24.10.1961
Efri deild: 8. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í B-deild Alþingistíðinda. (226)
17. mál, dómsmálastörf, löglreglustjórn, gjaldheimta o.fl.
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Ég get vel skilið þá aths., sem hér hefur komið fram, og ég vil láta þess getið, að ákvæði 2. og 3. gr. um 5–7 borgardómara og borgarfógeta mætti mjög gjarnan athugast í þeirri nefnd, sem fær þetta mál til meðferðar, og sjálfur vildi ég mega óska eftir því að mega hafa samráð við n., áður en hún afgreiðir málið að þessu leyti.