12.04.1962
Neðri deild: 90. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2503 í B-deild Alþingistíðinda. (2196)

142. mál, sjúkraþjálfun

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Ég leyfði mér í vetur að flytja frv., sem prentað er á þskj. 275 og fjallar um sjúkraþjálfun. Það var samþykkt óbreytt í þessari hv. d., fór síðan til Ed., og þar voru gerðar á því nokkrar breytingar. Ég verð að segja, að ég hafði vonazt til, að það gengi óbreytt einnig í gegnum þá deild, en vil taka fram á þessu stigi, að ég felli mig eftir atvikum við þær breytingar, sem þar voru gerðar, með sérstöku tilliti til þess, að hægt er að setja í reglugerð ákvæði í samræmi við 4. gr. frv., eins og það nú er orðið, þannig að það haldi sínum upphaflega tilgangi, sem fólst í einni grein, sem þar var felld burt, en þar var tekið fram, að ekki mættu læknar hafa í þjónustu sinni annað fólk til að framkvæma sjúkraþjálfun en þá, sem væru fullgildir sjúkraþjálfarar samkv. lögum þessum. Það mun ekki hafa verið tilgangur þeirra, sem þessar breytingar gerðu á frv., að þessi takmörkun væri felld burt úr frv. í raun og veru, en hins vegar er orðalagið orðið svo rúmt í frv. núna, að ég tel ástæðu til að taka Þetta sérstaklega fram og vonast til, að það fari óbreytt í gegnum þessa hv. d., eins og það nú er orðið. Ég tel ekki á það hættandi að tefla frv. í tvisýnu með því að fara að leggja til, að gerðar verði á því enn frekari breytingar, og vonast til, að það verði samþykkt í þessari mynd.