja, þegar ég hlustaði á aðra ræðu hv. 1. þm. Vesturl. (ÁB), að hann væri að ná svolitlu jafnvægi í skapsmunum. En þegar hann lauk sinni ræðu hér áðan með Þeim furðulegu fullyrðingum, að það væri innsti kjarninn í stefnu Sjálfstfl. að fækka bændum um helming, þá held ég, að ég verði að endurskoða þá skoðun mína, og það kann þess vegna vel að vera, að það jafnvel gæti sárinda í þessum fáu orðum, sem ég ætla að segja, einmitt út af því. að það virðist vera mjög vonlítið að endurbæta hv. 1. þm. Vesturl. og fá hann til þess að líta öfgalaust á þetta mál, sem ég þó vissulega hafði vonað. Og það er alveg rétt, sem hæstv. landbrh. sagði áðan, að að svo miklu leyti sem það kann að hafa verið sárindatónn í rödd minni, þá var það sannarlega ekki af neinu samvizkubiti. Ég get horft framan í hvern sem er með fullri einurð varðandi hlutdeild mína í þessu máli, fullkomlega. En hitt er aftur annað mál, að ég hafði haft þá skoðun, að hv. 1. þm. Vesturl., sem auk þess að vera bóndi er einn af framámönnum í samtökum landbúnaðarins, mundi í þessu tilfelli láta hagsmuni bændasamtakanna vera ofar pólitískri hlýðni við Framsfl. En það urðu því miður sár vonbrigði mín, og við því er auðvitað ekkert að gera.
Það voru aðeins örfá atriði, sem ég vildi minnast á hér út af ummælum, sem hv. 1, þm. Vesturl. hefur látið falla.
Hann sagði í ræðu sinni áðan, að ég hefði sagt í ræðu minni, að framsóknarmenn hefðu aldrei neitt gert fyrir landbúnaðinn yfirleitt. Það er ekki rétt. Ég sagði aldrei, að þeir hefðu ekkert gert fyrir hann. Ég sagði, að á ýmsum tímum hefðu sjóðunum verið afhentar sem óafturkræf framlög vissar fjárhæðir, og þeir áttu vissulega hlut í því eins og sjálfstæðismenn, að það væri gert. Hitt er annað mál, og við það stend ég, að framsóknarmenn hafa ekki gert það, sem hefði í rauninni verið hægt að ætlast til af þeim sem leiðtogum þessara mála um fjölmargra ára bil, að reyna að koma fótum undir landbúnaðarsjóðina, þannig að þeir yrðu byggðir upp á jafnskynsamlegum og raunhæfum grundveili og tekizt hefur að gera með sjóði sjávarútvegsins, ekki endilega með því að afla tekna á nákvæmlega sama hátt, heldur finna þann tekjugrundvöll, sem gerði það að verkum, að þessir sjóðir kæmust ekki í það hörmungarástand, sem þeir hafa komizt í í dag, fyrst og fremst fyrir það, að hv. framsóknarmenn hafa haldið þannig á lánamálum þessara sjóða á liðnum árum, að það hefur orðið af því fullkomið öngþveiti. En mér hugkvæmist ekki að halda því fram, að þeir hafi ekki ýmislegt gott gert fyrir þessa sjóði, þó að þeim hafi ekki auðnazt að líta það raunsæjum augum á þessi mál að kryfja þau til mergjar, heldur reynt að veita vandanum fram af sér hverju sinni. Og ömurlegasta dæmið um það er auðvitað sú staðreynd, að þeir skyldu ekki gera neitt, þegar yfirfærslugjaldið var lagt á á sínum tíma, heldur bíða með það og varpa vandanum alveg yfir á aðra og koma svo eftir á og átelja, þegar þeir sömu menn eru að reyna að bjarga undan þeirri vanrækslu, sem þá var sýnd.
Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja um það, sem hv. þm. sagði um möguleikana á að efla sjóðina af mótvirðisfé. Ég hélt satt að segja, að hann meinti annað með sínum orðum en raunar kom þó fram í seinni ræðu hans, að hann hafði meint, því að auðvitað dettur engum heilvita manni í hug, að það sé hægt að taka úr mótvirðissjóði meira en helming mótvirðissjóðsins til handa landbúnaðinum. Það skil ég ekki í, að hv. 1. þm. Vesturl. hafi látið sér hugkvæmast. Ég skildi satt að segja orð hans svo, sem ég sé þó af síðustu ræðu hans að dæma að muni hafa verið misskilningur, að hann hafi átt við það, hvort hugsanlegt væri með því að afhenda sjóðunum þann hluta mótvirðissjóðs, sem landbúnaðinum er ætlað að fá, að bæta hag sjóðanna. Það er hugmynd, sem kom upp, þó að það yrði ekki sú niðurstaðan að framkvæma það, vegna þess að það snertir miklu flóknara mál og þyrfti að gera meiri breyt. í því sambandi. En ég álít, að það geti mjög vel komið til álita í framtíðinni að afhenda stofnlánadeildinni hluta landbúnaðarins í mótvirðissjóði. En það er rétt að taka það fram, að slík ráðstöfun mundi þó ekki auka neitt ráðstöfunarfé stofnlánadeildarinnar, vegna þess að eins og skipan þessara mála er nú, fær stofnlánadeildin alltaf lánað aftur allt það fé, sem hún greiðir í mótvirðissjóð, hvort sem það eru afborganir eða vextir. En Það vitanlega bætir hins vegar efnahagsafkomu stofnlánadeildarinnar mjög, ef þetta yrði hennar eign.
