16.04.1962
Neðri deild: 96. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2452 í B-deild Alþingistíðinda. (2056)
111. mál, lífeyrissjóður togarasjómanna og undirmanna á farskipum
Pétur Sigurðsson:
Hæstv. forseti. í framsöguræðu hv. 4. landsk. komu fram nokkur atriði, sem ég tel ástæðu til þess að leiðrétta, en áður en ég hef mál mitt, vil ég leyfa mér að þakka hæstv. ríkisstj. fyrir að hafa borið mál þetta fram. Þetta er gamall óskadraumur sjómanna. Þetta er fyrsta skrefið í áttina til þess, að til megi verða sameiginlegur lífeyrissjóður fyrir alla sjómenn.
Hv. 4. landsk. vitnaði í umsagnir, sem borizt hafa hv. Alþingi um þetta mál, og það mátti skilja á orðum hans, að hann teldi, að allir sjómenn væru á móti þessu máll. Þetta er alrangt. Það kom fram við umr. í Ed. og mun að sjálfsögðu koma fram hér einnig, að þær samþykktir, sem borizt hafa frá togarasjómönnum, þeim togaraskipshöfnum, sem mótmælt hafa, að þetta frv. næði fram að ganga, eru á misskilningi byggðar. Um þær áskoranir frá togarasjómönnum má segja, að þær séu flestar líkar að orðalagi. Þeir minnast í mörgum símskeytum sínum á, að það sé óvíst, að um framhald togaraútgerðar á Íslandi verði að ræða, og þeir vilji þess vegna ekki hleypa öðrum inn í fjársterka sjóði, sem yrðu farmönnum einum til hagsbóta. Mér skildist helzt á hv. 4. landsk., að með því að greiða atkv. með hinni rökstuddu dagskrá hans, þá væri verið að halda uppi togaraútgerð í þessu landi, en með því að samþykkja þetta frv., þá væri verið að undirstrika það, að togaraútgerð ætti ekki að halda áfram.
Nú vil ég leyfa mér að fara nokkrum orðum um það, á hvaða misskilningi togarasjómenn hafa byggt mótmæli sín. Þeir hafa í fyrsta lagi ekki gert sér grein fyrir því, að af farmönnum er búið að taka til geymslu til væntanlegs lífeyrissjóðs þeirra greiðslur nú í nær 3 ár, sem þeir munu koma með inn í þennan sjóð. Í öðru lagi er frá tryggingafræðilegu sjónarmiði miklu hagkvæmara fyrir sjóðinn að hafa farmenn inni heldur en ekki. Það gerir, að slysahætta er miklu meiri á togurunum en á farskipunum, og bara frá því sjónarmiði er hagkvæmara fyrir þá að vera þar inni. Í þriðja lagi er hver maður skráður fyrir sínu innleggi, og eftir því sem þeir leggja í sjóðinn og atvinnurekendur fyrir þá, eftir því fá þeir greitt úr sjóðnum, þegar til lífeyrisgreiðslu kemur, þannig að þar verður ekkert frá togarasjómönnum tekið. Í fjórða lagi má geta þess, að með þessu, ef þetta frv. verður samþykkt, fá eldri farmenn sömu réttindi og eldri togaramenn fengu við samþykkt laganna um togaralífeyrissjóðinn, en ríkissjóður mun taka á sig þann kostnað, þannig að togaramenn munu ekki verða fyrir neinu tjóni af því heldur. Hins vegar verður ávinningur þeirra í því fólginn, að þeir fá stóran hluta stéttarbræðra sinna, undirmenn á farskipum, inn í sjóðinn með stórmikið fé með sér, og auk þess eru þessir farmenn stöðugasti hluti sjómannastéttarinnar í sinni atvinnugrein, og þar af leiðandi munu þær greiðslur, sem koma vegna þeirra frá atvinnurekendum, verða þær stöðugustu. sem sjóðurinn fær.
