10.04.1962
Neðri deild: 89. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1833 í B-deild Alþingistíðinda. (1591)

170. mál, Stofnalánadeild landbúnaðarins

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Það er orðin ný hlið á hæstv. landbrh., sem við erum farnir að sjá hér á hv. Alþ. nú. Hann er farinn að verða svo fyndinn, að þegar hann flutti framsöguræðu fyrir þessu máli hér í hv. deild, þá var það ein svæsnasta svarræða, sem hér hefur heyrzt, því að öll ræðan var skammir um andstæðingana fyrir það, sem þeir hefðu sagt í hv. Ed. og þeir mundu sennilega segja hér í þessari hv. d. Hann vék hins vegar ekkert að því, hæstv. ráðh., að skýra málið fyrir hv. deildarmönnum, og var rétt farinn úr ræðustóli án þess að muna eftir að biðja hæstv. forseta að vísa málinu til n. og 2. umr., þegar umr. væri lokið.

Hér í ræðu sinni áðan eyddi hann löngum tíma í það, hæstv. ráðh., að tala um till., sem búið var að fella. Þetta er allmikil fyndni hjá þessum hæstv. ráðh., og hefur hann þó ekki verið sérstaklega þekktur fyrir það. Út af fyrir sig er ekki nema gott um það að segja, að hæstv. ráðh. bæti sig á einhverju sviði.

Nú ætla ég ekki að fara út í almennar umr. í sambandi við Það, sem ég ætla að segja hér að þessu sinni, því að ég hef ekki hugsað mér að tala hér langt mál. En hæstv. ráðh. sagði okkur frá því, að hjá öllum menningarþjóðum væri gengisskráningin á valdi seðlabankans. Þeir hafa seint áttað sig á þessu, hv. stjórnarsinnar, því að á síðasta Alþ. létu þeir afgreiða lög um Seðlabanka Íslands, en gleymdu þessum menningarþætti, en tóku sig svo á í sumar og töldu, að skv. stjórnarskrá Íslands bæri brýna nauðsyn til þess að leiðrétta þessa gleymsku þeirra og nú skyldi Seðlabankanum fengið valdið.

Hæstv. ráðh. sagði, að það hefði ekkert verið hægt að gera í málefnum landbúnaðarins, fyrr en búið hefði verið að setja löggjöf m.a. um ræktunarsjóð Íslands, sem hefði verið sett 1946. Lögin um ræktunarsjóð Íslands munu þó hafa verið samþ. hér á hv. Alþ. í maí 1947. En það er ekki mikil missögn hjá þessum hæstv. ráðh., þótt geigi um nokkra mánuði og færist á milli ára.

Þá sagði hæstv. ráðh., áður en hann fór úr ræðustóli, að frv. væri gert til þess að auka fjármagn í sveitum landsins. Ég sýndi fram á það í ræðu minni við 1. umr. þessa máls, að á stjórnartímabili Framsfl. hefði verið veitt inn í sveitir landsins í lánum 340–400 millj. kr., en í tekjur skv. þessu frv. ættu að koma úr sveitum landsins yfir 600 millj. kr. Ekki mótmælti hæstv. ráðh. þessum staðreyndum frekar en öðrum í ræðu minni.

Hæstv. ráðh. sagði, að ég hefði ekki farið rétt með, þegar ég gat um höfuðstól sjóðanna. byggingarsjóðs og ræktunarsjóðs, í árslok 1958. Ég skora á hæstv. ráðherra að láta birta reikninga þessara sjóða og vita, hvort þessar staðreyndir standast ekki. Ræktunarsjóður átti þá höfuðstól 61.7 millj. kr. og byggingarsjóður 43.3 millj. Þetta gera 105 millj. kr., og þýðir ekkert fyrir hæstv. ráðherra að vera að mótmæla þessum staðreyndum. Þessar tölur fékk ég frá starfsmönnum sjóðanna, og þær verða ekki véfengdar.

