28.03.1962
Efri deild: 74. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1722 í B-deild Alþingistíðinda. (1563)

170. mál, Stofnalánadeild landbúnaðarins

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Hv. stjórnarandstæðingar virðast tala með meiri hófsemi um þetta mál við þessa umr. en við 1, umr. málsins. En sá galli er samt á málflutningi þeirra enn, að hann styðst illa við rök og kemur ekki heim við veruleikann og sízt af öllu við Þeirra orðstír og það, sem þeir hefðu átt að gera, þegar þeir höfðu valdaaðstöðu, ef þeir telja það nú rétt, sem þeir halda fram í ræðum sínum og tillögum. Það er í rauninni ekki ástæða fyrir mig að fara að flytja hér ræðu í þessu máli eftir þá ræðu sem hv. 1. þm. Vesturl. (GGuðbj) flutti hér áðan, því að hún tók ekki af neitt það, sem hv. 6. þm. Norðurl. e. hafði sagt. Það stendur allt óhrakið. Ég er sammála hv. 1. þm. Vesturl. um eitt meginatriði, og það er þáð, að það sé mikils virði fyrir bændastéttina að fá rétt verðlag fyrir afurðirnar, þar erum við alveg sammála, að fá kostnaðarverð fyrir framleiðsluna, að fá fullt kaup fyrir erfiðið og þá vinnu, sem bóndinn leggur fram. Þetta er ekki nema eðlilegt og nauðsynlegt að stefna að því að tryggja. Nú var Það svo á s.l. hausti, að það varð ekki samkomulag í 6 manna nefnd um verðlag landbúnáðarafurða. Þetta vitum við. í stað þess að hækka verðið um allt að 30%, eins og framleiðsluráð lagði til, var meðalhækkunin aðeins 14.5%. Ég býst við því, að kröfur Stéttarsambandsins og framleiðsluráðsins hafi verið í aðalatriðum réttar. En hitt vitum við, að verðgrundvöllurinn skekktist ekki um 30% á síðasta verðlagsári. Við vitum, að skekkjurnar eiga sér lengri aðdraganda, og þegar við Þurfum að athuga verðlagsgrundvöll og tala um verðlagsmálin, þá getum við ekki annað en staldrað við haustið 1957, þegar landbúnaðarverðið var hækkað um 2%, eða 1.88% minnir mig, en vorið og sumarið áður höfðu tekjur launþega hækkað um allt að 12%. Og það er eðlilegt, að maður spyrji: Hvernig mátti þetta ske? Þá var sátt og samlyndi. Framleiðsluráð andaði lítið þetta haust, og þá heyrðist lítið talað um það af hendi framsóknarmanna, að verðlagningin væri ekki í lagi. En ég held, að þeir, sem skyggnast inn í verðlagið og kynna sér söguna, sannfærist um, að þarna hafi skapazt allrífleg skekkja, sem farið var fram á að vissu leyti að leiðrétta s.l. haust, og Það er eðlilegt, að það sé spurt að því. hvernig stendur á því. að það heyrðist ekkert í bóndanum á Hjarðarfelli þetta haust? (Gripið fram í.) Jæja, gott, þá bið ég afsökunar. En ég leyfi mér nú að halda því fram, að bóndinn á Hjarðarfelli hafi ekki talað hátt þá, og mig minnir, að 1958 hafi bóndinn á Hjarðarfelli verið á búnaðarþingi. Er það ekki rétt? (GGuðbj.: Já.) Og ég man ekki betur en þá væri mikið rætt um Það, hvað ætti að gera við umframframleiðslu landbúnaðarins. Það hafði nefnilega skeð, að talsvert var flutt út af landbúnaðarvörum fyrir sáralítið verð, og bændur voru látnir bera hallann af því, sem flutt var út, og af þessu leiddi það, að bændur fengu ekki einu sinni það verð, sem skráð var í grundvellinum. Þá var það þannig, að það vantaði mikið á, að verðgrundvöllurinn væri réttur, og bændur fengu ekki grundvallarverðið. Búnaðarþing hafði ekki mjög hátt um það 1958, en það hafði hæst um það og talaði mikið um það, hvað ætti að gera við umframframleiðsluna. En það kom engin raunhæf tillaga um, hvernig ætti að tryggja bændum fullt verð fyrir það, sem væri flutt út fyrir lítið verð, og það hefur þó lagazt núna, síðan núv. ríkisstj. kom að völdum, að það eru ekki tvær ástæður lengur fyrir því, að bændur fái ekki fullt kaup. (Önnur ástæðan hefur verið burt numin með því, að ríkissjóður tekur nú á sig að greiða þann halla, sem verður af útfluttum landbúnaðarvörum. Sá halli var um 18 millj. siðasta verðlagsár, en er áætlaður 45 millj. á Þessu verðlagsári og verður ef til vill meiri vegna stórfelldrar lækkunar á dilkakjöti, sem er flutt út í stærri stíl en verið hefur. Það má þess vegna ganga út frá Því núna, að bændur fái Þetta skráða verð, grundvallarverðið, sem Þeir fengu ekki áður. En Þá er eftir að leiðrétta skekkjuna í grundvellinum, og það er náttúrlega verkefni, sem þarf að vinna. En þegar fullt samkomulag verður, eins og 1957, um 2% hækkun á landbúnaðarvörum, eftir að launatekjur hafa hækkað um 12%, þá er eðlilegt, að Það skapist skekkjur, og það er í sjálfu sér eðlilegt, að það taki nokkurn tíma að leiðrétta skekkjur, sem þannig skapast, og það sé jafnvel ekki í fyrsta sinn, sem reynt er að leiðrétta þetta með því að stilla kröfum upp, eins og Stéttarsambandið gerði s.l. haust, að það vinnist ekki í fyrsta áfanga. Ég held því fram, að þetta hljóti að koma. Með því að undirbyggja kröfurnar réttilega og jafnvel enn betur en gert var s.l. haust er ekki hægt annað en taka þær til greina.