Hv. 4. landsk. fór mjög ýtarlega í eina umsögn, sem borizt hefur þinginu frá Farmanna og fiskimannasambandi Íslands. Hann orðaði það áður en hann fór að fara í einstakar greinar þess álits, sem Farmannasambandið sendi, á þá leið að undirmenn væru nú í lífeyrissjóðum með yfirmönnum. Þetta er alrangt. Þótt fé það, sem af þeim hefur verið tekið, sé geymt í sjóðum yfirmanna, þá er ekki þar með sagt, að þeir séu í neinum yfirmannasjóð. Og þá er kannske komið að einu meginefni málsins, og það er það, að farmenn telja sig ekki enn þá hafa fengið sinn lífeyrissjóð, eins og þó samningar segja að þeir skuli vera búnir að fá.
Það má kannske fara aðeins aftur í tímann og benda á, að það var held ég fyrst árið 1957, sem kom fram formleg krafa frá farmönnum um það, að stofnaður yrði lífeyrissjóður fyrir þá, en það fékk mjög daufar undirtektir þá. En þegar næstu samningar voru gerðir við þá sumarið 1958, þá var þetta aftur á dagskrá, og þá gaf þáv. hæstv. sjútvmrh. munnlegt loforð fyrir skriflegu loforði um, að lífeyrissjóður farmanna yrði lögbundinn, ef ekki næðist samkomulag um reglugerð fyrir sjóð þeirra fyrir áramótin 1958 og 1959, en þá átti hann að taka til starfa. Það var samið um það, að samningaumleitanir skyldu fara fram á tímabilinu frá undirskrift samninga til áramóta. En hvernig sem á því stóð, þá varð tilraun til samkomulags ekki gerð, að mér hefur verið tjáð, af hvorugum aðila, og skriflegt loforð ráðherra hefur ekki sézt.
Síðan skeði það í þessu máli, að þáv. hæstv. forsrh., Emil Jónsson, skipaði 7 manna nefnd til að vinna að lífeyrissjóðsmáli allra sjómanna, og þessi nefnd var lengi að störfum. En það kom fljótlega upp ágreiningur innan hennar, sem reyndist útilokað að eyða, og nefndin klofnaði í tvo hluta, og skilaði hvor hlutinn sínu áliti í janúar–marz 1960. Um það leyti, sem þessi nefnd tók til starfa, var leitað álits farmanna um það, hvar þeir teldu sínum hagsmunum bezt borgið, sínum lífeyrissjóði. Þeir töldu, að sjálfsagt væri að fara inn á þá leið, að stofnaður yrði einn sameiginlegur lífeyrissjóður fyrir alla sjómenn, og byggðu það m.a. á því, að það væri ekki meðal neinna stétta þjóðfélagsins um jafnmiklar tilfærslur á milli vinnustaða og vinnuveitenda að ræða eins og meðal sjómanna. Og við þessari ósk hefur nú verið orðið að nokkru leyti með því, að hæstv. ríkisstj. hefur lagt þetta frv. fram.
En svo að ég víki aftur að þeim umsögnum, sem hv. 4. landsk. vitnaði í, þeirri umsögn, sem Farmanna- og fiskimannasambandið sendi, þá virðast koma þar fram þau aðalrök, sem hægt er að tala um gegn þessu máli, svo að ég vil hafa sama lag á og hv. 4. landsk. og taka hverja grein fyrir sig.
Þeir segja réttilega, að megintilgangur frv. sé að sameina alla undirmenn á farskipum í einn lífeyrissjóð. Þeir benda á þann kost, sem þetta hafi í för með sér, að undirmenn geti flutzt á milli skipafélaga, án þess að nokkur þörf sé á því að flytja lífeyrisréttindi þeirra á milli, annars geti þau glatazt að einhverju leyti, eins og við því miður höfum mörg dæmi um í dag, og það er ein meginástæðan fyrir þeirri ósk farmanna, að þetta frv. er borið fram. Hún er sú, að þó að farmaður sé búinn að vinna sér lífeyrisréttindi hjá einu skinafélagi. við skulum segja í 7–8 ár, þá getur skipafélagið sagt honum upp starfi og þá glatar hann beim lífeyrisréttindum, sem hann hefur innunnið sér á þessu árabili. Þá verður hann að taka til og fara að vinna sér inn ný lífeyrisréttindi hjá öðru skipafélagi, ef hann ætlar sér að halda áfram í þessari atvinnugrein.
