04.12.1961
Neðri deild: 29. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í B-deild Alþingistíðinda. (166)

3. mál, bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Hv. 1. og 2. minni hl. í fjhn. hafa nú gert grein fyrir afstöðu sinni, og hefur þar litið komið fram annað en það, sem sagt er í nál. á þskj. 147 og 148.

Í nál. á þskj. 147 kemur greinilega fram, og er hv. 1. þm. Norðurl. v. raunverulega samþykkur því, að allar greinar þess frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 3, hefur Alþingi jafnan samþykkt, að undanskilinni 5. gr., enda er hér sá háttur hafður á, sem hefur verið hafður á um langt árabil og hann hefur verið með að samþykkja árum saman með öðrum í fjhn. þessarar hv. deildar. Um þau atriði þarf því ekki að deila við hv. frsm. 1. minni hl.

Hins vegar hefur hv. frsm. 2. minni hl., hv. 4. þm. Austf., lýst því yfir, að þessu sé hann einnig andvígur, hann vilji láta fella frv. allt, því að hann telji, að ríkissjóður þurfi ekki á þeim tekjum að halda, sem fyrstu fjórar greinar frv. ræða um. Ég vil í sambandi við það leyfa mér að benda á, að fyrir þessu þingi liggja nú ýmis frumvörp frá stjórnarandstöðunni og m.a. frá hv. flokksmönnum hv. 4. þm. Austf., sem krefjast allmikilla útgjalda, svo og frá Framsfl., þar sem ekki er bent á neinar sérstakar leiðir til þess að mæta þeim útgjöldum, og verð ég þá að líta svo á, að þegar hér koma tillögur um að fella þessi gjöld niður, sé það viðurkenning á því, að þau frumvörp eigi einnig að fara í körfuna, þar sem þar er ekki gert ráð fyrir nýjum tekjustofnum og hér lagt til að lækka verulega þá tekjustofna ríkisins, sem nú eru, ef þessar tillögur væru samþykktar, og er óþarft að ræða frekar um það. Báðir hv. þm. eru andvígir því, að 5. gr. verði samþykkt, m.a. vegna þess, að hér sé farið inn á nýjar brautir, að taka inn ákvæði úr öðrum lögum og framlengja það með þessum sérstöku lögum, sem hér eru til umræðu. Þessi afsökun er ekki veigamikil, því að það má alveg eins segja, að það ætti að taka upp þá reglu, sem ég út af fyrir sig hefði ekkert á móti, að breyta öllum þeim lögum, sem hér er verið að framlengja, með breytingu á lögunum sjálfum og gera þetta þannig að föstum tekjustofnum. En bæði er nú það, að það mundi taka miklu lengri tíma en eftir er til áramóta, en þá falla þessi ákvæði úr gildandi lögum, og auk þess væri þá um leið alveg ákveðið, að þetta skyldu vera óbreyttir framtíðartekjustofnar. Það má e.t.v. segja um þá tekjustofna, sem eru í fyrstu fjórum greinunum, að þeir séu orðnir fastir og að þeim verði ekki hreyft, en það er svo samt, að ég minnist þess, að fyrir tveimur árum, er framlengja skyldi hér skemmtanaskatt, að þá tókst hv. 1. þm. Norðurl. v. að halda hér á fjórða klukkutíma ræðu um það atriði, svo að ekki sýndist hann vera þá alveg sammála um, að það bæri að halda þessum skatti. En væri farið inn á þá leið núna að taka ákvæðin upp í sjálf lögin, þá væri sú hætta á ferðinni, að ekki væri hægt að koma þeim málum fram öllum saman fyrir áramót, og þess vegna hefur þessi háttur verið hafður á, og í eðli sínu er ekkert við það að athuga út af fyrir sig. Það er hins vegar opin leið fyrir hvaða þm. sem er að bera fram brtt. við söluskattslögin. Ég geri ekki ráð fyrir, að þær brtt. yrðu útkljáðar fyrir áramót. En ef meiri hl. Alþingis féllist á að breyta þeim lögum, þá yrði það gert, áður en þingi er slitið og þá vitanlega kæmu þar inn ákvæði, hvort hækka skyldi þetta gjald, sem hér um ræðir, og kæmi þá í sama stað niður, ef fyrir því er hér meiri hluti á þinginu.

En ég vil í sambandi við þetta leyfa mér að benda á, að væri þessi skattur felldur niður, þá eru um leið felldir niður verulegir tekjustofnar fyrir sveitarfélögin. Þessi skattur, sem hér um ræðir nú og er hugsað að framlengja, sýnist mér gefa ekki minna en 47 millj. kr. til sveitarsjóðanna, og ég held, að bæði hv. 1. þm. Norðurl. v. og 4. þm. Austf. ættu þó a.m.k. að gera einhverja tilraun til þess að koma með tillögur um, hvernig ætti að mæta þeirri tekjurýrnun fyrir sveitarfélögin, sem ég geri ráð fyrir að þeir beri nú meiri umhyggju fyrir en sjálfum ríkissjóðnum. En um það er heldur ekkert, hvorki í nál. né heldur kom um það nokkuð fram fræðum þeirra.

Ég sé því ekki, að þau ummæli, sem hv. minni hl. hefur haft um þetta mál og byggt á till. sína um að fella frv., eins og hv. 4. þm. Austf. hefur gert, eða till. um að fella niður 5. gr., séu á rökum reist, og því held ég fast við þá till. meiri hl. fjhn., að frv. verði samþ. óbreytt.