12.02.1962
Efri deild: 45. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2231 í B-deild Alþingistíðinda. (1917)

139. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Björn Jónsson:

Herra forseti. Það verður ekki sagt, að meginefni þessa frv. hæstv. ríkisstj. til laga um tekju- og eignarskatt komi á óvart. Það er hvort tveggja, að í öllu, sem mestu máli skiptir, er um beint framhald af fyrri aðgerðum hæstv. stjórnar í skattamálum að ræða, og einnig hitt, að meginmál þessa frv. hefur hvað eftir annað verið boðað, m.a. af hæstv. fjmrh., sem einhver hin brýnasta nauðsyn og hjálpræði fyrir þjóðina. Það hefur þó verið tómstundastarf nokkurra þingmanna stjórnarflokkanna og tveggja sjálfstæðismanna að auki að raða saman fyrir fram ákveðnum hugmyndum hæstv. ríkisstj. um skipun skattamálanna, og má segja, að það verk hafi ekki unnizt vonum fyrr, svo einhuga lið sem þar mun hafa verið að verki.

Ég ætla, að það hafi verið a.m.k. mjög almenn regla um langan aldur, að heildarendurskoðun skattalaga hafi farið fram á vegum mþn., sem hafa verið kjörnar til þess af Alþ. Með þeim hætti hefur verið tryggt, að sjónarmið, stefnur og röksemdir stjórnmálaflokkanna hafa getað leitt saman hesta sína frá upphafi, og þeir hafa haft jafna aðstöðu til þess að móta till. til breytinga, sameiginlega og sitt í hvoru lagi eftir atvikum. Slík undirbúningsmeðferð, þegar um er að ræða einhver allra mikilvægustu löggjafaratriði, er að mínu viti stórum æskilegri fyrir annara hluta sakir og líklegri til góðs árangurs heldur en sú, sem nú hefur verið viðhöfð, þ.e.a.s. að verja stórfé úr ríkissjóði til þess að berja saman einhliða flokkstillögur stjórnarflokkanna. Þessi háttur núverandi stjórnarflokka um undirbúning þessa máls er að vísu ekkert einsdæmi nú um sinn, heldur virðist hér vera unn tekin nær því almenn regla um það, að mþn. séu einhliða skipaðar af stjórnarliðinu. en flokkum stjórnarandstöðunnar sé með öllu meinað að eiga þar nokkra aðild, hvort heldur til þess að hafa aðstöðu til athugana og rannsókna til jafns við stjórnarflokkanna eða til þess að hafa nokkur áhrif á niðurstöðuna.

Þessi háttur hefur vissulega ekki verið tekinn upp í sparnaðarskyni, því að það hefur aldrei verið eytt meira fé í slíkar n. né þær verið fleiri eða fjölmennari en síðan þessi hæstv. ríkisti. tók við völdum, og eru ríkisreikningarnir t.d. fyrir árið 1960 ólygnir um þetta. heldur er hér að verki sú einræðishneigð. sem svo víða hefur gert vart við sig á ferli núv. ríkisstj. og stefnt að því að níðast á óskráðum, en gildum þingræðisvenjum. Það má líka vera, að í þessu sérstaka tilviki hafi Sjálfstfl. ekki verið alveg fyrir fram öruggur um fulla fylgispekt samstarfsflokks síns í þessu máli og þótt hentugra að geta glímt við hann í þessu máli í einrúmi. Það bendir líka ýmislegt til þess, að þetta síðasta afrek hæstv. ríkisstj. í skattamálum, sem þetta frv. er, hafi ekki runnið algerlega viðstöðulaust í gegn þar í flokki, heldur sé fylgi hans við frv. raunverulega fengið með nauðung, og er það í raun og veru sízt að furða, þegar betur er skoðað, hvað hér er um að ræða, eins og ég mun koma frekar að síðar.

