12.04.1962
Sameinað þing: 54. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2620 í B-deild Alþingistíðinda. (2385)

Almennar stjórnmálaumræður

Finnbogi R. Valdimarsson:

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Fyrir rúmu ári kvað hæstv. dómsmrh., Bjarni Benediktsson, upp þann dóm um þá ríkisstj., sem nú situr, að hún hefði þá unnið mesta stjórnmálasigur, sem nokkurn tíma hefði verið unninn í allri stjórnmálasögu Íslendinga. Við höfum það fyrir satt, Íslendingar, að sigra, sem svo bera af í sögunni, að þeir skyggi á öll afrek fyrri tíma, sé mikilmennum einum gefið að vinna, enda munum við hafa átt að skilja það af þessum hógværu orðum hæstv. dómsmrh., að það væri tími til kominn, að Íslendingar kynnu að meta að verðleikum mikilmenni sin á stjórnmálasviðinu, sem nú eru uppi, því að það lék ekki á tveim tungum, að afreksmennirnir, sem á árinu 1961 unnu þann mesta sigur, sem Íslenzk stjórnmálasaga greinir, að dómi hæstv. dómsmrh., voru þeir hæstv. utanrrh., Guðmundur I. Guðmundsson, og hæstv. dómsmrh., Bjarni Benediktsson, sjálfur.

Afrekið geymir sagan. Það var í því fólgið að hleypa togaraflota Breta og Vestur-Þjóðverja aftur inn í íslenzka fiskveiðilandhelgi og taka lögsöguna yfir Íslenzka landgrunninu, úrslitaákvörðunarréttinn um víðáttu íslenzkrar landhelgi, sem Alþingi hafði helgað sér með landgrunnslögunum frá 1948, af Alþingi og afhenda hann erlendri stofnun um aldur og ævi.

Svo ósamdóma erum við hér á Alþingi enn um menn og málefni, að ég þori að fullyrða, að við, sem hér erum í stjórnarandstöðu og erum fulltrúar fyrir nálega helming þjóðarinnar, erum ekki jafnsannfærðir um neitt né um neitt eins sammála og það, að þetta, sem hæstv. dómsmrh. telur mesta afrek og sigur íslenzkrar stjórnmálasögu, sé óþarfasta og versta verk þessarar ríkisstj. til þessa dags. Báðir stjórnarandstöðuflokkarnir hafa lýst yfir því, að þeir telji sig ekki bundna af samningum við Breta um íslenzka landhelgi, þar sem Alþingi var svipt ákvörðunarréttinum um hana í framtíðinni, og muni neyta fyrsta tækifæris til þess að losa þjóðina undan oki þessa samnings. Sagan mun kveða upp sinn dóm um það, hvort það hafi verið mesti stjórnmálasigur Íslendinga til þessa að gefast upp fyrir Bretum með þeim hætti, sem gert var, og á ég þar sérstaklega við afsalið á ákvörðunarrétti okkar um landhelgina, eftir að öllum heiminum var orðið ljóst, að við, smáþjóðin, höfðum sigrað bæði í hinni lagalegu deilu um 12 mílurnar, eins og jafnvel hæstv. dómsmrh. varð að viðurkenna, og siðferðilega í átökunum við ofbeldið.

En það má færa full rök að því, að hafi landhelgissamningurinn við Breta verið mesta afrek íslenzkrar stjórnmálasögu, þá hafi munað minnstu, að hæstv. ríkisstj. ynni á árinu sem leið annað afrek ámóta og í beinu framhaldi af hinu fyrra. Ég á hér við viðleitni hæstv. ríkisstj. til þess að innlima Ísland með samningi, sem er ætlað að gilda um aldur og ævi, í þá pólitísku ríkjasamsteypu, sem ranglega gengur undir nafninu Efnahagsbandalag Evrópu, en af slíkri innlimun hlýtur ómótmælanlega að leiða ekki aðeins stórkostlega skerðingu á fullveldi og sjálfstæði Íslands, heldur einnig vegna smæðar þjóðarinnar og veikrar aðstöðu afsal á efnahagslegu sjálfstæði hennar og sjálfsforræði um alla framtíð. Ég mun nú sýna fram á, að það var ekki hæstv. ríkisstj. að þakka, að henni tókst þetta ekki á árinu 1961.