Hv. síðasti ræðumaður var að tala um íbúðarhús í sveitum, sem mundi kosta 500 þús. að byggja, og hvernig væri mögulegt fyrir fátækan bónda að standa undir því, a.m.k. ef hann fengi ekki fullt verð. Ég segi, að bóndi, sem hefur lítið bú, getur vitanlega aldrei fengið það verð fyrir afurðirnar, að hann standist það að búa í 500 þús. kr. húsi, jafnvel þó að vextirnir væru lækkaðir, og ég gæti bezt trúað Því, að bóndinn á Hjarðarfelli, þegar hann byrjaði að búa, — ég þekki ekki til þess, — ég gæti bezt trúað því. að hann hefði ekki hugsað sér að byrja á því að byggja stórt íbúðarhús á jörðinni, þegar hann byrjaði að búa. Ég hygg, að hann hefði heldur haft annan hátt á, byrjað á því að auka bústofninn, byrjað á því að fjölga kúm og ám og tryggja sér þannig tekjur til þess að geta síðar meir búið í góðu húsi. Ég er hins vegar ekki að mæla gegn því, að það eigi allir að búa í góðum húsum. Það er vitanlega æskilegt. En menn mega ekki byrja á því að byggja dýr hús. Þó að margir bændur búi jafnvel í húsi, sem kostar hálfa milljón, þá er það nú svo, að þrátt fyrir dýrt byggingarefni er enn hægt að komast af með sæmileg íbúðarhús, sem kosta minna, og sem betur fer er búið að byggja mikið upp í sveitum landsins, og undanfarið hafa menn ekki fengið að láni nema sem nemur 25–30% af kostnaðinum. Það er allt of lítið. Það var lengi ekki nema 45 þús. kr.; 1956 var það hækkað upp í 75 þús. kr., 1960 upp í 90 þús. kr. og s.l. haust 100 Þús. kr. Það var alveg rangt, Þegar hv. ræðumaður sagði áðan, að s.l. tvö ár hafi verið staðið verr að Því að leysa lánamál bænda en undanfarin ár, — algerlega rangt. 1958 varð geysilega mikil verðhækkun á byggingarefni, en útlán úr sjóðum Búnaðarbankans, bæði ræktunarsjóði og byggingarsjóði, voru ekkert hækkuð, en eins og tekið var fram hér áðan, hafa útlán úr sjóðunum, siðan núv. ríkisstjórn tók við, verið hækkuð um 25–30% og eru sízt hlutfallslega lægri nú en þau voru 1958, — hlutfallslega hærri, ef reiknað er eftir byggingarvísitölu. Það er þess vegna mjög leiðinlegt, þegar hv. þm., sem er nýliði hér á Alþingi, leyfir sér að fara með svona fullyrðingu, sem hann hefur ekki hugsað út í, hvað á bak við er. Það þarf ekki annað en taka blað og blýant og taka byggingarvísitöluna og reikna út, hvort það er hlutfallslega minna lán núna af byggingarkostnaði heldur en 1958, þegar hv. 1. þm. Vesturl. var stjórnarstuðningsmaður og hefði getað gert kröfur til sinnar ríkisstj.

Hv. þm. vildi ekki gera mikið úr því framlagi, sem þetta frv. felur í sér, vildi ekki gera mikið úr þeirri uppbyggingu, sem í þessu frv. felst. Ég er dálítið hissa á því. vegna þess að ég er sannfærður um það, að hv. Þm. hefur lesið frv. rækilega og kynnt sér það. Ég er alveg sannfærður um það líka, að hv. þm. ber skyn á Það, hvað í frv. felst, og þess vegna er leiðinlegt, að hann fullyrðir eins og hann gerði hér áðan, af því að það er gegn betri vitund, Þegar hv. þm. hefur lesið frv. og kynnt sér, að hann fullyrðir, að það sé lítils virði, sem í því felst. Þeir, sem kynna sér þetta mál og sjá, hvað í því felst, geta ekki komizt hjá því að sannfærast um, að með því er lagður traustur grundvöllur að uppbyggingu og starfsemi þessara sjóða. Það er blindur maður, sem sér það ekki, að eftir fimm ár verður eigið fé stofnlánadeildarinnar um 100 millj. kr. með Þessari uppbyggingu, eftir 10 ár verður það orðið 150 millj. kr., eigið fé, eftir önnur 10 ár verður höfuðstóll deildarinnar um 500 millj. Þetta er kannske ekki alveg nákvæmt, þetta gæti kannske munað allt að 10%, hvað þetta yrði minna. Jafnvel Þótt svo væri, er þetta geysileg upphæð, sem hér er um að ræða. Svo leyfir hv. 1. þm. Vesturl. sér að halda því fram, að Þetta sé eiginlega sáralítið, sem kemur af nýju fé, fram yfir Það, sem hefur verið. Ég þarf ekki að taka fram, hvað þetta er. Stofnframlagið er samkv. 3. gr. frv. 60.5 millj. kr. Ef við reiknum aðeins með 71/2 % vöxtum í 14 ár, jafngildir það 9.5 millj. kr. á ári, bara Þetta, því að vitanlega er óhætt að reikna vexti af þessu framlagi, þessum höfuðstól. Ef féð væri lagt inn á banka, fengjust af því 9% vextir. Þetta eru sama sem 9–9,5 millj. á ári í nýju fé. Auk þess leggur ríkissjóður á móti 1% gjaldinu, sem er áætlað 8 millj., 4 millj. Þetta gerir 21.5 millj. kr. árlegt framlag frá ríkissjóði, en áður var þetta aðeins 4 millj. Til viðbótar þessu kemur söluskatturinn, sem er áætlaður 5.5 millj., kannske 6. Það eru þá 27 millj. á ári til stofnlánadeildarinnar annars staðar frá en frá bændum auk vaxtateknanna.

