24.10.1961
Efri deild: 8. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í B-deild Alþingistíðinda. (224)
17. mál, dómsmálastörf, löglreglustjórn, gjaldheimta o.fl.
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Þetta mál, sem hér liggur fyrir, er í raun og veru framhald af hliðstæðu máli, sem lá fyrir síðasta Alþingi og var þá afgreitt, um breytingu á sakadómaraembættinu í Reykjavík, að gera fulltrúana, sem starfa við þessi embætti, sjálfstæðari en þeir hafa verið, svo sem að kveða upp dóma í umboði sakadómara í því tilfelli og nú samkv. þessu frv. í umboði borgardómara og úrskurði í umboði borgarfógeta, að þeir séu sjálfstæðir aðilar í þessu sambandi. Er lagt til, að í Reykjavík skuli nú vera 5–7 borgardómarar, og það miðast við fulltrúastörf þeirra manna, sem þar eru, og enn fremur 5–7 borgarfógetar og svo einn yfirborgarfógeti og yfirborgardómari: Allt þetta miðast við það í raun og veru, en enga fjölgun á embættunum, en að fulltrúarnir sjálfir hafi með þessu móti sjálfstæðari tilveru en ella. En þeirra ábyrgð og skylda er sú sama, sem áður hefur verið. Ég tel óþarft að hafa fleiri orð um þetta, en leyfi mér að leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.