04.04.1962
Neðri deild: 83. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2561 í B-deild Alþingistíðinda. (2352)
167. mál, lögskráning sjómanna
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Það er vissulega satt, sem hv. 7. landsk. sagði hér áðan, að ef frv. hans og mitt á þskj. 25 um 200 þús. kr. dánarbætur og slysabætur til allra sjómanna hefði verið samþ., þá hefði þetta kákfrv. verið óþarft með öllu. Það fer ekkert á milli mála, að það er satt, að frv. um 200 þús. kr. dánar- og slysabætur til sjómanna, allra sjómanna, hefur verið fellt á Alþingi Íslendinga, og hvað sýnir það annað en þann þingvilja að vilja ekki lögfesta 200 þús. kr. aukadánarbætur og slysabætur til íslenzkra sjómanna? Hv. 1. þm. Vestf. segir, að ágreiningurinn hafi ekki verið um þetta, heldur hafi hann verið um hitt, hvort dánarbæturnar ættu að vera hærri til sjómanna en annarra, sem færust af slysförum við önnur störf. Þetta er ekki rétt. Þetta eru ósæmandi ósannindi hjá hv. þm., eins og hann orðaði þetta áðan. Þegar meiri hl hv. heilbr.- og félmn. hafði tekið afstöðu gegn frv., þá voru nm. að því spurðir, hvort þeir, ef þeir vildu ekki mismuna mönnum þarna, vildu þá standa að brtt, um, að dánarbæturnar yrðu 200 þús. kr. til allra, og þeirra svar var, hvort sem þeir vilja nú þræta fyrir það eða ekki, að þeir væru ekki við því búnir að sinni. Hins vegar hefðu þeir talað við félmrh. og hann léti líklega um það að flytja e.t.v. á þessu þingi till. um það, að dánarbæturnar yrðu eins fyrir alla, 200 þús. kr. En það er ekki komið enn. Þetta er sannleikur málsins. Og það þýðir ekkert fyrir hv. 1. þm. Vestf. að koma hér og bregða hv. 7. landsk. um ósannindi í þessu máli, því að hann hefur sagt sannleikann einan og ekkert annað. En hitt skil ég vel, að þm. Vestf. í heilbr.- og félmn., sem stóðu að því að fella frv., — annar gerði það að vísu í gegnum staðgöngumann sinn, Sigurð Bjarnason, sem sat hér á þingi fyrir hann, þegar málið var afgreitt, en annar úr hópi Vestfjarðaþm. gerði það persónulega, ég skil vel, að þeir vilji ógjarna kannast við það.
En það er einmitt einn hv. þm. á Alþingi Íslendinga, sem sízt af öllu gat barizt á móti því, að það væru sérstakar og hærri dánarbætur til sjómanna en til annarra, og það var hv. 1. þm. Vestf., því að þingtíðindin bera það eftir honum, að þegar það hafði staðið svo frá byrjun Tryggingastofnunar ríkisins og fram á árið 1959, að dánarbætur til sjómanna væru hærri en til annarra, og tekið var í mál að breyta því, þá reis upp einn hv. þm. og andmælti því kröftuglega og rökstuddi það, að það væri einmitt sjálfsagður hlutur, að sjómannsekkjurnar, sem lifðu oft í sárri kvöl og angist vegna sinna ástvina á sjónum, fengju hærri dánarbætur, ef slys bæri að höndum, heldur en fólkið. sem missti sína aðstandendur af slysförum í landi. Þessi röksemdafærsla er til einmitt eftir þennan hv. þm., og hann einn allra þm. gat sízt af öllu snúizt gegn þessu sjónarmiði, nema hafa snúizt eins og skopparakringla um sjálfan sig, og það hefur hann gert.
Nú játaði ég við 1. umr. þessa máls, að það væri nokkur sárabót, það væri nokkur bót að þessu frv., og það tel ég enn, en hún er því miður allt of lítil. Þó að þetta frv. verði samþ. um breytingu á lögskráningu sjómanna, þá verða þeir fjöldamargir íslenzku sjómennirnir, sem engar dánar- eða slysabætur fá aðrar en þær, sem almannatryggingarnar veita. Og því verður þrátt fyrir samþykkt þessa frv. algerlega sama misrétti ríkjandi. Sumir sjómenn verða bættir með 290 þús. kr., en aðrir með þeirri upphæð, sem á hverjum tíma er ákveðin í tryggingalögunum. Og það er það misrétti, sem ég og hv. 7. landsk. þm. vildum leiðrétta.