Ég býst við, að sumir hv. þm., sem hlustuðu á hv. 1. þm. Vesturl. áðan, hugsi sem svo: Hvers vegna að vera að eyða tíma í það að rökræða við mann, sem fullyrðir svona út í bláinn, svona fjarri veruleikanum? Og mig undrar ekkert, þó að hv. þm. hugsi sem svo, það taki því alls ekki að vera að rökræða, þegar þannig er á málum haldið. En ég geri þetta nú samt í von um það, að hv, þm, sannfærist um, að svona málflutningur er alls ekki viðeigandi, og ef svo ólíklega vildi til, að hann hefði gert sér alveg rangar hugmyndir um málið, er náttúrlega nauðsynlegt að upplýsa hann um Það og sannfæra hann um það, að hann fór rangt með.

Hv. þm. talaði um, að það væri engin trygging fyrir því. að þessar tölur, þessar upphæðir, sem hér eru lagðar fram, hafi í rauninni nokkurn kaupmátt eða nokkurt gildi eftir nokkur ár. Hugsum okkur það, sagði hann, að það verði launahækkun á þessu ári og ný gengisfelling, — hvað þá? Ég vænti Þess, að hv. þm. og hans flokksbræður stuðli ekki að Því, að það Þurfi til þess að grípa að lækka gengið að nýju. Ég vænti þess, að hv. þm. og hans flokksbræður læri eitthvað af reynslunni frá s.l. ári og að það sé alls ekki viðeigandi fyrir þá að stuðla að því að rýra krónuna meira en orðið er. Við skulum vera sammála um, að það beri að halda vörð um gengi krónunnar og halda gildi hennar við. En það er þó eitt, sem er rétt að benda á, að jafnvel þótt dýrtíðin vaxi og jafnvel þótt gengi krónunnar lækkaði, sem við skulum vona að ekki verði, þá vex framlag til stofnlánadeildarinnar, ekki ef til vili alveg í hlutfalli við rýrnun krónunnar eða dýrtíðina, en talsvert. Söluskatturinn verður hærri, ríkisframlagið hækkar í hlutfalli við það, sem 1% gefur meira, og að þessu leyti er deildin tryggð að talsverðu leyti gegn þeirri rýrnun, sem áður hefur orðið með vaxandi dýrtið. Og ég fagna Því út af fyrir sig, að heyra það frá hv. 1. þm. Vesturl., að hann vili vinna, hann hlýtur að vilja vinna gegn því, að nýtt dýrtíðarflóð og dýrtíðarskriða komi, og það er alveg rétt, sem hér hefur verið sagt, að landbúnaðurinn á vissulega mikið undir því. að verðlagið geti orðið stöðugt og gengi krónunnar tryggt. Það er áreiðanlega mikils virði fyrir landbúnaðinn. Við skulum hafa það hugfast.

Hv. Þm. fullyrðir það, að núv. ríkisstj. beri að sjá stofnlánadeild landbúnaðarins fyrir nægilegu fé, vegna þess að hún, núv. ríkisstj., beri ábyrgð á dýrtíðinni og rýrnun krónunnar. Hv. þm. fullyrðir þetta hér og talaði alveg eins og hann meinti þetta í fullri alvöru, að núv. ríkisstj. beri ábyrgð á dýrtíðinni og lækkun krónunnar. Hv. þm. hefur ekki setið í Nd., en Það eru ekki margar vikur síðan formaður Framsfl., 1. þm. Austf. hv., var að tala um það, að í árslok 1958, þegar vinstri stjórnin fór frá, hefði eiginlega ástandið í þjóðmálum verið ágætt, og ef hv. 1. þm. Vesturl. vill fletta upp í ræðum, sem liggja hér frammi á lestrarsalnum, mun hann sjá þessa setningu hér um bil orðrétta, að meiningunni alveg, að hv. þm. sagði, að það hefði eiginlega allt verið í lagi, nema það réðst ekkert við vísitöluna og dýrtíðina. Og það var þessi mikla dýrtíðarvísitala, sem lék alveg lausum hala í tíð vinstri stjórnarinnar. 1958 var gengið fellt um 55% með yfirfærslugjaldinu, og allt það ár hélt dýrtíðarskriðan áfram að renna og krónan að falla árið út, og þó að Það væri allt í lagi nema dýrtíðin og vísitalan, þá varð það til þess, að vinstri stjórnin hrökklaðist frá í fullkomnu úrræðaleysi eftir að hafa fellt gengið í það, sem það var skráð í febrúarmánuði 1960. Það gengur ekki fyrir hv. 1. þm. Vesturl. að vera svo trúgjarn á Það, sem stendur í Tímanum, og svo lítið krítiskur á það, sem Þar er sagt, að bera það svo á borð í ræðu hér á Alþingi, að það sé núv. ríkisstj., sem ber ábyrgð á því, hvað raunverulegt gengi krónunnar er og dýrtíðin í dag. Það, sem núv. ríkisstj. hefur gert, er að skrá krónuna á Því gengi, sem hún hefur raunverulega, viðurkenna það, hafa rétt gengi, en ekki falskt gengi og mörg gengi. Núv. ríkisstj. er vissulega ekki völd að þeirri dýrtíð, sem ríkir í landinu, heldur er þetta afleiðing þess, sem varð vinstri stjórninni að falli, og skal ég ekki fara lengra út í þá sögu. Ég hélt, að allir hv. þm. þekktu þetta, en vegna Þess að hv. 1. þm. Vesturl. virðist hafa trúað því, sem var sagt í Tímanum, og byggði málflutning sinn á Því. að það væri satt, sem þar hefði verið sagt, taldi ég ástæðu til að vekja að nokkru máls á þessu.

