12.02.1962
Efri deild: 45. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2218 í B-deild Alþingistíðinda. (1915)
139. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Fyrir síðustu alþingiskosningar höfðu báðir núv. stjórnarflokkar á stefnuskrá sinni endurskoðun skattalaganna, m.a. og í rauninni fyrst og fremst með það fyrir augum að lækka beina skatta. Það var því eðlilegt, að þegar ríkisstj. var mynduð, tóku stjórnarflokkarnir inn í stjórnarsáttmálann samningsákvæði í þessa átt. í stjórnarsamningnum er komizt svo að orði, að til þess að tryggja, að þær heildarráðstafanir, sem gera þarf, verði sem réttlátastar gagnvart öllum almenningi, hefur ríkisstj. ákveðið m.a. að endurskoða skattakerfið. Ástæðurnar til þessa eru augljósar, bæði þess, að Alþfl. og Sjálfstfl. tóku upp í sínar stefnuskrár jafnákveðin fyrirheit um að vinna að þessum málum og að sérstaklega var þetta upp tekið í stjórnarsáttmálann, — ástæður til þessa eru að sjálfsögðu augljósar, því að það ástand í skatta- og útsvarsmálum, sem hér hafði ríkt um langan aldur, var ekki aðeins óviðunandi, heldur beinlínis háskalegt fyrir velmegun og lífskjör þessarar þjóðar. Þetta skattaástand hafði verið til niðurdreps fyrir atvinnureksturinn. Það hafði meinað atvinnufyrirtækjum að endurnýja sig, efla og auka starfsemi sína og afköst, eins og æskilegt og nauðsynlegt hefði verið. Í fjölda tilvika hefur þessi skattaáþján dregið úr framtaki, orku og vinnusemi einstaklinganna. Þessa eru mörg dæmi, sem við vafalaust öll þekkjum með sanni. Skattafarganið hefur því á undanförnum áratugum verið ekki aðeins til óþurftar fyrir atvinnuvegina, heldur dregið einnig úr dugnaði og vinnusemi einstaklinganna. Þetta hefur að sjálfsögðu orðið, ásamt fleiri orsökum, til þess að draga úr þeirri aukningu þjóðarteknanna, sem hér hefði átt að verða og orðið hefur í stórum stíl í öðrum frjálsum, vestrænum ríkjum á hinum síðari árum.
Ég segi: ásamt fleiri öðrum orsökum. Vitanlega hafa skattamálin ekki verið eina orsökin, heldur hin stöðuga verðbólga, sem hér réð ríkjum, og fleiri ástæður enn. En auk þess að skattaáþjánin hefur þannig dregið úr aukningu atvinnulífsins og framtaki manna, hefur hún einnig haft þau áhrif, að skattsvik hafa verið orðin almennari á Íslandi en í nágrannalöndum okkar. í rauninni var svo komið, að þorri manna taldi það eðlilegt og réttlætanlegt að draga undan skatti, eftir því sem mögulegt var. Þetta skapaði svo aftur hið mesta misrétti og ranglæti. Þeir þjóðfélagsborgarar, fyrst og fremst launamenn í opinberri þjónustu, sem urðu að telja fram allar tekjur sínar, töldu — oft með réttu, að skattar þeirra væru í hinu argasta ósamræmi við skatta nágrannans, sem hafði hagrætt framtali sínu betur. Það er orðið þjóðfélagsvandamál, þjóðfélagsböl, þegar það er komið inn í almenningsálitið, að sjálfsagt sé að draga undan eins og frekast er fært. Og varðandi bæjar- og sveitarfélögin var ástandið þannig, að þau höfðu aðeins einn tekjustofn, sem nokkru skipti, þ.e. útsvörin. Yfir 90% af tekjum þeirra, urðu þau að ná inn með útsvörum. Og um leið og bæjar- og sveitarfélögum var meinað ár eftir ár að fá nýja tekjustofna, var hrúgað á þau nýjum útgjöldum með nýjum lögum.
Þegar eftir stjórnarmyndunina var því hafizt handa um gagngerða endurskoðun skattalaga, skatta- og tollakerfis. Sérstök nefnd manna fékk það verkefni að endurskoða tekju- og eignarskattslögin. Öðrum var falið að endurskoða útsvarslögin og undirbúa nýja löggjöf um tekjustofna sveitarfélaga. Og hin þriðja nefnd var sett til þess að endurskoða tollskrána og allt tollakerfið. Þegar á þinginu 1960, um vorið var skatta- og útsvarslögum breytt. En þá var lækkaður stórlega skattur á almenningi, og var sú breyt. aðallega í því fólgin, að tekjuskattur var afnuminn af almennum launatekjum. Hjón, sem höfðu 70 þús. kr. tekjur, þurftu ekki að borga skatt, og síðan bættust við 10 þús. kr. skattfrjálsar fyrir hvert barn. Hjón með 3 börn og 100 þús. kr. tekjur þurfa því samkv. þessum l. ekki að borga neinn tekjuskatt.
