30.03.1962
Efri deild: 75. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2486 í B-deild Alþingistíðinda. (2143)

161. mál, ættaróðal og erfðaábúð

Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):

Herra forseti. Eins og ég gat um við 1. umr. þessa máls, hafði landbn. nokkrar brtt. við þetta frv., sem búnaðarþing samdi í fyrra og sendi landbn. til álits. Ég gat þess þá, að þessar brtt. frá búnaðarþingi mundu verða athugaðar í nefndinni, og hefur nú landbn. fjallað um þessar till. og ákveðið að taka þær flestallar upp sem sínar brtt. við frv. Þessar brtt. eru á þskj. 598 og eru í 6 liðum.

1. liðurinn lýtur að 19. gr. laganna, d-liðurinn, sem lagt er til að niður falli, er um það, að erfðarétturinn gangi ekki til fjarskyldari ættingja en systkinabarna, og verður það að teljast eðlileg breyting, að erfðarétturinn gangi ekki til fjarskyldari, og virðist vera nauðsynleg samkvæmt fenginni reynslu.

2. breyt. er við 26. gr. l. Fyrri hluti gr. er fyllri og í fleiri stafliðum og er ekki efnisbreyting. Hins vegar er síðari hluti greinarinnar mikil rýmkun á skyldum ábúanda og eigenda ættarjarða og þeim í sjálfsvald sett, hvort þeir láta skrásetja þær sem ættarjarðir eða ekki. Þessi breyting er flutt að ósk margra, sem þessi lög snerta. Þetta er raunar mikil efnisbreyting, en verður að teljast nauðsynleg, enda hefur ákvæðum um skrásetningarskylduna lítið verið fylgt til þessa.

3. breyt. er afleiðing af breyt. við 26. gr. laganna.

4. breyt. gengur út á að rýmka eldri ákvæði um sölu ættarjarða og virðist nauðsynleg samkvæmt fenginni reynslu.

5. breyt. er nauðsynleg, vegna þess að á mörgum jörðum hvílir hærra veðlán en fasteignamati hennar nemur, en lögin gera ráð fyrir, að þær verði ekki seldar hærra verði.

Og svo er 6. breyt., hún er mjög lítils háttar, um jarðabótastyrk, að niður falli þarflaust ákvæði og til óþæginda.

Ég legg til, að þessar breytingar verði samþykktar. Þær hafa allar verið allvel athugaðar, fyrst hjá búnaðarþingi, síðan athugaðar í þeirri nefnd, sem samdi aðalfrv., sem hér liggur fyrir, og í þriðja lagi í landbn. Yfirleitt ganga flestar þessar breytingar, sem hér er um að ræða, í rýmkunarátt, sumar til samræmis við ábúðarlög, sem samin voru í fyrra og samþykkt, og aðrar til að auðvelda framkvæmd ættaróðalslaganna, sem er mjög flókinn lagabálkur og hefur sannast að segja verið mjög erfiður í framkvæmd og sum ákvæði ekki framkvæmd. Það heyrast um það fleiri og fleiri raddir, að þessi lög um ættaróðal og erfðaábúð séu svo flókin og svo mörgum takmörkunum háð, svo mikil skerðing á rétti þeirra manna, sem þau ná til, að þau séu mjög erfið í framkvæmd. Þar af leiðandi hafa heyrzt margar raddir um það, að eðlilegt væri að leggja lögin niður eða afnema þau, en það hygg ég að sé ekki tímabært. En ég held, að þær breytingar, sem hér er lagt til að gerðar séu á þeim, séu til bóta og allar nauðsynlegar.