Hinn 2. júní s.l. var utanrmn. kvödd saman til fundar að ósk hæstv. viðskmrh., Gylfa Þ. Gíslasonar. Kvaðst ráðh, hafa óskað að gefa utanrmn. skýrslu um markaðsmálin í Evrópu og afstöðu ríkisstj. til þeirra. Á fundinum hélt ráðh. langa tölu um markaðsbandalögin tvö, efnahagssamsteypuna eða sameiginlega markaðinn annars vegar, en í þeirri samsteypu eru Vestur-Þýzkaland, Frakkland, Ítalía, Holland, Belgía og Lúxemburg, og Fríverzlunarbandalagið hins vegar, en í því hafa verið Bretland, Svíþjóð, Noregur, Danmörk, Finnland, Sviss og Austurríki. Afhenti ráðh. nm. allmikil skjöl varðandi þessi bandalög og viðskipti Íslendinga við þau, en niðurstaða ræðu hans var sú að flytja utanrmn. þá yfirlýsingu í nafni ríkisstj., að hún teldi alveg óraunhæft fyrir Ísland að hugsa til þess að gerast aðili að Efnahagsbandalaginu, hugsanlegri væri aðild Íslands að Fríverzlunarbandalaginu, en þó taldi hann svo mikil vandkvæði á henni, að ríkisstj. teldi hana ekki heldur koma til mála að svo stöddu, enda líklegast, að það bandalag leystist upp, ef Bretar og Danir gengju í Efnahagsbandalagið.

En þegar þessi fundur var haldinn, 2. júní s.1., var það mái fullkomlega komið á dagskrá. Það var þá þegar alkunnugt þeim, sem fylgdust með í alþjóðamálum, að þá og Þegar mætti vænta opinberrar tilkynningar brezku stjórnarinnar um, að hún hefði ákveðið að sækja ein um aðild að Efnahagsbandalaginu. Þessi ákvörðun brezku stjórnarinnar hafði, þegar hér var komið, verið tilkynnt samveldislöndunum brezku á ráðstefnu þeirra í Accra. Danir höfðu þá einnig hlaupið til og lýst því yfir, að þeir mundu fylgja Bretum. Hlutlausu ríkin í Evrópu, Svíþjóð, Sviss, Austurríki og Finnland, sem öll eru aðilar að Fríverzlunarbandalaginu, höfðu fordæmt þessar fyrirætlanir Breta og Dana um að taka sig út úr og semja ein við efnahagssamsteypuna.

Allt þetta vissi íslenzka ríkisstj., Þegar hún 2, júní taldi ástæðu til að lýsa yfir, að hún teldi engan raunhæfan grundvöll til inngöngu Íslands í þessi bandalög og nánast fjarstæðu, að Ísland sækti um inngöngu í Efnahagsbandalagið. Um þessar mundir hafði ríkisstj. sett á laggirnar n., skipaða fulltrúum 14 stéttarsamtaka, til að fylgjast með þessum málum. Alþýðusamband Íslands átti einn fulltrúa í n. Á fundum þessarar n. í júní og júli gaf viðskmrh. sömu yfirlýsingar og í utanrmn., að aðild Íslands að Efnahagsbandalaginu kæmi ekki til greina að óbreyttum grundvallarskilyrðum Rómarsamningsins, slík aðild gæti alls ekki samrýmzt hagsmunum Íslenzku þjóðarinnar. Virtust allir á einu máli um þetta, að undanskildum einum nm. Hann taldi sjálfsagt, að Ísland gengi í Efnahagsbandalagið, en álitsgerð hans um þetta var höfð að athlægi í viðskmrn., slík fjarstæða þótti hún.