Þá er annað. sem þeir virðast ekki hafa rekið augun í hjá Farmanna- og fiskimannasambandinu, og bað er einmitt það, sem er kannske einn meginkjarni Þessa máls, og ég er ekki trúaður á það. að hv. 4. landsk. hafi heldur komið auga á þetta atriði, a.m.k. hefði hann þá ekki talað gegn þessu frv., því að ef það verður að lögum, þá er í því fólgin kjarabót fyrir farmenn, sem mun nema um 2—3%. Það er að vísu ekki bein kauphækkun, en um þessar prósentur mun greiðsla atvinnurekenda aukast í lífeyrissjóðinn, því að með frv. er ætlað, að farmennirnir fái greidd lífeyrissjóðstillög af heildarárslaunum sínum, en eins og er, eftir þeim samningum, sem gilda, þá fá þeir aðeins greitt af fastakaupi sínu, sem í flestum tilfellum er aðeins helmingur heildarlauna þeirra.
Það er alveg rétt, sem þeir benda á í þessu áliti sínu, Farmanna- og fiskimannasambandið, að það er mjög brýn nauðsyn, að það verði sett löggjöf um það, að menn geti flutzt milli annarra sjóða og það sjóða, sem starfa meðal landverkafólks og eins meðal sjómanna. Sú löggjöf mun nú í endurskoðun, en ég fæ ekki séð þar nein rök fyrir því að stöðva framgang þessa frv. Það á alveg jafnmikinn rétt á sér fyrir það.
Í áliti Farmannasambandsins er bent á það, að yfirmenn á farskipum skuli vera áfram í sjóðum skipafélaganna. Og þeir benda jafnframt á, að algengt sé, að menn séu árum saman ýmist undirmenn eða yfirmenn, og þeir segja orðrétt, með leyfi forseta, að með samþykkt frv. mundi skapast glundroði og skriffinnska, sem nú á sér ekki stað. Þetta er alrangt. Það má telja á fingrum annarrar handar þau dæmi, að yfirmaður á verzlunarskipi verði undirmaður aftur. Þeir virðast hafa ruglað þarna saman því, sem skeður á togaraflotanum, en þar aftur á móti er það algengt, að menn verði jafnvel skipstjórar og séu svo orðnir hásetar í næstu ferð á eftir. En eins og ég segi, þá er þetta mjög sjaldgæft á verzlunarskipunum. En í frv. er einmitt getið um það, að allir undirmenn skuli vera í þessum sameiginlega sjóði, en þegar þeir verði skipaðir fastir yfirmenn, þá skuli þeir ganga inn í þá sérsjóði, sem skipafélögin hafi fyrir sína yfirmenn. Og þetta er beinlínis gert til þess, að þeir sjóðir veslist ekki upp og eyðileggist, en geti starfað áfram og fengið þann eðlilega þroska, sem þeir þurfa að fá með nýjum félögum.
Þeir benda á þann annmarka, sem ekki kemur náttúrlega við þessu frv., sem er á því, að lífeyrir togaramanna eða þeirra, sem eru í núgildandi togarasjóði, sé miðaður við síðustu 10 starfsárin, og þeir benda á Það mjög réttilega, eins og ég gat um hér áðan, að einn maður geti starfað sem skipstjóri fyrstu 10 ár starfsævinnar á togara, en verið næstu 20 sem háseti og þá mundu eftir núgildandi lögum ekki verða tekin til greina nema 10 síðustu starfsárin. Með þeim breytingum, sem hv. meiri hl. heilbr.- og félmn. Ed. lagði fram og voru samþykktar í hv. Ed., var einmitt komið á móti þessu sjónarmiði Farmanna- og fiskimannasambandsins, sem á fyllilega rétt á sér, og ákvæði einnar greinarinnar breytt í þá átt, að þegar reiknaður sé út lífeyrir, þá skuli farið allt að 20 árum aftur í tímann, ef það sé hagkvæmara fyrir þann, sem lífeyri eigi að taka.
Þeir benda á atriði, sem hv. 4. landsk. dró einnig fram, að í því upprunalega frv., sem lagt var fyrir Alþingi, hafi ekki nægilega verið undirstrikað, að undirmenn á varðskipum mættu hafa aðild að þessu eins og aðrir farmenn. Þessu hefur einnig verið breytt í Ed. og þetta undirstrikað þannig, að nú leikur enginn vafi þar á.
