02.04.1962
Neðri deild: 81. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1951 í B-deild Alþingistíðinda. (1671)

168. mál, aflatryggingasjóður sjávarútvegsins

Einar Olgeirsson:

Hæstv. forseti. Það eru nokkur orð út af ræðu hæstv. sjútvmrh. Ég skildi það ósköp vel hjá hæstv. ráðh., að honum var ekki beinlínis vel við, að það væri verið að telja petta styrkja- og uppbótaleið, sem hér væri farið inn á, og vildi nú kalla þetta tryggingaleið. Ég er hræddur um, að þetta hefði þótt, eins og með klauflaxinn í gamla daga, vera að reyna að taka upp Það, sem bannað var, með því að nefna það öðru nafni. Hann kom um leið inn á það, að togaraeigendur mundu ekki vera neitt hrifnir af styrkja- og uppbótaleiðinni, vegna Þess að þeim hefði verið skammtað nokkuð smátt hér á árunum. Styrkja- og uppbótaleiðin og upphæð styrkjanna og uppbótanna var náttúrlega alveg sitt hvað. Styrkja- og uppbótaleiðin gat verið jafnrétt, þó að við skulum segja togaraeigendum hafi fundizt þeir ekki fá nægilega háa styrki eða nægilega háar uppbætur. Það var spurning um, á hvern máta sú pólitík var framkvæmd, og það, sem var náttúrlega aðalatriðið í sambandi við þá stefnu, sem þá var, þessa svokölluðu styrkja- og uppbótastefnu, eins og sumir hafa kallað, það var, að hún gekk, að þjóðfélagið gekk með henni, að atvinnulífið gekk, að togararnir lágu ekki.

Það er alveg rétt hjá hæstv. ráðh., að togararnir fengu minna í sinn hlut en bátarnir. Og eins og okkur alla rekur minni til, sem munum, hvernig þetta allt saman byrjaði, þá var það þannig, að gengið var lækkað 1950, og þar með átti að hverfa að fullu burt frá öllum ríkisábyrgðum og öllum slíkum ríkisafskiptum af atvinnuvegunum og sérstaklega sjávarútveginum á Íslandi. Gengið var sem sé lækkað, og þar með átti allt að komast á réttan kjöl. En það sýndi sig náttúrlega alveg eins og núna, að með þessu komast ekki hlutirnir á réttan kjöl. Það er bara hrein vitleysa og bábilja að láta sér detta það í hug, að með því að fella gengi einu sinni eða tvisvar sinnum, þá sé þar með búið að leysa vandamál íslenzks atvinnulífs. í íslenzku atvinnulífi verður það svo, að það verður að styrkja þá, sem styrks þurfa, vegna þess að þessi þjóð er svo smá og á svo mikið undir sínum atvinnutækjum, að hún verður að sjá um, að þau séu rekin, hvaða aðferðum sem hún svo kann að beita til þess á hverjum tíma.

Og eitt hefur sýnt sig og sýnt sig þannig, að það þarf ekki að deila um það, að sú aðferð að ætla að láta einkaatvinnurekstur á Íslandi annast um atvinnulífið á Íslandi, hún hefur aldrei gefizt vel. Það hefur allt farið á hausinn, þegar það hefur verið reynt. Þegar þessi tilraun var gerð til þess að endurvekja ástandið úr kreppunni með gengislækkuninni 1950, þá leið ekki nema eitt ár eða á annað ár, þangað til varð að taka upp það, sem þá var kallaður bátagjaldeyrir. Það var tekið upp þá, af því að menn kunnu ekki við að fara inn á einhverja almenna styrkja- og uppbótaleið, og það var þess vegna byrjað með því að styrkja bátana, því að Þeir þóttu sérstaklega þurfa styrks við, og raunar ekki bátana nema á þorskveiðum, ekki á síldveiðum, þannig að það var sem sé verið að hlífast við að fara þessa leið sem einhverja algilda leið í þjóðfélaginu. Það var ekki gert fyrr en smátt og smátt. Og það, sem hæstv. sjútvmrh. þess vegna var raunverulega að segja, að togaraeigendur hefðu verið að gagnrýna, var raunverulega, að styrkja- og uppbótaleiðin skyldi ekki frá upphafi, Þegar hún var tekin upp 1952 eða hvenær sem það nú var, hafa verið farin þannig, að togarar skyldu þá styrktir alveg eins og bátar og jafnvel að síldveiðin væri styrkt alveg eins og þorskveiðin.

