08.02.1962
Neðri deild: 45. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2490 í B-deild Alþingistíðinda. (2160)
121. mál, landshöfn í Keflavíkurkaupstað og Njarðvíkurhreppi
Flm. (Alfreð Gíslason bæjaratjóri):
Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 231 að flytja frv. til l. um breyt. á 4. gr. laga frá 1955, um landshöfn í Keflavíkurkaupstað og Njarðvík. Þessi grein fjallar um stjórn hafnarinnar, sem skipa fimm menn, og segir gildandi grein svo um það:
„Stjórn hafnarinnar skipa 5 menn: hafnarstjóri, skipaður af ráðherra þeim, sem fer með hafnarmál, og 4 meðstjórnendur, 3 kosnir af Sþ. og einn af bæjarstjórn Keflavíkurkaupstaðar og hreppsnefnd Njarðvíkurhrepps.“
Brtt. sú, sem hér er fram komin, er á þessa leið:
„Stjórn hafnarinnar skipa 5 menn: 3 kosnir af SÞ. og 2 kosnir hlutfallskosningu af bæjarstj. Keflavíkur og hreppsnefnd Njarðvíkurhrepps. Hafnarstjórn skal kosin til fjögurra ára í senn. Ráðherra sá, sem fer með hafnarmál, skipar formann hafnarstjórnar úr hópi stjórnarmanna. Hafnarstjóri skal ráðinn sem fastur starfsmaður hafnarinnar, en skipaður í starfið af áðurnefndum ráðherra. Hafnarstjóri skal hafa framkvæmdarstjórn og daglegan rekstur hafnarinnar með höndum. Hann situr fundi hafnarstjórnar og hefur þar tillögurétt.“
Eins og nú er, þá er hafnarstjóri skipaður til fjögurra ára. Hann er jafnframt skipaður formaður nefndarinnar og hefur þar tillögurétt. Þessi breyting er fram komin eftir eindregnum tilmælum landshafnarstjórnar, sem hefur fjallað um þetta undanfarið, og í nóv. 1960 var um það bókað í fundargerðarbók landshafnarstjórnarinnar þannig, að bæjarfélögin, sem að höfninni liggja, fái sinn fulltrúa í hafnarstjórn hvort í stað hins sameiginlega, eins og verið hefur, einnig, að hafnarstjóri verði ráðinn til ótakmarkaðs tíma, en ekki til fjögurra ára, eins og nú er, og að hafnarstjóri eigi ekki sæti í hafnarstjórn, en ráðherra skipi einn stjórnarmanna sem formann stjórnarinnar, en hafnarstjóri hefur verið formaður hafnarstjórnar. Hafnarstjórn mælti eindregið með því, að Alfreð Gíslason flytti brtt. um þetta á Alþingi.
Brtt. þessi, sem hér liggur fyrir, er komin aðallega af þeirri ástæðu, að byggðarlögin, sem að höfninni standa, hafa ekki sætt sig við það að hafa ekki nema einn fulltrúa kosinn úr þeim byggðarlögum í hafnarstjórninni. Þótt íbúatala Keflavíkur sé nú fjórföld á við íbúatölu Njarðvíkurhrepps, hefur það þó þannig verið, frá því að landshafnarlögin tóku gildi árið 1946 og þar til 1958, að á sameiginlegum fundi þessara sveitarstjórna var Njarðvíkingur ætið kosinn í nefndina og var allan tímann sá eini Njarðvíkingur, sem í henni átti sæti, því að atvikin hafa nú hagað því þannig, að þeir 3 menn, sem hv. Alþingi hefur kosið, hafa allir verið úr Keflavík. Það er því gert ráð fyrir í þessari nýju brtt., að þessi byggðarlög fái 2 menn, sem kosnir verði hlutfallskosningu, og það gerir, að það tryggir örugglega annan manninn úr Njarðvíkurhreppi.
Það þarf ekki að ræða það mikið í sambandi við hafnarstjórann, að það er ekki í sjálfu sér eðlilegt, að hann, sem hefur svo umfangsmikið fyrirtæki að reka, hafi sjálfur atkvæðisrétt um sínar eigin framkvæmdir á þessu sviði, og þar að auki má búast við því, að svo ótrygg atvinna eins og fjögurra ára atvinna í senn verði til þess, að nýtir og góðir menn, eins og núv. hafnarstjóri er og fleiri, sem ef til vill mundu um það sækja, mundu ekki geta sætt sig við það. Við höfum þar að auki haft ágætismönnum á að skipa í landshafnarstjórninni frá Njarðvíkurhreppi, og nú við kosningu í des. féll Njarðvíkingur út úr stjórninni, og er okkur, sem eftir sitjum, að mörgu leyti eftirsjá að því.
