13.04.1962
Neðri deild: 91. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2533 í B-deild Alþingistíðinda. (2274)
226. mál, Framkvæmdabanki Íslands
Elnar Olgeirsson:
Hæstv. forseti. Ég hefði að vísu kosið heldur að sjá eitthvert annað frv. um Framkvæmdabanka Íslands en þetta. Ég held, að það hefði verið tími til kominn í sambandi við breytingar á bankalöggjöfinni að leggja þann banka niður, og mér sýnist ástandið vera orðið þannig núna í sambandi við lántökur fyrir ríkissjóð, að það sé raunar vart héðan af hægt að sjá á milli, hvort það sé Framkvæmdabankinn eða Seðlabankinn, sem eigi að taka að sér að útvega fé fyrir ríkissjóð. Um tíma var þetta orðið þannig, að einn bankastjóri Seðlabankans var venjulega sendur f.h. Framkvæmdabankans til útlanda til að taka lán handa ríkissjóði, vegna þess að frá því að Framkvæmdabankinn var stofnaður 1953, þá hafði hann einkaréttindi til þess. Ég álít, eins og ég sagði, þegar bankalögin voru til umræðu, þær breytingar, sem hæstv. núv. ríkisstj. gerði á þeim, að það hefði þá átt að sjá um, að Seðlabankinn tæki þetta að sér, og það er miklu eðlilegra.
Nú sé ég hins vegar, að það er farið fram á, að gömlu heimildirnar, sem voru, almennu heimildirnar um Framkvæmdabankann, séu nú hækkaðar upp í 400 millj. Ég verð að segja, að ég kann ákaflega illa við þessar afgreiðslur á málum hér á Alþingi. Af hverju er alveg ómögulegt að koma þessum hlutum á hreint, þannig að þegar búið er að stofna sérstakan seðlabanka, sem þar að auki hefur eins konar yfirstjórn að heita má á okkar efnahagsmálum og líka gagnvart hinum bönkunum, sé hægt að láta þennan banka hafa með þetta að gera?
Það er atriði, sem ég vildi minnast á, fyrst hér er verið að fara fram á 400 millj. kr. lánsheimild og hæstv. ríkisstj. hefur kosið að hafa þann hátt á að láta Framkvæmdabankann taka þetta lán. Ég álít þetta frekar óviðfelldna afgreiðslu. Það hefði verið heppilegra, að það hefði verið komið almennilegri reglu á þetta viðvíkjandi Seðlabanka Íslands. Þá er hitt atriðið, að veita slíka lánsheimild alveg út í bláinn. Það er tekið fram, að það sé ekki neitt sérstakt haft í huga, heldur aðeins sagt: Það er þægilegt að mega taka lán upp á 400 millj. og þurfa ekkert að vera að ræða við þingið um það.
Ég vil átelja þennan máta á framkvæmdum. Það að veita fé og veita lán er eitt af því, sem ákveðnast er tekið fram sem vald Alþingis gagnvart ríkisstj. í stjórnarskránni. Það að gera þetta svona almennt, að ríkisstj. gæti farið að taka 400 millj. kr. lán til hvers sem henni þóknast og eigi svo bara einhvern tíma seinna meir að gera þinginu grein fyrir þessu, jafnvel kannske bara láta þá grg. fylgja með í eins konar smáskýrslu, sem gefin er og þyrfti kannske ekki einu sinni að samþykkja, þetta þýðir, að valdið yfir ráðstöfunum ríkisins á fé er að fara meir og meir úr höndum Alþingis og í hendur ríkisstj.
Ég álít, að það væri mjög æskilegt, að hv. fjhn, þessarar d., sem flytur þetta mál eftir beiðni ráðh., athugaði það á milli 1. og 2. umr. og við fengjum að heyra það við 2. umr., hvort fjhn. hefði ekki getað fengið neinar upplýsingar um það, til hvers ríkisstj. hugsaði sér að verja þessu fé. Hins vegar mun ég náttúrlega vera með því, að mál þetta gangi til 2. umr., en álít eðlilegt, að sá háttur væri á hafður. Það er ekki nema kurteisi að verða við þeim beiðnum ráðh. að flytja mál, en við vitum, að ef n. eins og fjhn. verður við þeirri ósk að flytja mál, þá losar það formlega séð n. við það, að málinu sé vísað til hennar. Ég vildi hins vegar mega mælast til þess, ekki sízt af því að allir fjhn.- menn hafa ekki verið viðstaddir, þegar þetta var afgr., að þótt málinu sé ekki vísað til fjhn., þá komi hún saman og ræði málið, áður en til 2. umr. kemur.