13.04.1962
Efri deild: 88. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1988 í B-deild Alþingistíðinda. (1684)
168. mál, aflatryggingasjóður sjávarútvegsins
Frsm. meiri hl. (Jón Árnason):
Herra forseti. Með þessu frv., ef að lögum verður, er gerð veruleg skipulagsbreyting á þeim sjóði, sem nú heitir hlutatryggingasjóður bátaútvegsins, en lagt er til með frv. þessu, að nafn sjóðsins verði framvegis aflatryggingasjóður sjávarútvegsins.
Hlutatryggingasjóður bátaútvegsins hefur sem kunnugt er starfað í tveimur deildum, almennri deild og síldveiðideild. En nú er lagt til, að bætt verði við tveim deildum til viðbótar, almennri deild togaraflotans og jöfnunardeild. Eins og nafnið bendir til, er togaradeildinni ætlað að veita togurunum bætur vegna aflabrests, að undanskildum smærri togskipum, sem eiga eins og áður rétt til bóta úr hinni almennu deild bátaútvegsins. Fjórða deildin er svo eins konar jöfnunarsjóður fyrir allar þrjár deildirnar hinar. Má úr henni veita, eftir því sem á stendur og viðeigandi telst hverju sinni, lán eða styrki. Núv. eignir hlutatryggingasjóðs, sem munu vera um 40 millj. kr., verða eftir sem áður eign almennu deildar bátaútvegsins og síldveiðideildarinnar. Stofnfé hinnar almennu deildar togaraútvegsins er hins vegar ákveðið 37 500000 kr., og leggur ríkissjóður fram upphæðina og greiðir á 15 árum.
Hinn alvarlegi aflabrestur, sem átt hefur sér stað hjá togaraflotanum nú hin síðari ár, er svo mikill, að gert er ráð fyrir, að ef slíkur sjóður sem hér um ræðir hefði verið fyrir hendi, þá hefði togaraútgerðinni borið um 60 millj. kr. úr sjóðnum bæði árin 1960 og 1961. Er það sama upphæð og frv. kveður á um að togararnir fái, verði það samþ. og komi til framkvæmda.
Skv. frv. þessu eru tekjur aflatryggingasjóðs nær tvöfaldaðar frá því, sem nú er, en öll tekjuaukningin gengur til jöfnunardeildarinnar. Hlutverk jöfnunardeildarinnar er, sem fyrr segir, að veita hinum deildunum lán eða beinan fjárstyrk, eftir því sem sjóðsstjórnin kveður á um hverju sinni. Er þetta nýmæli laganna mjög þýðingarmikið. Og enda þótt nú líti út fyrir, að hin almenna deild togaranna njóti fyrst góðs af þessari skipan sjóðsins, þá mega bátaútvegsmenn minnast þess, að slík jöfnunardeild sem þessi hefði oft og tíðum komið sér vel fyrir þá og þá sérstaklega í sambandi við hinn langvarandi aflabrest, sem átti sér stað á síldveiðunum fyrir Norðurlandi.
Mál þetta hefur oft, bæði í fréttum og í öðru sambandi, verið nefnt aðstoðin við togaraflotann. Það má segja, að það sé svo. Það kemur til með að leysa vissa fjárhagslega örðugleika, sem skapazt hafa á umræddum tveim árum, en framtíðarlausn til að skapa rekstrarhæfan grundvöll fyrir áframhaldandi rekstri skipanna er ekki hlutverk þessa frv. Það verður annað og meira að koma þar til, og mun ég ekki blanda því máli inn í þessar umr.
Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um málið að sinni, en svo sem fram kemur í nál. meiri hl. sjútvn. á þskj. 732, mæli ég með því, að frv. verði samþ. óbreytt, svo sem það kom frá hv. Nd.