12.03.1962
Neðri deild: 65. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2495 í B-deild Alþingistíðinda. (2164)
121. mál, landshöfn í Keflavíkurkaupstað og Njarðvíkurhreppi
Frsm. (Matthías A. Mathiesen):
Herra forseti. Það nál., sem hér liggur fyrir á þskj. 368 um frv. til l. um breyt. á lögunum um landshöfnina í Keflavíkurkaupstað og Njarðvíkurhreppi, hefur verið til umr. hjá sjútvn., og mælir nefndin með því, að málið nái fram að ganga, að vísu, eins og fram kemur í nál., með fyrirvara tveggja hv. þm., og einn þm., hv. 7. landsk., Geir Gunnarsson, var fjarstaddur.
Þetta frv. fjallar um að gera smávægilega breytingu á stjórn landshafnarinnar og er flutt hér að ósk núv. stjórnar landshafnarinnar, og hefur sjútvmrn., sem nú skipar einn mann í stjórnina, ekkert við það að athuga, að í stað þess, að sá aðili sé skipaður af hálfu ráðuneytisins, þá verði kosnir tveir sameiginlega af sveitarstjórnum Keflavíkurkaupstaðar og Njarðvíkurhrepps og að formaður landshafnarstjórnarinnar verði hins vegar skipaður af ráðuneytinu úr hópi stjórnarmanna. En eins og kunnugt er, eru svo hinir þrír kjörnir hlutfallskosningu hér af hv. Alþingi. Nefndin leggur því til, með þeim fyrirvörum, sem þessir hv. þm. munu e.t.v. gera grein fyrir, að málinu verði vísað til 3. umr.