Hv. þm, las hér upp úr ályktun, sem aðalfundur Stéttarsambands bænda gerði s.l. haust, og einnig vitnaði hann í ályktun búnaðarþings og byggði málflutning sinn að nokkru á því, sem þar stóð. Ég vil nú segja það, að aðalfundur Stéttarsambands bænda hefur meira traust og meira álit hjá mér en meiri hluti búnaðarþings hefur gefið tilefni til nú siðast að gefa því. Það er rétt, sem hér var sagt áðan, það eru vitanlega margir mætir og góðir menn á búnaðarþingi eins og á aðalfundi Stéttarsambands bænda, en öfgarnar og fjarstæðurnar, sem fram komu hjá meiri hluta búnaðarþings, hafa náttúrlega slegið öll met, eins og lýst var hér réttilega áðan, og ég skal ekkert segja um það, hvort hv. 1. þm. Vesturl. hefur átt nokkra forustu þar, ég veit það ekki, en hann hefur tekið þátt í þessum leik og verið með í þeim meiri hluta, sem hefur auglýst á margan hátt vanþekkingu og leyft sér að gera opinbera ályktun, sem er byggð algerlega á skökkum forsendum. Ég þarf ekki að fara nánar út í það, það var gert hér áðan. Ályktunin er byggð algerlega á skökkum forsendum, og þessi ályktun hefur verið prentuð hér og liggur hér fyrir á þskj. búnaðarþingi til angurs og rauna um langa framtíð. Það verður erfitt að gleyma því, sem stendur í skjölum þingsins, og það verður þjóðlegt plagg, hvernig ályktun meiri hluti búnaðarþings gerði á því herrans ári 1962. Það er t.d. liður nr. 1. Þar er gerð ályktun um það, að búnaðarþing geri kröfu til, að ríkissjóður greiði þann halla, sem deildir Búnaðarbankans, byggingarsjóður sveitabæja og ræktunarsjóður, hafa orðið fyrir vegna gengisfellingarinnar, — gerir kröfu til þess, enda þótt það sé komið fram frv. um það, sem ekki aðeins tryggir það, að þessi gengishalli verði greiddur, heldur miklu meira en það, og telur ekki hægt að samþ. frv., nema það verði gengið inn á það, sem í þessum lið felst, enda þótt það liggi fyrir skjalfest í frv., að það eigi að gera miklu meira en greiða gengishallann. Svo hefur því verið lýst hér af hv. 6. þm. Norðurl. e., hversu fáránlegur 2. liðurinn er, 3. liðurinn og allir liðirnir út í gegn. Ég ætla ekki að taka það upp aftur, sem hann sagði hér áðan.

Hv. þm. fullyrti það, og það þykir mér enn leiðinlegt, og Það er ekki góður málflutningur hjá honum, að enginn búnaðarþingsfulltrúi hafi viljað játa sig samþykkan 1% gjaldinu á búvörur. Það vill svo til, að ég hef hér frávísunartillögu minni hlutans. Hv. 1. þm. Vesturl. vitnaði ekkert í hana áðan. Það hefði líka tæplega staðizt, sem hann fullyrti, ef það hefði verið gert. Ég vona þó, að það hafi verið sagt í trausti þess, að þetta væri ekki við höndina. En af því að ekki hefur verið prentuð á Þskj. frávísunartillaga minni hlutans og hv. þm. kannske eru henni ókunnugir, þá held ég, að það væri rétt — með leyfi hæstv. forseta — að lesa hana upp, og Þá geta hv. þm. sannfært sig um það, hvort þeir, sem að minni hl. stóðu, eru samþykkir frv. í öllum aðalatriðum eða bara að einhverju leyti. En ef þeir eru samþykkir frv. í öllum aðalatriðum, eru þeir líka samþykkir þessu 1% gjaldi. Ég held, að það geti enginn efazt um það. Þessi rökstudda dagskrá minni hl. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Þar eð frv. til laga um stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum tryggir stóraukið fé til stofnlána í landbúnaðinum í framtiðinni, sem er mikilvægasta hagsmunamál bændastéttarinnar, og þar eð eigið fjármagn stofnlánadeildarinnar er forsenda Þess, að auðið sé að lána stofnlán með hagstæðum kjörum, og þar eð gert er ráð fyrir í frv. að tryggja veðdeild Búnaðarbankans fé í samræmi við fyrri ályktun búnaðarþings, og þar eð frv. gerir ráð fyrir mun hærra nýju framlagi ríkissjóðs til stofnlána í landbúnaði en svarar gengisfalli á erlendum lánum sjóðanna, og Þar eð fullyrðingar um, að gengishalla hafi verið létt af gjaldeyrisbönkum, eru rangar, en gengishagnaðurinn af þeim tekinn, og þar eð tilvitnun í fjáröflun til stofnlánadeildar sjávarútvegsins hlýtur að byggjast á misskilningi á eðli málsins, og þar eð frv, leysir á myndarlegan hátt stórt vandamál landbúnaðarins, sem ekki verður skotið á frest, og um 70% (Það er nú reyndar miklu meira en 70%) af árlegum framlögum til stofnlánadeildar koma frá öðrum en bændum, telur fundurinn ályktunartillöguna ekki vera í samræmi við hagsmuni bænda og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.“

