16.04.1962
Neðri deild: 94. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2443 í B-deild Alþingistíðinda. (2053)

111. mál, lífeyrissjóður togarasjómanna og undirmanna á farskipum

Frsm. minni hl. (Hannibal Valdimarsson):

Hæstv. forseti. Þetta frv. um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum hefur legið fyrir hv. Ed. í allan vetur. Það var sýnt í öndverðu, að málið var allmikið deilumál, og kom það berlega fram í hinum mörgu umsögnum, sem hv. Ed. bárust um málið. Loks afgreiddi þó hv. Ed. málið til þessarar hv. þd. núna fyrir örfáum dögum, og var þá boðaður skyndifundur í heilbr.- og félmn., sem þá taldi sig raunar hafa lokið störfum, og var sá fundur haldinn, meðan mikið annríki var í þd. og nm. höfðu í raun og veru vegna atkvgr., sem fram fóru um meiri háttar mál hér í d., engan vinnufrið til þess að athuga málið. En hv. form. heilbr- og félmn. sagði, að fast væri rekið eftir því, af ríkisstj., skildist mér, að málið yrði afgreitt nú fyrir þinglok, og þess vegna væri hann sér þess meðvitandi, að vinnuskilyrði n. væru ekki ákjósanleg til þess að afgreiða málið, en hann yrði samt að leggja svona mikla áherzlu á að fá það afgreitt úr nefnd.

Það er alllangt mál, þetta frv. um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum, en svo naumur var starfstími n., að ekki þótti nægur tími til þess að lesa frv. Á það varð að treysta, að menn hefðu, meðan það dvaldi í Ed., lesið það og kynnt sér það, því að n. hafði ekki tóm til þess að lesa frv. yfir, og er það þó fyrsta skylda n. vitanlega, ekki bara í annarri d., heldur í báðum d., að kynna sér rækilega efni þeirra frv., sem þeim eru fengin til rannsóknar og afgreiðslu. Hins vegar var lesið í fljótheitum nál. nefndarhlutanna úr Ed., því að n. hafði þar klofnað um málið, og fengu nm. þar vitneskju um það, um hvað hefði verið deilt þar og um hvað nefndarhlutar Ed. höfðu klofnað um málið. Þá var rætt um það að fresta afgreiðslu í n., svo að menn gætu þó fengið tóm til að lesa frv. yfir, ef þeir hefðu ekki gert það áður, og kynna sér þann bunka fskj., sem með málinu voru, en það er þessi bunki, sem ég hér held á. Það eru umsagnir fjölda samtaka, sem þetta mál varðar, og frá einum 16 eða 17 skipshöfnum, sem mæla eindregið undantekningalaust gegn samþykkt frv., svo að það er ekki nóg með það, að meðferð málsins sé öll hin óþinglegasta og málið keyrt í gegn af meira offorsi en nokkurt annað mál, og hafa þó mörg mál hér að undanförnu orðið að sæta lítt þinglegri meðferð, heldur er hér greinilega um mikið deilu- og ágreiningsmál að ræða og málið virðist yfirleitt nokkurn veginn einróma sæta andspyrnu sjómannanna, og þó er lögð áherzla á að samþykkja það, að fengnum mótmælum sjómannanna. Ég minnist þess ekki, að í öllum þessum bunka séu nokkur meðmæli frá nokkurri skipshöfn með samþykkt frv. Ég held, að það sé ábyggilegt.