Þá vil ég enn fremur mótmæla því, að ég hafi sagt, að það væri ekkert leggjandi upp úr skoðunum Stéttarsambands bænda og búnaðarþings. Það kann vel að vera, að ég hafi komizt eitthvað óljóst að orði, en ég kannast ekki við að hafa haft þá skoðun, að ekkert væri leggjandi upp úr þeirra skoðunum. Ég sagði hins vegar, að stéttasamtökin yfirleitt, þeirra tillögur og ályktanir væru fyrst og fremst kröfugerð, sem er út af fyrir sig ósköp skiljanleg. Ég hef aldrei vitað, að stéttasamtök legðu það til fyrir sitt leyti, jafnvel þótt þau viðurkenndu eftir á réttmæti þess að leggja til, að vandamál yrðu leyst með kvöðum á viðkomandi aðila. Og ég sé ekki, að það sé neitt merkilegt við það, þó að það hafi ekki um þetta frv. verið haft samráð við Stéttarsamband bænda og búnaðarþing. Í fyrsta lagi var ekki aðstaða til þess að hafa samband við búnaðarþing, það var hægt auðvitað að hafa samband við Búnaðarfélag Íslands. En kjarni málsins var auðvitað sá, að þeir menn, sem að þessu hafa unnið, reyndu að koma sér niður á það, hvaða leiðir væru heppilegastar í þessu. Ef menn hafa sannfæringu fyrir því, að það séu réttar leiðir, þá er auðvitað ekki annað að gera en leggja það fram, og það er svo að sjálfsögðu hlutverk Þeirrar n. í þingi, sem fær þetta til meðferðar, ef henni sýnist svo, að leita umsagnar þessara aðila. Hin hugsunin, sem ég hélt satt að segja að menn hefði fengið nóg af í vinstri stjórninni, að ætla að fara að láta ráða málum til lykta einhvers staðar úti í bæ, í hinum og öðrum samtökum, það held ég að sé ekki giftusamleg leið. Alþm. og forráðamenn þjóðarinnar verða að reyna að gera sér grein fyrir því. hvað þeirra sannfæring segir þeim að sé rétt og eðlilegt að gera. (ÁB: Hvar var þessu máli ráðið til lykta?) Hvaða máli? (ÁB: Þessu frv. Var það ekki gert úti í bæ einhvers staðar?) Úti í bæ? Ég held, að því hafi verið ráðið til lykta af ríkisstj. Þetta er stjórnarfrv. Þó að hún hafi falið ákveðnum mönnum að gera tillögur um það til sín, þá er það hún, sem endanlega hefur ákveðið þessar till. og leggur þær fyrir Alþingi, eins og frv. ber með sér, og ég hef ekki vitað, að það hefði heldur verið tíðkað að undanförnu að leita til hinna almennu borgara um álit þeirra um það, hvort ætti að leggja á þá skatta eða ekki í ýmsu formi. Almenningur verður svo að sjálfsögðu að meta það, jafnt bændur og aðrir, hvort þeir telja, að hér hafi verið farin rétt leið eða ekki, og taka þá afstöðu til manna og flokka eftir því.
Þá vék hv. þm. að útflutningsgjaldinu og taldi, að það væri ekkert sambærilegt gjald við þetta gjald hér, vegna þess að þetta væri ekki raunverulegt álag á útveginn. Þetta er auðvitað alger misskilningur. Þetta — er tekið af óskiptu, og þar sem útvegurinn hefur enga útflutningstryggingu einu sinni og verður að sætta sig við það verðlag, sem er hverju sinni á heimsmarkaðnum, þá gefur það auga leið, að það er ekki hægt að tryggja útveginn á neinn hátt fyrir því, að hann þurfi ekki að borga þetta gjald. Þetta gat verið hugsanlegt, mætti segja, meðan útvegurinn fékk uppbætur, þá hafi verið reiknað með útflutningsgjaldinu í þeim uppbótum. En eftir að útgerðin verður að sætta sig við markaðsverð á sínum vörum og taka áhættuna af því, þá er þetta að sjálfsögðu borgað af útgerðinni, bæði útgerðarmönnum og sjómönnum.
