05.04.1962
Efri deild: 79. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2203 í B-deild Alþingistíðinda. (1852)

199. mál, innflutningur búfjár

Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):

Herra forseti. Það hafa komið fram hér þrjár brtt. við þessa umr. málsins, og fyrir mitt leyti get ég efnislega fallizt á þá brtt., sem er á þskj. 610, frá Ásgeiri Bjarnasyni. En ég hefði talið betra, að orðalagi hennar væri breytt eins og hér hefur verið bent á áður, og vænti ég þess, að flm. till. og hv. 6. þm. Norðurl. e. (MJ) geti komið sér saman um það.

Þá eru hér í öðru lagi brtt. tvær frá hv. 9. þm. Reykv., einkanlega er það brtt. við 19. gr., sem er allmikil efnisbreyting. í sambandi við þá brtt. vil ég aðeins benda á það, að við samningu þessa frv. var haft fullt samráð við yfirdýralækni að því er snertir þann tíma, sem ákveðinn er í gr., hvenær megi flytja sæði frá sóttvarnarstöðinni. Ég hef kynnt mér álit vissra manna um þetta atriði, og eftir þeim upplýsingum, sem ég hef frá góðum stöðum, er talin mun minni hætta á því að flytja sæði úr nautgripum út úr sóttvarnarstöð en t.d. úr sauðfé og ýmsum öðrum dýrum. Erlendis er yfirleitt miðað við 2 ár að því er snertir nautgripi, og virðist reynslan hafa sýnt, að það væri öruggt. Það hafa a.m.k. ekki komið fram nein slys í sambandi við það, eftir því sem mér er tjáð af fræðimönnum. Og þar sem yfirdýralæknir var samþykkur þessu ákvæði, þá sé ég ekki ástæðu til að breyta þessu og mun ekki mæla með því.

Í öðru lagi er það 23. gr., að heimildarákvæði fyrir ráðherra, sem eru í 11. gr., taki ekki gildi fyrr en eftir 3 ár. Ég get ekki heldur séð, að 3 ára tími muni breyta verulega um í þessu efni, eins og ég tók fram í umr. hér við 2. umr.

Skoðun mín er, að það sé ekki alveg óyggjandi, að einhver hætta kunni að geta stafað af þessu, en hún sé hverfandi lítil miðað við þá reynslu, sem orðin er, og miðað við það, að þetta atriði var sérstaklega gaumgæft við samningu frv. og teknar til greina ráðleggingar yfirdýralæknis, ákvæðið sett inn með samþykki hans, þó að hann að vísu hafi tjáð sig í sumum atriðum mjög varfærinn í þessum efnum. En þetta atriði var tekið inn algerlega í samráði við hann, þetta um tveggja ára tímabilið, og einnig það, hvenær lögin koma til framkvæmda. — Sé ég ekki ástæðu til að leggja til, að þessar till. verði samþykktar.