Efni málsins er það, að lífeyrissjóður togarasjómanna, sem starfað hefur skv. lögum nr. 49 frá 1958, á ekki að verða lengur til sem sjálfstæður sjóður — lífeyrissjóður togarasjómanna, heldur á hann að verða sameiginlegur sjóður framvegis fyrir togarasjómennina og undirmenn á farskipum. Þetta er í raun og veru aðalefni frv., og á nafn sjóðsins að breytast samkvæmt því, úr því að heita lífeyrissjóður togarasjómanna í það nú að heita lífeyrissjóður togarasjómanna og undirmanna á farskipum. En þá verður þessum málum skipað þannig, að yfirmenn farskipa verða í öðrum lífeyrissjóði en undirmennirnir. Þeir verða áfram tryggðir í lífeyrissjóðum hvers útgerðarfélags um sig. Yfirmenn á strandferðaskipum ríkisins og varðskipunum verða í lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna, og þannig er þetta margskipt. Hins vegar hafa mörg undanfarin ár verið frammi kröfur frá hendi sjómanna um það, að lífeyrissjóður togarasjómanna næði a.m.k. einnig til bátasjómannanna, þannig að það væri sameiginlegur lífeyrissjóður fyrir bátasjómenn og togarasjómenn, og finnst mér, að það sé ákaflega eðlileg lausn málsins og að þegar verið sé að taka þetta mál fyrir á annað borð, þá megi ekki ganga fram hjá þeim meginóskum sjómannanna sjálfra um, að lífeyrissjóðurinn verði engu síður fyrir bátasjómenn heldur en togarasjómenn, og fæ ég ekki skilið, að nokkurrar andspyrnu sé við það að vænta frá hæstv. ríkisstj. eða t.d. hæstv. félmrh., sem kæmi til með að fjalla um þetta mál og undirbúa það til næsta þings, ef horfið væri frá því nú að knýja málið í gegnum þingið. Þó að því væri í raun og veru synjað eða frá því horfið, að n. héldi aftur fund um málið, og gengið frá því að kljúfa n. strax á þessum eina fundi, sem fram fór, samtímis því sem deildarfundur var haldinn, þá er það þannig, eins og gerð var hér grein fyrir af frsm. meiri hl. n., að þeir hv. fulltrúar stjórnarflokkanna, formaður heilbr.- og félmn., 1. þm. Vestf. (GíslJ), hv. 5, þm. Vestf. (BF) og hv. 5. þm. Sunnl. (JKs), leggja til, að frv. verði samþ. nú á þessu þingi, en við í minni hl., hv. 4. Þm. Reykn. (JSk) og ég, leggjum til, að málið verði afgreitt með rökstuddri dagskrá á þá lund, að í trausti þess, að félmrh. undirbúi fyrir næsta þing frv. til laga um sameiginlegan lífeyrissjóð allra bátasjómanna og togarasjómanna, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá. Þá fyrst, ef þannig væri á málinu tekið, væri mætt óskum sjómannanna sjálfra og horfið frá því að afgreiða málið nú gegn eindregnum mótmælum sjómanna. Og ég hef ekki heyrt nein rök færð fyrir því, hvers vegna það sé knýjandi nauðsyn að afgreiða lífeyrissjóðsmál sjómannanna gegn þeirra vilja nú í þinglok á þann hátt, að ekki fáist vinnuaðstaða til að kynna sér málið. Það væri mjög æskilegt, að fram kæmu rökin fyrir því.

Ég mun nú gefa hv. þm. tækifæri til þess að heyra meginniðurstöður þeirra félagasamtaka, sem hv. Ed. sendi málið til umsagnar.

Þar er þá fyrst Sjómannasambandið. Það mælir með samþykkt frv., þó með breytingu, og leggur til, að eftir 30 ára starf verði ellilífeyrir sjómanna 60% í staðinn fyrir 50%, eins og nú er gert ráð fyrir í frv., og þetta án þess að iðgjöld hækki úr þeim 10% af tekjum, sem frv. gerir ráð fyrir. Ég verð að segja, að þarna leggur Sjómannasamband Íslands til, að málið nái ekki fram að ganga óbreytt, og það er allþýðingarmikil brtt., sem Sjómannasambandið gerir við frv., sem hv. meiri hl. n. hefur ekki fallizt á og ekki tekið tillit til. Málið fengi því ekki afgreiðslu í samræmi við óskir Sjómannasambandsins, ef farið væri að ráðum meiri hl. í þessu efni, ekki að því er þetta atriði snertir.