Ég vona, að þetta hafi verið rétt lesið, og ef það er, þá er náttúrlega ekki neinn vafi á því, hvað minni hl. búnaðarþings vildi í þessu máli. Og sem betur fer, áttu menn sæti á búnaðarþingi, sem gátu bjargað heiðri þess, og það er þess vegna ekki talað um búnaðarþing, heldur meiri hl. búnaðarþings, þegar rætt er um, að það hafi skotið fram hjá markinu og orðið sér til minnkunar.

Ég held, að hv. 1. þm. Vesturl. hefði átt að taka Það vel upp hjá hv. 6. þm. Norðurl. e., þegar hann taldi vafasamt, að ályktun meiri hl. hafi verið samin á búnaðarþingi. Það var vissulega af velvilja sagt hjá hv. þm., og ég er dálítið hissa á því. að hann skyldi ekki taka því með þökkum. En látum það vera, það kannske skiptir ekki miklu máli, en ég verð að segja það, að meiri hl. búnaðarþings hefur ekki aukið virðingu sína og hann hefur ekki í þessu tilfelli hagað sér á þann hátt, að bændur geti leitað þar halds og trausts.

Búnaðarþing gerði aðra samþykkt. Það gerði samþykkt um það að framlengja búnaðarsjóðsgjaldið til bændahallarinnar, sem er 1/2% af búvörum og Þá 1% af launatekjum. Hv. 1. þm. Vesturl. sagði áðan, ég skrifaði það orðrétt, hann sagði eitthvað á þá leið, að 1% gjaldið skerti kjör þeirra manna í landinu, sem lægst eru launaðir, og það væri svipuð hagfræði og að mjólka kúna og gefa henni svo mjólkina. Ef ástæða er til þess að fara svona stórum orðum um 1% gjald af búvörum, sem verður til þess að fá á móti annars staðar frá margfalda upphæð og gerir mögulegt að byggja upp lánasjóði landbúnaðarins, til þess að þeir geti lánað bændum hærri lán með betri kjörum en áður til þess að byggja yfir sjálfa sig og búpeninginn og rækta jörðina, ef það er einhver glæpur, þá skil ég ekki þau vísindi og rök, að það sé hagræði fyrir bændur að láta 1% af launatekjum sínum í hallarbyggingu hér í Reykjavík. Sá meiri hl. búnaðarþings, sem fordæmir uppbyggingu búnaðarsjóðanna með þeim hætti, sem hér er fyrirhugað, en samþ. að leggja 1% launaskatt eða 1/2% gjald á búvörur til þess að byggja höll hér í Reykjavík, — sá meiri hl. er ekki trausts verður, og það er engin ástæða fyrir menn, að taka tillit til þess. Og ég segi það, að þótt þessi ályktun sé prentuð hér á þskj., til þess að það gleymist ekki, hvað meiri hl. gerði á siðasta búnaðarþingi, þá verður það vitanlega ekki til þess, að hv. þm. snúist á þá sveif, og það er raunalegt, að búnaðarþing skyldi haga sér á þann hátt, sem staðreyndin lýsir.

Ég skal ekki hafa fleiri orð um þetta. Ég held, að menn séu farnir að átta sig á, að meiri hl. búnaðarþings hefur verið sleginn pólitískri blindu. Það er ekki hægt að orða það öðruvísi. Þarna áttu sæti margir vel skynsamir menn og almennilegustu menn á margan hátt, en þeir hafa verið slegnir pólitískri blindu. Það er eina afsökunin, sem þeir hafa fyrir því að láta svona frá sér fara, — ef það er þá afsökun. í rauninni er það ekki.