M.ö.o.: styrkja- og uppbótaleiðin eða hvað sem menn vilja kalla það, þetta er atriði, sem íslenzkt þjóðfélag kemur alltaf til með að fara aftur inn á, hvað margar tilraunir sem verða gerðar á áratugafresti, þegar menn eru búnir að gleyma einhverju af gömlu reynslunni, til þess að endurreisa hér hinn svokallaða ótakmarkaða einkaatvinnurekstur. M.ö.o.: það hefur sýnt sig, að leiðin hefur verið rétt, en það hefði þurft að framkvæma hana, það hefði þurft að ganga hana öðruvísi.

En þó verðum við nú að aðgæta það, sem hæstv. sjútvmrh. minntist á: Þótt togararnir hefðu fengið meiri peninga á þessum tíma og fengið þessa peninga fyrr og fengið þá ríflegar, hefðu þeir þá staðið betur að vígi í dag? Jú, vissulega hefðu þeir staðið ofur lítið betur að vígi. En við skulum bara gá að, hvað gerzt hefur á sama tíma: Peningarnir, sem þá hefði verið úthlutað til þeirra, eru ekki meira en sjötti, sjöundi partur sem andvirði af því, sem þeir mundu vera í dag, ef engar gengislækkanir og verðbólga hefðu farið fram, svo að það er gefið, að það hefði ekki hjálpað þeim nærri því eins mikið og ég held að hæstv. sjútvmrh. hafi haldið, þó að þeir hefðu fengið útborgaðan þó nokkurn gróða í íslenzkum peningum og þeir peningar legið hér, ef það hefði verið farið síðan inn á þá leið á eftir, sem farið hefur verið þessi tvö síðustu ár, að lækka íslenzka krónu eins gífurlega og gert hefur verið.

Þess vegna var það raunverulega ekki sjálf styrkja- og uppbótaleiðin, sem hæstv. sjútvmrh. var að gagnrýna eða telja, að togaraeigendur mundu gagnrýna þarna, heldur hitt, að hún hefði ekki verið farin í ríkara mæli gagnvart togurunum, þannig að þeir hefðu fengið meira af styrkjum og uppbótum á sínum tíma en þeir hefðu fengið. Það er allt annað mál.

Þá ræddi hæstv. ráðh, um ýmis áföll, sem togaraútgerðin hefði orðið fyrir. Ég held, að eitt gífurlegasta áfallið, sem togaraútgerðin hefur orðið fyrir, og ég held, að það væri nú rétt, að hagfræðingar ríkisstj. rannsökuðu það, það séu gengislækkanirnar, þessar tvær gengislækkanir. Ég held, að í fyrsta lagi sé sjálfur rekstur togaranna þannig, að sá hluti af þeirra kostnaði, sem hækkar við lækkun á gengi krónunnar, sé það stór, að þeir séu viðkvæmari fyrir þessu og verði verr úti en nokkur annar aðili í þjóðfélaginu. Ég held, að gengislækkanirnar séu beinlínis reiðarslag fyrir togaraútgerðina strax hvað reksturinn snertir. Og hvað snertir stofnkostnaðinn, þá sjáum við það þó áþreifanlega á þeim nýju togurum, sem keyptir hafa verið til landsins, að þeir menn, sem hafa ráðizt í að kaupa þessa togara, og það eru ekki allt saman menn, sem bara búa til einhver hlutafélög og geta bjargað sér endalaust þannig, það eru líka til svo heiðarlegir togaraútgerðarmenn, að þeir hafa lagt í það og sett allar sínar eigur að veði til þess að reyna að kljúfa það að afla nýrra togara, þessir menn fá það bókstaflega ofan á sig, að þegar þeir eru búnir að kaupa togara, sem þeir halda að muni kosta kannske 20 millj., að hann er kominn upp í 40 millj., áður en þeir vita af, þannig að þetta er eins og reiðarslag á þá menn, sem hafa einhverja trú á togaraútgerð á Íslandi og eru að reyna að koma henni af stað og endurnýja togaraflotann, þannig að gengislækkunin var beinlínis harðvitugasta aðgerð gegn þeim togaraeigendum, sem voru að leggja í nýja togara þá, enda var það líka svo, að þessir nýju togarar hafa átt hvað erfiðast af öllum og jafnvel sumir þeirra legið allan tímann.