En þessu til sönnunar, sem ég hef nú sagt. leyfi ég mér að minna á grein, sem birtist í Alþýðublaðinu snemma í okt. s.l., en þar segir orðrétt svo, með leyfi hæstv. forseta: „Skattalækkun fyrirtækja, eins og nú væri ástatt í efnahagsmálum, mætti mikilli andstöðu á fundi fulltrúaráðs Alþfl. í Reykjavík, sem haldinn var í Iðnó í fyrrakvöld. Jón Þorsteinsson alþingismaður hafði framsögu um málið, en síðan töluðu margir fulltrúa og voru yfirleitt allir andvígir því, að gengið yrði til þess á næsta þingi að samþykkja breytingu á skattlagningu fyrirtækja, sem lækka mundi skatta þeirra.“ Þarna er sem sagt skilmerkilega frá því greint, og reyndar í miklu lengra og ýtarlegra máli, að Alþfl. hafi í okt. s.l. verið algerlega andvígur því, að skattar gróðafélaganna í landinu yrðu stórlækkaðir á þann hátt, sem nú er lagt til. Og ekki verður séð, að stafkrók hafi verið breytt í þessu frv. síðan, því að það mun hafa verið tilbúið til flutnings snemma á s.l. vetri, og er það auðsætt t.d., að grg. er samin um það leyti, en ekki nú á þessum vetri, en það er talið í grg, að það komi ekki að sök, þó að nokkuð langt sé siðan greinargerðin hafi verið skrifuð, og bendir það óneitanlega til þess, að hafi grg. verið fullfrágengin, þá hafi Alþfl. ekki fengið neinum stafkrók hreyft í frv. frá þeirri gerð, sem það var í, þegar hann tók afstöðu til þess í okt. s.l.

Menn geta svo að sjálfsögðu velt því fyrir sér og leitt líkur að því, hvernig Sjálfstfl. hafi tekizt að láta Alþfl. enn einu sinni bíta í grasið og éta ofan í sig fyrri samþykktir og stefnu svo kirfilega sem hér hefur orðið raun á. Sú staðreynd, að jafnvel Alþfl., eins og hann er nú orðinn útleikinn í vistinni hjá Sjálfstfl., hefur ekki án nauðungar fengizt til að samþykkja þetta frv., gefur strax allgóða hugmynd um það, hvað hér er á ferðinni, að hér er um að ræða slíka ómengaða íhaldsstefnu, að enginn fylgir henni heils hugar nema Sjálfstfl.

En eðli þessa frv. verður þó varla fullskýrt, nema jafnframt sé haft í huga, hvað gerzt hefur í skattamálum, frá því að núv. stjórn tók við völdum og fram að þessum degi, og einnig aðrar aðgerðir í efnahagsmálunum á sama tímabili. Og hvað er það þá, sem hefur gerzt í þessum efnum? í grg. þessa frv., á bls. 20, segir svo m.a.: „Ef frv. þetta verður að lögum, má vafalaust telja, að skattalögin séu þá eftir atvikum orðin vel viðunandi fyrir gjaldþegnana.“ Og síðan er bætt við: „Á ýmsan hátt hefur verið reynt að taka sanngjarnt tillit til þeirra, sem erfiðast eiga uppdráttar.“

Það mætti vissulega ætla eftir þessum tilvitnuðu ummælum skattamálanefndarinnar, að skattar í heild hefðu verið stórlækkaðir og þá alveg sérstaklega á þeim tekjulægstu og fátækustu. En hverjar eru staðreyndirnar um þetta? Þær eru m.a. þessar: að árið 1959 námu skattar og tollar til ríkissjóðs 796 millj. kr., en á yfirstandandi ári er áætlað, að þeir verði 1401 millj., þ.e.a.s. hækkunin er 605 millj. kr., eða 76%. Á sama tímabili hafa söluskattar, að frádregnum þeim hlutanum, sem rennur til bæjarfélaganna, sem þó er mjög hæpið að gera í þessu sambandi, hækkað úr 166 millj. í 485 millj., eða um 286%. Það er rétt, að tekju- og eignarskattar hafa í heild lækkað á þessu tímabili úr 165 millj. í 95 millj., eða um 42%, og sú gerbreyting hefur orðið á, að hlutdeild þessarar skattheimtu hefur minnkað úr því að vera 21% af heildarupphæð tolla og skatta til ríkissjóðs í það að vera 6.7% en hlutur söluskattanna hefur hins vegar á sama tímabili hækkað úr 20.8% af heildarskattinum í 34%.