Hér hefur verið sagt frá því, að frv. þetta hafi fengið meðmæli allra þeirra aðila, sem það var sent til umsagnar, þ. á m. Alþýðusambands Íslands. Þetta er að segja aðeins brot úr sannleika. Það var að vísu tekið fram í umsögn Alþýðusambandsins, að það væri nokkur bót fyrir einstaka sjómenn, að þetta mál væri samþykkt, og því mundi Alþýðusambandið ekki mæla gegn því, en það var rakið í umsögninni, í hversu mýmörgum tilfellum samþykkt frv. kæmi að engu haldi, og hefði ég því talið öllu heiðarlegra og réttara, að umsögn Alþýðusambandsins hefði verið lesin hér, svo að þm. hefðu mátt heyra, í hve mörgum tilfellum Alþýðusambandið telur að þetta frv. komi ekki að gagni, heldur en segja það hér með einni setningu, að Alþýðusambandið hafi mælt með þessu frv. Nú skal ég víkja að því einmitt.
Frv. hv. 7. landsk. og mitt á þskj. 25 vék að því að lögfesta 200 þús. kr. aukabætur, ef íslenzkur sjómaður færist af slysförum á skipi eða hlyti varanlega örorku, og þar með 290 þús. króna bætur samtals. Með þessu frumvarpi eru það í fyrsta lagi allir sjómenn, sem eru á bátum, sem eru smærri en 12 tonn, þeir fá engar aukabætur, þrátt fyrir það að þetta sé samþykkt, og þeir eru margir, og þær eru margar sjómannafjölskyldurnar, sem standa að baki þeim sjómönnum. Þetta byggist á því, að hér á einungis að tryggja það, að við skráningu sé gengið vel frá því, að aukatrygging sé í lagi og bætur geti þannig ekki misfarizt af þeim sökum. En eins og kunnugt er, fer engin skráning fram á báta, sem eru smærri en 12 tonn. Allir þeir sjómenn, sem sjó sækja við Íslandsstrendur á slíkum bátum, fá því engar aukabætur þrátt fyrir samþykkt þessa frv. Þetta er mikill ágalli við frv. Svo eru þeir margir, þeir sjómenn, sem hafa ekki getað náð því inn í samninga sína enn þá, að þeir skuli fá þessa aukatryggingu, 200 þús. kr. Það eru t.d. allir sjómenn á síldarflotanum ótryggðir að þessu leyti. Það hefur ekki fengizt inn í neina síldarsamninga enn, og nú er þetta að verða ársatvinnuvegur. Og þetta nær til manna, sem eru á skipum stærri en 12 smálestir. Og það er enn fremur mjög víða á landinu, sem enn þá hefur ekki, þrátt fyrir baráttu við tvennar samningagerðir, fengizt inn í samninga ákvæðið um 200 þús. kr. aukatrygginguna. Þeir fá þetta ekki heldur, því að það á að leggja fram skilríki fyrir því við skráningu, að tryggingin sé í lagi samkv. samningum, og ef samningarnir eru ekki um það, þá er ekki þetta plagg heimtað. Auk þess stendur nú ekkert um það í frv., hvað gert skuli, ef það kemur í ljós við skráningu. þar sem samningur er gildandi gagnvart útgerðinni, að tryggingin er ekki í lagi. Hvað á þá að gera? Mig langar til að vita það? Á þá að stöðva skráninguna, þangað til þessu hefur verið kippt í lag? Það vil ég fá að vita, því að það skiptir nokkru um framkvæmd málsins. Eða á bara að segja: Skilríkið var heimtað, og það kom í ljós, að skráningin var ekki í lagi, og þar við situr svo? Á að stöðva skráninguna? Það er ekkert um það, að það beri að stöðva skráninguna, þangað til þessu hefur verið kippt í lag. En nú skulum við segja auk þess, að daginn, sem skráð er á skip, t.d. í vertíðarbyrjun, þá sé tryggingin í lagi og skilríkin hafa verið lögð fram, en eftir hálfan mánuð eða mánuð sé hún útrunnin og komin í ólag. Hvaða trygging er þá fyrir þessu? Hvaða öryggi er þá í þessu? Nei, þá er það búið, þrátt fyrir samþykkt þessara