04.04.1962
Neðri deild: 83. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2137 í B-deild Alþingistíðinda. (1780)
184. mál, Síldarverksmiðjur ríkisins
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Eins og kunnugt er, þá stendur svo á í ýmsum sveitarfélögum hér á landi, þ. á m. nokkrum bæjarfélögum, að þar eru reknar síldarverksmiðjur, sem hafa það sameiginlegt að hafa allar viðskipti við síldveiðiflotann á síldarvertíð ag veita honum þjónustu. Nú hefur hér í hv. d. við afgreiðslu frv. um tekjustofna sveitarfélaga verið ákveðið að því leyti, sem það er á valdi þessarar hv. deildar, að þessi sveitarfélög skuli skiptast í tvo flokka og hafa mismunandi rétt til að afla sér tekna í sveitarsjóð eða bæjarsjóð í sambandi við rekstur þessara fyrirtækja. Sá flokkurinn, sem betur er settur, á að hafa heimild til þess að taka aðstöðugjald af sínum síldarverksmiðjum, sem nemur allt að 11/2%. En hinn flokkur sveitarfélaga, sem á að vera lakar settur, — það eru þau sveitarfélög, þar sem svo vill til, að verksmiðjurnar eru ríkiseign, — hann á ekki að fá möguleika til að afla í sveitarsjóð nema 1/4 % af umsetningu verksmiðjanna. Þarna virðist á nokkuð áberandi hátt mismunað þessum sveitarfélögum, sem hér eiga hlut að máli, og þar af leiðandi verða gjaldendur þeirra sveitarfélaga, sem við lakari kostinn eiga að búa að þessu leyti, að leggja á sig meiri gjöld til þarfa sveitarfélaganna heldur en í hinum. í umr. um þetta mál, um tekjustofna sveitarfélaga, bárum við hv. 11. landsk. fram brtt. í Því skyni að bæta úr þessu misrétti, en þessar tillögur okkar voru felldar hér í hv. deild. Við gerðum þá grein fyrir þessu máli allýtarlega, báðir flm., og mig furðaði nokkuð á því, að hv. deild eða meiri hl. hennar skyldi ekki taka til greina þær upplýsingar, sem þar voru gefnar. Nú höfum við tekið það ráð að freista þess að koma fram breytingum á því frv., sem hér liggur fyrir um síldarverksmiðjur ríkisins, til þess að reyna að nokkru leyti að bæta úr því misrétti, sem hér virðist eiga sér stað.
Hingað til hefur það verið svo, að síldarverksmiðjur ríkisins, þar sem þær eru starfræktar, hafa greitt til sveitar- og bæjarsjóðs upphæð, sem nemur 1/2% af framleiðslu sinni. Þetta er að vísu mun lægra en öðrum sveitarfélögum er heimilað að taka í aðstöðugjald samkv. frv. um tekjustofna sveitarfélaga. En þó væri það frekar viðunandi, ef þessum sveitarfélögum yrði Þó heimilt að halda Þeim tekjum, sem þau áður höfðu, þó að þau væru eigi að siður verr sett en hin. Þess vegna höfum við leyft okkur að bera fram á þskj. 567 brtt., sem er þess efnis, að það skuli standa áfram, að ríkisverksmiðjurnar greiði framleiðslugjald, ekki þó eins hátt og áður var, þ.e.a.s. 1/2%, heldur aðeins 1/4%, og mundi Það Þá að viðbættum hluta Þessara sveitarfélaga í landsútsvari nema álíka upphæð og þau fengu áður af framleiðslugjaldi.
Hér er ekki fram á annað farið en að hlutur þessara sveitarfélaga verði ekki beinlínis skertur frá Því, sem hann hefur verið. Það er ekki farið fram á það að fá að taka sömu gjöld af síldarverksmiðjum eins og öðrum sveitarfélögum á að vera heimilað að taka sem aðstöðugjald í frv. um tekjustofna sveitarfélaga. Og við vildum mega vænta Þess, að á þetta yrði litið með sanngirni.
Inn í þessa till. okkar á Þskj. 567 höfum við tekið efni brtt. nefndarinnar um aðstöðugjald af öðrum rekstri en síldarbræðslu og svo ákvæði frv. í 1. gr. um það, að verksmiðjurnar séu að öðru leyti undanþegnar gjöldum sveitarfélaga, að undanteknum fasteignaskatti og landsútsvari, og sömuleiðis undanþegnar tekju- og eignarskatti.
Þetta er þá efni þeirrar brtt., sem við hv. 11. landsk. flytjum. Við förum ekki fram á það, að þessi sveitarfélög, þar sem ríkisverksmiðjurnar eru, fái rétt til álagningar til jafns við önnur sveitarfélög, þar sem verksmiðjur eru reknar, en við förum fram á, að þau verði ekki beinlínis svipt tekjumöguleikum, sem þau hafa haft samkv. lögum um langan tíma.