Þetta eru tölur, sem ég held, að tæpast verði vefengdar, og þær sýna það og sanna, að á valdatímabili núv. ríkisstj. hefur orðið hrein bylting í skattamálum. En það hefur sannarlega ekki verið slík bylting, að hún hafi gert gjaldþegnunum almennt lífið léttara, eins og reynt er að halda fram, heldur hefur hún þvert á móti, næst á eftir gengisfellingunum og öðrum kauplækkunaraðgerðum ríkisstj., verið ríkasti þáttur viðreisnarinnar og miðað í þá átt að grafa undan lífskjörum almennings og möguleikum hans til sjálfsbjargar. Þreföldun á sölusköttunum til ríkissjóðs, auk nýrrar söluskattheimtu til bæjarfélaganna og hundruð milljóna hækkunar almennra tolla, sem allt hefur lagzt á almenna neyzlu, jafnt hinna efnaminnstu sem þeirra, sem betur mega, hefur auðvitað ekki látið sig án vitnisburðar í lífskjörunum og þá auðvitað allra sízt hjá þeim, sem áður höfðu tæpast til hnífs og skeiðar, en hafa hins vegar nú orðið að taka á sig mikinn hluta af skattheimtunni og þá í stórhækkuðu verðlagi nauðsynja.

Ég hef áður bent á þá staðreynd, sem leiðir beint af þeim tölum, sem ég áðan nefndi, að árið 1959 voru beinir, stighækkandi skattar, miðaðir við tekjur og eignir, annars vegar og hins vegar söluskattar því sem næst jafnir, þar munaði aðeins 1 eða 2 millj. kr. En nú er svo komið, að söluskattarnir eru rösklega fimmfaldir á við beinu skattana, og þetta hefur gerzt á sama tíma sem heildarskattheimtan hefur því nær tvöfaldazt. Það er þessi skattamálabylting, sem nú er verið að fullkomna með því frv., sem hér er lagt fram. Hátekjumennirnir hafa þegar fengið sína stórfelldu eftirgjöf á sínum beinu sköttum, eftirgjöf, sem nam 1960 að meðaltali 10 þús. kr. á hvern einstakling, þegar reiknað var út frá kringum 2000 hæstu gjaldendum hér í Reykjavik. En á sama tíma fengu þeir 2000 lægstu gjaldendur í Reykjavík eftirgjöf, sem nam 76 kr. að meðaltali á einstakling. Ef reiknað væri nú með óbreyttri hlutdeild hinnar beinu skattheimtu, er gilti t.d. 1959, mundi eftirgjöfin til hátekjumannanna hins vegar verða stórkostlega miklu meiri, jafnvel allt að því helmingi meiri, því að samkv. því ættu beinu skattarnir nú að nema tæpum 300 millj. kr., ef hlutfall þeirra hefði haldizt í heildarskattheimtunni.

En nú á sem sagt að snúa sér að því að láta öll gróðafyrirtækin, — ég segi gróðafyrirtækin, vegna þess að tekjuskattur er ekki lagður á önnur félög en þau, sem skila hagnaði, — sem rekin eru í félagsformi, fá sínar eftirgjafir. Og eins og hv. þdm. hafa heyrt á ræðu hæstv. ráðherra, þá er það ekkert lítið sem til stendur. Það á hvorki meira né minna að gerast en að það á að skapa með þessu nýtt og sanngjarnt skattakerfi, sem á að vera grundvöllur að nýjum og traustum grundvelli fyrir atvinnulífið í landinu. Og ráðherrann hefur sagt, að allir ábyrgir menn, sem skilji þarfir atvinnulífsins, hljóti að fagna þessu spori, sem nú er verið að stíga. Eldri skattalögin, þau sem nú gilda, eiga eftir áliti hæstv. ríkisstj. að hafa verið atvinnurekstri landsmanna mikill fjötur um fót. Þau eru m.a. talin hafa hindrað það, eins og kom hér greinilega fram í ræðu hæstv. ráðherra, að atvinnureksturinn gæti endurnýjað, tæki sin, og skattlagningin sjálf er talin óhófleg og ósanngjörn, andstætt því sem hún á að verða, hófleg og sanngjörn.

Eins og hv. 2. þm. Vestf, benti hér á, er Það kapítuli út af fyrir sig í þessu máli, að það er einmitt sá flokkurinn, sem nú gengst fyrir þessum breyt., sem hefur mótað núverandi skattakerfi að mjög verulegu leyti, það skattakerfi, sem hann nú dæmir óhæft í flestum, ef ekki öllum greinum, og stórhættulegt fyrir atvinnuvegina og fyrir þjóðina. En það má að vísu segja, að það sé gott, þegar menn eða flokkar vitkast, og því ætti að sleppa þeim kapítulanum, enda skiptir hann ekki meginmáli í þessu sambandi. En hins vegar virðist vera réttmætt að athuga nánar, í hverju þessar óhæfilegu drápsklyfjar hafa verið fólgnar, í hverju þessi skattabrjálsemi, sem hæstv. ráðh. er svo tamt að tala um, hefur verið fólgin. (Fjmrh.: Ég held, að ég hafi aldrei notað það orð.) Skattafargan hefur það kannske verið. En brjálsemin hefur þó a.m.k. oft gripið málgögn flokksins, það er a.m.k. öruggt, að það orð hefur oft verið notað þar.