Þá er það Sjómannafélag Reykjavíkur, sem er eitt af þeim félögum, sem eru í Sjómannasambandinu. Það sendi einnig örstutta umsögn, og er hún á þá lund, að aðalfundur Sjómannafélags Reykjavíkur, haldinn 21. jan. 1961, fagni því, að fram er komið stjórnarfrv. á Alþingi um það, að lögum um lífeyrissjóð togarasjómanna verði breytt þannig, að sjóðurinn yrði einnig fyrir undirmenn á farskipum, og skorað er á Alþingi að samþykkja það. Þetta er algerlega jákvæð umsögn frá Sjómannafélagi Reykjavíkur, og þar eru ekki lagðar til neinar brtt. við frv., heldur mælt með samþykkt þess. En það er, held ég, einustu fortakslausu meðmælin, sem með frv. hafa borizt. Hitt eru allt saman frekar neikvæðar umsagnir.

Farmanna- og fiskimannasamband Íslands sendi mjög langa og ýtarlega umsögn um málið, viðurkennir í upphafi síns máls einn kost við það, þar sem segir: „Megintilgangur frumvarpsins er að sameina alla undirmenn á farskipum í einum lífeyrissjóði, í staðinn fyrir, að þeir eru nú ásamt yfirmönnum á viðkomandi skipum í lífeyrissjóði hvers skipafélags um sig. Þetta hefur þann kost í för með sér, að undirmenn geta flutzt milli skipafélaga, án þess að þörf sé að flytja lífeyrisréttindi þeirra eða þau glatist jafnvel að einhverju leyti.“ Þetta segja þeir að sé það jákvæða við frv. En hér er hins vegar um miklu stærri vanda að ræða, og getur þessi lausn á engan hátt talizt fullnægjandi, enda getur hún í mörgum tilfellum skaðað þá, sem eiga að njóta góðs af henni. Með sífelldri fjölgun lífeyrissjóða ber æ brýnni nauðsyn til, að sett verði löggjöf um réttindi þeirra, sem skipta um starf og flytjast milli sjóða. Það er engu minni nauðsyn að tryggja sjómanni, sem tekur upp störf í landi, að hann glati ekki þeim lífeyrisréttindum, sem hann hefur áunnið sér, en hinum, sem fer frá einu skipafélagi til annars. Sé um að ræða starf í landi hjá skipafélagi því, sem sjómaðurinn starfaði hjá, yrði réttarstaða hans augljóslega lakari, ef frv. yrði samþykkt.

Og enn halda þeir áfram í Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands í sinni umsögn, með leyfi hæstv. forseta: „Í öðru lagi er gert ráð fyrir því í frv., að yfirmenn á farskipum skuli vera í sjóðum skipafélaganna. Þar eð algengt er, að menn séu árum saman ýmist undirmenn eða yfirmenn, mundi með samþykkt frv. skapast glundroði og skriffinnska, sem nú á sér þó ekki stað.“ Þetta lítur út fyrir að vera alveg ómótmælanlegt, augljós staðreynd.

Í þriðja lagi segir svo í umsögninni, með leyfi forseta: „Í þriðja lagi viljum vér benda á þann annmarka, sem frá sjónarhóli yfirmanna á togurum er á ákvæðum frv. um lífeyrisgreiðslur og óbreytt er frá núgildandi lögum um lífeyrissjóð togarasjómanna. Það er, að lífeyrir miðist við laun síðustu 10 starfsárin, en iðgjöld yfirmanna til sjóðsins miðast oft við miklum mun hærri laun mikinn hluta starfsævinnar. Þannig eru mörg dæmi þess, að skipstjóri, sem greiðir allt að því þrefalt iðgjald á við háseta, verður síðar á ævinni bræðslumaður eða háseti, og ætti samkv. framangreindum ákvæðum að taka lífeyri í samræmi við laun í síðast nefnda starfinu. Dæmi: Maður hefur verið skipstjóri á togara í 19 ár, en verður þá háseti og er það í 10 ár. Meðalárslaun hans síðustu 10 árin eru 100 þús. kr. Útkoman verður þannig: Honum reiknast 29 ára starfsaldur, sem gefur 48% af 100 þús. kr. eða 48 þús. kr. Hefði hann hins vegar hætt störfum eftir 19 ára skipstjórn og meðalárslaun hans verið 250 þús. kr., verður útkoman þannig: 28% eða 70 þús. kr. Enda þótt þetta dæmi sé aðeins tekið af togaraskipstjóra, á það einnig við um aðra yfirmenn á togurunum. Vér teljum nauðsynlegt, að ákvæði þessi verði endurskoðuð vandlega og það verði gert, áður en stór hópur nýrra félaga verði tekinn í sjóðinn.