En skjótt skipast veður í lofti. Með byrjun ágústmánaðar virðist ríkisstj. hafa skipt gersamlega um afstöðu í þessu máli, ef minnsta mark er takandi á fyrri yfirlýsingum hæstv. menntmrh., Gylfa Þ. Gíslasonar, um hana. Hann er að vísu ekki frægur fyrir stefnufestu, en ég ætla honum Það ekki, að hann hafi gefið þær yfirlýsingar í visvitandi blekkingarskyni, en það er staðreynd, að í ágústmánuði hófu blöð ríkisstj. skyndilega heiftarlegan áróður fyrir því, að Ísland sækti tafarlaust um inngöngu í Efnahagsbandalagið. Hinn 18. ágúst birti Morgunblaðið risavaxna fyrirsögn á fyrstu síðu, svo hljóðandi: „Samtök meginatvinnuvega Íslendinga styðja inntökubeiðni í Efnahagsbandalagið.“ Tilefnið var, að meiri hl. n. frá stéttarsamtökunum hafði nú skipt um skoðun eins og ríkisstj. og taldi sig nú geta fylgt inngöngu í Efnahagsbandalagið. Sumir fulltrúanna höfðu þó fyrirvara. Fulltrúar bænda vildu ekki svara afdráttarlaust á þessu stigi málsins, en fulltrúi Alþýðusambandsins mælti eindregið gegn inngöngu með ýtarlegri og rökstuddri grg.

En auk stjórnarblaðanna sýna ummæli einstakra ráðh. það ótvírætt, að ríkisstj. hafði í ágúst tekið þá ákvörðun að stefna beint að inngöngu í Efnahagsbandalagið. Þannig lauk hæstv. forsrh., Ólafur Thors, grg. sinni til þjóðarinnar fyrir gengislækkuninni í ágúst með þessum orðum: „Loks er með þessu,“ þ.e. gengislækkuninni, „greitt fyrir þátttöku Íslands í þeirri víðtæku efnahagssamvinnu, sem nú er að komast á í Vestur-Evrópu, ef Íslendingar að athuguðu máli teldu rétt að gerast þátttakendur í henni.“ Og í lok ágústmánaðar gaf hæstv. fjmrh., Gunnar Thoroddsen, kaupmannasamtökunum í Reykjavík þá skýringu á fyrirhuguðum tollalækkunum, að ljóst væri, að við yrðum að lækka þessi gjöld verulega, ef við ættum að gerast þátttakendur í Efnahagsbandalaginu, eins og margt benti nú til að óhjákvæmilegt væri.

Í mörgum löndum Evrópu hefur afstaðan til hins svonefnda Efnahagsbandalags verið rædd af kappi frá því í sumar. En ég þori að fullyrða, að hvergi nema hér á Íslandi hafa formælendur inngöngu í það bandalag leyft sér að falsa beinlínis fyrir þjóðum sínum, hvað þetta bandalag er og að hverju er stefnt með því. Rök stjórnarblaðanna hér, Morgunblaðsins og Alþýðublaðsins, í ágústmánuði í sumar fyrir því, að ekki kæmi annað til mála en Íslendingar sæktu þá tafarlaust um inngöngu í bandalagið, munu geymast sem minnisvarði um pólitíska menningu þeirra, sem þau blöð skrifa.

Morgunblaðið sagði 19. ágúst: „Ástæðan til þess, að kunnáttumenn telja, að ekki megi lengur draga að leggja inn inntökubeiðni, er fyrst og fremst sú, að framtíðarskipun Efnahagsbandalagsins er nú í mótun. Með því að sækja nú um inngöngu geta Íslendingar haft áhrif á það, hvernig málum verður háttað, en ef við leggjum ekki fram inntökubeiðni nú, erum við frá upphafi einangraðir. Þannig er það beinlínis þjóðhættulegt,“ heldur blaðið áfram, „að draga að gæta hagsmuna okkar.“ Þegar þetta var ritað, höfðu allir æðstu forráðamenn Efnahagsbandalagsins lýst því yfir, að engar breytingar kæmu til greina á grundvallaratriðum Rómarsamningsins og þar með framtíðarskipulagi bandalagsins þrátt fyrir inntöku nýrra aðildarríkja, þau yrðu, áður en þau væru tekin í bandalagið, að fallast á öll grundvallaratriði hans, einnig hin pólitísku. Jafnvel Bretar hafa orðið að láta sér þetta lynda. Í september varð brezka stjórnin að lýsa því yfir, að hún samþykkti öll pólitísk markmið Efnahagsbandalagsins, eins og þau eru sett fram í Rómarsamningnum. Hér var því farið með skrök og blekkingar um eitt aðalatriði málsins.

