05.04.1962
Efri deild: 79. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2200 í B-deild Alþingistíðinda. (1849)

199. mál, innflutningur búfjár

Alfreð Gíslason læknir:

Herra forseti. Þetta stóra mál var rætt hér allmikið við 2. umr., og ég mun ekki tala langt mál hér um það. Aðalerindi mitt í ræðustólinn er að lýsa tveim brtt., sem ég leyfi mér að flytja við Þessa umr. Þær eru skriftegar, og ég vænti þess, að hæstv. forseti leiti afbrigða fyrir þeim.

Það eru a.m.k. tveir deildarmenn, sem hafa varað eindregið við því, að þetta frv. verði samþ., eins og það er, hér á Alþingi að þessu sinni. Þessir tveir þm. hafa gert sitt í því efni, og þeir verða ekki sakaðir um flasfengi í þessu máli, hverjar sem afleiðingarnar kunna að verða í framtíðinni. Ég vil aðeins rétt minna á, að árið 1949 skrifaði dr. Björn Sigurðsson Alþingi bréf, óbeðinn, eingöngu af því að hann taldi ástæðu til að vara Alþingi við að stíga það spor, sem nú skal stigið. Þetta bréf er til í skjölum Alþingis, og það talar sínu máli. Þar mælir sá maður, sem kunnur var þessum málum, varnaðarorð.

Ég ætla að leyfa mér að flytja tvær brtt. Fyrri till. fjallar um breyt. á 19. gr. frv., 1. málsl., en 1. málsl. hljóðar svo í frv.: „Eigi er heimilt að flytja sæði úr nautgripum í sóttvarnarstöðinni til notkunar utan hennar, fyrr en tveim árum eftir að fyrst var sætt í henni með hinu innflutta sæði, enda hafi þá ekki komið fram neinn hættulegur smitsjúkdómur í nautgripum sóttvarnarstöðvarinnar.“ Hér er ákveðið, að ekki megi flytja sæði til notkunar utan sóttvarnarstöðvarinnar, fyrr en tveim árum eftir að fyrst var sætt í henni. Ég legg til, að í staðinn fyrir „fyrr en tveim árum eftir“ komi: fyrr en átta árum eftir. Ég tók það fram í ræðu við 2. umr. málsins, að dr. Björn Sigurðsson hefði haldið því fram, að fullkomið öryggi væri aldrei að fá, fyrr en 10–20 árum eftir að sætt hefði verið með innfluttu sæði, — 10–20 árum eftir tegund. Ég hef á milli umr, leitað mér upplýsinga um þetta efni hjá lækni, sem nú vinnur á tilraunastöðinni á Keldum við vísindastörf. Sá læknir bendir sérstaklega á þetta atriði, og telur hann tímann, sem tiltekinn er í 19. gr., allt of stuttan. Þess vegna leyfi ég mér að flytja till., sem áreiðanlega væri mjög til að tryggja öryggi í Þessum efnum.

Önnur brtt. mín snertir 23. gr., síðustu grein frv., sem fjallar um, hvenær lögin öðlist gildi. Ég legg til, að sú grein orðist á Þessa leið: „Lög þessi öðlast þegar gildi. Heimildarákvæði 11. gr. má þó eigi beita fyrr en að liðnum þrem árum frá gildistöku laganna.“ Ég held, að þessi brtt. feli í sér mikið öryggi. Þessi þrjú ár má nota til undirbúnings, og sérstaklega má nota hann til nánari athugunar á öllum málavöxtum. Hér liggur ekkert á. Hér er ekkert í húfi með að bíða. En það getur verið mikið í húfi með að flana að þessum framkvæmdum.

