13.03.1962
Efri deild: 63. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1683 í B-deild Alþingistíðinda. (1555)

170. mál, Stofnalánadeild landbúnaðarins

Sigurvin Einarason:

Herra forseti. Ég held, að hæstv. landbrh. og hv. 6. þm. Norðurl. e. muni nú sjá það, þrátt fyrir hin mörgu orð, sem hafa fallið hjá þeim, að ágreiningurinn er hér aðallega um eitt atriði í þessu frv. (MJ: Ég sagði það líka í ræðu minni áðan.) Þessi ágreiningur er fyrst og fremst um skattinn, á bændurna. Um hann er deilt, en hitt held ég að séu öfgar, ef menn halda, að það sé andstaða gegn öllu, sem er í frv. Ég held, að það sé langt frá því. A.m.k. sýnist mér, að ákvæði 3. gr. frv. um að afhenda hinni væntanlegu stofnlánadeild lán, sem áður voru veitt ræktunarsjóði og byggingarsjóði, séu verulegur ávinningur fyrir landbúnaðinn í landinu. Um þetta er ekkert að villast, og það hefur enginn mótmælt þessu. Ég hef ekki heyrt neinum mótmælum hreyft gegn þessum ákvæðum, eða að sé ágreiningur um það, að þetta sé til gagns. Það eru aftur á móti ákvæði 4. gr., skatturinn á landbúnaðarvörur og reyndar skattur á neytendur, sem veldur verulegum ágreiningi, og er ekkert óeðlilegt við það. Og mér sýnist, að hæstv. landbrh. hefði átt að spara sér eitthvað af stóryrðunum, þegar hann var að ræða þetta mál hér áðan. (Landbrh.: Stóryrði?) Já, stóryrði, fúkyrði, sem hann viðhafði. Ef hann er búinn að gleyma þeim, þá ætla ég að lofa honum að heyra, hvað hann sagði um hv. 1. þm. Vesturl., hann væri kaldrifjaður og samvizkan mundi slá hann og hann þyrfti að hressa upp á mannorð sitt. Allt þetta sagði hann. Þetta eru ekki einu sinni mannasiðir, auk heldur ráðherrasiðir, að koma þannig fram, og ég er alveg viss um, að þessi hæstv, ráðh. iðrast eftir þessu á eftir. Ég treysti því að minnsta kosti. (Grípið fram í: Hann er samvizkulaus.) Það segi ég ekki. Þetta á ekki við, og hv. 1. þm. Vesturl. gaf ekki tilefni til svona fúkyrða. Hitt get ég tekið mér ósköp létt, þó að hæstv. ráðherra væri að fleygja Því, að ég væri þjóðvarnarmaður og þess háttar. Það snertir mig ekki hið minnsta. Það er alveg rétt, að ég er einlægur andstæðingur hersetunnar í landinu, sem þessi hæstv. ráðherra ber ábyrgð á m.a., og Það er fjöldi sjálfstæðismanna um allt land, sem eru sömu skoðunar og ég um þetta. Hann má þess vegna auglýsa það eins oft og hann vill. Mér er ánægja að því heldur en hitt, því að ég vil aldrei vera bendlaður við það, að ég sé samþykkur hersetu í landinu. Ég er honum frekar þakklátur fyrir þetta. Hann hélt, að þetta væri eitthvert vopn á mig, en það er ekki.

Þessi skattur á bændurna er ákaflega óeðlilegur, og mér finnst það aðalatriðið í þessu máli, að það hafi verið litið svo á af þeim, sem vildu landbúnaðinum vel í þessu landi frá fyrstu tíð, að það væri ekki hægt að ætla honum sams konar lánskjör, hvorki um lánstíma né lánsvexti, og öðrum atvinnuvegum. Þessum sjóðum landbúnaðarins er ætlað að byggja upp landið, nema landið, í raun og veru stækka landið, stækka landið fyrir komandi kynslóð, og þess vegna er ekki hægt að ætla þeim að bera slíka vexti eða þola sams konar lánskjör og aðrir atvinnuvegir geta auðveldlega þolað. Það vita það allir, að bændurnir, sem eru að rækta og byggja upp, eru að byggja upp fyrir komandi kynslóð og þeir njóta minnsta hlutans af hagnaðinum af þessu sjálfir, heldur komandi kynslóðir. Eða hvaða þjóð er það sem lætur landbúnað sinn búa við sams konar lánskjör í einu og öðru og aðrar atvinnugreinar? Þessir lágu vextir, sem upphaflega og lengi vel voru á lánum til landbúnaðarins, byggðust á því, að þetta væri þátttaka ríkisins í þessu landnámi. Það var gert í því formi að hafa vextina lága, lægri en innlánsvexti. Þess vegna hlaut að koma fram vaxtatap, og auðvitað var það alltaf ætlunin og hefur líka verið gert, að greiða þetta vaxtatap af opinberu fé. Þetta er einn þáttur hins opinbera til að byggja upp landið. Ég tel það alveg fáránlega kenningu að ætla landbúnaði að bera sams konar vexti og sams konar lánskjör yfirleitt og öðrum atvinnuvegum. Það er þess vegna alveg á fullum rökum reist að ætla landbúnaðinum að greiða lága vexti, miklu lægri en aðrir greiða. Þetta er ráðstöfun til þess að nema landið. Það má deila um, hvort það á að vera í þessu formi eða öðru, en þetta er það form, sem hefur verið haft í meira en 30 ár, auk þess sem styrkir hafa verið veittir til landbúnaðarins. Það má gera þetta í öðru formi, ég veit það, en þetta var gert út frá þessu sjónarmiði.