Er það nú sanngjarnt um Þessi áföll, sem hæstv. ríkisstj. með sinni stefnu bakar togaraútgerðinni, að togaraútgerðarmenn skulu fara að reyna að vinna þetta upp á kostnað sjómanna? Það er sannarlega þar, sem þeir ættu sízt af öllu að bera niður. Satt að segja hefði manni fundizt, að togaraútgerðarmenn í þjóðfélaginu ættu að vera það sterkir aðilar og það höfðingjadjarfir aðilar í þessum efnum, að þeir hefðu þorað að segja þeim aðilum, sem græða, að það séu þeir, sem eigi að borga. Við vitum það ósköp vel, að á sama tíma og togaraeigendurnir kvarta yfir rekstrinum hjá þeim, þá græða bara bankar ríkisins upp undir 150 millj, kr. á ári, þannig að það vantar ekki gróðann í íslenzkt þjóðfélag, og mætti fleiri þar upp telja en bankana. En reikningar þeirra liggja einna skást fyrir, þó að reynt sé að fela ýmislegt í þeim, þannig að það er hægt greinilega þar að sjá, hver gróðinn er. Það hefði þess vegna verið stórmannlegra af togaraeigendum að segja beinlínis, að það þurfi að skera niður svo og svo mikið af gróða bankanna, af gróða olíuhringanna, af gróða vátryggingarfélaganna og af gróða annarra slíkra aðila, hvers konar umboðsmanna og annarra slíkra, heldur en að fara að ráðast á sjómennina.

Það hefur verið flutt frv. um það hér á þinginu, á þskj. 200, frv. til I. um stuðning við atvinnuvegina, flutt af hv. 4. þm. Austf. og hv. 6. þm. Sunnl., þar sem beinlínis er lagt til að gera ráðstafanir til þess að geta hækkað fiskverðið til sjómanna og útgerðarmanna, og sýnt greinilega fram á í grg., að það er hægt að taka, eins og þar segir, um 365 millj. kr., sem hægt er að lækka útgjöld Sjávarútvegsins með, með ýmiss konar ráðstöfunum, Þannig að manni hefði fundizt, áður en farið væri út í það, að togaraeigendur settu Alþ. stólinn fyrir dyrnar um að samþykkja lög til að svipta sjómenn mikilvægum réttindum, sem þeir hafa áunnið sér með langri baráttu, að Þá væru þó svona till. athugaðar, en ekki svæfðar í nefnd, — eða þá að það yrði farið inn á þá leið að fara að ganga á bátaútveginn til þess að bjarga togurunum. Og ég verð að segja það, að ljósið, sem togaraútgerðarmenn bregða upp með þessum kröfum sínum, setur raunverulega valdaaðstöðu og þeirra stjórn á þessu í allt annað en skemmtilegt ljós.

Ég gat um það hér í dag, að meðalafli á hvern togarasjómann hefði verið á síðasta áratug um 140 tonn á hvern sjómann á ári, og 1960 mundi þetta í sambandi við minnkaðan afla hafa lækkað niður í um 100 tonn. En þegar íslenzkur togarasjómaður aflar á slæmum aflaárum handa þjóðarbúinu 100 tonn, þá býst ég við, að t.d. brezkur togarasjómaður sé ekki nema með 50, kannske í hæsta lagi 60 tonn. M.ö.o.: í aflaleysisári framleiðir íslenzkur togarasjómaður upp undir það tvöfalt aflamagn á við t.d. brezku togarasjómennina, allt miðað við sjómenn á skipi. Ég held þó, að ef þetta er rétt hjá mér, þá ætti sannarlega að athuga þessa hluti.

Hvað er það, sem þarna er að? Ég er hræddur um, að það, sem að er, sé, að það er hrúgað ofan á togaraútgerðina af hálfu þjóðfélagsins og máske af hálfu togaraeigendanna og allra mögulegra aðila, banka, vátryggingarfélaga og allra mögulegra slíkra, slíkum þunga, að togaraútgerðin er að sligast undir því. Og það er þetta, sem þarf að athuga. Það er þetta, sem þarf að breyta, að létta þessum þunga af, en ekki bara að láta allan þungann haldast og ætla svo að brjóta sjómanninn með vinnuþrældómi, takmarkalausum vinnuþrældómi, afnámi vökulaga undir þessum gífurlega þunga. Þetta eru atriði, sem mér finnst vera hægt að ætlast til að togaraútgerðarmenn hefðu athugað, áður en þeir koma með svona harðvítugar kröfur og setja Alþ. stólinn fyrir dyrnar. íslenzkt þjóðfélag, verður að horfast í augu við þessa hluti.

