04.04.1962
Neðri deild: 83. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2530 í B-deild Alþingistíðinda. (2254)

216. mál, happdrætti Styrktarfélags vangefinna, lamaðra og fatlaðra og Sjálfsbjargar

Frsm. (Birgir Finnsson):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. flutti á s.l. ári frv. til laga um skattfrelsi vinninga í happdrætti þriggja félaga, Styrktarfélags vangefinna, Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og Sjálfsbjargar - landssambands fatlaðra. Nefndinni hafa borizt erindi um, að flutt verði á þessu þingi sams konar frv., sem heimili það, að vinningar í happdrættum þessara félaga verði skattfrjálsir. Um þær mundir, sem heilbr.- og félmn, var að ganga frá frv. um þetta efni, barst henni erindi í hendur, sem hafði komið til Ed. um sams konar mál frá Krabbameinsfélagi Reykjavíkur, og það varð að samkomulagi, að heilbr.- og félmn. Nd. flytti frv. þessu viðvíkjandi fyrir öll þessi fjögur félög.

Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það, að þessi félög vinna öll mikið og gott starf, og þeim mun vera nokkur styrkur að þeirri fjáröflun, sem þau geta haldið uppi með umræddum happdrættum. Það kemur t.d. fram viðvíkjandi Krabbameinsfélagi Reykjavíkur, að á árinu 1961 hafði það þrjú happdrætti með þrem farartækjum. Hreinn ágóði var 612 846 kr. Þá voru vinningarnir í því happdrætti ekki skattfrjálsir. En það er talið, að það örvi nokkuð sölu á miðum í slíkum happdrættum, ef vinningar eru skattfrjálsir. Þess er einnig getið, að tekjum af happdrætti Krabbameinsfélags Reykjavíkur sé varið þannig, að þær renna til Krabbameinsfélags Íslands, sem sér um framkvæmdir í krabbameinsvarnarmálum, m.a. með rekstri leitarstöðvar í Reykjavik, krabbameinsskráningu fyrir allt landið og með útgáfu fræðslublaðs og rita.

Ég leyfi mér að vænta þess fyrir hönd heilbr.- og félmn., að þetta mál fái greiða afgreiðslu í hv. deild. Málið þarf ekki að fara til nefndar.