Hv. þm. var að tala um bað, að 0.75% gjaldið, sem leggst við útsöluverðið og er réttilega eins og söluskattur, gæti orðið til þess að gera bændum erfiðara fyrir að semja við neytendur í sex manna nefnd. Ég er alls ekki þeirrar skoðunar. Ég býst við því, að neytendur skilji, hvað þetta gjald raunverulega þýðir. Og þetta gjald er notað sem tekjustofn fyrir lánastofnanir landbúnaðarins víðar en hér. Þetta er búið að vera nokkuð lengi í Noregi. Og ég held einmitt, að þetta gjald geti orðið til þess að auka skilning milli bænda og neytenda, en ekki til þess að skapa óeiningu. Ég held, að Þetta verði til þess, að fólk hugsi alvarlegar um það, áð landbúnaðurinn er ekki aðeins fyrir bændurna eða það fólk, sem lifir í sveitunum, landbúnaðurinn er fyrir þjóðina alla, og því betur sem að landbúnaðinum er búið, Því meiri möguleika hefur hann til þess að framleiða góðar vörur og ódýrari vörur. Því betri lánakjör sem landbúnaðurinn hefur, því lægra verð á landbúnaðarvörum. Ég er alveg sannfærður um það, að þetta er nýmæli í íslenzkri löggjöf, sem reynslan á eftir að sanna að á fullan rétt á sér.

Hv. þm. hefur átt þátt í því á undanförnum búnaðarþingum að gera kröfur til ríkisstj., að hún útvegi veðdeild Búnaðarbankans 10 millj. kr. á ári. Nú er hv. þm. horfinn frá því að biðja um 10 millj., nú skal það vera nokkuð miklu meira. Hv. þm. segir: Það er engin trygging fyrir því. að stofnlánadeildin geti keypt veðdeildarbréf, þótt gert sé ráð fyrir því með þessu frv. Tryggingin felst aðeins í því, að það verði traustar stoðir fjárhagslega undir stofnlánadeildinni, eins og verður með því að lögfesta þetta frv. Þá skeður það, sem hv. 6. þm. Norðurl. e. lýsti hér áðan, að stofnlánadeildin getur komið til annarra lánastofnana og fengið lán til viðbótar sínu eigin fé, sem hún vitanlega verður að gera nú fyrstu árin, meðan hún er að byggja sig upp. En þá er kinnroðalaust hægt að tala við lánastofnanir og óska eftir viðbótarláni til deildarinnar, vegna þess að það er augljóst og þarf ekki annað en leggja spilin á borðið, að deildin getur staðið undir þessum lánum og endurgreitt þau. Dæmið snýst alveg við frá því. sem verið hefur, þegar s.l. haust og áður hefur verið reynt að fá lán til búnaðarbankasjóðanna, meðan þeir voru gjaldþrota og augljóst var, að þeir gátu ekki af eigin rammleik endurgreitt lánin. Ég tel því að með þessu ákvæði í frv. að heimila stofnlánadeildinni að kaupa veðdeildarbréf allt áð 10 millj. kr. á ári sé kröfu búnaðarþings, sem send var á s.l. ári til ríkisstj., fullnægt. Hitt er svo annað mál, að það má vel vera, að það væri æskilegt að hafa meira en 10 millj. En eins og hér var sagt áðan, eftir því sem stofnlánadeildinni vex fiskur um hrygg og hún getur tekið að sér nokkuð af því, sem veðdeildinni var ætláð, þá vitanlega nægja 10 millj. fremur nú eftir þessa lagasetningu en t.d. á s.l. ári, þegar búnaðarþing gerði kröfu um 10 millj. kr. framlag til deildarinnar. Þegar stofnlánadeildin fer að lána út á dráttarvélar, fer að lána ræktunarsamböndunum og fer að auka starfsemi sína frá því, sem verið hefur, þá náttúrlega verður hlutverk veðdeildarinnar þrengra og ekki eins nauðsynlegt og áður var. En kröfur hv. framsóknarmanna um fé til veðdeildarinnar, til stofnlánadeildarinnar nú, byggjast, eins og sagt var, ekki á veruleika og alls ekki á þeirri trú flm. till., að það sé möguleiki á að gera þetta, því að Það er kunnugt, að veðdeildin hefur verið févana mörg undanfarin ár, síðasta áratug og lengra aftur í tímann. Og það hefur verið krafa frá bændum um aukið fé til deildarinnar, en það hefur ekki fengizt. Þrátt fyrir 75% ákvæðið, heimildina til að lána allt að 75% af byggingarkostnaði, hefur vegna fjárskorts ekki verið lánað nema 25–30%. Það var sagt hér áðan, það mun ekki hafa verið af viljaleysi hjá hv. framsóknarmönnum, að þeir útveguðu ekki þetta fé, meðan þeir studdu ríkisstj., heldur af getuleysi, og þess vegna hefði verið eðlilegt að ætlast til þess, að þessir hv. menn, sem eru kunnugir getuleysi fyrrv. stjórna, hefðu fagnað þessu frv., sem hér er lagt fram, fagnað því að sjá, að hér er lagður traustur og raunhæfur grundvöllur að stofnlánadeild landbúnaðarins til frambúðar. Það hefði verið ástæða til að ætlast til þess. En hv. 6. þm. Norðurl. e. afsakaði þetta áðan, að hv. þm. Framsfl. hefðu fallið fyrir þeirri freistingu að reyna að hasla sér betri baráttugrundvöll á sviði stjórnmálanna, og vitanlega var tilgangurinn sá, en ég efast um, að það takist með þessum till. Ég held, að bændur í landinu fylgist betur með en margir ætla. Og þeir þekkja áreiðanlega stjórnmálasöguna síðustu árin. Þeir hafa fylgzt með Þeirri viðleitni, sem stjórnarvöldin hafa haft uppi á hverjum tíma að tryggja búnaðarsjóðunum fé, og þeir hafa líka fylgzt með getuleysinu og þeim fjárskorti, sem af því hefur leitt. Ég veit, að bændur landsins, þegar þeir kynna sér þetta frv., skilja það, hvers virði það er að byggja sjóðina upp eins og hér er lagt til. Þeir gera sér fyllilega grein fyrir því, að það mun ekki hafa verið hægt að fá sem svarar 26–27 millj. kr. árlega annars staðar frá, úr ríkissjóði og með söluskatti, nema þeir legðu eitthvað til sjálfir. Ég er sannfærður um, að bændur skilja þetta. Ég er sannfærður um, að það tekst ekki að gera okkur, sem að þessu frv. stöndum, tortryggilega í augum bænda fyrir þetta. Það tekst ekki að fá bændur til að trúa því, að við flytjum þetta frv. á annan hátt en að byggja upp fyrir nútíðina og framtíðina og skapa landbúnaðinum bætt lánskjör frá Því. sem verið hefur.