Þá sagði hæstv. sjútvmrh., að vinnudeilan kæmi ekki þessu máli við. Skyldi þetta hafa verið sagt, ef það hefðu verið aðrir, sem hefðu stjórnað Sjómannafélagi Reykjavíkur og Sjómannasambandi Íslands? Skyldi það hafa verið sagt hér á Alþ. af hæstv. ríkisstjórn, að það kæmi ekki þessu máli neitt við, þó að það þyrfti að fara að leggja fram nokkra milljónatugi úr ríkissjóði eða frá bátaútgerðinni til togaranna, vegna þess að ótætis kommarnir hefðu stöðvað alla togaraútgerðina? Ég efast um það, að þetta hefði verið sagt. Og hæstv. sjútvmrh. bætti því við, að hvað snerti vinnudeiluna þyrfti togaraútgerðin máske aðstoðar við, held ég hann hafi sagt, við lausnina á því máli þyrfti máske aðstoðar við. Og mér skildist raunverulega, að til þess að leysa togaradeiluna þyrfti kannske styrki og uppbætur í viðbót við þá styrki og uppbætur, sem nú eru. Það verður kannske kallað aðstoð eða trygging, en látum það nú heita það. Það verður Þá kannske hætt að tala um styrkja- og uppbótaleiðir og farið að tala um aðstoðar- og tryggingarleiðir héðan af. Mér sem sé sýnist, að það liggi nokkuð í augum uppi, að það eigi að undirbúa það að veita nýja styrki í einhverju formi, nýja aðstoð máske til þess að kaupa togaraútgerðarmenn til að gera út án þess að brjóta vökulögin. Síðan bætti hæstv. sjútvmrh. því við, að um þetta þyrfti ekki að tala hér, það væri siðurinn að láta aðila semja, án þess að Alþ. eða ríkisstj. hlaupi til, sagði hæstv. ráðherra, og ég hef skrifað það upp. Já, það er nú svo, það er nú sinn siðurinn eftir því, hverjir í hlut eiga. Hæstv. ráðherra vildi sem sé meina, að það væri orðinn hér siður, að þessir aðilar, atvinnurekendur og verkamenn, væru látnir semja, án þess að Alþ. og ríkisstj. færu að hlaupa þar til.

Það er nú ekki lengra liðið en síðan í júlí og ágúst s.l. sumar, að aðilar sömdu, að atvinnurekendur og verkamenn sömdu. Og þegar þeir voru búnir að semja, þá hljóp hæstv. ríkisstj. til. Hún hljóp til og lækkaði gengið og tók á þrem mánuðum til baka með gengislækkunum allt, sem verkamenn höfðu samið um við atvinnurekendur að þeir ættu að hafa, þannig að það virðist nú vera nokkuð ólíkt eftir því, hver í hlut á. Mér skildist næstum á hæstv. sjútvmrh., að þegar hann talaði um togaradeiluna, þá léti hann í það skína, að það þyrfti kannske að veita þar aðstoð. Kannske er það aðstoð til togaraeigendanna, kannske er það gegn því, að þeir bara geri út og láti við svo búið standa. En ef það eru verkamenn í landi, sem semja við atvinnurekendur, þá er hlaupið til og tekið af þeim með harðstjórnarlögum frá bankavaldi og ríkisvaldi það, sem þeir hafa samið um í frjálsum samningum. Og þetta fara að verða nokkuð einkennilegir hlutir í okkar landi í þessum efnum, og væri í raun og veru gott að fá að vita það fyrir fram, hvort hæstv. ríkisstj. hugsar sér að halda þeim hætti áfram, ef verkamenn gera verkfall og hækka kaup með samningum við atvinnurekendur, að hlaupa þá til og lækka gengið. Ég vil taka það fram, að slíkur siður mundi ekki tíðkast í nokkru öðru landi Evrópu en Íslandi. Ludwig Erhard, efnahagsmálaráðherra V.- Þýzkalands, var nýlega, einmitt út af allstórfelldum kauphækkunum, sem fram fóru í V.- Þýzkalandi, að gefa sérstaka yfirlýsingu um það, að Þeim dytti aldrei í hug að fara að breyta sínu gengi vegna slíkra samninga. Það væri slík fásinna að fara að hringla með gengi eins þjóðfélags og einnar þjóðar, ef um væri að ræða kaupsamninga milli atvinnurekenda og verkamanna. En það er svo sem vitanlegt, hvað hér veldur, að ýmsir atvinnurekendur reka allstíft á eftir, að hér sé þessum ráðum beitt, sem ekki er gert í neinu öðru þjóðlandi Evrópu, sem sé þetta, að meginið af íslenzkum atvinnurekendum hefur meginið af sínu rekstrarfé og svo og svo mikið af sínu stofnfé frá bönkum ríkisins og hefur hagsmuni af því að fella þessar skuldir í verði, lækka hjá sér lánin, þannig að þeir slá tvær flugur í einu höggi, þegar þeir lækka gengið eða láta sína ríkisstj. lækka gengið.