Í öðru lagi lýsti einn af framkvæmdastjórum bandalagsins, Hollendingurinn Mansholt, því yfir í Kaupmannahöfn að gefnu tilefni frá Dönum í septembermánuði, að ný aðildarríki fengju engin áhrif að hafa á stefnu bandalagsins í landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum, fyrr en þau hefðu verið tekin inn í bandalagið,fyrr fengju þau ekki einu sinni að hafa áheyrnarfulltrúa við umræður um þau mái innan bandalagsins.

En ef það hefur verið þjóðhættulegt í ágúst að draga að gæta hagsmuna Íslendinga með því að sækja ekki þá þegar um inngöngu, hver er þá nú sekur um þann þjóðhættulega drátt, sem á því er orðinn? Er það ríkisstj. sjálf? Ég kem að því síðar.

En Morgunblaðið sagði meira í ágúst. Það sagði í forustugrein hinn 19. ágúst: „Menn eru sammála um, að landa Efnahagsbandalagsins biði eitthvert mesta framfaraskeið í sögu mannkynsins.” Og enn fremur sagði blaðið: „Það fer ekki milli mála, að í þessum málum sem öðrum ræður það stefnu stjórnar Alþýðusambands Íslands, hvort heimskommúnismanum sé það þóknanlegt, að við öflum okkur þeirrar hagsældar, sem hægt er.“

Ýmsir heiðarlegir menn, jafnvel í stjórnarliðinu, hafa látið þau orð falla, að ákvörðun Íslendinga um það, hvort þeir gangi í Efnahagsbandalagið eða ekki, hljóti að verða einhver vandasamasta og örlagaríkasta ákvörðun, sem þjóðin hafi nokkru sinni tekið. En með rökum Morgunblaðsins, sem ríkisstj. lét leiðbeina þjóðinni með valið milli þessara tveggja kosta í sumar, var þetta val ofur einfalt: annars vegar mesta hagsæld, sem hægt er að afla bjóð okkar, með löndum Efnahagsbandalagsins biður hennar mesta framfaraskeið í sögu mannkynsins, hins vegar nokkrir þjónar heimskommúnismans, sem vilja koma í veg fyrir hagsæld þjóðar sinnar og bjarta framtíð, engir aðrir gætu verið á móti inngöngu landsins í þetta bandalag. Þannig er mál sem þetta lagt fyrir á Íslandi af ríkisstj. og blöðum hennar.

En í öllum öðrum löndum er það viðurkennd staðreynd sem grundvöllur umræðna um þetta mál, að Efnahagsbandalagið er í eðli sinu og skv. samningi, sem um það gildir og ekki verður breytt, Rómarsamningnum frá 25. marz 1957, ekki aðeins venjulegt tollabandalag, heldur pólitísk ríkjasamsteypa með eigin yfirvöldum, sem ákveða stefnu og framkvæmdir í ákveðnum málum, þ. á m. efnahags- og viðskiptamálum, landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum, fyrir öll ríkin í bandalaginu í senn, í stað þess, að áður tóku lögleg yfirvöld eða ráðuneyti hvers lands um sig ákvarðanir um þessi mál. Af þessu leiðir ómótmælanlega afsal á fullveldi og sjálfstæði bandalagsríkjanna hvers um sig. Þess vegna úrskurða lærðustu lögfræðingar Norðmanna, að breyta verði norsku stjórnarskránni, áður en Noregur geti gengið í bandalagið. Þess vegna ákveða Danir, að til þess að samþ. inngöngu Danmerkur verði 5/6 þjóðþingsins að samþ. hana. Hér á Íslandi er þetta vandlega falið fyrir þjóðinni af stjórnarflokkunum og eðli málsins því gersamlega falsað. Hér er ekki minnzt á stjórnarskrárbreytingu, þjóðaratkvæði eða neitt slíkt í sambandi við inngöngu Íslands í Efnahagsbandalag Evrópu.