Jafnhliða Þessu voru gerðar margvíslegar endurbætur á útsvarslögum og fjárhagsmálum sveitarfélaganna. Var það m.a. fólgið í því, að í stað þess, að jafnað hafði verið niður eftir efnum og ástæðum og sveitarfélög og niðurjöfnunarnefndir haft mjög frjálsar hendur þar um, voru nú lögfestir útsvarsstigar, þrír að tölu. Skyldi einn þeirra gilda fyrir Reykjavík, annar fyrir aðra kaupstaði, þriðji fyrir önnur sveitarfélög í landinu. En jafnframt var ákveðið á þessu sama þingi, að fimmtungur af söluskatti, sem þá voru sett lög um, skyldi renna í jöfnunarsjóð sveitarfélaga og úthlutað þaðan milli sveitarfélaganna og skipt eftir íbúatölu. Þessar ráðstafanir gerðu það að verkum, að þegar á því sama ári var unnt að lækka útsvörin á útsvarsgreiðendum verulega, og mun sú lækkun í höfuðborginni hafa numið allt að 20% til jafnaðar. Varðandi tekjuskattslögin, þá var hér þó aðeins um að ræða fyrsta þátt endurbótanna, það sem alls ekki þótti mega draga, en það var hin mikla skattalækkun á almenningi.
Annar þátturinn var svo skattalöggjöf atvinnurekstrarins í landinu og fyrst og fremst félaganna. Það var ljóst, að sú endurskoðun hlaut að taka nokkru lengri tíma, enda er það svo, að heildarendurskoðun skattalaga í öðrum löndum tekur venjulega mörg ár eða jafnvel áratug eða meira. Að þessu hefur síðan verið unnið, og liggur nú fyrir í þessu frv. árangurinn af því starfi. En það má segja, að það frv., sem hér er lagt fram, sé beint framhald og óaðskiljanlegur þáttur af því, sem gert var 1960, annar áfangi á þessari leið umbótanna. Varðandi útsvarslög og tekjustofna sveitarfélaga mun einnig verða lagt frv. fyrir þetta Alþingi.
Sú nefnd, sem falið var að undirbúa þetta mál, var skipuð 6 mönnum. Nefndin var skipuð 8. jan. 1960. Formaður hennar var Björn Ólafsson fyrrum fjmrh. í nefndinni áttu auk hans sæti alþingismennirnir Gísli Jónsson, Jón Þorsteinsson, Ólafur Björnsson, Sigurður Ingimundarson og Svavar Pálsson endurskoðandi. Ráðuneytisstjórinn í fjmrn., Sigtryggur Klemenzson, tók sæti í nefndinni, þegar fjallað var um þá þætti frv., er varða framkvæmd skattamála.
Það frv., sem hér liggur fyrir, byggist á till. nefndarinnar með örfáum breytingum. Ég mun nú rekja þær helztu breyt., sem frv. felur í sér.
Í fyrsta lagi: Núgildandi heildarskattalög eru frá 1954, eða nær 8 ára gömul. Síðan hafa verið gerðar nokkrar breyt. á skattalögum og þótti nauðsynlegt að fella þær breyt. inn í lögin. Auk þess felur þetta frv., sem hér liggur fyrir, í sér svo verulegar efnisbreytingar, að rétt þótti að hafa þau vinnubrögð við undirbúning málsins að semja ný skattalög frá grunni, en ekki að flytja þessar breyt. sem brtt. við eldri skattalög. Efnisröðun gildandi I. var að ýmsu leyti orðin óskipuleg vegna þeirra breytinga, sem gerðar höfðu verið undanfarin ár. Við þessa endurskoðun l. í heild hefur verið byggt á þeim grundvallarsjónarmiðum, að gleggst væri til yfirlits, að saman væri skipað í kafla öllum ákvæðum laganna, sem varða skattskyldu og það, hverjir séu skattaðilar. Um það fjallar I. kafli frv., II. kaflinn fjallar um ákvæðin um skattskyldar tekjur, og III. kaflinn felur í sér ákvæðin um skattskyldar eignir. í IV. kafla frv. koma síðan skattstigarnir, bæði tekjuskatts- og eignarskattsstiginn. Þá tekur við V. kafli, um skattstjórnaryfirvöld, og síðan VI. kafli, um framtöl tekna, fresti, úrskurði, innheimtu o.fl. í VII. kafla eru refsiákvæði og viðurlög og ýmis ákvæði í VIII. kafla. Samkv. þessu er efnisskipun frv., einkum í I–IV. kafla, með nokkuð ólíkum hætti frá því, sem er í gildandi lögum. Til þess að menn geti sem bezt gert sér grein fyrir Þessum breyt. og eigi auðveldara um samanburð á ákvæðum þessa frv. og gildandi laga, hafa verið tekin saman yfirlit, sem birt eru sem fylgiskjal með þessu frv. Á bls. 32–34 er fskj. A, en Það sýnir, hvaðan úr gildandi skattalögum einstakar greinar frv. eru teknar og hverjar greinar eru nýmæli. Á bls. 34–35 er fskj. B með öðru yfirliti, er sýnir, hvar einstökum ákvæðum gildandi skattalaga er skipað í frv. og hver ákvæði er gert ráð fyrir að felld verði niður. Vænti ég þess, að þessi yfirlit bæði verði hv. alþm. til glöggvunar við samanburð frv. við gildandi lög.
Í öðru lagi: í 5. gr. frv., sem svarar til 3. gr. gildandi laga, er tekinn upp C-liður um skatt félaga með ótakmarkaðri, persónulegri ábyrgð, en sá liður féll niður með skattalagabreyt. frá 1959, væntanlega af vangá, og ber því að skoða þetta sem leiðréttingu fyrst og fremst.
