02.04.1962
Efri deild: 77. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2190 í B-deild Alþingistíðinda. (1842)
199. mál, innflutningur búfjár
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það er í rauninni ekki ástæða til þess að ræða þetta mál miklu meira vegna þess, sem hv. 1. þm. Vesturl. (ÁB) sagði. Hv. þm. var að reyna að gera grein fyrir því, að afstaðan nú á hv. Alþingi væri ekki í ósamræmi við það, sem hafði gerzt á búnaðarþingi. Ég hygg nú, að hv. þingmenn og aðrir, sem hafa hlustað á Þessa ræðu, hafi sannfærzt um, að þessi tilraun hv. þm. mistókst algerlega. Hv. áheyrendur heyrðu, að hv. 1. þm. Vesturl., bóndinn í Ásgarði, sat hjá á búnaðarþingi 1961 (ÁB: Það er annað en vera með), þegar ályktunin var gerð um það ekki aðeins að flytja inn sæði, heldur einnig að athuga það að flytja inn lifandi búfé. Þá sat hv. þm. hjá. (ÁB: Það er ekki rétt.) Þá sat hv. þm. hjá og mótmælti því alls ekki. En það er vitanlega reginmunur á því að flytja inn sæði úr búfé eða lifandi búfé.
Ég gat ekki að því gert áðan að minna hv. þm. á það, að afstaða þm. var af annarlegum sökum, sem ég gat ómögulega skýrt, og ég afsaka mig með því, að ég er enginn sálfræðingur. Ég hef ekki hugsað mér að fara að kryfja það til mergjar, hvers vegna þessi greining á manninum hafi komið fram, og ég læt það alveg hlutlaust. Það væri miklu frekar þessi eini læknir og hv. þm., sem hér hafði tekið til máls í kvöld, sem ég hef ekki hlustað á, - það væri miklu frekar, að hann gæti skýrt þetta á einhvern veg, hvers vegna þessi klofningur í sál hv. þm. hafi átt sér stað. Og mér þætti ákaflega vænt um það, ef hv. þm., læknirinn, sem hér á sæti, gæti á vísindalegan hátt gert okkur þm. það ljóst, hvernig þessi sálgreining, hvernig þessi klofningur gæti átt sér stað. Og ég vísa til hv. þm., læknisins, í þessu efni.
En það er ekki aðeins í þessu máli, sem hv. 1. þm. Vesturl. hefur verið óskiljanlegur í þessari hv. deild. Þessi hv. þm., sem hefur átt sæti á búnaðarþingi, hefur leyft sér að mæla eindregið með því að leggja skatt á bændur til þess að byggja höllina hér í Reykjavík, og hann hefur talið það alveg sjálfsagt. Hann hefur talið, að það væri bændum til mikils hagnaðar að gera Það. Hann hefur jafnvel á sama augnabliki fullyrt, að það væri árás á bændur, ef þeir borguðu 1% gjald af búvörum til búnaðarsjóðanna til þess að byggja þá upp, til þess að gera það mögulegt, að bændur gætu fengið í framtíðinni hagstæð lán á miklu víðtækari hátt en áður hefur gerzt frá búnaðarsjóðunum. Og ég segi nú það, að þegar hv. þm. leyfa sér að koma þannig fram hér í hv. Ed. eins og hv. 1. þm. Vesturl. hefur gert, ekki bara í þessu máli, heldur einnig í hinu málinu, þá held ég, að mér verði fyrirgefið það, — og ég hygg, að það séu fleiri hér í hv. d., sem hafa sömu skoðun, að það er ekki mögulegt að taka þennan málflutning alvarlega. Þessi málflutningur hlýtur að vera til orðinn vegna áhrifa einhvers staðar annars staðar frá. Gæti það verið af flokkslegum ástæðum? Gæti það verið? Ég spyr. Ég ætla ekki að svara. En við hér í hv. Ed. höfum einn sálfræðing, og Það getur vel verið, að hann geti gefið skýringu á Þessu.
Hv. þm., bóndinn í Ásgarði, talaði um, að Það væri ekki ástæða til þess að fara að flytja inn t.d. betra sauðfjárkyn en við höfum. Ég held nú satt að segja, að við íslendingar höfum það bezta sauðfjárkyn, sem við getum haft, miðað við Þá staðhætti og veðráttu, sem er á Íslandi. Okkar sauðfjárkyn er harðgert. Það er sniðið eftir okkar loftslagi. Okkar sauðfjárkyn hefur möguleika til þess að hagnýta sér þá staðhætti, sem landið hefur að bjóða, og okkar dilkakjöt er líklega það bezta, sem er á boðstólum í veröldinni. Ég mundi þess vegna alls ekki leggja til, að okkar sauðfjárkyn væri bætt frá því, sem Það er, vegna þess að það hefur sniðið sig alveg eftir landsháttunum. Það er nægilega harðgert, og það er gott, að við getum ekki bætt það. Ef við færum að flytja inn erlent sauðfjárkyn, þá yrði það til þess að gera okkar stofn linari og ekki eins færan um það að búa við þá veðráttu, sem okkar land hefur að bjóða.