Ég sagði við einn hv. framsóknarmann hér í kvöld: Hvernig mundi ykkur liða, ef það færi nú svo, að þessu frv. væri kippt til baka og það væri hætt við að lögfesta það? Hvernig mundi samvizkan verða hjá þeim mönnum, sem standa að minni hl. hv. landbn., ef þeir væru teknir alvarlega? Og hvernig mundi fulltrúum bænda á búnaðarþingi, sem mynduðu meiri hl., liða, ef þeir væru teknir alvarlega og farið væri eftir þeirra óskum að lögfesta ekki frv.? Ég er viss um, að þeir mundu fá samvizkubit og þeir mundu hafa harmað það að hafa látið stjórnast af pólitískum sjónarmiðum.

Um till. hv. meiri hl. þarf ég raunar ekki að ræða, vegna þess að það hefur verið gert hér. Ég Þarf ekki að ræða það nánar. Hv. framsóknarmenn tala um, að framlag sjávarútvegsins til fiskveiðasjóðs sé ekkert sambærilegt Þessu framlagi, sem ætlazt er til að bændur leggi til. En það er eftir því, hvar hv. framsóknarmenn standa og um hvaða mál þeir eru að tala, að hverju fullyrðingar þeirra miða nú síðustu dagana. Það hefur sennilega verið sagt í báðum hv. d. Alþ. fyrir nokkrum dögum, og tíminn sagði það fyrir nokkrum dögum, að þetta væri alls ekki sambærilegt. En í hv. Nd. er komið fram þskj. frá hv. framsóknarmanni. þar sem Það er staðfest, að hann lítur alveg sömu augum á Þetta gjald til fiskveiðasjóðs og gjaldið af búvörum til stofnlánadeildarinnar, því að hann talar á þessu þskj. um álögur á sjávarútveginum. Áður sögðu hv. framsóknarmenn, að það væru engar álögur á sjávarútveginum, vegna þess að sjávarútvegurinn fengi þetta bætt. Það var auðvitað alltaf rangt, vegna þess að sjávarútvegurinn hefur enga verðtryggingu. Sjávarútvegurinn hefur greitt til fiskveiðasjóðs 1.8% af útflutningsverðinu mörg undanfarin ár, og þess vegna er fiskveiðasjóður orðinn sterk lánastofnun, enda Þótt ekki hafi verið greitt í hann úr ríkissjóði nema 2 millj. kr. eða aðeins örlítið brot af tekjum sjóðsins. Stundum hafa hv. framsóknarmenn verið að heimta sama rétt til handa landbúnaðinum og sjávarútvegurinn hefur, en það verður vonandi aldrei gert að þessu leyti. Ég held, að það væri bezt fyrir þá, sem hugsa um landbúnaðinn, að gera ekki samanburð þar.

Hv. 1. þm. Vesturl. var að tala um lög um landnám, nýbyggðir og endurbyggingar í sveitum frá 1946, talaði um það, að sjálfstæðismenn hefðu miklazt af þessum lögum, talið þau góð og varanleg. Já, vissulega voru þetta góð lög og eru góð lög, og ég held, að við hljótum allir að vera sammála um það, að landbúnaðurinn býr að þessari löggjöf. Hvernig var þessi löggjöf? Hún var þannig, að ríkissjóður skyldi leggja fram 5 millj. kr. á ári í 10 ár, eða samtals 50 millj. Þetta var 1946. Þá voru 5 millj. mikil fjárhæð, og þetta var fyrsta raunhæfa átakið til að leggja grundvöll að stórstigum framförum í sveitum landsins. Eftir að Þessi lög fóru að verka, var hægt að hefja ræktunarframkvæmdir í stórum stíl, áður var það ekki, og byggja upp. En það, sem þetta frv., sem nú stendur til að lögfesta, hefur fram yfir það, er, að það er tryggt, að ef dýrtíðin vex og krónan rýrnar, þá aukast tekjur stofnlánadeildarinnar einnig. En það var ekki með lögunum frá 1946, sem landbúnaðurinn hefur vissulega notið góðs af undanfarin ár.