Í þriðja lagi: í 7. gr. frv., D-lið, er nýmæli um jöfnunarhlutabréf. Segir þar svo, með leyfi hæstv. forseta, í D-lið 7. gr.:
„Ekki telst þó til arðs úthlutun jöfnunarhlutabréfa, sem ekki hefur í för með sér breytta eignarhlutdeild hluthafa í hlutafélagi, og telst því ekki til skattskyldra tekna hluthafans, enda sé útgáfa bréfanna byggð á raunverulegum verðmætum í sjóðum, öðrum en skattfrjálsum varasjóði, eða öðrum eignum félagsins, er verið hafa í eigu þess minnst 3 ár, og sé samanlagt verð jöfnunarhlutabréfanna, miðað við hlutafé félagsins, ekki hærra en svarar til almennrar verðhækkunar frá stofnun félags eða frá innborgun hlutafjár. Fjmrh. ákveður, hvernig reikna skuli hina almennu verðhækkun.“
Víðast hvar er nú heimilað, að hlutafélög geti gefið út jöfnunarhlutabréf til hluthafa, án þess að þau bréf eða sú hækkun, sem um er að ræða, sé talin skattskyld hjá félaginu eða hluthöfum. Þetta byggist á því, að hér er raunverulega um leiðréttingu að ræða vegna breytinga á gildi peninga. Með þessu er ekki verið að gefa hluthöfum nein ný verðmæti. Sérhver hluthafi á nákvæmlega jafnmikinn hlut í fyrirtækinu eftir sem áður. Til skýringar þessu má nefna einfalt dæmi:
Hlutafélag hefur verið stofnað fyrir 30–40 árum með 1000 kr. hlutafé, þ.e. 10 hlutum, sem hver er 100 kr. að nafnverði. Við skulum taka það dæmi, að síðan hafi almennt verðlag í landinu, laun, tilkostnaður og annað þess háttar, tuttugufaldazt. 100 kr. hlutabréf fyrir 30–40 árum er því í rauninni sama og 2000 kr. hlutabréf nú. En eftir gildandi I. getur hlutafélagið ekki breytt hlutafé sínu til samræmis við hið breytta verðlag nema greiða skatta af hækkuninni, þó að hér sé um hreina leiðréttingu að ræða. Þetta leiðir svo m.a. af sér erfiðleika í sambandi við arðsúthlutun. Ef félagið vill t.d. greiða 8% arð og hefur möguleika til þess, 8%, — eins og eru sparisjóðsvextir af bundnu sparisjóðsfé nú, — þá verður að miða þessa 8% arðsúthlutun við 100 kr. bréfið, þó að það jafngildi með núv. verðlagi 2000 kr., í stað þess, að eðlilegast væri að borga þessar greiðslur eða þennan arð af því verðmæti, sem bréfið hefur í dag, miðað við verðhækkunina. Þetta þýðir, að hluthafinn getur ekki með arðsúthlutun fengið nema brot af eðlilegum sparisjóðsvöxtum af eign sinni í félaginu, og hann getur ekki notið gagns af eign sinni, nema farnar séu einhverjar krókaleiðir.
Þetta nýmæli felur það í sér í stuttu máli sagt, að leyft er að leiðrétta nafnbréf hlutabréfa til samræmis við þær verðbreytingar í landinu, sem orðið hafa, síðan félagið var stofnað eða hlutaféð innborgað.
Í fjórða lagi: í 10. gr. frv., H-lið, eru nýmæli um launagreiðslur erlendis frá fyrir störf í bágu alþjóðastofnana. Þar segir svo, að til tekna teljist ekki beinar launagreiðslur erlendis frá fyrir störf í þágu þeirra alþjóðastofnana eða ríkjasamtaka, sem íslenzka ríkið er aðili að, enda njóti starfsmenn hlutaðeigandi stofnana skattfrelsis af launum fyrir hliðstæð störf. Ef íslenzkur maður gerist starfsmaður slíkra stofnana og er búsettur í bækistöðvum þeirra, en slítur heimilisfesti á Íslandi, þá er hann undanþeginn sköttum fyrir þau laun. Ef hann hins vegar heldur áfram búsetu hér á landi og vinnur hér heima þau störf, sem alþjóðastofnunin hefur falið honum og greiðir honum laun fyrir, þá verður hann að greiða af því fulla skatta. Það þykir rétt að torvelda ekki möguleika manna, hér búsettra, til þess að taka að sér slík launuð störf fyrir alþjóðastofnanir, þó að þeir vinni störfin hér heima, því að með því fyrirkomulagi, sem nú gildir, mundu menn stundum í rauninni flæmdir af landi brott vegna þeirra skattaákvæða, sem nú gilda. Þetta nýmæli miðar að því að gera hér leiðréttingu á. í fimmta lagi er breyt. á gerð um möguleika eða heimild til þess að flytja tap af atvinnurekstri á milli ára. Það ákvæði er í 11. gr., B-lið, 2. mgr., þar segir svo:
„Tap, sem verður á atvinnurekstri félaga eða einstaklinga, má flytja milli ára um fimm áramót og draga frá skattskyldum tekjum, þar til það er að fullu greitt, enda hafi verið gerð fullnægjandi grein fyrir tapinu á framtali til tekju og eignarskatts fyrir það ár, þegar tapið varð.“
Hér á landi er ýmis atvinnurekstur mjög áhættusamur. Útgerðarfyrirtæki hefur e.t.v. góða afkomu eitt árið, en verður fyrir miklu tapi annað árið vegna aflabrests, verðfalls eða annarra orsaka. Það er eðlilegt, að skattalögin taki tillit til þess, að atvinnurekstur er að ýmsu leyti áhættusamari hér á landi og meiri áraskipti um afkomu hans en víða annars staðar, t.d. í háþróuðum iðnaðarlöndum, þar sem afkoma iðnaðarfyrirtækjanna er að jafnaði svipuð frá ári til árs. Ef nú slíkt fyrirtæki hér verður fyrir stórfelldu tapi í ár, greiðir það auðvitað ekki tekjuskatt. En ef það hefur sæmilegan hagnað næstu árin á eftir, verður Það að borga tekjuskatt af þeim hagnaði, án tillits til þess mikla tjóns, sem það varð fyrir eitt árið, að öðru leyti en því, að í núgildandi l. er heimilt að flytja slíkt tap um tvenn áramót. Breytingin í frv. er í því fólgin að rýmka þetta ákvæði, þannig að heimilt sé að flytja slíkt tap í atvinnurekstri á milli ára um fimm áramót, í stað tveggja eftir gildandi lögum.