Með tilliti til þess, sem hér hefur verið rakið, viljum vér leggja til, að hv. Alþingi fresti afgreiðslu þessa máls, meðan unnið sé að allsherjarlausn á vandamálum í sambandi við vernd lífeyrisréttinda, þegar skipt er um starf, og flutning þeirra milli sjóða, svo og að endurskoðun á framangreindum ákvæðum í lögum um lífeyrissjóð togarasjómannanna. Verði umrætt frv. hins vegar afgreitt sem lög, teljum vér óhjákvæmilegt, að gerðar verði á því allvíðtækar breytingar og skulu hér talin nokkur þau atriði, sem vér teljum nauðsynlegt, að verði breytt.“

Síðan leggja þeir til, að fimm mjög þýðingarmiklum atriðum í frv. verði breytt, ef ekki verði orðið við aðalkröfu þeirra, sem er um það, að málinu verði frestað nú og þannig gefist lengra tóm til þess að athuga allt lífeyrissjóðsmál sjómannanna til næsta þings, en það er þeirra aðalósk. Verði það ekki ofan á, segja þeir, þá vilja þeir í fyrsta lagi, með leyfi hæstv. forseta, að þessi breyting verði gerð:

„Það verður að teljast óviðunandi réttindaskerðing að skylda alla undirmenn á farskipum til að ganga í hinn nýja sjóð, sbr. 3. gr. frv. Á þetta að sjálfsögðu fyrst og fremst við um þá, sem um fjölda ára hafa notið lífeyrisréttinda, en eiga samkv. bráðabirgðaákvæðum frv. aðeins að fá rétt í nýja sjóðnum frá 1. jan. 1959 að telja. Sem dæmi má nefna starfsmenn Olíufélagsins Skeljungs h/f og Olíuverzlunar Íslands h/f, sem sumir munu hafa öðlazt áratuga lífeyrisréttindi, en þar að auki munu bæði iðgjöld og hundraðshluti lífeyris þessara manna vera mun hærri en verða mundi í hinum nýja sjóði. Um alla þá sjóði, sem undirmenn á farskipum eru nú í, gildir það, að hundraðshluti lífeyris er hærri en í lífeyrissjóði togarasjómanna, og mun ábyrgð skipafélaga í sumum tilfellum vera nokkur trygging fyrir því að þær bætur verði greiddar, jafnvel þótt sjóðirnir reynist ekki hafa fullt bolmagn til þess að standa undir þeim.“

Þá er það önnur breyting: ,.Þótt svo virðist sem varðskip skuli teljast til farskipa samkv. 3. gr. frv., er rétt að taka af öll tvímæli og telja varðskip með í upphafi greinarinnar, enda eru það einungis undirmenn á strandferðaskipum ríkisins og varðskipum sem hingað til hefur ekki verið hirt um að tryggja og fyrst og fremst gæti talizt ástæða til að taka með í hinn nýja sjóð, eða þá í annan stað leggja það fyrir Skipaútgerð ríkisins og stjórn varðskipanna, landhelgisgæzluna, að standa við gefin loforð um að tryggja þessa menn, sem sýnist nú líka vera fær leið.“

Þriðja breytingin, sem Farmannasambandið leggur áherzlu á, er svo hljóðandi: „Vegna hins mikla fjölda yfirmanna, sem nú er í lífeyrissjóði togarasjómanna, svo og hins, að allir þeir, sem síðar verða yfirmenn á farskipum, verða samkv. frv. um skemmri eða lengri tíma félagar í hinum nýja sjóði, teljum vér óhjákvæmilegt, að Farmanna- og fiskimannasamband Íslands eigi einnig fulltrúa í stjórn sjóðsins, sbr. 5. gr. frv.“ Það er þeim ekki tryggt í frv.