Það væri hins vegar æskilegt að fá yfirlýsingar hér um það, að semji aðilar á ný, þá verði ekki beitt þeim aðferðum, sem beitt var síðasta sumar, þeim verstu harðstjórnaraðgerðum, sem beitt hefur verið í íslenzkum efnahagsmálum, síðan tilraunin var gerð til að setja gerðardóminn hér á í janúar árið 1942.

Ég held þess vegna, að það væri þörf á að fá þessi mál á hreint, það væri gefin út ótviræð yfirlýsing um það af hálfu hæstv. ríkisstj., að hún ætli sér að tryggja það í sambandi við afgreiðslu þessara laga frá Alþ., að togararnir fari af stað. Það er alveg gefið mál, að ef hæstv. ríkisstj. vili skapa sér aðstöðu til þess að knýja á togaraeigendur um að koma togurunum út, þá er auðvitað bezta ástæðan sú að segja: Hér eru 60 millj. í minni hendi, þetta fáið þið og máske meira til, ef þið nú semjið og gerið togarana út. Fyrr fáið þið það ekki. — Það er gefið, að ef ríkisstj. er að hugsa um að tryggja, að atvinnureksturinn í landinu gangi, þá á að fara svona að. Ég segi það, að ef ríkisstj. væri t.d. að reyna að semja við verkamenn og segði við þá, sem væru í verkfalli og væru búnir kannske að vera þrjár vikur í verkfallinu: Ég skal hækka fjölskyldubætur um svona og svona mikið, ég skal veita hin og þessi fríðindi, sem koma ykkur að gagni á öllum mögulegum sviðum, fella niður nefskatta og sjúkrasamlagsgjöld og annað þess háttar, ég skal gera þetta, — skyldi ein ríkisstj., eins og núv. hæstv. ríkisstj., framkvæma þetta þannig, að hún léti verkamenn fyrst fá þetta og síðan héldu þeir áfram í verkfallinu? Nei, ég er hræddur um, að hún segði við verkamenn: Þetta skal ég láta ykkur fá, ef þið hættið verkföllum, ef þið semjið um þetta. Og ég held, ef það vekti fyrir hæstv. ríkisstj. að reyna að fá togaraeigendur til þess að koma togurunum út, þá mundi hún nota þetta, nota þetta til þess að semja við þá.

Það er ekki langt að sækja fyrirmynd í þessu sambandi. Eins og vitað er, þá eru styrkir og uppbætur reglan í öllum kapítalískum löndum Vestur-Evrópu. Þetta þrugl og vitleysa, sem ýmsir menn hér eru búnir að vera að þylja yfir þjóðinni í nokkur ár, um það, að það eigi að komast af án styrkja og uppbóta í einu venjulegu kapítalísku þjóðfélagi, er eins og hver önnur vitleysa og tíðkast ekki í neinu þjóðfélagi lengur, — hvergi. Þið getið litið til Englendinganna, sem eru fremstir í þessu öllu saman. Einhvern tíma voru Danir að kvarta yfir því, að Englendingar borguðu Þannig með eggjaframleiðslunni hjá sér, að það væri raunverulega 90% af eggjaframleiðslunni, sem væri borgað af ríkinu, og það væri þannig auðvelt að eyðileggja eggjamarkaðinn fyrir Dönum. En við vitum t.d., að ensku togararnir eru allir styrktir. Og á hvern hátt styrkja þeir þá? Jú, þeir styrkja þá með dagstyrkjum á úthaldsdag, fyrir hvern dag, sem togararnir eru gerðir út, fá þeir ákveðinn styrk. Styrkja- og uppbótaleiðin er, eins og vitanlegt er, prinsip-leið hjá öllum þessum þjóðum. Og þeir hafa hins vegar mjög skynsamlegan hátt á því að framkvæma þessar styrkjaleiðir. Þeir hafa nákvæmlega sama hátt á því og tíðkaðist hjá okkur hér á Íslandi áður. Það var borgað fyrir hvern úthaldsdag, og með því var tryggt, að togararnir gengju allan tímann. Því í ósköpunum eigum við ekki að hafa þennan sama hátt á, borga sem sé styrkina fyrir það, að menn geri út og veiði fiskinn í þjóðarbúið, en borga þá ekki fyrir það, að menn láti togarana liggja og veiði ekki í þjóðarbúið?