laga. Til slíkra manna nær hún ekki. Framkvæmdin á skráningu á Íslandi er allvíða í því formi, að það er gengið frá löglegri skráningu í byrjun vertíðar. En svo eru, eins og allir vita, tíð mannaskipti á bátum á hinum ýmsu tímum á vertíðinni, og þá er það í yfirgnæfandi flestum tilfellum svo, að skráning á þessum komandi og farandi mönnum er ekki í lagi, og verði þá skipstapi, þá eru þeir venjulega óskráðir og þar með engin trygging fyrir því, að tryggingin hafi heldur verið í lagi. Það er einnig þannig, að þeir menn, sem á sjóinn fara, skipshöfn, þeir eru skráðir, en landmennirnir, sem vinna að veiðarfærum og beitingu, þeir eru venjulega ekki lögskráðir. En þegar veikist einhver eða forfallast af mönnunum, sem á sjóinn fara, þá er venjulega, ef ekki fást nýir menn, gripið til landmannanna í skipshöfninni, sem eru óskráðir, og maður úr þeirra hópi fer á sjóinn og oft og tíðum óskráður og verður þannig undir mörgum kringumstæðum líka ótryggður.
Svona er þetta frv. götótt, og svona verða þeir margir íslenzku sjómennirnir, sem fá ekki öryggi í gegnum samþykkt þessa frv. Auk þess er nú í lögum ákvæði um það, að við skráningu skuli leggja fram ákveðin gögn, og þessi breyting er um það, að nú skuli bæta við þau gögn, sem á að leggja fram við skráningu, yfirlýsingu um það, að trygging sé í lagi. Og er það þá alltaf öruggt, að þau skilríki, sem nú skal leggja fram við skráningu, séu lögð fram við skráninguna? Ég segi nei. Það eru nú nýskeð komin til íslenzku ríkisstj. plögg frá Vestur-Þýzkalandi, frá íslenzkum ræðismanni þar, þar sem vakin er athygli á því, að það komi fyrir mjög oft og hann segir nú: Í flestum tilfellum, ræðismaðurinn, að íslenzkir sjómenn reynist ekki vera með sína sjóferðabók eða sína viðskiptabók, sem hvort tveggja eru þó plögg, sem samkv. lögum á að leggja fram við skráningu, og þeir hafi því ekki þessi persónulegu skilríki og af þessu hljótist oft og tíðum hin mestu vandræði, þegar menn verða eftir af skipi og þurfi að greiða fyrir þeim. Og það er brýnt fyrir ráðuneytinu að hafa áhrif á það, að þessu verði kippt í lag. Ráðuneytið hefur m.a. snúið sér til Alþýðusambands Íslands, sent afrit af þessu bréfi og við vorum einmitt að fá það í hendur, um leið og við vorum að leita að umsögn um þetta mál. Þar er sem sé upplýst, að það sé mjög algengt, að plögg, sem á samkvæmt lögum að leggja fram við skráningu, séu ekki lögð fram og ekki fengin í hendur sjómönnunum og þeir hafi þau ekki. Er þá öryggi fyrir því, að þessi plögg, sem nú eiga að koma sem nr. 6 í röðina þarna, verði alltaf lögð fram og séu í höndum íslenzkra sjómanna? Ég segi nei. Einmitt þetta mál, sem nú er á döfinni, sýnir okkur, að þetta fulltryggir ekkert.
M.ö.o.: niðurstaða mín er sú, að það er alveg fullvíst, að misrétti verður ríkjandi áfram í þessu landi að því er það snertir, að sumir sjómenn, sem farast, verða bættir með 290 þús. kr., þegar allt er í lagi, en aðrir, ef ólag er á þessu að einhverju leyti eða menn hafa ekki samninga um það eða misferli er við skráninguna, sem í mjög mörgum tilfellum á sér stað, þá fá þeir ekkert. Og þetta er með engu móti hægt að tryggja nema með almennum lagaákvæðum um, að slíkrar tryggingar skuli allir íslenzkir sjómenn njóta. En það er mál, sem var fellt hér fyrir örskömmu, eftir að Alþingi hafði haft það mál til meðferðar á tveimur þingum og kæft það í hel á báðum þingunum.