Hv. þm. var að tala um, að það væri ekki tímabært að flytja inn sæði, á meðan við höfum enn skaða af því að hafa flutt áður inn lifandi búfé. Ég bið hv. þm. og aðra áheyrendur að hugsa um þetta. Ég skrifaði setninguna orðrétta: Ekki tímabært að flytja inn sæði, meðan við höfum enn skaða af Því að hafa flutt inn búfé. — Eru nokkur rök í þessu? Þetta er hrein rökleysa. Erum við ekki sammála um það? Jú. Við erum sammála um það, að einmitt vegna þess, að við fluttum inn lifandi búfé áður, þá höfum við enn af því skaða. Og af því að við fluttum inn lifandi búfé og fengum af því skaða og sjúkdóma, þá erum við horfnir frá því að gera það. En þegar rætt var um það á búnaðarþingi 1961 að athuga að flytja inn lifandi búfé, þá sat hv. 1. þm. Vesturl. hjá. Hann fann ekki ástæðu til þess að mótmæla því þá. En þegar við flytjum frv. hér á hv. Alþingi, sem hefur til að bera allar öryggisráðstafanir, sem hugsanlegar eru, og hverfum frá því að flytja inn búfé, heldur aðeins sæði, þá telur þessi sami þm., sem sat hjá, þegar rætt var um að flytja inn lifandi búfé, ástæðu til þess að mótmæla þessu frv. Ég vitna enn til sálfræðingsins. Ef hann gæti fært rök fyrir þeim klofningi, sem veldur þessum skoðanamun á ekki lengri tíma en einu ári, þá hefði hann efni í doktorsritgerð.
Ofan á þetta fullyrðir hv. Þm., að hann hafi alveg nákvæmlega sömu afstöðu og áður. — ég tel ekki ástæðu til þess að eyða tíma í það, hann segir, að hann hafi alveg nákvæmlega sömu afstöðu og áður. Nei, við skulum ekki eyða tíma í að ræða um það.
Hv. þm. fór nokkrum orðum um ályktun búnaðarþings og las hana upp, og ég tel ekki ástæðu til þess að ræða það frekar, það hefur verið skýrt, að hv. þm. sat hjá 1961, þegar rætt var um möguleikana á Því að flytja inn lifandi búfé. En hann telur ástæðu til 1962 að mótmæla því harðlega, þegar horfið er frá því og gert er ráð fyrir að flytja inn sæði, en yfirdýralæknir, sem hv. þm. hefur þó áreiðanlega nokkurt álit á, segir í sinni grg., í sínum fyrirvara, að hætta við sæðisinnflutning sé mun minni en við innflutning á lifandi gripum. Og ef hv. 1. þm.
Vesturl. hefði lesið þessa grg. yfirdýralæknisins, þá held ég, að hann hefði sloppið við að fullyrða það, sem hann gerði hér áðan og öllum er augljóst að var í fullkomnu ósamræmi við hans fyrri afstöðu. Yfirdýralæknir segir enn fremur: „Að sjálfsögðu er unnt að draga mjög verulega úr hættu af sæðisinnflutningi með varúðarráðstöfunum, svipað og gert er ráð fyrir í þessu frv., þar sem fyrirhugað er að flytja sæðið aðeins í sérstaka sóttvarnarstöð, en aldrei verður þó hægt að búa svo um hnútana, að eigi verði nein áhætta af sæðisinnflutningi.“ Þetta finnst mér alveg eðlilegt orðalag hjá yfirdýralækni: Það er vitanlega aldrei hægt að gera þær öryggisráðstafanir, sem eru alveg 100%, og einmitt vegna þess, að þetta frv. gerir ráð fyrir því, að ábyrgðinni sé skellt á yfirdýralækni, það er undir honum komið, hvort þessi lög kæmu til framkvæmda, þá er alveg eðlilegt, að hann hafi þennan fyrirvara. En mér finnst það ákaflega mikils virði, að hann segir, að það sé mun minni áhætta að flytja inn sæði en lifandi búfé. Og hann segir: Það er vitanlega aldrei hægt að fullyrða örugglega, að engin hætta fylgi þessum sæðisinnflutningi. — Hvers vegna skyldi hann fullyrða það? Það er ekkert í þessum heimi alveg 100% öruggt. Og það er rétt að athuga það, að nú hin síðustu árin hefur ver ið flutt sæði á milli landa, en þeirra öryggisráðstafana gætt, sem eru nefndar í þessu frv. Það er rétt, sem hv. 1. þm. Vesturl. sagði hér áðan, að það skeði einhvern tíma slys með sæðisinnflutning, en Það var áður en sú Þekking var fyrir hendi, sem menn ráða yfir nú, það var áður en þær öryggisráðstafanir, sem þetta frv. gerir ráð fyrir að lögfesta, voru ráðandi. Í 7–10 ár, síðan menn tileinkuðu sér þær öryggisráðstafanir, sem gert er ráð fyrir að lögfesta með þessu frv., hefur ekkert slys orðið. Og Það er það, sem við hljótum að leggja nokkuð mikið upp úr.