Ég held þess vegna, ef ekki er hægt að tala við togaraeigendur um þessa hluti, nema þeir setji Alþ. stólinn fyrir dyrnar, eins og þeir gerðu með þessu bréfi, sem ég las hér upp í dag kafla úr, þá sé alveg rétt fyrir okkur að athuga um, hvort við eigum ekki að fara inn á þá leið að taka upp þjóðnýtingu á megninu af togaraflotanum. Mjög þótti mér vænt um að heyra, að hæstv. sjútvmrh. var, eins og ég þóttist líka vita, reiðubúinn til þess að athuga það mál. Það er gamalt stefnumál Alþfl. alveg eins og Sósfl. og Alþb. Hann kom þar inn á það, að það mundi ekki verða meiri hl. fyrir þessu hér hjá okkur á Alþ. Það er nú rétt að láta reyna á það. Hæstv. sjútvmrh. vildi telja, að Framsfl. mundi ekki vera til í neitt slíkt, og vissulega hafði hv. 7. þm. Reykv. tekið frekar illa undir þess háttar. Ég er nú ekki búinn að sjá, að það væri alveg óhugsandi undir sérstökum kringumstæðum að fá Framsfl. inn á að vera með þjóðnýtingu togaranna, ekki sízt ef það væri tengt ýmiss konar samvinnu- og bæjarrekstri, ríkið ætti það og reksturinn önnuðust kannske samvinnufélög og bæjarfélög. Það væri hægt að finna alls konar form í því kannske, sem hægt væri að semja við Framsfl. um, svo að tryggð væri ríkiseign á togurunum.

Við munum, að margt undarlegt hefur gerzt í okkar þjóðfélagi á undanförnum áratug, t.d. það, að Framsfl. og Sjálfstfl., sem stóðu hér saman í ríkisstj. fyrir 10 árum, stóðu mjög harðvítuglega að því, að hér skyldi ein stór verksmiðja, sem þá var í ráði að byggja, sementsverksmiðjan, endilega vera ríkiseign. Og þó að vinir þeirra og verndarar, það volduga ameríska auðvald, legðu fast að þeim að gera þetta að einkaeign, þá stóðust báðir þessir flokkar mátið, sem sé Sjálfstfl. og Framsfl. stóðu fast að þjóðnýtingu sementsverksmiðjunnar og létu ekki freistast og því síður undan nokkrum hótunum og beygðu Ameríkanana að lokum undir það að verða að lána til þjóðnýttrar sementsverksmiðju hér á landi. Þegar Framsfl. getur gert þetta í samfélagi við Sjálfstfl., þá þætti mér ekkert undarlegt, að hann gæti í samfélagi við Alþfl. og Alþb. fallizt á að þjóðnýta togaraflotann, sem annars lægi kannske bundinn í höfn um ófyrirsjáanlegan tíma. Ég sé a.m.k. ekki, að það sé neitt prinsip-brot af hálfu Framsóknar og raunar ekki heldur af hálfu Sjálfstfl., þó að hann gerði það að þjóðnýta meginið af togaraflotanum, ef ekki væru önnur ráð til þess að sjá um, að þessi mikilvægu tæki okkar væru í gangi.

Ég vildi nú aðeins segja þetta út frá því, sem hæstv. sjútvmrh. svaraði minni ræðu í dag, og ég vil segja það, að meðan annar eins gróði er til í þjóðfélaginu og nú er á öllum mögulegum sviðum, þá er sannarlega engin þörf á því að taka tillit til slíkra hótana til Alþ. eins og þeirrar, sem kom fram í bréfi Félags ísl. botnvörpuskipaeigenda. Og þegar slíkar hótanir koma fram, þá er eðlilegast, að alþýða manna og Þeir, sem telja sig hennar fulltrúa, svari slíkum hótunum með því, að láta Félag ísl. botnvörpuskipaeigenda vita af því, að þjóðfélagið getur ákaflega vel rekið togarana án þeirra. En án sjómannanna verða þeir ekki reknir.