05.02.1962
Efri deild: 38. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2480 í B-deild Alþingistíðinda. (2120)
108. mál, fiskimálasjóður
Flm. (Sigurvin Einarsson):
Herra forseti. Fiskimálasjóður var stofnaður með lögum nr. 89 1947. Þetta var þó ekki upphafið að fiskimálasjóði. Tíu ár þar á undan eða frá 1937 höfðu verið í gildi lög um fiskimálanefnd. Sú nefnd hafði yfir að ráða nokkru fjármagni, sem varið var til aðstoðar sjávarútveginum á hliðstæðan hátt og fiskimálasjóður gerir nú. Tilgangurinn með lögunum um fiskimálanefnd 1937 og síðan með lögunum um fiskimálasjóð 1947 var sá að veita þeim útgerðarstöðum í landinu, sem skorti fjármagn til að koma upp fiskvinnslufyrirtækjum, lán til viðbótar því lánsfé, sem lánastofnanir sjávarútvegsins annars veittu. Samkvæmt lögunum um fiskimálasjóð sköpuðust þarna möguleikar til þess, að fiskvinnslufyrirtæki gætu fengið lánsfé samtals allt að 85% af kostnaðarverði þeirra mannvirkja, sem lánin voru veitt til. En þetta náði þó ekki í framkvæmd nema til minni háttar fyrirtækja, því að ákvæði laganna um hámark hvers láns takmarkaði að sjálfsögðu lánin. Síðan byggingar og vélar hækkuðu í verði, sem öllum er kunnugt um, eru það ekki nema allra minnstu mannvirkin, sem ná þessu 85% marki. Dýrari framkvæmdir eru langt þar fyrir neðan.
Það er enginn vafi á því, að þessi viðbótarlán fiskimálasjóðs hafa orðið að miklu gagni. Það hefur aldrei verið auðvelt að afla lánsfjár út á eignir, sem búið var að veðsetja, jafnvel allt upp í 60%. En það eru einmitt slík viðbótarlán, sem fiskimálasjóður veitir, sem brúa þetta bil að meira eða minna leyti. En auk þessa veitir fiskimálasjóður styrki til margs konar rannsókna og framkvæmda í þágu sjávarútvegsins.
Í lögunum um fiskimálasjóð frá 1947 eru tvö ákvæði, sem takmarka lán úr sjóðnum. Annað ákvæðið er það, að ekki megi lána meira til neins mannvirkis en sem nemur 25% af kostnaðarverði þess. Hitt ákvæðið er það, að ekkert lán megi vera hærra en 150 þús. kr. Það er þetta síðara ákvæði, sem við flm. Þessa frv. leggjum til að verði breytt. Er till. okkar sú, að hámarkið megi vera 300 þús. kr. í stað 150 þús. kr.
Fyrir 15 árum var 150 þús. kr. lán ekki svo lítils virði fyrir fjárvana fyrirtæki. En þessi upphæð er orðin minna virði nú. Við skulum segja, að fiskvinnsluhús hafi kostað 600 þús. kr. fyrir 15 árum. Þá lánaði fiskimálasjóður 1/4 hluta kostnaðarins sem viðbótarlán við það, sem viðkomandi gat fengið lánað úr öðrum lánastofnunum. En ef slíkt fiskihús kostar nú fjórum sínnum meira t.d., þá lánar sjóðurinn ekki meira en 150 þús. kr. eða u.þ.b. 61/4% af kostnaðarverði fyrirtækisins. Samkvæmt þessu dæmi hafa lán fiskimálasjóðs rýrnað um 3/4.
Ég býst við því, að menn verði sammála um það, að fiskimálasjóði beri að veita hverjum lántakanda hliðstæða aðstoð í lánveitingum nú og til var ætlazt með lögunum, þegar þau voru sett 1947. En þetta verður ekki gert, nema breytt verði ákvæðunum um hámark lánanna í krónutölu. Það er að vísu fjarri því, að þessu marki verði náð að fullu með þeirri breytingu á lögunum, sem við flytjum hér. Til þess þyrfti að hækka hámark lánanna mun meira en hér er lagt til. Stofnkostnaður fiskvinnslustöðva og annarra slíkra mannvirkja hefur sannarlega hækkað mun meira en um helming á undanförnum 15 árum. En við höfum ekki séð okkur fært að þessu sinni að flytja tillögur um meiri hækkun, enda þyrfti þá að afla fiskimálasjóði mun meiri tekna.