Ég hef enga ánægju af því að vera að deila við hv. 1. Þm. Vesturl. eða aðra. Ég man, að fyrir nokkrum vikum mælti þessi hv. þm. gegn 1% gjaldi af búvörum til landbúnaðarsjóðanna, eftir að hafa mælt með 1/2% skatti vegna bændahallarinnar, og ég sagði eitthvað á Þá leið þá, að hv. þm. ynni ekki að hagsmunum bændastéttarinnar með þessari afstöðu sinni. Ég sagði eitthvað þá í þá átt, að það væri leitt, að bóndinn í Ásgarði, sem átti merkan föður og bústólpa, skuli ekki hafa meiri skilning á því, sem bændunum er fyrir beztu, heldur en kemur fram í hans ræðum hér á hv. Alþingi. Hitt efast ég svo ekkert um, að innst inni slær miklu betra hjarta en fram kemur í ræðum Þessa hv. þm. Ég er t.d. ekki í nokkrum vafa um það, að hv. 1. þm. Vesturl., Ásgeir Bjarnason, vill bændunum vel. Ég er ekki í nokkrum vafa um Það. Ég er alveg sannfærður um það, að hann vill bændunum vel, öllum bændum. En Það eru einhverjar annarlegar ástæður, sem ráða Því, að ræður hans hér á hv. Alþingi eru ekki í samræmi við það, sem hann vill gera. Það var einu sinni góður maður, sem sagði: „Það góða, sem ég vil, það geri ég ekki, en Það vonda, sem ég ekki vil, Það geri ég.“ Og hver er það Þá, sem fær hv. þm. til þess að gera það, sem hann vili ekki gera? Hver er það, sem fær hann til þess að segja það, sem hann vill ekki segja? Það er spurning, sem ég ætla ekki að svara í dag, en það eru margir, sem munu gizka á, að það sé það, sem kallað er ofan frá, flokksforustan. En þrátt fyrir allt Þetta vil ég ekki vera vonlaus um þennan hv. þm., vegna þess að enn er hann ekki svo gamall, að hann ætti að geta bætt sig frá því, sem verið hefur. Og ég vil bera fram þá ósk honum til handa, að hann megi eftirleiðis leitast við að vera sjálfstæður og tala nokkuð í samræmi við sinn innri mann.
Það var náttúrlega alveg fráleitt hjá hv. þm. áðan, Þegar hann var að tala um fullkomna sóttvarnarstöð og ófullkomna sóttvarnarstöð. Það, sem gert er ráð fyrir með Þessu frv., er að koma upp sóttvarnarstöð, sem er fullkomin að því leyti, sem verkefni hennar er ætlað. Það er gert ráð fyrir að koma upp fullkominni sóttvarnarstöð að Því leyti, sem þetta frv. ætlast til. Og staðurinn hefur verið valinn. Fjárveiting er fyrir hendi á fjárlögum. Og hvers vegna gleðst ekki hv. þm., bóndinn í Ásgarði, af flutningi þessa frv.? Ég væri glaður að mega heimsækja bóndann í Ásgarði og hann hefði í haganum 10–12 holdanaut. Og án þess að ég þekki fjárhag hv. þm., þá veit ég, að það gæti komið sér vel fyrir hann að geta slátrað tveimur til þremur holdanautum á ári. (ÁB: Hver étur svo mikið í einu?) Hvað sagði þm.? (ÁB: Ég sagði, að ráðh. æti ekki tvö naut í einu.) Nei, nei, nei. Ég kæmi nú ekki að Ásgarði til þess að éta bóndann út á húsgang. Ég mundi koma að Ásgarði til þess að tala við hann um landsins gagn og nauðsynjar, drekka hjá honum kaffi og heyra frá honum, hvernig búskapurinn gengi, og ég efast ekkert um það, búskapurinn gengur vel hjá hv. þm. En hitt er ég alveg sannfærður um, að hann gæti tekið á móti tekjuauka, sem holdanautin mundu færa honum, það er ég alveg sannfærður um.
Og nú vil ég að lokum fara þess á leit við hv. þm., að hann láti allar annarlegar hugleiðingar fara fyrir borð og næst, þegar hann kemur hér upp í ræðustólinn, þá tali hann eins og hjartað vill, eins og sjálfstæð persóna, en segi ekki þau orð, sem honum hefur verið sagt að segja. Það er þetta, sem ég ætlast til. Og það er þetta, sem ég veit að hv. þm. vill gera. Spurningin er bara þetta: Er viljinn nógu sterkur? Er þrekið nógu mikið? Ég vil vona það, þangað til annað sannast með framkomu þingmannsins.