Ég hef reynt að gera mér svolitla grein fyrir þessu, eftir þeim upplýsingum, sem ég hef getað aflað mér, og m.a. hef ég fengið að vita, að álagður tekju- og eignarskattur einstaklinga í Reykjavík á s.l. ári var 32.4 millj. kr., en félögin greiða á sama tíma 29.4 millj. kr. í tekju- og eignarskatt samanlagt. En árið 1960 voru samsvarandi skattar einstaklinga 28.9 millj. kr. og félaga 26.2 millj. Mér hefur ekki reynzt unnt að fá samsvarandi upplýsingar fyrir landið allt, þær hafa ekki legið á lausu, en ef maður miðar við það, að svipað hlutfall sé annars staðar á landinu milli skatta einstaklinga og félaga, þá lætur nærri, að á félögin hafi á árinu 1960 verið lagðar 48 millj. kr. og 1961 54–55 millj. kr. Þetta eru að vísu áætiaðar upphæðir vegna ófullnægjandi upplýsinga, en þær geta þó ekki verið mjög fjarri lagi. 54–55 millj. kr. eru sem sagt mjög nálægt því að vera sú upphæð, sem öll fyrirtæki í landinu greiða beint til ríkisþarfa í hlutfalli við afkomu sína og eignir. En þessi upphæð svarar til þess að vera 3.8% af heildarskattheimtunni til ríkissjóðs. Þetta eru sem sagt drápsklyfjarnar að dómi hæstv. ríkisstj., sem hafa verið og eru einhver helzta hindrunin í vegi fyrir eðlilegri efnahagsþróun og hindrun fyrir uppbyggingu atvinnulífs í landinu og ber þess vegna að kosta sérstaks kapps um að létta að miklum mun.

Hæstv. ráðh. margtók fram í sinni ræðu, og það er í raun og veru sú höfuðröksemd, sem færð er fyrir þessu frv., að undir gildandi skattakerfi geti atvinnuvegirnir ekki endurnýjað framleiðslutæki sín með eðlilegum hætti. Þetta er í raun og veru grundvaliarröksemdin. En ef við athugum nú þessar tölur, sem ég nefndi, þá held ég, að mönnum hljóti að skiljast, að það er eitthvað bogið við þessa röksemdafærslu, eitthvað meir en lítið. Tekju- og eignarskattur allra félaga í landinu mundi ekki gera meira en að svara til kaupverðs á einum nýjum togara og í hæsta lagi einum fiskibát að auki, og alls ekki ef um er að ræða góðan nýtízku togara, því að hann mundi kosta nærri því tvöfalda þessa upphæð. Togaraeign landsmanna er nú hátt í fimmtíu skip, svo að maður haldi áfram með það dæmi. Það sýnir, að allur tekju- og eignarskatturinn, þótt hann væri tekinn allur samanlagður af öllum félögum landsins, þótt hann væri allur afnuminn, þá mundi það ekki nægja til þess að viðhalda togaraflotanum einum, það mundi skorta a.m.k. tvöfalda þá upphæð, til þess að það væri unnt. Ég hef það fyrir satt, að frystihúsaeign landsmanna, Þ.e. núna í sambandi við endurmat, sem fór fram á vegum Seðlabankans vegna stofnlánanna nýju, sé sem næst 2 milljörðum króna, endurnýjunarverð frystihúsanna í landinu. Ég held, að menn sjái, hvað nokkur — jafnvel þótt hún væri mjög veruleg — lækkun á tekju- og eignarskatti félaganna í landinu mundi hrökkva til þess að standa undir því endurkaupsverði, á 5–8 árum á vélum og 15–20 árum á húsum. Það er reikningsdæmi, sem menn geta leikið sér að því að reikna. En ég hygg, að það þurfi ekki að fara í miklar reikningsvélar til þess að sjá, að þarna mundu skattarnir hrökkva skammt.