Mig furðar satt að segja á því, að hv. 1. þm. Vesturl. skuli leggja í það hér að breiða úr sér og jafnvel með nokkru stærilæti að mótmæla því, að þetta gjald sé jafnrétthátt og bændahallargjaldið hafi verið, og Það sé sá stóri munur á, að það hafi þó verið leitað álits bænda um það. Það er alrangt. Það var ekki ósk bænda, og það veit hv. þm. sjálfur, að forustusamtök bænda vildu ekki leita til bænda úti um landið, í búnaðarfélögunum og deildunum, vegna þess að þau vissu, að þetta gjald yrði fellt, og það veit hv. þm. vel, því að um það var einmitt rætt af ráðamönnum, þegar var farið með þetta í þingið á þeim grundvelli, eins og var gert, að það voru forustumenn þessara samtaka, sem stóðu að þessu, en alls ekki bændurnir almennt. Ég skal hins vegar ekkert um það segja, hvernig hafi verið háttað skiptingu manna í afstöðu til þess gjalds, og ég skal játa, að ég greiddi atkvæði með því gjaldi, hreinlega á þeim grundvelli, að úr því að þessi samtök bæðu um þetta, þá væri ekki eðlilegt, að Alþingi væri að neita um það, Þó að ég fyrir mitt leyti væri aldrei hrifinn af því. En að leggja það að jöfnu eða jafnvel að gera þessu gjaldi hærra undir höfði en gjaldi, sem er ætlað að ganga til lánasjóða landbúnaðarins til þess að byggja upp landbúnaðinn í landinu á komandi árum, það gegnir fullkominni furðu, að menn skuli láta sér detta í hug að halda fram slíkri kenningu.
Varðandi svo það atriði, að landbrh. sé á móti því að fara t.d. að skattleggja heildsala fyrir landbúnaðarsjóðina, — ég skil nú satt að segja ekki, hvaða hugmynd liggur að baki því, hvort hv. þm. hefur í huga einhverjar tillögur um það að leggja á sérstakan heildsalaskatt fyrir landbúnaðarsjóðina. Það náttúrulega má búast við ýmsu, en ég held, að það sé nokkuð fjarstætt að koma fram með slíkar hugmyndir. Það, sem liggur að baki Þessum tillögum hér, er að byggja þetta upp á þann veg, að með því að bændur leggi þarna fram að sínu leyti, þá skapist ný og sterk rök til þess að fá fé úr opinberum sjóðum, sem auðvitað eru ekkert hliðstæð rök fyrir, ef bændur leggja ekkert fram, og miðað við það framlag, sem framsóknarmenn hafa hingað til unað við í fjárl. og ekki séð neina ástæðu til að hækka og ekki komið með neinar till. um að hækka, meðan þeir réðu ríkjum, þá er hér auðvitað um að ræða svo geysilega viðbót, sem hér er lagt til að veita til landbúnaðarins, að ég skil ekki í, að bændur við nánari athugun muni telja það áhorfsmál að taka á sig þá kvöð, sem hér er lagt til, til þess að geta tryggt sér til eflingar og uppbyggingar í sinni atvinnugrein jafnstóraukið framlag frá því opinbera og hér er gert ráð fyrir, og ekki aðeins frá því opinbera, heldur einnig allt að því jafnhátt gjald frá neytendum eins og bændunum er hér ætlað að greiða.
Ég skal svo ekki eyða mörgum orðum að samdráttarstefnunni, sem alltaf er efst á blaði hjá hv. framsóknarmönnum. Ég hélt nú satt að segja, að þeir væru orðnir þreyttir á að tönnlast á jafnvitlausum orðum og samdráttarstefnu og móðuharðindum, sem eru nú orðið eiginlega einkunnarorð á þeirra flokki og hitta þá verst sjálfa, því að það er fjarstætt að bera þetta á borð fyrir heilbrigt fólk, þegar alls staðar er miklu meira að starfa í landinu en hægt er að fá vinnuafl til að framkvæma, að þá sé um að ræða stórkostlega samdráttarstefnu í framkvæmdum og allt í voða. Ég veit satt að segja ekki, hvaða sálarlíf menn eru búnir að venja sig á, — ef hægt er að tala um að venja sig á sálarlíf, — sem sjá ekki, hversu það er orðið fáránlegt og broslegt í alla staði að halda fram svona fullyrðingum, enda er náttúrlega hinn almenni borgari hreint og beint farinn að hlæja að þessum dæmalausu staðhæfingum þeirra framsóknarmanna.
Það var mjög ánægjulegt, að hv. 1. þm. Vesturl. skyldi vitna í kosningastefnuskrá Sjálfstfl., því að sannleikur málsins er sá og það vita allir í dag, að undirstaðan að því að ná fram því marki, sem þar er boðað, er sú stefna, sem hefur verið fylgt. Framsóknarmenn hafa að vísu lagt sig fram, eftir því sem þeir hafa getað, í samstarfi við kommúnista um að eyðileggja það, að þessu marki yrði náð. Því hefði verið náð fyrr en ella, ef ekki hefðu verið unnin skemmdarverk á s.l. ári. Vonandi verður ekki lagt út í annað ævintýri slíkt. En það eitt er víst, að ef þessum árangri seinkar, þá er það ekki ríkisstj. að kenna og hennar stuðningsliði, heldur öðrum öflum, sem eru nátengdari hv. 1. þm. Vesturl.