16.04.1962
Efri deild: 92. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2543 í B-deild Alþingistíðinda. (2325)
189. mál, skipun prestakalla
Frsm. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Menntmn. hefur rætt þetta frv. á tveim fundum, en áður hafði það að ósk hæstv. kirkjumrh. verið sent til umsagnar kirkjuráði. Var umsögn kirkjuráðs jákvæð.
Eins og fram kemur í nál., leggur n. til, að frv. verði samb. með þeirri breytingu, að aftan við 2. gr. bætist: „Jafnframt eru úr gildi felldir e- og f-liðir 1. gr. laga nr. 17 20. apríl 1959.
Það hefur komið í ljós, að í þessum lögum, þessum tveim liðum, eru sérákvæði um tvö prestaköll, þ.e. Æsustaðaprestakall í Húnavatnsprófastsdæmi og Vatnsendaprestakall í S-Þingeyjarprófastsdæmi. Þessi sérákvæði mundu væntanlega standa óhögguð brátt fyrir það. þó að þetta frv. yrði samþ. eins og það liggur fyrir, sú almenna heimild, sem í því felst. og er því nauðsynlegt að taka beint fram, að niður falli þessi sérákvæði. Í þeim ákvæðum er heimild til að flytja prestsetur með nánar tilteknum skilyrðum, en það mun hafa sýnt sig í framkvæmdinni, að þau skilyrði hafa ekki komið að gagni, eins og upphaflega var ætlazt til.
N. leggur sem sé einróma til, að frv. verði samþ. með þessari breytingu.