Ég gerði hæstv. ráðherra fullkomlega grein fyrir gengismálinu hér um daginn og sýndi líka fram á, að það væri ekki annað en einn þáttur í atvinnumálum Íslendinga, sem ætti að leiðrétta fyrir þennan atvinnuveg eins og aðra. Og ég sundurliðaði meira að segja í ræðu minni, hvað tilheyrði yfirfærslugjaldinu, gengisfallinu 1960 og gengisfallinu 1961. Hæstv. ráðherra þurfti þess vegna ekki að láta líta svo út, að mér hefðu ekki verið ljósar afleiðingar þessara þátta. En ég hélt því hins vegar fram, að það hefði verið ríkisins að bæta sjóðunum, enda sjóðirnir eign þess, og það væri ríkisins að sjá um, að einum atvinnuvegi væri ekki íþyngt, þegar væri verið að reyna að leiðrétta fyrir annan. En þessu til viðbótar vil ég benda Þessum hæstv. ráðherra á það, þó að það falli í gleymsku hjá honum eins og annað í sambandi við þetta mál, að á Alþingi 1959 flutti ég ásamt öðrum framsóknarmönnum í fjvn. till. um það, að af tekjuafgangi ríkissjóðs 1958, — Það væri gott, ef hæstv. ráðherra vildi hlusta á þetta, því að hann virðist ekki hafa áttað sig á því fyrr, — á Alþingi 7959 flutti ég ásamt öðrum fulltrúum Framsfl. í fjvn. á þskj. 404 till. um það, að af tekjuafgangi ríkissjóðs 1958, sem þá var vitað að yrði nokkur, yrðu 5 millj. kr. látnar ganga í byggingarsjóð Búnaðarbankans og aðrar 5 í veðdeild Búnaðarbankans, eða samtals 10 millj. kr. En það ár urðu sjóðir Búnaðarbankans fyrir útgjöldum vegna yfirfærslugjaldsins, sem nam 1.7 millj. kr. Þessu átti að mæta með 5 millj. í byggingarsjóð, og svo áttu aðrar 5 að ganga í veðdeildina. En hæstv. núverandi landbrh., hv. 1. þm. Rang. þá, Ingólfur Jónsson, var einn af þeim, sem felldu þessa tillögu. Það verður því ekki hrakið, að í ræðu minni hafi fullkomlega verið tekið tillit til þess ástands, sem var hjá sjóðunum í sambandi við gengisbreytingar. En ég hélt því fram og sýndi fram á Það með rökum, að frá upphafi vega hefðu þeir verið byggðir upp á því, að hinir almennu sjóðir jöfnuðu greiðsluhalla þeirra, hvort sem það væri í rekstrarkostnaði, vaxtatapi eða gengisbreytingu. Það þýðir því ekki fyrir hæstv. ráðherra að slá um sig hér í hv. Alþingi um það, að þessu verði mótmælt. En því hefur ekki verið mótmælt og er ekki framkvæmanlegt.

Þá kom hæstv. ráðherra að því, að betur hefði verið séð fyrir lánamálum bænda nú tvö síðustu árin en gert hefði verið áður, vegna þess að í nál. frá hv. 2. þm. Sunnl. væri sýnt fram á það, að að meðaltali á 11 ára tímabilinu frá 1947 til 1958 hefðu verið lánuð 600 lán úr ræktunarsjóði. Þetta hefðu þeir gert betur nú á árunum 1960 og 1961, því að árið 1960 hefðu verið lánuð 863 lán og 1961 745. Nú vil ég benda bessum hæstv. ráðherra á það, að hér var tekið meðaltal af 11 árum, en eðlilegt er að taka til samanburðar í þessu tilfelli næstu ár á undan. Á árinu 1957 voru lánuð úr ræktunarsjóði 944 lán, 1958 917 lán, en 1961 745 lán. Þetta er þróunin. En allt frá því 1947 til 1958 fjölgar lánum ræktunarsjóðs og hækka tölurnar, sem úr sjóðnum eru lánaðar. En á árinu 1959, þegar Alþýðuflokksstjórnin og Sjálfstfl. eru tekin að stjórna landbúnaðarmálum, þá lækka þau úr 917, sem þau voru árið áður, í 854 og í 863 1960 og 745 1961. Þetta eru staðreyndirnar í þeim málum, og samanburður á Þessu sviði er hæstv. ráðherra ekki heldur hagstæður, ef út í hann á að fara. Það er staðreynd, sem ég sýndi hér fram á við 1. umr. þessa máls, hver vöxtur sjóðanna til útlánastarfsemi og stofnlánaaukning hefði verið í tíð framsóknarmanna, en aftur hið gagnstæða, Þegar sjálfstæðismenn fóru með sjóðina.

Sömu sögu er að segja um byggingarsjóðinn. Lánum hans fór líka fjölgandi og voru á árunum 1956, 1957 og 1958 um 150, en 1959 voru þau 39. En ef tekið er meðaltal af 1959 og 1960, þá eru það 119 lán, sem lánuð eru þau ár að meðaltali, en 1961 eru það 88 lán. Lánsfjárhæðir hafa verið um 52 millj. kr. á fyrra tímabilinu, en urðu hæstar 1960, þá eru þær um 60 millj. kr., en lækkuðu svo aftur 1961 ofan í um 50 millj. kr.

En hæstv. ráðherra virðist hafa oftekið sig á því að útvega sjóðunum fé þessi tvö ár, sem hann er búinn að vera landbrh., því að hér eftir ætlar hann bændunum sjálfum að leggja féð til.

Ég sagði í upphafi máls míns, að ég mundi ekki fara að hafa hér langar umræður. Þær staðreyndir, sem ég benti á við 1. umr. þessa máls, hafa ekki verið hraktar, enda verður það ekki með rökum gert, því að þær voru staðreyndunum samkvæmt. Hæstv. ráðherra reyndi Það ekki heldur, nema með smávegis orðagjálfri, sem ég hef nú hrakið á nýjan leik.