Í fjórða lagi: „Í 18. gr. frv. er gert ráð fyrir endurgreiðslu á iðgjaldahluta sjóðfélaga við úrgöngu, en án vakta. Í mörgum lífeyrissjóðum, m.a. sumum þeim sjóðum, sem sjómenn eiga samkv. frv. að flytjast úr, eru hins vegar greiddir vextir, og ýtir það vafalaust undir, að menn geymi áunnin réttindi og láti fé sitt standa inni, Þótt þeir taki upp annað starf um einhvern óákveðinn tíma. Teljum vér því ástæðu til að breyta þessu ákvæði.“

Þá er það fimmta brtt. þeirra: „Í 19. gr. er gerður greinarmunur á flutningi eftir því, hvort flutt er í sjóð, sem stofnaður er með lögum, eða sjóð, sem viðurkenndur er af fjmrn. Tengsl sjómanna við lögboðna sjóði, svo sem lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og barnakennara, hjúkrunarkvenna, ljósmæðra og alþingismanna, eru yfirleitt sízt meiri en við ýmsa aðra sjóði, og verður þessi greinarmunur því að teljast mjög vafasamur.

Virðingarfyllst,

f.h. Farmanna- og fiskimannasambands

Íslands,

Guðmundur Jensson.

Til heilbr.- og félmn. Ed. Alþingis.“

Allar þessar umsagnir voru sendar Ed., og enginn tími vannst til þess í heilbr.- og félmn. Nd. að leita umsagna, hvorki sjómanna né neinna samtaka, varðandi þetta mál.

Ég fæ ekki annað séð en aðalkrafa Farmanna og fiskimannasambandsins, sú, að málinu verði nú frestað, af því að margir meinbugir séu við þetta mál í þeim búningi, sem það er nú, hún sé eðlileg og sjálfsögð. Og hún er í samræmi við till. okkar, sem minni hl. skipum í hv. n. En ef knýja á málið fram, þá er sýnilegt, að ýmsar þær ábendingar, sem Farmanna- og fiskimannasambandið gerir í sínum fimm brtt., eru athyglisverðar og væru til lagfæringa og bóta og ættu því að takast til greina, og ég veit, að þær yrðu teknar til greina að meira eða minna leyti, ef málið gæti fengið þinglega meðferð, ef tóm ynnist til að athuga frv. og þessar tillögur. En það hefur ekki gefizt tími til þess, og þess vegna hefur hv. meiri hl. aðeins haft þann flaustursbrag á að leggja til, að málið sé bara samþykkt óbreytt nú. Það verður að viðurkennast, að það er ekki tími til neins annars, annaðhvort að víkja því frá eða fella það ellegar þá samþykkja það óbreytt, því að það er ekki tími til að vinna neitt að málinu.

Skipaútgerð ríkisins sendir hér einnig umsögn, og er sú umsögn aðallega um málfræðilegt atriði, um það, að þeir telji fara betur á því að nota orðið kaupskip eða kaupfar í staðinn fyrir farskip, sem sé ambögulegt nýyrði í málinu, og verður ekki sagt annað en það er mátfræðileg ábending til bóta, en snertir ekki efni málsins. Jú, þeir eru heldur á því, að það beri að samþykkja þetta frv., einkanlega ef yrði breytt heitinu á farskipi í kaupfar eða kaupskip, það er aðalatriðið. Það er þó brtt. við það, meira að segja ekki hrein meðmæli, nema því verði svolítið breytt. Stundum eru brtt. okkar á Alþingi smávægilegs eðlis, og þær eru stundum um það að bæta málfar á frv. og þykir ekkert hégómaatriði. Það er satt, það er ekki um sjálft efni tryggingarmálsins, en það er til bóta á frv. sjálfu og búningi þess.