En þegar þessi dæmi eru skoðuð, þá er vissulega ástæða til þess að spyrja: Hversu langt mundi sú lækkun, — því að hér er ekki um afnám að ræða á skattinum, heldur lækkun ein fyrir sig duga til endurbyggingar á öllum atvinnurekstri landsmanna, sem rekinn er í félagsformi? Sýna ekki sjálfar skattaupphæðirnar greinilega, að þær eru hverfandi smáar og hafa verið hverfandi smáar, hvort sem þær eru bornar saman við þá fjármuni. sem Þarf til viðhalds og endurnýjunar framleiðslutækjanna, eða þær eru bornar saman við heildarskattheimtu ríkisins.

Ef maður liti aðeins á þær upphæðir, sem um er að ræða til lækkunar á tekju- og eignarskatti fyrirtækja, sem mundi leiða að öðru óbreyttu af samþykkt þessa frv., þá lægi raunar nærri að álykta, að hér væri um eitt af mörgum hégómamálum hæstv. fjmrh. að ræða. Þetta væri þó alrangt mat og það af ýmsum ástæðum. Í fyrsta lagi er þar um að ræða sjálfa stefnuna, sem felst í frv. í skattamálum er auðvitað alltaf um það að ræða, hvort meira eða minna skuli skattlagt, annars vegar gróðamyndun í þjóðfélaginu hvort heldur er einstaklinga eða auðfélaga og hins vegar almenn neyzla og þar með talin nauðþurftaeyðsla almennings. Hæstv. ríkisstj. hefur siglt hraðbyri frá þeirri stefnu, sem maður hefur haldið að væri eitt af grundvallarsjónarmiðum velferðarríkisins, þ.e.a.s. að leita eftir nokkurri auðjöfnun og tekjujöfnun með verulegri skattlagningu á gróðamyndunina og á háar tekjur. Tölurnar, sem ég nefndi áðan um nær tvöföldun skattheimtu til ríkisins á tveim árum, án þess að nokkur hluti aukningarinnar væri miðaður við tekjur og efnahag, eru ólygin dæmi um þetta. Þreföldun söluskattanna á sama tímabili ásamt með tveimur gengisfellingum, allt með óbreyttu eða lækkuðu kaupgjaldi hjá almenningi, frá því, sem áður var gildandi, en samtímis stórfelld lækkun á beinu sköttunum, er órækur vitnisburður um það, hvert stefnt er, þ.e.a.s. gróðamyndunin og gróðamennirnir borga minna, en hinir efnaminni meira. Þannig er stefnt að því að skapa fámenna auðmannastétt á kostnað sjálfsbjargarmöguleika almennings. Og svo leyfa þessir menn, sem fyrir þessu standa, að taka sér í munn slagorð eins og „eign handa öllum“ og annað slíkt og mála upp glansmyndir af þeirri framtíðarsýn, að almenningur geti orðið hluttakandi í atvinnufyrirtækjum.

Í öðru lagi er svo þess að gæta, þegar þetta frv. er skoðað, að jafnframt mun vera ákveðið, það er m.a. látið liggja að því í grg. þessa frv., að strax í kjölfar þessarar skattalækkunar eigi að koma ný útsvarslöggjöf, „sem tryggi hóflegar og skynsamlegar álögur bæjar- og sveitarfélaga“, eins og þar segir. Ekki hafa nú stjórnarráðstafanirnar á síðustu tímum miðað að því að draga úr fjárþörf sveitarfélaganna, og nú í ár mun vera algengast, að heildarupphæð útsvara í sveitarfélögunum hækki um 20–30% frá síðasta ári, og var þá um ærnar hækkanir að ræða. Það er því ákaflega augljóst, að ekki verður um almenna lækkun útsvara að ræða. Einhvers staðar verður að taka, fyrst hækkanirnar vegna stjórnaraðgerðanna, sem þegar eru komnar fram hjá þeim bæjarfélögum, sem hafa gengið frá sínum fjárhagsáætlunum og ákveðið útsvarsupphæðir, og síðan þær lækkanir, sem fyrirhugaðar eru á félögunum.

Það er vissulega full ástæða til þess í sambandi við þetta frv., eins og hv. 2. þm. Vestf. kom inn á, að gera þá kröfu til hæstv. ríkisstj., að hún leggi frv. sitt um breytt útsvarslög fram samhliða þessu frv., því að annars hlýtur sú spurning að liggja í loftinu, svöruð eða ósvöruð, hvort þetta frv. beri ekki að skoða sem sérstakan undirbúning að því að færa meira af útsvarsbyrðunum með einhverjum hætti af gróðamynduninni og yfir á bök almennings, ofan á allt annað, sem á undan er gengið.