Í sjötta lagi: í 12. gr. frv., D-lið, er nýmæli um frádráttarlið, en þar segir, að frá tekjum skuli draga, áður en skattur er á bær lagður, einstakar gjafir til menningarmála, viðurkenndrar líknarstarfsemi og kirkjufélaga, þ6 ekki yfir 10% af skattskyldum tekjum gefanda, enda sé hver gjöf ekki undir 300 kr. Fjmrh. ákveður í reglugerð, hvaða málaflokkar og stofnanir komi til greina samkv. Þessum staflið.
Það mun hafa verið á miðju ári 1959, að skipuð var samkv. ályktun Alþingis nefnd til að athuga, hvort unnt sé að auka fjárhagsstuðning við mannúðar- og vísindastarfsemi hér á landi með því að gera framlög fólks til þeirra frádráttarhæf við álagningu tekjuskatts. Formaður þeirrar n. var dr. Jóhannes Nordal. Sú n. skilaði áliti, og fékk skattalaganefndin Það til athugunar og byggði þetta ákvæði í D-lið í verulegum efnum á till. nefndarinnar, þó að nokkra breytingu muni hún hafa á því gert, en í meginefni er það svipað. Ég ætla, að hér sé rétt stefnt, að örva menn til framlaga og gjafa til menningar- og líknarfélaga með þeim hætti, að þeir megi draga það frá tekjum á því ári, sem gefið er.
Þá er í sjöunda lagi nýr frádráttarliður í 12. gr., E, en þar segir svo: Kostnað við öflun bóka, tímarita og áhalda til vísindalegra og sérfræðilegra starfa, megi draga frá tekjum, áður en skattur er á bær lagður. Það skilyrði er, að þessi kostnaðarliður sé studdur fullnægjandi gögnum.
Í áttunda lagi er breyt. í 13. gr., C-lið. Þar er ákvæði um, að iðgjöld til stéttarfélaga, sjúkrasjóða, atvinnuleysissjóða skuli draga frá hreinum tekjum einstaklinga. Hér er bætt inn, að enn fremur sé heimilt að draga frá tekjum félagsgjöld til atvinnurekendafélaga, þó ekki umfram 5 af 1000 af veltu fyrirtækjanna.
Í níunda lagi er ákvæði í 13. gr., E-lið, og er það nýmæli. Þar segir svo: „Afborganir námsskulda, sem stofnað er til eftir 20 ára aldur, má eftir mati skattayfirvalda og eftir því, sem nánar verður ákveðið í reglugerð, draga frá tekjum næstu fimm ár, eftir að námi er lokið, enda sé gerð fullnægjandi grein fyrir skuldunum.“ Eins og kunnugt er, þá eru ákvæði í gildandi l. og framkvæmd á Þá lund, að vexti af skuldum má draga frá tekjum, en ekki afborganir. Með þessu er verið að reyna að létta undir með námsmönnum, sem oft koma skuldum hlaðnir eftir langt og dýrt nám og eiga, sérstaklega fyrstu árin, eftir að þeir taka við starfi, fullerfitt með að standa undir vöxtum og afborgunum námsskuldanna. í þessu sambandi er rétt að geta þess, að annað hefur einnig verið gert til þess að létta mjög undir með námsmönnum, og það eru annars vegar hin stórauknu framlög í fjárlögum til styrkja og lána námsmönnum til handa og sú nýja löggjöf, sem sett hefur verið um lánasjóð íslenzkra námsmanna. Þar sem hér er í þessu frumvarpsákvæði rætt um afborganir námsskulda, er rétt að minnast einnig á þetta mál, sem er námsmönnum til mikils hagræðis. En þau átök, sem gerð hafa verið í því efni, má m.a. sjá af því, að 1958 voru í fjárlögum fjárframlög til styrkja og lána til námsmanna samtals 1950 þús., en í gildandi fjárlögum fyrir 1962 eru þau orðin 8 millj. rúmar, til viðbótar kemur svo bæði eigið fé lánasjóðsins og þau bankalán, sem hann hefur fengið til útlána að nýju, þannig að ef við lítum á þessa fyrirgreiðslu í heild, þá eru samanburðartölur þessar um þá fjárhæð, sem veitt var til lána og styrkja námsmanna: 1958 1950 þús., en 1962 rúmar 13 millj.
