02.04.1962
Efri deild: 77. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2169 í B-deild Alþingistíðinda. (1834)
199. mál, innflutningur búfjár
Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):
Herra forseti. í lögum um innflutning búfjár frá 8. marz 1948 eru ströng fyrirmæli um, að ekki megi flytja inn erlent búfé, nema fullnægt sé vissum skilyrðum um einangrun fjárins: dýralæknisvottorð, sóttvarnarstöð og allt eftirlit. Mæla Þau lög svo fyrir, að sett verði upp sóttvarnarstöð og bú til að ala upp búfé, sem inn verði flutt, í eyju í grennd við Reykjavík.
Í þau 14 ár, sem liðin eru síðan Þessi lög voru sett, hefur slíkt bú ekki verið sett upp og ekki heldur flutt inn búfé síðan. Aðalbreyting frá þessum lögum, sem felst í frv. því, sem hér liggur fyrir, er sú, að nú er ekki gert ráð fyrir að flytja gripina inn sjálfa, heldur aðeins sæði úr einni tegund nautgripa. Og í öðru lagi, að sóttvarnarstöðin verði ekki í eyju í nágrenni Reykjavíkur, heldur í landi í grennd við Reykjavík, þ.e.a.s. á Bessastöðum á Álftanesi. Verður það svæði, sem hér um ræðir, vandlega afgirt og einangrað frá allri annarri óviðkomandi umferð með öflugri girðingu.
Þó að innflutningur erlends búfjár hafi yfirleitt ekki gefizt vel hér á landi, eins og allir þekkja af reynslunni, verður þó með engu móti til þess ætlazt, að lokað verði fyrir slíkt um aldur og ævi, það getur verið um svo mikið hagsmunamál að ræða fyrir landbúnaðinn og þjóðina í heild.
Íslenzkum búgreinum Þarf að fjölga, og þær þurfa að eflast á sem flesta vegu, og verður slíkt ekki af sjálfu sér gert. Mál þetta um innflutning holdanauta er lengi búið að vera á dagskrá meðal bænda og bændasamtaka, og bendir margt og raunar flest til, að nautakjötsframleiðsla muni vera arðvænlegri í sumum byggðarlögum en dilkakjötsframleiðsla, og þá mun þar af leiðandi geta verið heppilegt, að verkaskipting verði í einstökum byggðarlögum um það, hvort framleitt er dilkakjöt eilegar annað kjöt. En hvað sem því líður, virðist mér fleira mæla með því en móti, að tilraun verði gerð með hreinræktun holdanauta á þann veg, sem lagt er til í frv., og landbn. var á einu máli um það, að rétt væri að styðja að því, að tilraun sú verði gerð, sem hér er verið að stofna til með frv. Það getur verið allmikið að vinna, en lítil sem engin áhætta, eins og um hnútana er búið í frv. Legg ég því til f.h. landbn., að frv. verði samþ. En eins og fram kemur í nál., hafa einstakir nm. áskilið sér rétt til að bera fram brtt. við frv. eða fylgja brtt., ef koma fram.
Sé ég svo ekki ástæðu til að ræða Þetta mál frekar og legg til, að frv. verði samþykkt.