31.03.1962
Efri deild: 76. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1744 í B-deild Alþingistíðinda. (1569)

170. mál, Stofnalánadeild landbúnaðarins

Frsm. meiri hl. (Bjartmar Guðmundsson):

Herra forseti. í nál. meiri hl. landbn. er ein brtt. við 12. gr., sem ég óskaði að tekin væri aftur við 2. umr. Ég gerði efnislega grein fyrir þessari breytingu við 2. umr. þessa máls, og er breytingin við 2. málsgr. 12. gr.: „Í stað orðanna „fyrst og fremst“ komi: aðeins.“ Þetta á að taka af öll tvímæli um það, að ekki verði lánað út til bygginga og ræktunar í sveitum með gengisákvæði. Nú óska ég, að þessi brtt. komi til atkvæða við 3. umr., eins og ég gerði grein fyrir og tók fram við 2. umr. málsins.

Í öðru lagi hefur landbn. orðið sammála um að gera tvær brtt. við frv. við þessa umr. Það er í fyrsta lagi ein mjög lítil breyting við 8. gr.: „Aftan við næstsíðustu málsgrein komi: ef nauðsynlegt þykir.“ Þetta lýtur að tryggingum, sem banki taki fyrir lánum, og er við nánari athugun talið nauðsynlegt, að þetta komi inn í greinina.

En svo er önnur allmikil breyting, sem er við 12. gr. og hljóðar svo:

„Við greinina bætist ný málsgrein, svo hljóðandi:

Stofnlánadeild er heimilt þrátt fyrir ákvæði 2. málsgr. og ákvæði 6. gr. að endurlána erlent lánsfé til bygginga, sem reistar eru til sameiginlegra þarfa bændasamtakanna, enda séu skuldabréf fyrir þeim lánum með gengisákvæði.“

Þessi viðbót við greinina er fram komin vegna þess, að Það þykir ástæða til þess, að þarna sé möguleiki til að lána fé til stærri bygginga, sem bændasamtökin standa að. En tekin eru af öll tvímæli um það, að slík lán skuli þá aðeins veitt með gengisákvæði, ef erlent lán verður tekið til slíkra hluta.

Um þessar tvær breytingar, sem ég legg hér fram skriflega við 3. umr. málsins, hefur orðið fullt samkomulag í landbn., og vænti ég, að hv. þd. geti einnig fallizt á þær.