Rétt er þó að geta þess, að í yfirliti um ákvæði Rómarsamningsins, sem einn starfsmaður viðskmrn. hefur gert, er ekki reynt að fela petta höfuðatriði, eins og stjórnarblöðin gera. Þar segir á bls. 9: „Þó að markmið sjálfra ákvæða Rómarsamningsins sé efnahagslegs eðlis einvörðungu, mætti vel halda því fram, að í víðtækari skilningi séu þau í raun fyrst og fremst stjórnmálalegs eðlís, þ.e. stofnun Evrópu-stórveldis.“ Og á bls. 15 í sama riti segir svo um 189. gr. Rómarsamningsins: „Reglur, fyrirmæli og ákvarðanir ráðs og framkvæmdastjórnar Efnahagsbandalagsins hafa sama gildi og lög, eftir að þau hafa verið birt. Með því að aðildarríkin eru skuldbundin til að framfylgja öllum slíkum ákvörðunum sem eigin lögum, takmarkast við það vald þjóðþinganna. Það alþjóðasamstarf, sem stofnað er til með Efnahagsbandalagi Evrópu, er það sem nefnt er „supranational“. Það þýðir, að aðildarríkin afsala sjálfsforræði í hendur stofnana bandalagsins.“ Hér lýkur tilvitnun í þetta rit, sem var útbýtt í takmörkuðum fjölda eintaka af viðskmrn.

En skýrast og hreinskilnislegast hafa þó tveir höfuðpaurar Efnahagsbandalagsins sjálfs orðað tilgang og markmið þess bandalags. Formaður framkvæmdanefndar bandalagsins, próf. Walter Hallstein, sagði í fyrirlestri við Harvard-háskóla 22. maí 1961: „Það, sem fyrir okkur vakir í Efnahagsbandalagi Evrópu, er ekki að koma á tollafvilnun eða að mynda hagsmunasamtök í því skyni að skapa stærri markað til þess að auðga okkur eða viðskiptasamsteypu til þess að styðja verzlunarhagsmuni okkar. Við rekum alls ekki viðskipti, við rekum pólitík.“ Þetta voru ummæli sjálfs aðalframkvæmdastjóra Efnahagsbandalagsins, próf. Hallsteins. Annar framkvæmdastjóri Efnahagsbandalagsins, Jean Monnet, aðalfulltrúi Frakka í framkvæmdastjórn bandalagsins, hefur látið hafa eftir sér þessa yfirlýsingu um svipað efni: „Það verður ekki aðeins komið á ytri tolli fyrir bandalagið, heldur sameiginlegri stefnu í viðskiptamálum gagnvart umheiminum.“ Og hann heldur áfram: ,.Framkvæmdanefndin mun eftir nokkurn tíma koma fram fyrir hönd alls bandalagsins í samningum við þriðja ríki:

