13.03.1962
Efri deild: 63. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2313 í B-deild Alþingistíðinda. (1946)

139. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Það er aðeins eitt atriði, sem ég vildi benda hv. fjhn. á, áður en greidd eru atkvæði. Mér sýnist að það sé búið að taka út úr þessu frv. ákvæðið um varaskattstjóra. En þeir eru enn þá lifandi í frv. á einum stað, og það er aðallega til þess að halda uppi sæmd þessarar hv. d. og að við látum ekki frv. fara þannig til hv. Nd., svo að þar verði ekki hlegið að Því, að ég nefni þetta. Þetta er í 33. gr., niðurlaginu: „Tekur varamaður sæti í ríkisskattanefnd samkv. kvaðningu formanns, ef aðalmanns missir við, og varaskattstjóri sæti skattstjóra.“