Ef maður ber þetta frv. saman við t.d. gildandi lagaákvæði um byggingu íbúðarhúsa í bæjum, sem byggingarsjóður húsnæðismálastjórnar lánar til, þá er ekkert hliðstætt ákvæði í þeim lögum og þessu frv., að leggja skatt á þá, sem lánin eiga að fá. Það má þó ætla, að lánveitingar til íbúðarhúsa í sveit og í kaupstað ættu að vera háðar svipuðum lögum. Nú liggur fyrir þessari deild stjórnarfrv. um húsnæðismálastjórn, þar sem á að hækka hámark lánanna til íbúðarhúsa. En það dettur engum í hug og ekki heldur hæstv. ríkisstj. að koma þar með neinn skatt til þess að drýgja tekjur sjóðsins, til þess að lána meir. Það dettur engum í hug. Ég skal nefna annað atriði, að samkvæmt gildandi lögum um húsnæðismálastjórn má lána allt að 2/3 af kostnaðarverði húsanna, en nú á að lækka þetta hjá bændunum úr 3/4 niður í 3/5, eða niður í 60%. Ég viðurkenni, að þetta hámark, 75%, sem mátti lána út á íbúðarhús í sveitum, hefur ekki verið raunhæft, af því að fé hefur ekki verið til að lána svo mikið. En það hefur ekki heldur skaðað neinn, og enginn sér ástæðu til þess að lækka hliðstætt ákvæði í lögunum um húsnæðismálastjórn, þó að hæstv. ríkisstj. finnist nú þörf á að fara að lækka þetta með þessu frv.

Það, sem mér sýnist langeinfaldasta og sanngjarnasta breytingin á þessu frv., er, að í staðinn fyrir þennan skatt á bændurna komi hreinlega framlag ríkisins, þeim mun hærra. Það er í samræmi við Þann megintilgang landnámsins í landinu, að frá hinu opinbera komi þessi stuðningur við landnámið. Og það er, held ég, ekkert voðalegt, þó að hið opinbera ætti að bæta á sig þessum rúmum 8 millj. Fyrst tekjur ríkissjóðs eru nú orðnar a.m.k. eins og er um 1700 millj., þá sýnist það engin fjarstæða.

Hæstv. ráðh. hefur gagnrýnt það, að það hafi ekki komið fram tillögur eða ábendingar frá framsóknarmönnum um það, hvernig ætti að fá þetta fé. En það er ekki meira en þetta, sem ég nefndi, sem deilan stendur um, upphæðin, sem skattinum nemur. Þó að við bætum við neytendaskattinum, þá eru það kannske 13–14 millj. Ég tel, að þetta sé að vandræðalausu hægt að taka úr ríkissjóði og að núv. hæstv. ríkisstj. hafi tekið á sig slíka bagga, sem síður skyldi, þó að maður fari ekki út í hina sálmana, hvað hún er að létta sköttum af aðilum í landinu, sem síður skyldi heldur en bændastéttinni. Fyrir þessari hv. deild liggur frv. um skattalækkanir á hlutafélögum. Það er engum blöðum um það að fletta, að Það skattalagafrv. hefur í för með sér, að verulegur hluti, kannske meginþorri hlutafélaga í landinu verði skattfrjáls hvað tekjuskatt snertir. Þetta hlýtur að rýra tekjur ríkissjóðs í stórum stíl. Er nú meiri þörf á því að rýra tekjur ríkissjóðs á þennan hátt heldur en taka á ríkissjóð þessa viðbót, sem nemur skattinum, sem nú á að leggja á bændur og neytendur? Hitt get ég vel tekið undir með hv. 6. þm. Norðurl, e., að það þarf að byggja upp grunninn undir þessum sjóðum betur en gert hefur verið. Það er alveg rétt, það verður að tryggja hann. Það er alveg ófær leið að standa alltaf í þessu, ár eftir ár, að útvega einhver og einhver lán að hausti til til að geta fullnægt lánsfjárumsóknum það árið. Að verulegu leyti stefnir þetta frv. í þessa átt. en það er þessi mikli ágalli á því, sem ég hef nefnt, hvað snertir skattlagninguna.