Þeir benda jafnframt á, að það sé mjög óréttlátt, að Farmanna- og fiskimannasambandið eigi ekki aðild að stjórn sjóðsins. Eins og er á Farmanna- og fiskimannasambandið enga aðild að þessum sjóði. Með þeim áorðnu breytingum, sem urðu á frv. í Ed., hefur verið úr þessu bætt, og ef það verður samþykkt í þeirri mynd, sem það er nú, þá á Farmanna- og fiskimannasamband Íslands í fyrsta skipti aðild að þessari stjórn.
Það voru ekki önnur atriði, sem hv. 4. landsk. dró fram úr þessari umsögn Farmanna- og fiskimannasambandsins. En hann vitnaði í fleiri umsagnir. Hann vitnaði t.d. í umsögn Sjómannasambands Íslands og vildi láta liggja að því orð, að Sjómannasambandið væri jafnvel á móti þessu frv., eins og hann orðaði það. En í þessari umsögn mæla þeir fastlega með, að það verði samþykkt. Þeir benda hins vegar á, að það væri æskilegt, að eftir 30 ára starf yrði ellilífeyririnn 60% í stað 50%, eins og frv. gerir ráð fyrir, og það er enginn kominn til með að segja, að þegar næsta endurskoðun fari fram á þessum lögum af tryggingafræðingum, eins og frv. segir að eigi að gera, þá verði þetta hægt. Með því að taka farmennina inn á þessu stigi og með þeirri endurskoðun, sem þessi lög fengu að þessu sinni, hefur auðnazt að lækka árabilið, sem menn hafa orðið að greiða í sjóðinn til þess að fá fulla greiðslu, 50%, þá hefur tekizt að lækka það um 5 ár, og ef þetta frv. verður að lögum, Þurfa þeir ekki að greiða í sjóðinn nema í 30 ár í stað 35 ára, eins og segir í núgildandi lögum.
Hann vitnaði einnig í ályktun Sjómannafélags Reykjavíkur. Þeir mæla með því, að þetta verði samþykkt.
Þá vitnaði hann í umsögn Skipaútgerðar ríkisins, og þeir mæla einnig með, að það verði samþykkt. En hann benti réttilega á það, hv. 4. landsk., að það eina, sem þeir fyndu að frv., væri, að notað væri orðið farskip í staðinn fyrir kaupfar.
Þá kom hann að umsögn íslenzku landhelgisgæzlunnar og fór nokkrum orðum um, að hv. forseti landhelgisgæzlunnar, Pétur Sigurðsson, teldi, að ekki ætti að samþykkja þetta frv., heldur væri æskilegra, að allir starfsmenn stofnananna væru hjá sama lífeyrissjóði, lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, þar sem meiri hl. þeirra er nú þegar. Um þetta er nú að segja það, að ég er anzi hræddur um, að nafni minn, framkvæmdastjóri landhelgisgæzlunnar, geri sér ekki grein fyrir því, að það á enn mjög langt í land, að þeir menn, sem eru nú í dag undirmenn á varðskipum ríkisins, verði fastir starfsmenn, eins og yfirmennirnir eru. Þeir eru fastir starfsmenn og njóta allra þeirra réttinda, sem fastir starfsmenn hins opinbera njóta. En þá undirmenn, sem eru skráðir á þessi skip, er hægt að reka burt með 7 daga fyrirvara. Áður en hægt væri að taka þessa menn inn í slíkan sjóð eins og lífeyrissjóð opinberra starfsmanna, yrði að gera þá að föstum starfsmönnum ríkisins, sem út af fyrir sig mundi vera mjög skynsamleg leið. En áður en af því gæti orðið, þá yrði að endurskoða þau lög, sem í gildi eru um landhelgisgæzluna, um varðskip ríkisins. Ég er sannfærður um, að það gæti út af fyrir sig orðið til bóta fyrir okkar landhelgisgæzlu, því að þar eru allt of miklar breytingar á mönnum, eins og er, og ég geri ráð fyrir því, að þær séu ekki meiri hjá neinni útgerð hér á landi, þar sem farmenn eru að störfum, heldur en einmitt hjá landhelgisgæzlunni, og það kemur til af því, að þeir koma þarna mjög margir til þess að fá sér siglingartíma. Ég þekki fjöldann allan af ungum mönnum, sem byrja sína farmennsku á varðskipum ríkisins til þess að ná sér í siglingartíma, til þess að komast inn í stýrimannaskólann. Eftir að þeir hafa lokið námi þar, þurfa þeir að sigla á millilandaskipum um ákveðið tímabil, til þess að fá full réttindi sem stýrimenn, og því miður eru nú flestir þeirra, sem ílendast þar, þó svo að það komi alltaf til baka viss hundraðshluti, sem gangi upp í það að verða fastir yfirmenn á skipum landhelgisgæzlunnar.
