03.04.1962
Neðri deild: 82. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2509 í B-deild Alþingistíðinda. (2207)
192. mál, skólakostnaður
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Á fundi, sem Fjórðungsþing Vestfjarða hélt s.l. haust með þm. Vestfirðinga, var samþykkt ályktun þess efnis að fela Vestfjarðaþingmönnum að freista þess að fá því framgengt við ríkisvaldið, að rekstur héraðsskóla yrði kostaður að öllu leyti af ríkinu. Þetta byggðist á því, að rekstur héraðsskólanna á Vestfjörðum: Reykjaskóla í Hrútafirði, hann má telja þar til, Reykjanesskóla og Núpsskóla í Dýrafirði, hafði reynzt þungur í skauti þeim héruðum, sem að þessum skólum standa, og eftir því sem skólunum fjölgaði, höfðu þau héruð færzt saman, sem stóðu að rekstri hvers skóla um sig. Þetta mál var rætt í hópi Vestfjarðaþingmanna snemma á þinginu og 1. þm. Vestf. falið að ræða það við menntmrh., og skýrði hann okkur svo frá oftsinnis, þegar hann var að því spurður, að frv. um þetta væri rétt ókomið frá hæstv. ríkisstj. og hefði menntmrh. lofað því, að frv. um þetta kæmi.
En vikur og mánuðir liðu, og ekkert slíkt frv. kom. Skömmu áður en hv. 1. þm. Vestf. fór á fund Norðurlandaráðs, spurði ég hann að þessu, og sagði hann þá, að enn stæðu málin svo, að hæstv, menntmrh. teldi, að frv. frá sér um þetta efni væri rétt ókomið. Svo liðu örfáir dagar og hv. þm. Sigurður Bjarnason tók sæti þm. og bar þá fram slíkt frv., það frv., sem hér er á þskj. 434, án alls samráðs við aðra þm. Vestf., en ásamt flokksbræðrum sínum, Gunnari Gíslasyni, Friðjóni Þórðarsyni og Jóni Kjartanssyni. Þetta er ekkert stóratriði, en þó fannst mér þetta þá mjög óviðkunnanlegt; að málið var í höndum Vestfjarðaþingmannanna og var talið vera í höndum ríkisstj., þannig að Vestfjarðaþm. biðu aðeins eftir því, að ríkisstj. flytti málið, en svo var það flutt í frumvarpsformi með öðrum þm., en án nokkurs samráðs við samþingismennina á Vestfjörðum.
Það var út af þessu, sem ég beindi þeirri fsp. til hæstv. menntmrh., þegar þetta frv. kom hér til 1. umr., hvort þetta væri það frv., sem hæstv. menntmrh. hefði margsinnis lofað í vetur. Hann var hér í hv. deild, en svaraði engu, um það fékkst engin vitneskja.
Nú hefur málið verið athugað í nefnd og tekið allmyndarlegri breytingu, myndbreytingu svo rækilegri, að sjaldgæft mun vera, að frv. breytist því líkt, en verður þó að telja, að efni þess komist í hófu. Það hefur nú oftast verið litið svo á hér á Alþingi, að í 1. gr. fælist meginefni frv., og fyrsta breytingin við þetta frv. er sú, eins og hér var gerð grein fyrir áðan, að 1. gr. falli niður, en ekki nóg með það, einnig 2. gr. á að falla niður, og 3. gr. fær ekki að standa óbreytt, heldur á að koma við hana viðbót. Þá er maður nú kominn langleiðina í gegnum frv., því að svo er eftir 4. gr., sem er tilvitnun í það, að ákvæði laga nr. 18 frá 1958 skuli falla niður að því er tekur til heimavistarskóla gagnfræðastigsins, innan sviga: héraðsskóla. Og svo 5. gr. um, að ákvæði laga þessara skuli gilda frá 1. jan. 1962.
