09.04.1962
Efri deild: 82. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2502 í B-deild Alþingistíðinda. (2190)
142. mál, sjúkraþjálfun
Frsm. (Kjartan J. Jóhannsson):
Herra forseti. Nefndin hefur rætt þetta frv. og samþ. shlj. að mæla með samþykkt þess. Einstakir nefndarmenn áskildu sér þó rétt til að bera fram eða fylgja brtt.
Það hafa komið fram brtt. frá hv. 9. þm. Reykv. (AGl) og hv. 1. þm. Norðurl. e. (KK). Ég vildi mælast til þess, að þeir tækju þessar brtt. aftur til 3. umr. og þá gæti n. fjallað um þær.
Það hefur líka komið bréf frá landlækni um þetta frv. Hann leggur til nokkuð svipaða breytingu og þarna er farið fram á, og ég vildi leggja til, að n. fjallaði um þetta á milli umr., og sjá, hvort ekki yrði samkomulag um afgreiðslu þessara breytinga, sem þarna hefur verið rætt um. En að öðru leyti leggur n. til, að frv. sé samþ. og vísað til 3. umr.