Hann vitnaði í umsögn Vinnuveitendasambands Íslands, og undirstrikaði þau orð Vinnuveitendasambandsins, að þeir telja rétt, að um mál sem þetta sé fjallað af aðilum sjálfum með samningum, en löggjafarvaldinu ekki beitt fyrir vagninn. Öðruvísi mér áður brá, að hv. 4. landsk. skuli draga þetta fram sem meðmæli með máli sínu hér á hv. Alþingi. En þeir aftur á móti segja það í umsögn sinni, að þeir telji lagasetningu sem þessa óþarfa, vegna þess að þeir telji undirmenn á farskipum vera búna að fá þessi réttindi. Eins og ég tók fram í byrjun máls míns, telja farmenn þetta öðruvísi. Þeir telja, að þeir séu ekki búnir að fá neina lífeyrissjóði enn þá hjá sínum skipafélögum. Þeirra tillegg hefur verið tekið og lagt til geymslu hjá skipafélögunum. Í sumum tilfellum, eins og hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga, hefur þetta verið sett inn með öðrum starfsmönnum og þeir gerðir að aðilum þess lífeyrissjóðs, sem þar er fyrir. Og hjá enn öðrum og þar á meðal Jöklum og minni skipafélögunum, þá hafa þeir gengið með sitt starfsfólk inn í lífeyrissjóðinn Skjöld. En Þess er að geta, að í reglugerðum þessara sjóða er hvergi talað um undirmenn á farskipum. Ég hef hér t.d. reglugerð fyrir lífeyrissjóð Eimskipafélags Íslands. Þar eru taldir upp allir þeir menn, sem á skipinu eru, aðrir en undirmenn. Þar eru taldir upp skipstjórar, stýrimenn, brytar, vélstjórar, aðstoðarvélstjórar, loftskeytamenn og rafvirkjar. Þetta eru mennirnir á skipunum, sem eru taldir vera í þeim sjóði. Undirmenn eiga enga aðild að neinum lífeyrissjóðum í dag. Það eru yfirmenn, sem eiga aðildina frá launþegans hendi að þessum lífeyrissjóðum. Það má draga þetta saman í eitt og segja: Undirmenn hafa engan lífeyrissjóð.
Vinnuveitendasambandið bendir jafnframt á það, að þó að af samþykkt þessa frv. yrði, mundu ekki farmenn öðlast nein ný réttindi. Þetta er alrangt hjá Vinnuveitendasambandinu. Ef þetta frv. verður samþykkt, öðlast þessir menn þau réttindi, að þeir geta farið á milli skipafélaga, bæði að eigin ósk og ég tala nú ekki um, ef þeim er sagt upp starfi á einum staðnum, þá geta þeir án þess að stofna sínum lífeyrissjóðsinnistæðum í hættu farið og hafið vinnu hjá öðru skipafélagi og samt haldið sínum lífeyrissjóðsréttindum. Og þetta er eitt aðalatriði fyrir því, að farmenn leggja mjög mikla áherzlu á, að þetta frv. nái fram að ganga.
Í umsögn Sambands ísl. samvinnufélaga kemur það fram, að þeir telja þetta frv. óþarft, og þeir vitna til þess, að þeir hafi leitað fyrir sér um skoðanakönnun undirmanna á farskipum þeirra. Mér finnst það nú vera nokkuð að fara aftan að hlutunum, þegar atvinnurekandi í þessu tilfelli er að leita fyrir sér um, hvað launþegi sá, er vinnur hjá honum, vilji í þeim málum eða hafa um stjórn þeirra mála, sem hann hefur áunnið sér og það með verkföllum, og satt að segja finnst mér jafnt í þessu sambandi eins og um umsögn Vinnuveitendasambandsins, að nú séu aðrir tímar en verið hafa, þegar forseti Alþýðusambandsins dregur þetta fram, slík atriði, til þess að mæla gegn því, að þetta frv. verði samþykkt.