Umsögn íslenzku landhelgisgæzlunnar er örstutt og er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

,.Með bréfi, dags. 6. þ. m., sendi hv. heilbr.- og félmn. Ed. mér til umsagnar frv. til laga um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum. Í því sambandi vil ég leyfa mér að benda á, að samkv. lögum um varðskip landsins er ætlazt til, að kaup og kjör skipverja á þeim séu í samræmi við slíkar greiðslur á strandferðaskipum ríkisins, og mun landhelgisgæzlan því fylgja þeim reglum, sem ákveðnar verða við þá stofnun, Skipaútgerðina. Hef ég nú þegar rætt við fulltrúa Skipaútgerðar ríkisins, herra hæstaréttarlögmann Ingólf Jónsson, um þessi mál og er m.a. samþykkur þeim skoðunum hans, að æskilegt væri, að allir starfsmenn stofnananna væru hjá sama lífeyrissjóði, t.d. lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, þar sem meiri hl. þeirra er nú þegar.“

Þeir leggja til, að þessum tryggingamálum á varðskipunum og hjá Skipaútgerð ríkisins sé hagað á annan hátt en lagt er til í frv., nefnilega þann, að starfsmenn þessara fyrirtækja beggja væru tryggðir í sama lífeyrissjóði, þ.e.a.s. lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Og tel ég nú, að það mæli ýmis rök með því, að starfsmennirnir hjá Skipaútgerðinni og landhelgisgæzlunni væru tryggðir í lífeyrissjóði opinberra starfsmanna.

Þá kemur að Vinnuveitendasambandi Íslands. Ég skal ekki þreyta hv. þm. með því að lesa það allt, en niðurstöðu Vinnuveitendasambandsins hlýt ég að kynna, og hún er þessi:

„Í frv. felast ekki ný réttindi til handa undirmönnum á farskipum, þar sem þeir hafa frá 1. jan. 1959 notið lífeyrissjóðsréttar í samræmi við á,kvæði kaup- og kjarasamninga þar um. Í öðru lagi : Vér teljum rétt, að um mál sem þessi sé fjallað af aðilunum sjálfum með samningum, en að löggjafarvaldinu sé ekki beitt fyrir vagninn.”

Þeir mæla því gegn afskiptum Alþingis af málinu. Þá segja þeir að lokum, með leyfi hæstv. forseta:

„Með hliðsjón af framansögðu teljum vér lagasetningu sem þessa óþarfa, þótt vér á hinn bóginn getum eftir atvikum sætt oss við þá skiptingu milli lífeyrissjóða, sem þar er ráðgerð. Að öðru leyti vísum vér um afstöðu vora til tillagna meiri hl. n., skipaðrar af félmrn. fyrri hluta árs 1959. til þess að undirbúa löggjöf um lífeyrissjóð bátasjómanna og farmanna í samræmi við yfirlýsingu ríkisstj. til samninganefndar sjómannasamtakanna innan Alþýðusambands Íslands, dags. 5. jan. 1959, þar var þó um málamiðlun að ræða, svo og til bréfs vors til félmrn., dags. 6. nóv. 1961.

Virðingarfyllst,

Vinnuveitendasamband Íslands,

Einar Árnason.“

Hér er gerð grein fyrir því, að miðlunarleiðin, sem fundin var við lok samninga í ársbyrjun 1959, var á annan veg en hér er fjallað um í þessu frv. Og með bréfi Vinnuveitendasambandsins var einnig ráðgert, að þessum málum yrði hagað á annan veg en gert er í þessu frv., og þeir telja sem sé, að þessi lagasetning sé óþörf.