Hv. 5. þm. Austf. benti á, að í þeim töflum, sem fylgja þessu frv., virðist vera reiknað með sömu vöxtum allt fram til ársins 1975. Þetta er staðreynd, og það hafa hv. stjórnarsinnar viðurkennt, að það væri reiknað með þeim, og sagði hv. 6. þm. Norðurl. e., að það væri auðvitað ekki hægt að reikna með öðrum vöxtum en þeim, sem eru nú, því að enginn vissi, hvað þeir yrðu. En til hvers er að vera að birta töflu allt fram til 1975, ef ekki á að líta svo á, að stefna stjórnarinnar sé að fylgja þessari vaxtapólitík? Eru þeir virkilega að setja núv. vexti inn í þessa töflu, en ætla sér svo alls ekki að hafa þessa vexti? Nú geri ég ekki ráð fyrir, að hv. þm. búist við, að núv. ríkisstj. sitji til 1975. (Gripið fram í: Því ekki það?) Nei, ég er að gizka á það, að hann búist varla við því. En ef hún situr svo lengi, þá munu þessir vextir eiga að gilda. Þannig hlýtur manni þó að eiga að skiljast þetta, annars er ekkert mark á skýrslunni takandi.

Það er rétt, sem hv. 6. þm. Norðurl. e. sagði. að það var ekki hann, sem hafði orð á Því. að framsóknarmenn hefðu ekkert gert landbúnaðinum til hagsbóta, það var hæstv. ráðh., sem sagði það, enda held ég, að hæstv. ráðh. hefði átt að láta hv. þm. eftir að tala fyrir þessu frv., það hefði farið betur á því.

Ég veit ekki, hvort ég Þarf að minna hæstv. ráðh. á það, að 1953 fóru framsóknarmenn með landbrn. Þá voru lagðar fram af tekjuafgangi til sjóða Búnaðarbankans 28.8 millj. kr. Hvað ætli þetta væri há upphæð með núv. gildi peninga? Ég fullyrði, að það er a.m.k. eitthvað á milli 60 og 70 millj. kr. virði með núverandi gengi. Það er meira en felst í þessu frv. Þetta var 1953, og þá fóru framsóknarmenn með landbúnaðarmálin.

Hæstv. ráðh. talaði líka um það, að vinstri stjórnin hefði ekkert gert nema til ills eins fyrir landbúnaðinn. En það var einmitt á árinu 1957, þegar vinstri stjórnin var við völd, sem aftur eru lagðar fram til sjóðanna 36.7 millj., sem er miklu hærri upphæð eftir núv. verðgildi peninganna. Þannig eru komnar tvisvar sinnum stórar upphæðir með fjögurra ára millibili, sem mundu vera ríflegar upphæðir núna, og sýnir það, hvort framsóknarmenn og sjálfstæðismenn, sem voru í stjórn 1953, vildu ekki sinna þessu, að sjá sjóðunum farborða. Þetta hefur nefnilega alltaf verið gert öðru hverju, þegar vaxtahallinn hefur orðið sjóðunum erfiður, og var alltaf ætlunin, að af opinberu fé kæmi stuðningur við landbúnaðinn á þennan hátt, af því voru vextirnir hafðir þannig.

En hæstv. ráðh. sagði, að ef ekki hefði verið tekið erlent lán handa sjóðunum, þá þyrfti ekki þetta frv. Ég er hræddur um, að hv. 6. þm. Norðurl. e. sé varla sömu skoðunar. Það hefði þurft að gera einhverjar ráðstafanir, varanlegar ráðstafanir, vegna vaxtamismunarins, þó að ekki hefðu verið tekin erlend lán. En hvers vegna fóru þessi erlendu lán svona illa með sjóðina? Auðvitað eru það gengistækkanirnar og ekkert annað, sem gerðu það.