Ég vil aðeins geta þess í sambandi við þessa umsögn Sambands ísl. samvinnufélaga, að ef þetta frv. verður samþykkt, Þá fá þeir undirmenn, sem hjá því félagi starfa og eru í þeirra sjóði í dag, ekki aðeins sitt lífeyristillegg, þegar að því kemur, heldur fá þeir fullan rétt, þeir fá fullar bætur úr hinum almennu tryggingum, sem þeir hafa ekki í dag, verandi í lífeyrissjóði Sambands ísl. samvinnufélaga. Þar að auki hafa þeir menn, sem koma til með að eiga aðild að togarasjóðnum, fullan rétt til lána úr húsnæðismálastofnun ríkisins. Þótt þeir gætu fengið lán úr þessum togarasjóði, þá mundi það ekkert skerða rétt þeirra til þess að fá slík lán hjá húsnæðismálastofnuninni. Það er ýmislegt fleira, sem að baki þessu felst, heldur en bara það, að þetta sé 2–3% kjarabót fyrir þessa undirmenn á farskipum.
En í sambandi við þessa könnun, sem þeir telja sig hafa haft á meðal sinna manna, vil ég geta þess, að þegar mál þetta fyrst var á döfinni, þá var höfð skoðanakönnun meðal allra farmanna, og þá var yfir 90% þeirra, sem mælti með, að þessi leið yrði falin. Hins vegar kemur í ljós núna eftir a.m.k. þessari umsögn þeirra útgerðarmanna, sem reka skip Sambandsins, eða þess aðila, Skipadeildarinnar, að þar séu einhverjir, sem ekki vilji í dag fara þessa leið. Þetta kemur einnig fram frá 6 skipverjum á Drangajökli, sem óska eftir því að vera áfram félagar í lífeyrissjóðnum skildi. Það er mjög eðlilegt, ef einhverjir ákveðnir aðilar hafa annaðhvort fengið eða eiga von á ákveðnum fríðindum úr þeim sjóðum. En það er ekki um aðra en þessa tvo að ræða, eins og ég tók fram áðan, meðal undirmanna á farskipum. Ef þeir eiga von á eða hafa fengið einhver fríðindi úr þessum sjóðum, þá er eðlilegt, að þeir vilji halda í þau, vitandi ekki um það, að hverju þeir gangi í hinum nýja sjóði, ef að lögum verður.
Hann lauk ræðu sinni með því að rekja öll mótmælin frá togarasjómönnum. Ég hef þegar getið um það, að ég telji þau flest á misskilningi byggð. Hins vegar veit maður nú, hverjir standa fyrir þessum mótmælum, geri ég ráð fyrir. Það hefur komið fram í umr. hér á hv. Alþingi, hverjir hafa haft á móti þessu. Hann jafnaði þeim mótmælum á við mótmælin gegn tilmælunum um vökulagabreytinguna, sem ég vil nú alveg mótmæla, því að þau mótmæli, sem berast gegn þessu frv. og hafa borizt, hafa borizt á fjórum mánuðum, en þau mótmæli hrönnuðust upp á örfáum dögum og sýndu hinn virkilega hug sjómanna til þeirra fyrirhuguðu breytinga.
Hann lauk máli sínu með því að segja, að að fenginni þessari vitneskju sjómanna legði hann til, að hans rökstudda dagskrá yrði samþykkt, þar sem aðeins yrði stofnaður lífeyrissjóður fyrir togarasjómenn og bátasjómenn. En sem sagt, hans skoðun var sú, að það ófremdarástand, sem ríkt hefur í lífeyrissjóðsmálum undirmanna á farskipum, ætti að halda áfram að vera við lýði, en því vil ég alveg mótmæla.
Ég vil, um leið og ég lýk máli mínu, endurtaka þakkir minar til ríkisstj. fyrir að hafa borið Þetta frv. fram, og ég vil mjög æskja eftir því, að hv. alþm. verði við óskum sjómannasamtakanna um að samþykkja þetta frumvarp.