En breytingin, sem gerð er á 3. gr., er sú, að heimavistarskólar gagnfræðastigs (héraðsskólar), — þ.e.a.s. þetta á ekki að ná til hinna almennu gagnfræðaskóla, ekki neinna þeirra, ekki þó að þeir séu heimavistarskólar, heldur, skilst mér, skýringin þarna innan sviga, héraðsskólar, virðist eiga að takmarka þetta við hina svonefndu héraðsskóla, en að skilningi fræðslulaga geta þetta hvort tveggja verið gagnfræðaskólar, — sem nú eru starfræktir að Laugarvatni, Laugum, Núpi, Reykholti, Reykjanesi, Reykjum og Skógum, skuli vera séreign ríkisins. Skuli sveitarfélög afhenda ríkissjóði skuldlaust og kvaðalaust sinn hluta í áföllnum kostnaði þeirra, eins og hann er í árslok 1961. Nú er ég ekki svo nákunnugur fjárhagsástandi skólanna sem fyrirtækja, hvort vegna niðurlagsins á þessari grein leiði það, að héruðin verði að borga upp mikið af skuldum, sem hvíli á stofnununum, eða hvort í þessu felist það, að ríkið taki við stofnununum með þeim skuldum og inneignum eða þeim fjárhag, sem þær nú hafa. Mér skilst þó, að sveitarfélögin verði að gera alveg hreint borð, ekki aðeins afhenda stofnanirnar eins og þær standa, heldur verði að borga upp skuldirnar, sem hvíla á skólunum, að þeirra hluta, því að það á að afhenda þær ríkissjóði skuldlaust og kvaðalaust, að því er snertir hluta sveitarfélaganna, skv. uppgjöri í árslok 1961. Þetta mundi ég nú óska að fengist skýrt nánar, því að nokkru máli skiptir það, hvort e.t.v. mörg hundruð þúsunda eða jafnvel milljóna fúlgur verða að greiðast af sveitarfélögunum við afhendingu skólanna, þegar þetta frv. tekur gildi, ef það verður að lögum.
Ég held, að þarna séu allir nú starfandi héraðsskólar teknir með. Ég held það. Ég man ekki eftir, að það vanti þarna neinn í upptalninguna, því að Eiðaskóli er nú þegar eign ríkisins og hefur verið frá því að hann sem búnaðarskóli var gefinn ríkinu. Hins vegar er ég hræddur um, að héraðsgagnfræðaskólar, gagnfræðaskólar, sem væru heimavistarskólar, það muni koma óskir um það, að þeir verði þá ríkiseign líka að þessu frv. samþykktu.
Því er ekki að neita, að þrátt fyrir að niður sé felld 1. gr. frv. hv. þm. Sigurðar Bjarnasonar og 2. gr. og 3. gr. gerbreytt og 4. gr. felld niður og 5. gr. orðuð um, þannig að ekkert stendur eftir af frv. nema nokkrar línur í 3. gr., þá virðist í þessu frv. svona breyttu nást meginhlutinn af því, sem okkur þm. Vestf. var falið að reyna að ná fram og við gerðum okkur vonir um að fengist leyst með stjórnarfrv. frá hæstv. menntmrh., en aldrei hefur komið og engin svör fengust um í sambandi við þetta mál, þegar það var hér lagt fram. Málið hefur því skýrzt svona í meðförunum af sjálfu sér, þó að einhverjar fæðingarhríðir hafi bersýnilega farið fram í sambandi við svona gagngera umbreytingu á frv. Ég geri ráð fyrir því, að því megi treysta, að hæstv. ríkisstj. ætli þessu frv. líf og að það nái fram að ganga á þessu þingi. Þó að það bæri þannig að og ekki að öllu leyti að því er snertir flutninginn út frá félagslegum skyldum, ef menn hafa tekið mál sameiginlega að sér, þá hefur þó úr þessu rætzt svo, að við má una.
Ég skal ekki fjölyrða frekar um þetta, en mundi vilja óska þess, að hv. frsm. gæfi á því skýringu, sem felst þarna í niðurlagsorðum 3. gr., eftir að henni hefur verið breytt, hvað felist í því, að sveitarfélögin skuli afhenda ríkissjóði skuldlaust og kvaðalaust sinn hluta í áföllnum kostnaði þeirra, eins og hann er í árslok 1961.