Ég sagði áðan, að ég ætlaði ekki að fara út í till. minni hl., vegna þess að það var gert hér og það væri bara endurtekning. Ég get Þess vegna stytt mál mitt, get látið því lokið. Ég tel, að hv. framsóknarmenn, sem að minni hl. standa, hafi farið algerlega rangt að með því að gera tili., sem þeir sjálfir vita að þeir geta ekki fengið samþ., og það er eftirtektarvert, að hv. framsóknarmenn hafa fram að þessu engar till. haft til raunhæfra úrbóta fyrir lánasjóðina. Þeir hafa tvö þing flutt frv. um það, að ríkissjóður taki á sig gengishallann, sem sumir segja að sé 10 millj. kr. á ári, aðrir 9 millj., — það er nú líklega nær, að það séu 9 millj. Það er þeirra till. í frv. í þessari hv. d. Þótt það frv. hefði verið samþ. og ekkert hefði annað verið gert, þá stæðu sjóðirnir algerlega févana uppi og hefðu ekkert fé til útlána. Það var aðeins till. um það að bjarga líðandi stund. En þegar frv. ríkisstj. hefur verið lagt fram og hv. framsóknarmenn sjá, hvaða till. eru þar gerðar, þá fara þeir að gera till., þá kemst hugmyndaflugið í gang. Það er eftirtektarvert, að að sumu leyti eru þessar till. líkar till. ríkisstj., t, d. Það, að Þeir tala um 25 millj. kr. framlag á ári úr ríkissjóði, en í frv. eru tryggðar 26–27 millj. kr. á ári annars staðar frá en frá bændum. Till. hv. minni hl. er þess vegna að Þessu leyti sniðin eftir till. ríkisstj. í frv. Þeir bara ætlast til, að þetta sé tekið úr ríkissjóði, án þess að nokkuð komi annars staðar frá.

Ég þarf ekki að bæta við þau rök, sem hv. 6. þm. Norðurl. e. lagði hér fram áðan í sambandi við það, hvort það væri líklegt, að það væri hægt að fá þetta til stofnlánasjóðanna án nokkurs framlags annars staðar frá, án Þess að það kæmu kröfur úr öðrum áttum, því að víðar vantar fé.

Um mótvirðissjóðinn og sérstakan gengisreikning, sem ætti að setja gengishalla búnaðarsjóðanna á, er náttúrlega óþarfi að ræða nokkuð, því að þetta gengistap hv. framsóknarmanna er allt byggt á misskilningi. Og það er í sjálfu sér eðlilegt, að það korni viðar fram en hjá formanni flokksins. Við munum, að formaður flokksins, hv. 1. þm. Austf., fullyrti í Nd., að það væri búið að bæta öllum sjóðum og bönkum gengistöpin. Tíminn tók þetta upp, hv. 1. þm. Vesturl., Asgeir Bjarnason, fullyrti það líka í þessum ræðustól, en nú eru hv. framsóknarmenn hættir að bera Þetta upp í sig, því að Þeir hafa nú sannfærzt um, að þetta hefur ekki við rök að styðjast. Það hefur engum sjóðum verið bætt gengistapíð, heldur hefur gengishagnaðurinn verið tekinn af gjaldeyrisbönkunum til þess að greiða ríkissjóði hallann, og Seðlabankinn hefur sjálfur borið þann gengishalla, sem á honum lenti. Gengistap fiskveiðasjóðs mun vera 37–40 millj. kr. og er vitanlega óbætt, og Þarf ekki fleiri orðum um þetta að eyða enda eru hv. framsóknarmenn nú sannfærðir um, að formaður þeirra fór þarna með fleipur eitt.

En þegar minnzt er á mótvirðissjóðinn, skulum við minnast þess, að landbúnaðurinn hefur fengið hálfan mótvirðissjóðinn og notið góðs af, og það er enginn vafi á því, að þótt nú sé að safnast upp nokkurt fé í nýjum mótvirðissjóði, sem er vegna óafturkræfs framlags frá Bandaríkjunum, þá mun landbúnaðurinn fá sinn hlut þar af, þegar tímabært þykir að hreyfa það fé. En þetta fé fékk íslenzka þjóðin 1960 til Þess að tryggja gjaldeyrisstöðuna, og er gert ráð fyrir því. að það verði í Seðlabankanum, — ég skal ekki segja hvað lengi, þangað til ríkisstj. og hagfræðingar hennar telja tímabært og heppilegt að nota Þetta fé. En þótt nú sé lagður grundvöllur að lánasjóðunum, verður áreiðanlega nú á næstunni gott að geta farið í þetta forðabúr, og landbúnaðurinn mun fá sinn skerf þar af.

Þess skal getið, sem kannske hefur verið minnzt á áður, að lánasjóðir landbúnaðarins hafa búið við vaxtahalla af lánum mótvirðissjóðs um 21/2% alla tíð síðan mótvirðissjóður fór að lána, en nú hefur Framkvæmdabankinn fallizt á það, að vextir af lánum mótvirðissjóðs, bæði þeim eldri og þeim, sem síðar kunna að verða veitt, skuli verða jafnháir og stofnlánadeildin lánar gegn. Þetta verður vitanlega til þess að skapa hagstæðari rekstur fyrir deildina en áður.

Ég held ég láti þá máli mínu lokið, það er orðið miklu lengra en ég ætlaði í fyrstu. En ég vil að lokum segja það, að enda þótt meiri hl. búnaðarþings hafi lagt til, að þetta frv. verði ekki samþ., og enda Þótt minni hl. n., sem vitnað hefur í þann meiri hl., leggi Það til með sömu rökum, þá vona ég, að bændur njóti þeirrar giftu, að Þetta frv. verði lögfest á þessu þingi og að það megi takast að leggja nú þegar trausta undirstöðu að lánasjóðum landbúnaðarins.