04.04.1962
Neðri deild: 83. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2561 í B-deild Alþingistíðinda. (2351)

167. mál, lögskráning sjómanna

Forseti (BGr):

Þessar umræður taka nú að snúast nær eingöngu um mál, sem nýlega er búið að afgreiða. Þótt það mál sé skylt þessu, vil ég mælast til þess, að hv. þm. haldi sig við það mál, sem er á dagskránni.