Þá kemur að Sambandi ísl, samvinnufélaga. Þar er alllöng, ýtarleg umsögn líka. Ég skal aðeins lesa það, sem mér finnst vera niðurstaða hennar, en þar segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Það er því skoðun vor, að frv. það, sem hér um ræðir, sé óþarft og ekki til bóta, þar sem lífeyrisréttur þeirra manna, sem hér um ræðir, hefur þegar verið tryggður og aðeins mun vera eitt fyrirtæki, þ.e. Skipaútgerð ríkisins, sem vanrækt hefur að standa við þá samninga eða loforð, sem á sínum tíma voru gefin til undirmanna á farskipum. Vér höfum leitað til allra undirmanna á skipum vorum og kannað, hvort þeir mundu heldur kjósa að vera áfram í lífeyrissjóði SÍS eða í slíkum lífeyrissjóði, sem frv. gerir ráð fyrir. Í ljós kom, að yfirgnæfandi meiri hluti skipverja óskaði þess að vera áfram í lífeyrissjóði Sambandsins.

Meðan á undirbúningi máls þessa stóð, var leitað umsagnar vorrar og álits af herra ráðuneytisstjóra, Hjálmari Vilhjálmssyni. Vér greindum honum frá framanrituðu og lögðum fram ýmis rök máli voru til stuðnings. Þar sem vér gerum ráð fyrir því, að hv. heilbr.- og félmn. hafi frá ráðuneytinu borizt umsagnir þeirra aðila, sem sérstaklega var leitað til í sambandi við frumvarpsgerðina, teljum vér ekki ástæðu til að fara hér fleiri orðum um þetta mál.

Virðingarfyllst,

f.h. Sambands íslenzkra samvinnufélaga,

Skipadeildina.

Hjörtur Hjartar.“

Hér er minnzt á umsagnir, sem hafa verið sendar, á meðan frv. var í smiðum. og gert ráð fyrir því, að hv. nefnd Alþingis fái þau rök og gögn í hendur. En hv. heilbr.- og félmn. hefur ekki séð þessi gögn, og veit ég ekki, hvað í þeim felst, en þar virðist heldur hafa verið lagzt á móti frv. í þessum búningi. Og það er gert í þessari umsögn, eins og menn heyra. Menn telja, að vitji sjómannanna á farskipum Sambandsins sé sá að vera áfram í þeim lífeyrissjóði, sem þeir eru nú tryggðir í á vegum þess útgerðarfélags.

Nú hafa menn heyrt, hvernig hin ýmsu félagasamtök hafa snúizt við þessu frv. Og þegar frá er tekið Sjómannafélag Reykjavíkur og Sjómannasambandið, þá er yfirleitt um miklar brtt. að ræða, og Sjómannasambandið leggur líka til verulega, veigamikla breytingu, ellegar beint er lagzt gegn málinu eða talið algerlega óþarft að lögfesta það og lögð áherzla á, að það þurfi að athuga málið betur og fresta því til næsta þings.

Og nú kemur að skipshöfnunum. Það verð ég að segja, að svo eindregin mótmæli frá sjómönnum minnist ég ekki að Alþingi hafi borizt, nema út af árásinni á vökulögin. Þá kom fjöldi umsagna, mótmæla frá skipshöfnum á togurunum, í einu vetfangi og voru send Alþingi, og sýndi það, hversu vakandi togarasjómenn voru á verðinum, þegar átti að skerða mannréttindi þeirra hvað snerti hvíldartíma á togurunum. En þær umsagnir voru þó a.m.k. ekki fleiri en þær, sem drifið hefur að nú frá skipshöfnum í þessu máll. Ég mun ekki lesa öll þessi mótmæli, en læt mér nægja að lesa þann tekta, sem skrifstofa Alþingis hefur til skýringar á málunum ritað á umslög mótmælanna.

Hér er fyrst um að ræða mótmæli frá 6 skipverjum á m/s Drangajökli, sem eru félagar í lífeyrissjóðnum Skildi, lífeyrissjóði þess skipafélags, og óska þeir eftir því að vera áfram félagar í téðum lífeyrissjóði.