Í þriðja lagi er rétt að gera sér grein fyrir því, að enda þótt gildandi skattakerfi færi ríkisbúskapnum alveg óverulegar tekjur, eða, eins og ég áður sagði, aðeins um 3.8% af heildarskattheimtunni að því er varðar skatta félaganna, þá verður það vel líkum studd skoðun, ég vil segja, margra, sem bera nokkurt skyn á þessi mál, og hefur ekki verið mótmætt með rökum, að gildandi skattalöggjöf, gildandi skattstigar gæfu mjög mikla möguleika til jafnvel margfaldra tekna fyrir ríkissjóð við það, sem raun er á, og þá um leið fyrir sveitarfélögin, ef eitthvað væri til í þessu landi, sem hægt væri að kalla raunhæft eða virkt skattaeftirlit. Á þetta höfum við þm. Alþb. margoft bent hér á hv. Alþ., og er þó langt frá því, að við séum einir um þessa skoðun. Ég minni t.d. á ummæli hv. 5. þm. Vesturl. í útvarpsumr. á þessu þingi, þar sem hann gat þess til, að ríkið væri áreiðanlega svikið um skatta, sem varla næmu minna en 500 millj. kr. Og í þeirri frétt í Alþýðublaðinu, sem ég gat um í upphafi máls míns, var skýrt frá því, að fulltrúar Alþfl. í skattanefndinni hefðu lagt alveg sérstaka áherzlu á það innan n., að mjög yrði hert á skattaeftirlitinu. En þess sér hins vegar engan stað í þessu frv., að von sé á breyt. til bóta í þessum efnum. Þess sér engan stað. Það nýja og áreiðanlega dýra embættismannakerfi, sem sýnilega á að byggja upp utan um þessa lítilfjörlegu skattheimtu, sem eftir verður, og til þess að framfylgja lögunum, á ekki í neinu atriði, sem máli skiptir, að taka upp vinnubrögð, sem séu frábrugðin þeim eidri og óhæfu, að því er bezt verður séð.

Það á sem sagt að lækka skattana stórkostlega á félögunum, án Þess að reyna nokkuð til þess að hindra skattsvikin, annað en það, sem hæstv. ráðh. kom hér inn á, að hann heldur, að menn verði miklu heiðarlegri, ef þeim sé gefið svo og svo mikið af skattheimtunni. En þar held ég sé um að ræða trú hæstv. ráðh., en ekki neitt raunhæft. Og það á jafnvel samkv. þessu frv. í sumum tilfellum að létta á refsiákvæðum laganna.

Það verður ekki með nokkru móti gizkað á það, a.m.k. ekki í fljótu bragði og að lítið athuguðu máli, hversu miklar raunverulegar skattalækkanir á gróðafélögunum leiðir af þessu frv. Beina lækkunin er 20%, en hvað mikið fyrningarreglurnar nýju og nýtt endurnýjunarmat, sem hæstv. fjmrh. er gefið alræðisvald til að ákveða, gefa fyrirtækjunum mikla möguleika til þess að halda utan um gróða sinn umfram það, sem þau nú hafa, er óhugsandi að geta sér til um með nokkurri nákvæmni og að ófengnum upplýsingum, sem ef til vill liggja ekki alveg á lausu. En það er þó minn grunur og sjálfsagt ýmissa fleiri, að hinar nýju reglur gefi gífurlega möguleika fyrir félögin til þess að forða sér, eða a.m.k. fjöldanum öllum og það félögum, sem skila góðum arði, undan allri skattheimtu, og að ríkissjóðurinn mettist illa af þeirri trú hæstv. fjmrh., að enginn samdráttur verði á skattheimtunni, þrátt fyrir það í fyrsta lagi, að bein lækkun er 20%, í öðru lagi, að skattfrjálsar arðgreiðslur eru hækkaðar um 25% sem lágmark og jafnvel margfaldaðar með útgáfu fríhlutabréfa eða jöfnunarhlutabréfa. Það er eiginlega ekki hægt að gera sér grein fyrir hinu almenna í því efni, en það er augljóst, að í ýmsum tilfellum er hlutur skattfrjálsu arðgreiðslunnar margfaldaður.