Það er enginn vafi á því, að í þessu ákvæði í E-lið 13. gr. um, að afborganir námsskulda megi draga frá tekjum í 5 ár, eftir að námi er lokið, er um mikið sanngirnismál að ræða. Og eftir þeirri reynslu, sem flestum er kunn af því, hversu erfitt námsmenn, nýkomnir frá löngu námi, eiga með að standa undir sínum skuldum, þá vænti ég, að hv. þm. geti á þetta nýmæli fallizt.
í tíunda lagi er nýmæli í 15. gr. frv. um fyrningarafskriftir. Nú er svo ákveðið í lögum, að fyrningu véla, áhalda, atvinnutækja skuli reikna með ákveðinni hundraðstölu af upphaflegu kaupverði eða kostnaðarverði. Slíkt kaupverð eða kostnaðarverð er nú oft aðeins hluti, kannske 1/5 eða jafnvel 1/10 hluti af því, sem nýjar vélar og tæki kosta nú. Vegna hinnar öru verðbólgu, sem hér hefur verið síðustu 10–15 árin, standa atvinnufyrirtæki, ekki sízt iðnaðarfyrirtæki, mjög illa að vígi vegna fyrningarreglnanna um vélar, því að vélar, sem keyptar hafa verið fyrir r10 árum og eiga nú að vera fyrndar að mestu eða öllu leyti, þurfa að standa undir endurnýjun á vélakosti, en hið upphaflega kaupverð, sem afskriftirnar eru reiknaðar af, hefur í mörgum tilfellum verið aðeins örlítill hluti af því, sem kostnaðurinn er nú við að endurnýja þessi tæki. Hér er því gert ráð fyrir að breyta frá núgildandi fyrirkomulagi þannig, að í stað þess að miða fyrningarprósentuna við upphaflegt kaupverð, sé nú miðað við endurnýjunarverð, þ.e.a.s. við mat á því, hvað kostar að endurnýja sams konar tæki eða kaupa sams konar tæki nú.
Í 22. gr. frv. eru svo nánari ákvæði um það, hvernig skuli finna hæfilegt endurnýjunarverð. Þar segir, í H-lið 22. gr.:
„Heimilt er atvinnufyrirtækjum á árunum 1962–1963 að láta meta áætlað endurkaupsverð fastafjármuna sinna og breyta bókfærðu verði á eignum samkvæmt því, enda telst verðhækkunin ekki til skattskyldra tekna. Eignirnar skulu metnar til endurkaupsverð að frádregnum eðlilegum afskriftum, er miðist við rýrnun eignarinnar.“ Og nánari reglur skulu settar um framkvæmd matsins. Að sjálfsögðu mun það verða svo í framkvæmd, að nokkrum vafa getur verið undirorpið á stundum, hvert ber að telja endurnýjunarverð tækja eða véla. Það eru e.t.v. ekki lengur framleidd sams konar tæki vegna örrar þróunar, og verður þá að fara eftir þeim reglum, sem 22. gr. gerir um aðferð að finna það, sem næst er sanni.
Á því er enginn vafi, að um leið og hér er um eðlilegt sanngirnismál að ræða, þá mun þessi nýja regla verða mjög til þess að skapa atvinnufyrirtækjunum möguleika til að fylgjast betur með aukinni og nýrrí tækni, að endurnýja sín tæki miklu fyrr en ella. En vitanlega er það þjóðhagslegt hagsmunamál, það er hagsmunamál þjóðarinnar allrar, að atvinnureksturinn sé á hverjum tíma sem bezt rekinn, með sem fullkomnustum tækjum, en sé ekki að burðast með gömul og úrelt tæki, sem afkasta ekki því sama og ný tæki, en eru e.t.v. hins vegar dýrari í rekstri.
Ellefta breyt. er í 17. gr. frv., 1. mgr. í gildandi l. er svo ákveðið, að félög megi draga frá tekjum sínum útborgaðan arð allt að 8%, áður en skattur er á þau lagður. Ef þau borga meira en 8% í arð, þá er sú arðsútborgun skattlögð bæði hjá félaginu og hjá félagsmanni, sem fær arðinn, m.ö.o. um tvísköttun að ræða. Með þessu frv. er lagt til að hækka þennan hundraðshluta úr 8 upp í 10. Þegar þess er gætt, að hæstu sparisjóðsvextir eru nú 9%, þ.e.a.s. af því fé, sem er bundið í eitt ár, þá þykir ekki óeðlilegt, að slík skattfrjáls arðsútborgun hjá félögunum sé hækkuð upp í 10%, og má þó vera, að ýmsir telji eðlilegt að hafa þetta mark nokkru hærra, en út í það skal nú ekki neitt farið hér.