Hæstv. ráðh. talaði um, að yfirfærslugjaldið hefði verið voðalegt. Það er rétt, yfirfærslugjaldið hafði sín áhrif. En allur sá halli, sem varð á sjóðunum vegna gengislækkunarinnar 1960, stafaði að 1/3 hluta, eftir því sem ég hef fengið upplýsingar um í Búnaðarbankanum, af yfirfærslugjaldinu. Hallinn mun hafa numið um 97 millj., en 1/3 af því mun hafa stafað af yfirfærslugjaldinu. Og það er ákaflega trúlegt, að það sé nálægt því. En svo kom gengisbreytingin 1960, svo að megnið af öllu tapi sjóðanna er ekki frá árum vinstri stjórnarinnar, heldur síðari stjórnar. Stjórnarsinnar vilja losna við ábyrgðina af gengislækkununum, og það er það, sem þessir virðingarverðu menn eru að reyna að koma yfir á stjórnarandstæðinga, að þeir beri ábyrgð á gengislækkununum, á dýrtíðinni, á öllu, sem illa fer. Ég held, að þeir athugi það ekki, að þjóðin er fyrir löngu búin að skilja það, að gengislækkunin 1960 var ekki til að bjarga neinu, hún var gerð til að koma á nýrri stefnu í efnahagsmálum í þjóðfélaginu, koma á hinum gömlu góðu dögum, sem forsætisráðherrann talaði um þá. Til þess að framkvæma Þessa stefnubreytingu var gengislækkunin framkvæmd, ekki vegna neinna annarra vandræða.

Út af lánum til íbúðarhúsa í sveitum vil ég benda enn á eitt atriði. Það er ákveðið að lækka þá prósentutölu, sem hefur verið í lögum, hvað megi lána út á íbúðarhús, úr 75% niður í 60%, og ég tek undir það með hv. forsvarsmönnum þessa frv., að eins og sakir standa, þá er þetta ekki mikið atriði. En ég vil spyrja hæstv. ráðh. að því: Hvers vegna er ekki sett inn í frv. eitthvert ákvæði um það, hvað skuli lána út á hvert hús, hliðstætt Því, sem nú er í frv. hæstv. ríkisstj. um húsnæðismálastjórn? Þar er tiltekið, hvað skuli lána út á hús. Væri nú ekki rétt að bæta þessu inn í frv.? Það er ekkert víst, að það þurfi að breyta þessari 60% tölu fyrir það. Bændur hafa ákaflega mikla þörf á því núna að fá meira lánað en hingað til hefur verið hægt að lána, og þar sem nú er verið að rétta við hag sjóðanna, ætti þetta ekki síður að vera hægt í þessu frv, en það er hægt að gera með stjórnarfrv. um byggingarsjóð húsnæðismálastjórnar. Hæstv. ráðh. kann kannske að segja, að þetta hafi ekki verið í lögunum áður. Það er rétt, það var ekki. En af því að nú er verið að tryggja sjóðina, a.m.k. um einhvern ákveðinn tíma, og þeir eiga að vera betur færir um að lána en áður, væri þá ekki rétt að taka Þetta upp?

Það ákvæði þessa frv., sem ég tel ganga næst skattinum sem neikvætt ákvæði, er ákvæði 12. gr. um gengisáhættuna. En þar segir í 12. gr.: „Eigi er stofnlánadeild heimilt að endurlána erlent lánsfé nema með gengisákvæði.“ M.ö.o.: hvern einasta eyri, sem kann að verða tekinn að láni erlendis til hins væntanlega stofnlánasjóðs, skal lána með gengisáhættu. Mér hefur skilizt á hv. frsm. frv., að Þetta eigi aðeins að ná til vinnslustöðva og vélakaupa. En það er ekki rétt. Það er fjarri því, að það eigi eingöngu að ná til vinnslustöðva og vélakaupa, því að það segir í frv.: „enda gangi slíkt lán fyrst og fremst til vinnslustöðva og vélakaupa.“ Það þýðir það, að þau lán eiga að ganga fyrir um að taka á sig gengisáhættuna. En það er ekki sagt neitt um það, að gengisáhættan eigi ekki að koma á hin lánin líka. Væri svo, að engin lán ættu að vera með gengisáhættu nema til vinnslustöðva og vélakaupa, þá hefði staðið í þessu frv.: „enda gangi slík lán eingöngu“, en það er ekki, heldur bara „fyrst og fremst“. Þetta er óefnilegt, að slíkt ákvæði skuli vera sett í lög, því að gengisáhætta er alvarlegur hlutur fyrir hvern, sem tekur lán með slíku ákvæði. Hv. 6. þm. Norðurl. e. minnti á, að nú væri búið að koma þessu á í lánveitingum fiskveiðasjóðs. Það er alveg rétt, menn hafa það til fyrirmyndar, að það var gert. Við framsóknarmenn stóðum eindregið gegn Því. að slíkri áhættu var skellt á þá, sem verða að taka hið erlenda fé að láni, vegna þess að það er svo mikið ranglæti í því, að aðeins þeir, sem fá þetta erlenda fé, verði að taka á sig áhættuna, en ekki hinir, sem fá innlent fé, því að ekki ráða þeir lántakendur neinu um það, hvort þeir fá lán af erlendu fé eða innlendu. Því ekki að jafna þetta á annan hátt, svo að áhættuna beri ekki aðeins þeir, sem neyðast til þess að taka þessi lán, af því að þeir fá ekki annað?