Til landshafnarinnar var stofnað með lögum 23. apríl 1946, og var þá ákveðið, að ríkisstj. skyldi gera og starfrækja hafnarmannvirkin í Keflavíkur- og Njarðvíkurhreppum, og að svo hafi verið ákveðið í sambandi við stjórn hafnarinnar eins og getið er um í þeim lögum, sem hafa verið óbreytt síðan, mun vera vegna þess, að þetta var fyrsta landshöfnin í landinu, og hefur þetta fyrirkomulag um skipun stjórnarinnar meira verið til reynslu og til athugunar og til breytingar, ef annað þætti heppilegra síðar.
Hvað snertir fulltrúa frá ríkisstj. í nefndinni, þá tel ég, að hún sé nægilega trygg með meiri hlutann, þar sem eru 3 þingkosnir stjórnarmeðlimir í landshöfninni nú eins og áður, en hafnarstjóri, sem skipaður var af ráðh, og eiginlega fjórði fulltrúi ríkisstj., hverfur þá úr stjórninni, missir þar atkvæðisrétt, en hefur fullkominn tillögurétt. En sveitarfélögin fá þá sitt hvorn mann.
Um þetta fyrirkomulag, sem hefur gilt síðan landshöfnin byrjaði að starfa, hefur verið mikil óánægja með mönnum þar syðra og metingur um það og sauð upp úr 1958, þegar bæjarstjórn Keflavíkur treysti sér ekki lengur til þess að styðja Njarðvíking í landshafnarstjórnina. Hafnarmálin suður með sjó hafa alla tíð, eins og víðast hvar annars staðar á landinu, verið mjög viðkvæm mál, og með þeim er fylgzt af öllum almenningi og öllum framkvæmdum þar og því, sem gert er, og ekki síður því, sem ekki er gert. Fyrir 1942 voru Njarðvíkurhreppur og Keflavík eitt og sama bæjarfélag, sem hét Keflavíkurhreppur. Þau skildu þá. Njarðvíkurhreppur krafðist skilnaðar, og skildu þau að skiptum um áramótin 1941—1942, aðallega vegna hafnarmálanna.
Það má segja, að upphaf hafnargerðar í Keflavík hafi byrjað, er Óskar Halldórsson útgerðarmaður byggði á árunum 1932–1934 hafskipabryggju úr timbri og járni, aðallega til útskipunar og uppskipunar, og síðan byggði hann innan þessarar hafskipabryggju 60 m langan hafnargarð úr steinsteypu. 1941 keypti Keflavíkurhreppur þessi mannvirki Óskars Halldórssonar, og var á næstu árum hafist handa um framkvæmdir í hafnargerð í Vatnsnesvíkinni. Njarðvíkingar munu þá eðlilega hafa séð fram á, að lítið yrði um framkvæmdir þeirra megin eða í Njarðvíkinni, enda var það víst og öruggt, að ekki fengist fé úr ríkissjóði til tveggja hafnargerða í sama hreppi eða sama sveitarfélagi. Vegna þessa slitu Njarðvíkingar félagsskap við Keflavík, eins og ég gat um áðan, frá 1. jan. 1942.
Árið 1945 hófust fyrst hafnarframkvæmdir í Njarðvík af hálfu hins opinbera. En eftir að hrepparnir skildu og Njarðvík fór að sækja á ríkissjóð um hafnarframlög, þá var úr vöndu að ráða fyrir hið háa Alþingi og ríkisstj. að veita fé til tveggja hafnargerða svo nálægt hvor annarri, og var fyrirsjáanleg togstreita um þær framkvæmdir og fjárframlög til þessara fyrirtækja, eins og eðlilegt er. Þetta var mikið vandamál á þeim tímum, og var margt gert til þess að miðla málum af vitamálastjórn og ríkisstj., en ekki gekk saman. Þetta mál leystist þó með því, að ríkissjóður ákvað að kaupa og keypti öll hafnarmannvirki í Keflavík með afsali hreppsins 8. nóv. 1947, og var það gert á grundvelli landshafnarlaganna, nr. 25 1946. Síðan hafa framkvæmdir átt sér stað á þessum stöðum á hverju ári nokkuð, en engin stórátök gerð. Hafskipabryggja Óskars Halldórssonar var endurbyggð og treyst og hafnargarður hans einnig, sem var 60 metrar, hann er nú orðinn 225 metra langur, og fjórar steinsteyptar bátabryggjur eru innan garðsins. Í Njarðvík hafa einnig framkvæmdir átt sér stað og verið byggður þar hafnargarður um 200 m langur og steinbrík um 160 m löng, en þar er dýpi við þá bryggju aðeins 2 metrar og það aðeins á 30 metrum af þessum garði. Það skortir mjög mikið á, að þetta sé nægilegt.
