04.04.1962
Neðri deild: 83. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2568 í B-deild Alþingistíðinda. (2356)
167. mál, lögskráning sjómanna
Gísli Jónsson:
Hv. forseti. Ég skal nú ekki deila við þá vini mína í Alþb., sem hafa verið að ræða þetta mál og ásaka mig fyrir hringsnúning í málinu, og því síður misnota leyfi hæstv. forseta til að ræða allt annað mál en fyrir liggur. En ég vil þó taka það fram, að meginástæðan fyrir því, að meiri hl. heilbr.- og félmn. féllst ekki á þá tili., sem var gerð í 25. máli, var sú, að Tryggingastofnun ríkisins eða sú n., sem undirbjó þá lagabreytingu, hafði einróma komizt að þeirri niðurstöðu, að það væri rétt að hafa slysabætur jafnar á sjó og landi. Að við ekki fengumst þá til að leggja til að hækka bæturnar upp í 200 þús. kr., stafaði eingöngu af því, að til þess að gera slíka breytingu þurfti miklu meiri undirbúning en málið hafði fengið. M.a. þurfti á þessu ári að tryggja miklu hærri framlög vegna breytinganna, ekki einungis frá ríkissjóði, heldur og frá sveitarfélögunum og hinum tryggðu. Breytingin hlaut að hafa stórkostlega hækkun í för með sér, og m.a. yrði að hækka stórkostlega iðgjöldin, auk þess sem okkur var fullkomlega ljóst, að ætti að setja allan kostnaðinn á tryggingarnar, þá var jafnframt velt af útgerðinni ákveðnum gjöldum, og það var m.a. þess vegna, sem allir útgerðarmenn mæltu með því, því að gjöldin voru þá tekin af þeim og sett á þá aðila, sem bera gjöldin af tryggingunum.
Ég skal ekki ræða það atriði meira, en ég vil aðeins í sambandi við þetta mál gera þá fyrirspurn til hv. sjútvn., hvort hún sér sér ekki fært að leggja til, að breytt verði 1. gr. þannig, að ef útgerðarmaður hefur vanrækt skyldur þær, sem hér hefur verið upplýst að hann vanræki oft og tíðum, eða skipstjóri á hans ábyrgð, þá sé útgerðin í ábyrgð fyrir allri upphæðinni og gangi krafan fyrir öðrum kröfum. Mér er vel kunnugt um, að útgerðarmenn hafa verið dæmdir til þess að greiða alls konar slysabætur vegna þess, að það hefur verið talið, að útgerðin hafi átt sök á slysinu, þótt hún hafi engan þátt átt að, og þeir dómar hafa ekki verið um neinar smáupphæðir, hafa stundum farið upp í 400—500 þús. kr., og þess vegna er það, að meginhluti af atvinnurekendum í landinu er farinn að tryggja gegn þessum slysum, og ég veit ekki nema það mundi bæta úr þessu að gera útgerðina ábyrga fyrir þeim slysum, sem kynnu að verða í sambandi við vanrækslu umboðsmanns útgerðarinnar, og slysabætur fyrir ólögskráða skipverja yrðu þá forgangskrafa í vátryggingarupphæðinni, ef skip færist. Ég vil aðeins beina þessu til hv. sjútvn., hvort hún sjái sér ekki fært að breyta frv. í það horf. Þá fyndist mér, að það sé tryggt, að slík mistök geti ekki orðið þeim til tjóns, sem áttu að vera fulltryggðir í skipunum.