12. brtt. er í 17. gr., 2. mgr., og er þar svo ákveðið, að ef nokkuð af ársarði félaga samkv. 5. gr. A–D er lagt í varasjóð, er sú upphæð undanþegin tekjuskatti og skal koma til frádráttar við ákvörðun skattskyldra tekna, þó eigi hærri fjárhæð en nemur 1/4 hluta af hreinum tekjum félags, áður en tekjuskattur og útsvar, sem greitt hefur verið á árinu, er dregið frá tekjunum. í núgildandi 1. eru þau ákvæði, að almenn hlutafélög hafa heimild til þess að leggja skattfrjálst 1/4 hluta af hagnaði sínum í varasjóð. Enn fremur er svo ákveðið um samvinnufélög, að þau megi leggja skattfrjálst þriðjung af tekjuafgangi sínum í varasjóð. Í þriðja lagi er svo ákveðið um þau hlutafélög og önnur félög með takmarkaðri ábyrgð, sem hafa sjávarútveg sem aðalatvinnurekstur, að þau megi draga frá tekjum sínum varasjóðstillag, sem nemur 1/3 af hreinum tekjum. En jafnframt eru lagðar á þessi félög, sem stunda útgerð sem aðalatvinnurekstur, sérstakar kvaðir. Kvaðirnar eru þær, að 50% af því fé, sem þau leggja í varasjóð, skuli geymd í sérstökum reikningi í banka, og nefnist sá hluti varasjóðsins nýbyggingarsjóður. í öndverðu var þessum nýbyggingarsjóði ætlað það hlutverk að tryggja endurnýjun skipastóls útgerðarinnar. En þessum tilgangi var aldrei náð, og það er talið af kunnugustu mönnum, að lögin um nýbyggingarsjóð hafi að mestu verið dauður bókstafur, Þannig að þetta sérákvæði um heimild hlutafélaga og félaga með takmarkaðri ábyrgð til að leggja þriðjung af hreinum tekjum í varasjóð, ef þau stunduðu sjávarútveg, hafi ekki komið að neinu gagni og hafi í rauninni enga raunhæfa þýðingu að halda þessu ákvæði áfram.
Það er lagt til með þessu frv. að samræma þessi ákvæði, sem nú gilda um varasjóði, þannig að um öll þau félög, sem upp eru talin í 5. gr. A–D, skuli gilda sama regla, sú, að fjórðung eða 25% af hagnaði megi leggja í varasjóð. Þetta ákvæði er því nokkur bót fyrir félög með takmarkaðri ábyrgð almennt og þar með þau útgerðarfyrirtæki, sem eru í slíku formi. Varðandi samvinnufélögin lækkar þetta framlag, þetta skattfrjálsa varasjóðsframlag, hins vegar úr 1/3 niður í 1/4. En það er erfitt að færa fyrir því fullgild rök, að um varasjóðsframlag skuli þetta eina félagsform, samvinnureksturinn, njóta sérstöðu og hafa önnur hlunnindi en önnur félög, sem stunda atvinnurekstur í landinu.
Í stuttu máli sagt, þá felur þessi breyt. varðandi varasjóði það í sér, að almenna reglan verður sú, að hið skattfrjálsa framlag hækkar úr 20 í 25%, að afnumið er það ákvæði um nýbyggingarsjóði útgerðarfyrirtækjanna, sem hefur verið dauður bókstafur og hefur enga raunhæfa þýðingu, og að ekki þykir ástæða til að halda sérreglu um samvinnufélögin, heldur að Þau séu að þessu leyti sett við sama borð og aðrir.
Í þrettánda lagi er svo enn breyt. í 17. gr., 3. mgr. Það er um það, að kaupfélög, pöntunarfélög og önnur samvinnufélög megi draga frá tekjum sínum það, sem þau greiða félagsmönnum í árslok eða færa þeim til séreignar í stofnsjóði í hlutfalli við vörukaup þeirra á árinu, og enn fremur vexti af stofnsjóði, og telst það eigi til skattskyldra tekna hjá félaginu. Þetta ákvæði er látið haldast, en við er bætt: „Á sama hátt mega félög, sem aðeins vinna úr eða selja afurðir félagsmanna, draga frá það, sem þau úthluta félagsmönnum sínum í hlutfalli við framlög þeirra af afurðum.“ Upphæðir þær, sem þannig er úthlutað, teljast fram til skatts sem tekjur hinna einstöku félagsmanna. En þau rök eru færð fram fyrir þessari breytingu, að það hafi þótt orka tvímælis í framkvæmd, hvaða félög féllu þarna undir, og hafi verið talið óljóst um ýmis félög önnur en samvinnufélög, og þykir því réttara að taka af öll tvímæli um þau félög, að þessi regla gildi einnig varðandi skatt.
Í fjórtánda lagi er ákveðið í frv., að húsgögn og aðrir húsmunir og persónulegir gripir skuli ekki taldir með skattskyldum eignum, heldur undanþegnir eignarskatti.
Í fimmtánda lagi er svo sú breyt. gerð á tekjuskattsstiganum, að skattur félaga skuli vera 20% af skattskyldum tekjum í stað 25%, sem nú gildir.