Næst eru hér mótmæli frá áhöfn b/v Hvalfells. Um það segir skrifstofa Alþingis: „Skipstjóri og áhöfn b/v Hvalfells tilkynna, að þeir séu allir andvígir aðild farmanna að lífeyrissjóði togarasjómanna.” Þetta er birt í símskeyti frá 7. febr.

Áhöfn b/v Geirs skoraði á Alþingi að fella fram komið frv. til laga um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum. Tilkynnt í símskeyti 6. febr.

Áhöfn b/v Hafliða skorar á Alþingi að fella fram komið frv. til laga um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum. Símskeytið sent 7. febr. (Forseti: Ég vil spyrja hv. ræðumann, hvort hann telji sig eiga langt í land með að ljúka þessu máli sínu, með því að liðið er að lokum fundartímans.) Ég get sagt hæstv. forseta það, að ég lýk máli mínu, þegar ég hef lesið tilkynningar skrifstofu Alþingis um þessi andmæli, sem hér hafa borizt, en það eru 2–3 línur, og þetta eru 12 mótmæli enn þá eða frá 12 skipshöfnum sent. Það eru 2—3 mínútur. (Forseti: Ég held, að það taki því þá ekki að biðja um frest.) Ég lýk máli mínu, þegar ég hef lesið þessi andmæli sjómannanna, tel þau vera þyngst á metunum. En út af orðum forseta vil ég segja það, að þetta er ekki mál mitt, þetta er mál hv. Alþingis, sem ég er hér að ræða.

Svo segir skrifstofa Alþingis:

Áhöfn b/v Hallveigar Fróðadóttur skorar á Alþingi að fella fram komið frv. til laga um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum. Símskeyti 8. febr.

Áhöfn b/v Skúla Magnússonar skorar á Alþingi að fella fram komið frv. til laga um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskinum. Símskeyti 6. febr.

23 skipverjar á b/v Marz skora á Alþingi að fella fram komið frv. til laga um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum. Bréf 13. febr.

Áhöfn b/v Péturs Halldórssonar skorar á Alþingi að fella fram komið frv. til laga um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum. Símskeytið sent 13. febr.

Skipverjar á b/v Fylki skora á Alþingi að fella fram komið frv. til laga um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum. Símskeyti 6. febr.

Skipverjar á b/v Elliða skora á Alþingi að fella fram komið frv. til l. um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum. Símskeyti 6. febr.

Skipstjóri á b/v Jóni Þorlákssyni sendir ályktun áhafnar togarans, samþykkta með 28:2 atkv., þar sem skorað er á Alþingi að fella fram komið frv. til laga um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum. Tilkynnt í símskeyti.

Áhöfn b/v Surprise skorar á Alþingi að fella fram komið frv. til laga um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum. Símskeyti 6. febr.

Skipverjar b/v Norðlendings skora á Alþingi að fella fram komið frv. til laga um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum. Símskeyti 6. febr.

Skipshöfn b/v Maí skorar á Alþingi að fella fram komið frv. til laga um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum. Símskeyti 19. febr.

Áhöfn b/v Víkings skorar á Alþingi að fella fram komið frv. til laga um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum. Tilkynnt með bréfi.

Áhöfn b/v Kaldbaks skorar á Alþingi að fella fram komið frv. til laga um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum. Þetta er tilkynnt með símskeyti 27. febr.

Að fenginni þessari vitneskju um afstöðu sjómanna og ýmist óskir um, að frv. sé fellt ellegar að því sé nú frestað og vísað til félmrn. í trausti þess, að rn. undirbúi málið betur, og sérstaklega með tilliti til þess, að myndaður verði sameiginlegur lífeyrissjóður bátasjómanna og togarasjómanna, leggjum við í minni hl. heilbr.- og félmn., hv. 4. þm. Reykn. og ég, til, að málið verði afgreitt með svo hljóðandi rökstuddri dagskrá:

„Í trausti þess, að hæstv. félmrh. undirbúi fyrir næsta þing frv. til laga um sameiginlegan lífeyrissjóð allra togarasjómanna og bátasjómanna, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“

Ég hef lokið máli mínu, hæstv. forseti.