Ég skal svo ekki fara mörgum orðum fleiri um þetta efni, en vil aðeins að lokum endurtaka mín varnaðarorð. Fyrir 31 ári flutti þáv. ráðh. landbúnaðar frv. til laga um að leyfa innflutning búfjár. Þá höfðu menn úr bændastétt, búnaðarfélög og búnaðarþing árum saman sótt það fast, að slíkt leyfi yrði lögleitt. Lengi stóðu stjórnarvöld landsins, hver ríkisstj. af annarri, á móti, en þar kom, að þau létu undan siga í þessum málum. Þegar fyrrgreindur ráðh. mælti fyrir frv. árið 1931, komst hann m.a. svo að orði, með leyfi hæstv. forseta: „En þar sem nú eru með frv. þessu að dómi sérfræðinga gerðar öflugar ráðstafanir til þess að fyrirbyggja þá hættu, er menn óttuðust áður að mundi leiða af slíkum innflutningi, þá hef ég ekki treyst mér til að sporna lengur á móti þessu máli og vil því fyrir mitt leyti opna þann möguleika, sem ætla má að leiði af sér aukinn arð fyrir landbúnaðinn og horfir til mikilla hagsbóta fyrir bændur landsins.“ Þannig mælti ráðh. fyrir 31 ári, og svipuð eru ummæli hæstv. landbrh. í dag. Þannig endurtekur sagan sig. Hæstv. landbrh. flytur nú frv. til laga um innflutning búfjár. Einnig hann hefur látið undan þrýstingi frá bændasamtökum og búnaðarþingum. Sér til afsökunar bendir hann á, að öflugar ráðstafanir verði gerðar til þess að fyrirbyggja hættu og í því efni farið að ráðum sérfræðinga. Áreiðanlega hyggst hæstv. ráðh. með þessu frv. opna bændum landsins möguleika til aukinna hagsbóta. Þannig er sagan að endurtaka sig. Lögin frá 1931 leiddu ekki af sér aukinn arð fyrir landbúnaðinn, heldur stríð, hörmungar og tjón, sem vart verður metið til fjár. Þessar urðu afleiðingarnar þá. Hvernig nú fer, skal ósagt látið, enda veit enginn neitt í því efni nú í dag. Fyrir 31 ári var þekking manna á búfjársjúkdómum ófullkomin. Hún er máske meiri nú, og þó vantar mikið á, að hún sé nægileg. Enn er mjög margt á huldu í þeirri fræðigrein, ekki sízt varðandi smitsjúkdóma, og þetta fara sérfræðingar ekki dult með. Árið 1931 var treyst á öflugar varúðarráðstafanir, og það skal einnig gert nú. Þá brugðust þessar varúðarráðstafanir herfilega, og nákvæmlega eins getur farið að þessu sinni.

Ég vil taka það fram, að ég er ekki annað en leikmaður á sviði búfjársjúkdóma, en samt efast ég ekki um, að það er óráðlegt að samþykkja nú þetta frv. til laga um innflutning búfjár. Málið þarfnast gaumgæfilegri athugunar en það hefur hlotið enn. Við höfum tvö hundruð ára reynslu af innflutningi húsdýra, og sagan af honum er ein samfelld hörmungasaga, eins og allir hv. þdm. vita. Hvers vegna skyldum við ekki láta þessa sögu verða okkur að einhverri kenningu? Hverjum leikmanni er sú saga auðskilin. Hún ein er okkur ærin áminning um að fara varlega í þessum efnum. Við þetta bætist svo, að fremstu sérfræðingar okkar vara við innflutningi búfjár, bæði lifandi búpenings og búfjársæðis. Slíkri viðvörun beindi dr. Björn Sigurðsson til Alþingis fyrir nokkrum árum, og hið sama gerir Páll A. Pálsson yfirdýralæknir nú í grg., sem frv. Þessu fylgir. Yfirdýralæknirinn fann meira að segja hvöt hjá sér til þess að vara alla þjóðina við hættunni í útvarpserindi, sem hann flutti í maí s.l. En þrátt fyrir allt þetta skal frv. knúið í gegn á þessu þingi. Sterkur aðili sækir fast á, og því mun stjórnarmönnum þykja ráðlegast að láta undan síga. l;g vona, að afleiðingarnar verði ekki þær sömu eða svipaðar og þær urðu fyrir 30 árum.

Sérfræðingar hafa rækilega bent á, að innflutningur búfjár eða búfjársæðis sé engan veginn áhættulaus. En sérstaklega hafa þeir þó lagt áherzlu á það, að nauðsynlegar varúðarráðstafanir séu umfangsmiklar, kostnaðarsamar og raunar vandasamari í framkvæmd en svo, að landsmönnum sé enn trúandi fyrir þeim. Þetta ættu alþm. að hugleiða vel og láta á meðan bíða að samþ. það, sem reynslan og fróðustu menn telja varhugavert.