Í sextánda lagi eru svo ákvæði um eignarskattinn, sem eru í 26. gr. Þar er gerð sú breyting á, að skattfrjáls eign, sem samkvæmt gildandi l. er 30 þús., skuli nú verða 100 þús., þannig að hjá hverjum manni verður 100 Þús. kr. eign skattfrjáls, og skattstiginn er gerður einfaldari, þannig að í stað þess, að í gildandi I. eru 9 mismunandi prósentur, þá eru þær hafðar aðeins þrjár eftir þessu frv. Hins vegar er ekki gert ráð fyrir, að þetta valdi neinum breyt. á tekjum ríkissjóðs af eignarskattinum, er aðeins samræmingarákvæði.
Í sautjánda lagi er gert ráð fyrir því í 42. gr. frv., að þegar maður kærir skatt sinn til ríkisskattanefndar, þá skuli skattþegni eða umboðsmanni hans heimilt að flytja mál sitt munnlega eða skriflega fyrir ríkisskattanefnd. Nú hefur þótt misbrestur á því, að kærandi hefði tök á því að flytja mál sitt fyrir nefndinni, og er hér lögboðið, að það skuli honum heimilt.
Í átjánda lagi er svo ákveðið í 42. gr. einnig, að úrskurðir ríkisskattanefndar skuli vera rökstuddir. Svo hefur verið í framkvæmd að undanförnu, að oft og tíðum hefur ríkisskattanefnd kveðið upp sína úrskurði án þess að láta í té sérstakan rökstuðning fyrir þeim. Og án þess að í þessu felist ásökun í garð ríkisskattanefndar, að úrskurðir hennar hafi hingað til verið órökstuddir, þá er með þessu beinlínis fyrir mælt, að kærandi eigi heimtingu á því að fá að sjá rökstuðning hennar fyrir úrskurðinum.
Í nítjánda lagi: í 44. gr. er kveðið skýrt á um Það, að áfrýjun skattaákvörðunar eða deila um skattskyldu fresti ekki eindaga tekju- eða eignarskatts né leysi undan þeim viðurlögum, sem lögð eru við vangreiðslu hans. En ef skatturinn er lækkaður eftir úrskurði eða dómi eða niður felldur, skal endurgreiðsla þegar fara fram. Víkja má frá ákvæði 1. málsliðs, ef sérstaklega stendur á, samkv. ákvörðun ríkisskattstjóra. Tilgangurinn með þessu er sá, að menn geti ekki fengið sér óeðlilega fresti til greiðslu á sköttum með áfrýjunum, og því gert ráð fyrir, að áfrýjun fresti ekki eindaga, en hins vegar gerður sá fyrirvari, að ríkisskattstjóri getur, hvenær sem er, veitt undanþágu frá þessu, m.ö.o. ákveðið, að áfrýjun fresti eindaga, ef honum sýnist ástæða til.
Loks er í tuttugasta lagi breyting, sem er allviðamikil, og hún er um framkvæmd skattamálanna. í frv. er nefnilega gert ráð fyrir víðtækum breyt. í skattstjórn og um ákvörðun skatta og úrskurði í sambandi við skattaákvarðanir.
Það er rétt að taka fram, hvernig þessum málum er háttað nú í stórum dráttum. Undir skattanefndir eru nú 219 að tölu og þrír menn í hverri nefnd, eða samtals 657 menn í undirskattanefndum. Nefndirnar leggja á þinggjöld og endurskoða framtöl, einnig leggja þær á söluskatt. Sums staðar eru skattstjórar starfandi, og eru þeir nú 10 að tölu. Skattstjórarnir eru á þessum stöðum: Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Keflavík, Vestmannaeyjum, Neskaupstað, Akureyri, Siglufirði, Ísafirði, Akranesi. Skattstjórarnir, sem hafa stjórn skattstofu og nokkra starfsmenn, vinna sömu verk og undirskattanefndir, þ.e. álagningu þinggjalda, söluskatts, þeir hafa skattaeftirlit og endurskoðun framtala. Síðan eru yfirskattanefndir, sem eru 24 að tölu, og eru þrír menn í hverri nefnd, eða samtals 72 menn. Verkefni yfirskattanefnda er að úrskurða skatta- og útsvarskærur, hafa eftirlit með störfum skattstjóra og undirskattanefnda í sínu umdæmi, framkvæma ýmiss konar hlunnindamöt. fara yfir skattframtöl o.fl. Ríkisskattanefnd er svo æðsta skattstigið og yfirstjórnandi skattstjóra og skattanefnda. Í nefndinni sitja þrír nefndarmenn, og auk þess starfa þar nokkrir menn á hennar vegum. Ríkisskattanefndin er æðsta kærustig í skatta- og útsvarsmálum, hefur eftirlit með störfum skattstjóra og skattanefnda, endurskoðar framtöl af öllu landinu, úrskurðar beiðnir um skattaeftirgjafir o.s.frv. Kostnaður við framkvæmd skattamálanna, og eru þar talin með laun og kostnaður við undirskattanefndir, skattstofur, yfirskattanefndir, ríkisskattanefnd, var árið 1960 9.6 millj. og mun hafa orðið árið 1961 um það bil 10.7 millj.