Fiskimálasjóður hefur getað fullnægt þeim lánsumsóknum að undanförnu, sem honum hafa borizt og hafa verið innan þess ramma, sem lögin setja um lánveitingar úr sjóðnum. Tekjur sjóðsins hafa að sjálfsögðu farið nokkuð vakandi nú á undanförnum árum, með vakandi aflabrögðum og vakandi útflutningi sjávarafurða og hækkandi verði á þeim afurðum í krónutölu. Þá hefur nokkuð dregið úr lánveitingum sjóðsins á s.l. ári frá því, sem var árið áður, því að ýmsir aðilar, er höfðu fengið lánsloforð frá sjóðnum, hafa ekki notfært sér þau, sem sennilega stafar af því, að þeir hafa ekki ráðizt í þær framkvæmdir, sem þeir höfðu ákveðið. Af þessum ástæðum er það, að fiskimálasjóður hefði getað veitt mun meiri lán á s.l. ári en hann gerði. Mér telst svo til, að þótt öll 150 þús. kr. lánin, sem sjóðurinn veitti í fyrra, hefðu verið 300 þús. kr. lán, þá hefðu tekjur sjóðsins nægt til þess. En þar með er ekki sagt, að svo geti orðið á komandi árum. Aflabrögð hjá sjávarútveginum og verðlag á útfluttum sjávarafurðum hafa sín áhrif á tekjur sjóðsins, og eftirspurn eftir lánum er misjöfn frá ári til árs og fer eftir ýmsu. Þetta frv. breytir engu um lán til þeirra mannvirkja, sem kosta minna en 600 þús. kr. Ákvæði laganna um 25% hámarkið kemur í veg fyrir, að þau lán megi fara yfir 150 þús. kr. Og því ákvæði laganna gerum við enga till. um að breyta. En til þeirra framkvæmda, sem kosta meira en 600 þús. kr., — og flestar þeirra kosta meira og að sjálfsögðu miklu meira, — til þeirra framkvæmda mundi stjórn sjóðsins verða heimilt að lána meira en áður, ef þetta frv. yrði að lögum. Að sjálfsögðu mundi stjórn sjóðsins meta það við afgreiðslu hverrar einstakrar umsóknar, hvort lána ætti meira en áður, og haga sér einnig eftir fjárhag sjóðsins. Það var ekki heldur gert ráð fyrir því, þegar lögin um fiskimálasjóð voru sett 1947, að sjóðnum yrði unnt að fullnægja öllum lánsumsóknum. Í 5. gr. laganna segir, að lánin skuli einkum veitt til þeirra staða, þar sem er tilfinnanleg vöntun fyrirtækja til eflingar fiskveiðum og hagnýtingu sjávarafurða, en lítið fjármagn fyrir hendi.
Eftir þessari meginreglu hlýtur stjórn sjóðsins að fara, þegar meta skal umsóknir manna um lán úr sjóðnum, og hefur að sjálfsögðu einnig farið að undanförnu. Það má auðvitað búast við því, að ekki verði unnt að fullnægja öllum lánsumsóknum, eftir að hámark lána hefur verið hækkað eins og hér er gerð tillaga um. En það er betra að lána færri aðilum en áður og að lánin komi að gagni heldur en lána flestum eða öllum umsækjendum og að hjá mörgum verði þessi lán sáralítils virði. Það er sýnilegt, hversu mikils virði það er að fá lánaðar 150 þús. kr. í fyrirtæki, sem kostar 7—8 millj., það segir ekki mikið. En það er hins vegar mikils virði að fá lánaðar 150 þús. kr. til þess að byggja fiskverkunarhús, sem kostar 600 þús. kr.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta frv. að þessu sinni, nema sérstakt tilefni gefist. En ég legg til, að málinu verði nú vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.