05.04.1962
Neðri deild: 84. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2489 í B-deild Alþingistíðinda. (2152)

161. mál, ættaróðal og erfðaábúð

Frsm. (Ágúst Þorvaldsson):

Hæstv. forseti. Þetta frv. um ættaróðal og erfðaábúð var flutt í Ed. af landbn. að beiðni hæstv. landbrh. Þegar málið kom hér til 1. umr., fylgdi landbrh. því úr hlaði og gerði grein fyrir málinu. Ég sé ekki ástæðu til þess að endurtaka neitt af því, en hann færði rök fyrir flutningi frv. þá.

Landbn. þessarar hv. deildar hefur athugað frv. og var einhuga um að mæla með því, að það yrði samþ. hér óbreytt.

Aðalbreytingarnar, sem gerðar voru á frv. í Ed., voru tillögur, sem búnaðarþing hafði gert og samþ. Önnur efnisbreytingin var um það, að jörð verði ekki hér eftir ættarjörð nema með samþykki eiganda og ábúanda. En áður var það þannig, að þegar jörð var búin að vera í eigu eða ábúð sömu ættar í 75 ár, Þá var viðkomandi sýslumanni skylt að skrá hana sem ættarjörð, og þurfti ekki um það að ræða við eigandann eða ábúandann. Nú samkv. þeim breytingum, sem gerðar voru á frv. í Ed., verður til að koma ákvörðun eiganda eða ábúanda um það, hvort hann vill láta gera jörðina að ættarjörð. Og hún getur sem sagt ekki orðið ættarjörð nema með hans samþykki, og gildir það meðan hann býr á jörðinni.

Hin aðalbreytingin er í því fólgin að losa eiganda ættarjarðar við að leita lengra en til afkomenda sinna og að þeim frágengnum systkina sinna og afkomenda þeirra, þegar hann þarf að losna við jörðina eða fer af henni af einhverjum ástæðum. Að öllum þessum aðilum frágengnum er eigandanum heimilt að selja hverjum sem er jörðina. Áður varð að leita miklu lengra eftir ættingjum eiganda ættarjarðar.

Þá er þriðja aðalbreytingin sú, að ekki verði hér eftir skylt að selja jörðina fyrir fasteignamatsverð, eins og áður var, það var áður í lögunum þannig, heldur verði ekki skylt að selja jörðina fyrir lægra verð en þær veðskuldir, sem á henni hvíla.

Um frv. í heild er það að segja, að aðalbreytingarnar á því eru gerðar til samræmis við breytta tíma og til samræmis við ábúðarlögin, sem tóku gildi í fyrra, á síðasta þingi. Og ég tel, að það sé nauðsynlegt að lögfesta þetta frv, nú, vegna þess að gildandi lög um ættaróðal og erfðaábúð stangast í ýmsum atriðum á við ábúðarlöggjöfina, og þeim, sem eiga að framkvæma hana, er nauðsynlegt að fá þessa nýju löggjöf um ættaróðal og erfðaábúð. Ég held, að ég hafi svo ekki fleira um málið að segja, en vonast til, að það fái samþykki þessarar hv. deildar.