Með því frv., sem hér liggur fyrir, er gert ráð fyrir að breyta hér mjög um. Það er gert ráð fyrir, að undirskattanefndir og yfirskattanefndir verði afnumdar, en landinu verði þess í stað skipt í átta skattumdæmi. Það er gert ráð fyrir því, að skattaumdæmin falli saman við núverandi kjördæmi við alþingiskosningar. Fyrir hverju skattumdæmi er skattstjóri, sem ákvarðar skatta og úrskurðar kærur út af skattaákvörðunum, en þeim úrskurðum má svo skjóta beint til ríkisskattanefndar í stað þess fyrirkomulags, sem nú er, að þær kærur fara fyrst til yfirskattanefndar og síðan til ríkisskattanefndar. Það er gert ráð fyrir, að skattstjóri hafi umboðsmenn í hverju sveitarfélagi og bæjarfélagi utan aðseturs sins. Hins vegar er gert ráð fyrir, að ríkisskattanefnd starfi áfram og skipaður skuli ríkisskattstjóri, sem verði formaður ríkisskattanefndar.
Í frv. er gert ráð fyrir því, að ýmsar þekkingar- og hæfnikröfur séu gerðar til skattstjóra. Segir svo um það efni í 29. gr. frv., að skattstjóri skuli, auk hinna almennu, sjálfsögðu skilyrða, hafa lokið prófi í lögfræði, hagfræði eða viðskiptafræði, sé löggiltur endurskoðandi eða hafi aflað sér sérmenntunar á skattalöggjöf og framkvæmd hennar. Víkja má þó frá þessu, ef maður hefur áður gegnt skattstjórastarfi. Með þessu ákvæði eru settar miklu strangari reglur eða kröfur en hingað til hefur verið um undirbúningsmenntun skattstjóra. Er ætlunin sú að koma á þeirri skipan, að á skattstofunum starfi menn, sem eru menntaðir og þaulvanir þessum málum, skattamálum, og að með þessari skipan komist á meira samræmi, betra eftirlit, heldur en hingað til hefur verið í skattamálum.
Nú er það svo, að enginn einn embættismaður hefur yfirstjórn skattamálanna í landinu, að undanteknu að sjálfsögðu því, að skattamálin öll heyra undir starfsmenn fjmrn., en hver skattstjóri hefur sitt sérstaka umdæmi, en að vísu er ríkisskattanefndin þar æðsta dómstig. Það er talið nauðsynlegt að koma þeirri skipan á, að hér verði einn maður, sem hefur yfirumsjón í þessum efnum, og því mælir 31. gr. frv. svo fyrir, að skipaður skuli ríkisskattstjóri. Hann þarf að fullnægja þeim sömu skilyrðum, sem talin eru í 29. gr., um embættisgengi skattstjóra. Það er gert ráð fyrir því, að ríkisskattstjórinn, sem verður formaður ríkisskattanefndar, hafi víðtækt eftirlits-, leiðbeiningar- og rannsóknarvald í skattamálum.
Ég hef nú rakið í 20 liðum þær helztu breytingar, sem gerðar eru með þessu frv. frá gildandi lögum. Að sjálfsögðu eru breyt. miklu fleiri, en þessar ætla ég að skipti mestu máli. Ég vil taka það einnig fram, að þótt hér sé um veigamiklar endurbætur að ræða, sérstaklega fyrir atvinnureksturinn í landinu, þá má ekki skilja svo, að ýmsar fleiri breyt. en þessar væru ekki æskilegar. Ég tel, að það sé margt í okkar skattalöggjöf, sem þurfi enn að breyta, en skal ekki fara hér út í það atriði frekar. En ef þetta frv. verður að lögum, þá mun að sjálfsögðu verða haldið áfram endurskoðun skattalaganna, ekki þó þannig, að gert sé ráð fyrir sérstakri nefnd. sem hafi það með höndum, heldur verður það að sjálfsögðu fyrst og fremst að vera í höndum ríkisskattstjórans að benda á þær breytingar, sem hann telur, að verði til bóta. og annað, sem æskilegt væri að breyta í skattalögunum, eftir því sem reynslan sýnir okkur á hverjum tíma.
Það er væntanlega tízka hér, að þegar einhverjar lagfæringar á að gera í skattamálum fyrir atvinnureksturinn í landinu, þá er það hrópað upp, að nú sé verið að létta skatta á auðfélögum og auðkýfingum á kostnað almennings í landinu. En hvers vegna eru endurbætur í skattamálum atvinnulífsins nauðsynlegar? Því er fljótsvarað. Það er ekki vegna einhverra auðfélaga eða auðkýfinga, heldur vegna almennings í landinu. Endurbæturnar eru vegna almennings, en ekki auðmanna. Þeir skattar, sem atvinnureksturinn hefur orðið við að búa. eru að dómi allra hlutlausra og sérfróðra manna með þeim hætti. að þeir lama atvinnufyrirtækin, draga úr eðlilegri endurnýjun og aukningu véla, tækja og húsa, minnka afköstin og draga þar með úr þjóðartekjunum. Þess vegna kemur minna til skipta milli landsins barna, þess vegna kemur minna í hlut. Velmegun almennings byggist á blómlegu atvinnulífi. Umbætur í skattamálum atvinnulífsins eru hagsmunamál og kjarabót fyrir allan almenning. Hóflegir skattar atvinnulífsins eru því hagsmunamál fólksins. Að því beinist þetta frv. að reyna að búa atvinnurekstrinum í landinu þau skilyrði, að hann geti dafnað og blómgazt, bæði fylgzt með tímanum, eflzt og aukizt til hagsbóta fyrir öll landsins börn.
Ég legg svo til, að þessu frv. v erði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.