Mig undraði það nokkuð, að hæstv. ráðh. skyldi vera að svara fulltrúum bænda fyrir fram, ef þeir féllust ekki á þetta frv., að ef bændasamtökin séu á móti þessu, Þá séu forustumenn þeirra ekki frambærilegir til að vera forustumenn fyrir landbúnaðinn. Það kalla ég nokkuð djarft, að svara bændunum svona fyrir fram: Ef þið ekki samþykkið það, sem ég vil, þá eruð þið ekki hæfir til að vera það, sem þið eruð. (Gripið fram í: Þetta er falleg hótun.)

Að lokum skal ég aðeins minnast á þá miklu framleiðsluaukningu, sem hæstv. ráðh. talaði um nú og er búinn að tala um oft að undanförnu. Hann hefur mótmælt því, að nokkur samdráttur hafi orðið nokkurs staðar, þó að hann hins vegar geti ekki mótmælt einu einasta orði af þeim tölum, sem hafa verið birtar um samdrátt í ræktun, í byggingum og svo að segja hverri einustu grein landbúnaðar og miklu fleira en landbúnaðar, m.a. í húsbyggingum til sjávar og sveita, innflutningi skipa og hvaðeina. Öllu mótmæla þeir, enginn samdráttur neins staðar, þvert á móti stóraukin framleiðsla. Og hæstv. ráðh. hefur gert sér sérstaklega far um að sýna fram á mjólkurframleiðsluaukninguna í landinu á árinu 1961.

Það er rétt, að það varð í mörgum og ég vil segja flestum mjólkurbúum landsins aukning á innveginni mjólk á því ári. Og til þess er hann að benda mönnum á þessa aukningu, að það á að vera sönnun fyrir því, að það sé viðreisnarstjórninni að þakka, þessi aukning, þessi velmegun, viðreisnin sé að heppnast, hún sé að bera árangur. Ég ætla nú, meira kannske af gamni, að benda hæstv. ráðh. á það, að ákaflega varasöm röksemd er það fyrir hann að halda því fram, að mjólkuraukningin á s.l. ári eigi eitthvað skylt við viðreisnarstefnu. Segjum, að bændurnir hefðu aukið við sig búpeningi og í þessu tilfelli nautgripum, um leið og stjórnin hefði orðíð til, fyllzt einhverri bjartsýni og trausti á landbúnaðinn við það, að Þessi stjórn kom, og hefðu nú farið að setja á kvígukálfana sína, því að nú var komin góð stjórn og góður landbrh. En auðvitað gátu bændurnir ekki gert þetta, fyrr en stjórnin sjálf varð til eða m.ö.o. á árinu 1960, þegar viðreisnin byrjar. Fyrr gátu þeir ekki fengið þessa trú. Við skulum hugsa okkur, að bændurnir hefðu nú gert þetta og faríð að setja á viðreisnarkálfana sína þennan velur. En kálfarnir eru bara kálfar í eitt ár, mjólka ekki neitt. Þannig fer allt árið 1960. Svo verða kálfarnir að kvígum, og kvígurnar eru bara kvígur annað ár til og mjólka ekki neitt. M.ö.o.: hversu margar viðreisnarkvígur sem settar hefðu verið á daginn sem þessi viðreisnarstjórn var mynduð, þá væri engin þeirra farin að mjólka neitt enn þá, nema þá í fyrsta lagi nú um síðustu mánaðamót, þó með því, að þær hefðu ekki misst tíma, svo að það er hæpið að hæla sér af mjólkuraukningunni á s.l. ári sem einhverju afreki viðreisnarstjórnarinnar. En samt varð mjólkuraukning, — og hvernig stendur á því? Það stendur þannig á því, að það hefur verið fjölgað gripum, áður en þessi stjórn var til.