13.04.1962
Efri deild: 87. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1873 í B-deild Alþingistíðinda. (1644)

44. mál, Handritastofnun Íslands

Frsm. (Auður Auðuns):

Herra forseti. Það voru aðeins nokkur orð, sem ég vildi segja hér til viðbótar minni framsöguræðu með nál.

Upphaflega var heiti stofnunarinnar þannig til komið í frv., eins og háskólaráð og heimspekideildin gengu frá því, að heimspekideildin gerði tillögur um nöfn og háskólaráð skyldi velja úr þeim nöfnum heiti á þessa stofnun, og háskólaráð valdi handritastofnunarheitið. Eftir að málið kom til meðferðar í þingnefnd í hv. Nd., var enn leitað umsagnar heimspekideildar og háskólaráðs. Heimspekideild tjáði sig þá með nafnbreytingu, en háskólaráð hélt fast við sína fyrri afstöðu. Nú er rétt, að það komi fram, vegna þess að heitið Stofnun Jóns Sigurðssonar hefur verið svo að segja eingöngu nefnt í sambandi við breytingu á nafni stofnunarinnar, að fyrir sumum hefur Það vakað frekar að fá breytingu á þessu nafni, sem er nú í frv., handritastofnun, heldur en endilega að þeir kysu þetta ákveðna nafn: Stofnun Jóns Sigurðssonar. Og það er rétt líka að láta koma fram, að það eru ýmsir þeirrar skoðunar, að það sé e.t.v. ekki það heppilegasta að tengja þessa stofnun nafni Jóns Sigurðssonar, stofnunin verði í eðli sinu eins konar deild úr háskólanum, enda kom það til umr. í menntmn. þessarar deildar, að það væri kannske eðlilegra og nafni Jóns Sigurðssonar enn meiri sómi sýndur með því að tengja nafni hans þá byggingu, sem verður reist yfir Landsbókasafnið og Háskólabókasafnið og þar sem þessi stofnun væntanlega mundi verða til húsa. Þessi hugmynd kemur beinlínis fram í niðurlagi fskj., sem fylgir aths. við frv. Ég vil leyfa mér að lesa upp þessa mgr., sem er svo hljóðandi:

„Háskólaráð vekur jafnframt athygli á hinni brýnu nauðsyn, sem á því er, að hafinn verði á þessu ári undirbúningur að því að reisa Landsbókasafnshús, og telur háskólaráð, að vel færi á því, að það væri tengt minningu Jóns Sigurðssonar á sama hátt og þjóðminjasafnshús var tengt minningunni um lýðveldisstofnunina.“

Ég vil segja það hvað mig áhrærir, að ég mundi satt að segja fyrst og fremst skoða Háskóla Íslands sem stofnun Jóns Sigurðssonar, þótt ekki beri hann hans nafn. Hann var stofnaður á 100 ára afmæli Jóns Sigurðssonar. Þessi stofnun, sem frv. fjallar um, er eins konar afmælisgjöf til Háskóla Íslands á 50 ára afmæli hans. Háskólaráð er sá aðili, sem út á við kemur fram fyrir háskólans hönd, og ég verð að telja, að það hljóti að þurfa að liggja fyrir Þung rök, rök, sem þungt vega, til þess að gengið verði fram hjá tillögum og áliti háskólaráðs.

Hv. 9. þm. Reykv. lét þess getið réttilega, að það hefði komið til tals að setja inn í frv. ákvæði um það, að nafnið skyldi síðar tekið til endurskoðunar. Nú ætla ég, að okkur hafi ýmsum sýnzt, að það væri ástæðulaust út af fyrir sig, vegna þess að það mál hlýtur auðvitað alltaf að standa opið að taka heitið upp til endurskoðunar, og getur þar t.d. hver þm. haft frjálsar hendur með uppástungu síðar, ef svo sýndist.

Hv. 4. þm. Vestf. beindi því til menntmn., að hún tæki tillögu, sem mér skildist hann boða, brtt., - þó kvaðst hann mundu áður ræða við háskólans menn um hana, — að nefndin tæki hana til athugunar milli umr. Ég tel, að það sé vitatilgangslaust. Nefndin er búin að þrautræða svo þetta atriði, að ég held, að frekari umr. um það í nefndinni muni ekki bera neinn árangur í því, að afstaðan breytist.