Forsendur ríkisstj. fyrir því að kaupa þessi mannvirki og reka þau sem landshöfn voru fyrst og fremst þær að skapa skilyrði þar fyrir útgerð báta frá öðrum landshlutum, bæði að norðan og þó einkum að austan, enda sækja bátar frá þessum landshlutum mjög á haustog vetrarvertíðum að verstöðvaplássunum suður með sjó. En til að fullnægja þessari þörf skortir enn mjög á. Höfnin er allt of lítil, og það þarf stórt átak til þess að kippa því í lag, svo að landshöfnin geti í raun og veru náð tilgangi sínum.
Það var fyrir jólin útbýtt hér þálitill. um 10 ára framkvæmdaáætlun um hafnargerðir, sem hv. þm. kannast eflaust við eða hafa gluggað í. Þar er gert ráð fyrir að verja allt að 38.6 millj. kr. til framkvæmda á næstu 10 árum í landshöfnina í Keflavík og Njarðvík. Að þessum framkvæmdum loknum mundi þetta skapa öryggi fyrir 60 stærri báta og 25 smærri báta innan hafnarinnar á báðum stöðunum. Að mínu áliti nær þetta allt of skammt, þar sem nú er vitað, að bátarnir fara ár frá ári sístækkandi og eru því rúmfrekari en áður og fjölgar um leið. Árið 1959 lagði einn hafnarnefndarmanna, Bjarni Einarsson, mikla vinnu í það að gera 6 ára framkvæmdaáætlun fyrir Keflavík og Njarðvík, og var sú áætlun send vitamálastjóra, og hann mun hafa gert áætlun um, að kostnaðurinn af þessu mundi nema um 48.1 millj. kr. En að þeim endurbótum loknum, þá var hugsað, að þær mundu verða til þess, að hægt væri að afgreiða við góð skilyrði 3 flutningaskip og hægt verði að afgreiða við góð skilyrði 25 fiskibáta að stærð allt að 150 tonn, og í þriðja lagi væri séð fyrir öruggu geymsluplássi innan hafnarinnar fyrir allt að 150 fiskibáta af stærðunum 75–150 tonn. Landshöfnin hefur farið þess á leit að fá að taka sérstakt erlent lán til þessara framkvæmda, og hefur verið um það talað við hæstv. sjútvmrh. og hefur hann tekið mjög vel í það, og eru þau mál nú til athugunar.
Sem rök fyrir því, hversu höfnin er nú ófullkomin og litil, skal ég geta þess, að nú í vetur eru skráðir eða búizt við að út muni gera í Keflavík um 55 bátar. En í höfninni eru oft daglega 70—105 bátar í einu. En löndunarskilyrðin eru þau í Keflavík sjálfri, að við beztu skilyrði, þ.e. á stórstraumsflóði, mun aðeins vera hægt að landa úr 14 bátum í einu, en við stórstraumsfjöru aðeins 10. Þar að auki er Keflavíkurhöfn eins konar lífhöfn annarra verstöðva á Suðurnesjum. Þegar veður og brim gera það að verkum, að Grindavík og Sandgerði lokast, leita bátar þaðan til Keflavíkur, og eins og gefur að skilja, er í Þrengslunum erfitt að veita svo mörgum bátum skjól. Það er því oft einstök heppni, að ekki verði sjótjón á mönnum og skipum í slíkum veðrum, en sem betur fer hefur það farið betur en ástæða væri til að ætla.
Sem dæmi um þýðingu landshafnarinnar fyrir þjóðarbúið í heild mundi ég gjarnan vilja láta ykkur heyra, hv. þm., fróðleik um tölur, sem tala sínu máli í sambandi við útflutning og aðflutning um þessa höfn og einnig skipastól, frystihús og önnur slík framleiðslufyrirtæki.