Í þriðja lagi er svo hækkun á frádráttarhæfu varasjóðstillagi hlutafélaga og í fjórða lagi nýjar fyrningarreglur, sem geta í mörgum tilfellum margfaldað skattfrjálsan fyrningarfrádrátt. En sjálfsagt gefst síðar tækifæri til þess að athuga þessi atriði öll nánar, þegar málið fær athugun í nefnd og þegar það er komið úr athugun í n. En það er á hinn bóginn vitanlega hugsanlegt og kannske ekki með öllu ósennilegt, að viðreisnin hafi þegar tryggt gróðafélögunum í landinu slíka möguleika til auðsöfnunar á kostnað almennings og kostnað almennra lífskjara, að álíka upphæðir komi til greiðslu í ríkissjóð, þótt skatturinn sé lækkaður að minnsta kosti um helming, miðað við óbreyttan hagnað. En hitt er þá líka jafnaugljóst, að almenningur verður að borga mismuninn á því, sem skattareglurnar hefðu gefið að óbreyttu, og því, sem þær gefa eftir breytinguna, — borga þann mismun með sölusköttum og með hækkuðu verðlagi.

Á þessum degi býr almenningur á Íslandi við sem næst 5% lægra kaupgjald í krónutölu en hann gerði í ársbyrjun 1959, en jafnframt býr hann við verðiag, sem er um 30% hærra, hvað brýnustu nauðsynjar snertir, heldur en þá var. Og þó að allar hinar svokölluðu sárabætur hæstv. ríkisstj. séu metnar á þann hátt, sem hún vill láta meta þær, þá þarfnast meðalfjölskylda, vísitölufjölskyldan svonefnda, nú um 10 þús. kr. meiri tekna á ári en hún þá gerði til þess að standa undir allra nauðsynlegustu útgjöldum.

Þetta er myndin af hrörnun lífskjaranna á valdatíma núv. ríkisstj., og er þó ekki séð fyrir um allar afleiðingar af aðgerðum hennar enn þá. Auk þess að vinna þetta afrek hefur svo ríkisstj. tekið það hlutverk að sér að verja þessa lífskjaraskerðingu með öllum þeim ráðum, sem ríkisvaldið býr yfir, og er gengisfellingin í sumar nýjasta og gleggsta dæmið. Og núna, einmitt þessa dagana og síðustu vikurnar, hefur ríkisstj. látið málgögn sin hamra á þeirri kenningu fastar en nokkurn tíma áður, hvílíka þjóðarógæfu mundi leiða af því, ef launakjör lægst launuðu stétta þjóðfélagsins yrðu bætt. Það er kannske tilviljun og kannske er það ekki aðeins tilviljun, að einmitt á sama tíma og verkalýðssamtökin fá slík svör við hófsamlegum kröfum um aukinn kaupmátt lægstu launa í þjóðfélaginu, þá skuli ríkisstj. flytja frv. sem það, sem hér er á ferðinni, um tvöföldun eða kannske margföldun á skattfrjálsum gróða auðfélaganna í landinu, — frv. sem gengur lengra í þeim efnum, eins og hér hefur verið bent rækilega á, heldur en löggjöf margra eða jafnvel flestra þjóða í Vestur-Evrópu.

Ég tel, að þær röksemdir, sem færðar eru fram fyrir nauðsyn slíkra ráðstafana, sem eru meginatriði þessa frv., gætu ekki staðizt við neinar aðstæður í þjóðfélaginu, vegna þess að gildandi skattalög gefa atvinnufyrirtækjunum í landinu fullnægjandi svigrúm til eðlilegrar þróunar, eins og reynslan sannar. En hitt staðhæfi ég, að við þær aðstæður og við þau skilyrði, sem nú eru fyrir hendi, í kjölfar síðustu aðgerða ríkisstj. í launamálum almennings, þá sé sú tillögugerð, sem hér er á ferðinni, hvað aðalatriðið snertir, hrein ögrun við launastéttirnar, — við launastéttirnar, sem synjað er um sjálfsögðustu og óhjákvæmilegustu kjarabætur. En þessi ögrun er um leið viðurkenning á því, að það er unnt að hækka laun verkafólks eða auka kaupmátt launa þess, ef einhver vilji væri fyrir hendi, og sú viðurkenning er vissulega nokkurs virði og verður áreiðanlega metin að verðleikum.