Í þessum verstöðvum, Keflavík, Sandgerði, Grindavík og Njarðvík, munu nú vera íbúar eitthvað um eða rúmlega 7600. Skipastóllinn mun vera um 3805 rúmlestir. Það mun hafa komið afli á land í þessum verstöðvum 1960 nálægt 60 þús. tonnum. Frystihús eru 7 í Keflavík, 2 í Sandgerði og 2 í Grindavík, þ.e. alls 11 frystihús. Söltunarstöðvar á öllum þessum stöðum eru 19 að tölu, og fiskimjölsverksmiðjur fjórar. Vinnslugeta hraðfrystihúsanna er í Keflavík 310 tonn hráefnis á dag. Í Sandgerði 100 og Grindavík 70, þ.e. vinnslugetan er um 480 tonn á dag á þessum þremur stöðum. Fiskimjölsverksmiðjurnar geta afkastað í Keflavík 1800 málum síldar á sólarhring, Sandgerði 10 tonnum mjöls á sólarhring og í Grindavík 500 málum síldar á sólarhring. Allur fiskur og síld, sem berst á þessar þrjár verstöðvar, er flutt út um mannvirki landshafnarinnar. 1961 munu hafa verið flutt út yfir þessi hafnarmannvirki um 33500 tonn af sjávarafurðum, og verðmæti þeirra eru samtals um 360 millj. kr., en það gerir sem næst 12% af öllum útflutningi sjávarafurða landsmanna. Yfir hafnarmannvirkin voru flutt á árinu 1961 50 þús. tonn af nýjum fiski og síld, og það eru 8.5% af heildarafla landsmanna á árinu. Flutningar yfir mannvirkin voru s.l. ár 151191 tonn, og ég fullyrði, að landshöfn Keflavíkur er nú orðin önnur stærsta útflutningshöfn á landinu. Tala flutningaskipa á árinu 1961 var 344, og skráðir viðkomudagar fiskibáta skipta þúsundum yfir árið.
Það er augljóst af þessum tölum, að mikið átak þarf að gera í hafnarmálum landshafnarinnar og raunar hafnarmálum Suðurnesja. Og eins og séð verður af útflutningsverðmæti, sem fer frá Reykjanesskaganum og er um 12% af öllum útflutningi á sjávarafurðum landsmanna og nemur 360 millj. kr., er það ekki svo lítill skerfur, sem þessi útkjálki leggur í þjóðarbúið af erlendum gjaldeyri. Það hefur einnig komið til tals þar syðra að gera eitt allsherjarátak á þessum þremur stærstu verstöðvum, Keflavík, Grindavík og Sandgerði, og fá þessar verstöðvar allar undir eina landshöfn. Það kemur vissulega til athugunar, hvort það væri ekki heppilegt, að slíkt gæti átt sér stað. Það þarf ekki að tala um það, að smábátahöfn í Keflavík er ekki til, og er nauðsynlegt, að úr því verði ráðið og að það verði eitt af höfuðverkefnum landshafnarstjórnarinnar að setja inn á sína framkvæmdaáætlun að búa örugga höfn fyrir smábátana eða trillurnar. Þær munu nú vera milli 40 og 50 á báðum þessum stöðum, en eru gersamlega óvarðar og í hættu fyrir veðrum og öðru. Þetta eru milljónaverðmæti, sem þarna eru í veði, en mætti leysa með einhverjum tilkostnaði og verður að gerast, áður en langt um liður.
Ég hef nú farið nokkuð út fyrir hið raunverulega efni frv. míns, en vildi gjarnan vekja athygli hv. þm. á, hversu geysimikla þýðingu þessi hafnarmannvirki hafa fyrir þjóðarbúið í heild, öryggi sjómanna og eigna útgerðarinnar.
Ég hef borið brtt. mína við 4. gr. landshafnarlaganna núgildandi undir hæstv. sjútvmrh., og hann hefur með skilningi litið á afstöðu okkar þar syðra og hefur talið eðlilegt, að byggðarlögin fengju þar meira en einn mann og ekki sízt nú, þar sem Njarðvíkingar mundu engan fulltrúa hafa í nefndinni næstu 4 árin að óbreyttu ástandi.
Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um þetta, en legg til, að frv. verði visað til 2. umr. og allshn.