Ef fleiri vitna þyrfti við, þá er hér enn eitt, sem ekki verður neitað að sé dómbært um þetta mál. Það er sjálfur aðalframkvæmdastjóri Fríverzlunarbandalags Evrópu, sem eins og ég áður sagði er myndað af Bretlandi, Norðurlöndunum (Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi) og auk þess Sviss og Austurríki. Þessi mikli trúnaðarmaður þessa stóra bandalags sagði í ræðu í Osló 26. sept. s.1.: „Ég álít, að við getum ekki komizt að réttri niðurstöðu um Efnahagsbandalagið, ef við ekki viðurkennum, að það er í grundvallaratriðum pólitísk samtök. Sú staðreynd, að Efnahagsbandalagið á að hafa sameiginlega landbúnaðar- og verzlunarpólitík, sannar þetta. Með þessu er einmitt ákveðið, að landbúnaðarvöruframleiðendur í Efnahagsbandalaginu geta ekki framvegis snúið sér til sinna eigin ríkisstjórna með beiðnir um ráðstafanir, sem varða afkomu og rekstur landbúnaðarins. Slíkar beiðnir verða ekki afgreiddar framvegis af stofnunum viðkomandi landa. Og ég álít, að ekkert sé pólitískara en slíkt fyrirkomulag.” Sami maður heldur áfram: „Hið sama gildir um hina sameiginlegu verzlunarpólitík, sem felur í sér, að eftir tiltekinn tíma verður ekki um að ræða neina sérstaka viðskiptasamninga milli einstakra landa Efnahagsbandalagsins og landa utan þess. Efnahagsbandalagið er ekkert venjulegt alþjóðlegt bandalag, heldur fylgja því skuldbindingar og margvislegar skyldur, sem ákveða má með meirihlutavaldi innan þess. Það er því ákveðin tilraun til að mynda samsteypu eða eitt ríki. Þátttaka í Efnahagsbandalaginu felur ótvírætt í sér viðurkenningu á þessu stefnumiði, og þeir, sem sækja þar um þátttöku, mega ekki reyna að breyta grundvallarskilyrðum eða markmiði þess.“ Hér lýk ég tilvitnun í ummæli aðalframkvæmdastjóra Fríverzlunarbandalags Evrópu, sem er myndað af þeim ríkjum, sem ég áðan taldi upp.

Ég vona, að öllum hlustendum sé ljóst, að það, sem hér er sagt um landbúnað, gildir einnig um sjávarútveg innan Efnahagsbandalagsins, en það hefur auðvitað úrslitaþýðingu fyrir okkur Íslendinga. Samkvæmt þessu yrði sjávarútvegsmálum okkar ekki stjórnað af ríkisstj. Íslands, ef Ísland væri í Efnahagsbandalaginu, heldur af embættismönnum bandalagsins. Þá hygg ég, að allir skilji, hvaða þýðingu það hefði fyrir Íslendinga, ef allir viðskiptasamningar Íslands við önnur lönd væru ekki gerðir af Íslendingum, heldur af embættismönnum Efnahagsbandalagsins.

Eitt af grundvallaratriðum Efnahagsbandalagsins er skylda aðildarríkja til að fella niður allar tálmanir á frjálsum hreyfingum fjármagns, vinnuafls og þjónustu milli aðildarríkjanna. Þetta þýðir, að erlend auðfyrirtæki ættu að fá fullt jafnrétti við íslenzka menn og fyrirtæki til atvinnurekstrar hér á landi, og enn fremur, að erlendir verkamenn eiga að fá fullt jafnrétti á við íslenzka verkamenn til starfa hér. Þeir, sem hafa reynt að gera sem minnst úr öllum skuldbindingum vegna inngöngu Íslands í bandalagið, hafa þó orðið að viðurkenna, að hér muni vera um lágmarkskröfu að ræða, sem gerð yrði til allra ríkja í bandalaginu, hvernig sem aðild þeirra kynni að vera háttað. Hæstv. viðskmrh., Gylfi Þ. Gíslason, hefur t.d. opinberlega viðurkennt í ræðu, að við mundum ekki komast hjá því „að athuga stefnu okkar varðandi rétt útlendinga til löndunar á fiski og rekstrar fiskiðjuvera, ef til aðildar okkar að Efnahagsbandalaginu ætti að koma.“

Við Íslendingar vitum, að við eigum a.m.k. eina auðlind, sem útlendingar hafa fullan hug á að ausa af gróða sér til handa. Það eru fiskimiðin kringum landið. Fengju útlendingar aðstöðu til atvinnurekstrar hér, er landhelgin þeim opin. Við vitum, að þrír auðhringar eiga mestallan togaraflota og fiskiðnað Englands. Við vitum, að í V.-Þýzkalandi er auðhringamyndunin svo skefjalaus, að þar eru tugir auðhringa, sem hafa meiri veltu árlega en nemur allri þjóðarframleiðslu Íslendinga samanlagðri. Yrðu varnir okkar sterkar gegn slíkum öflum, ef þau kæmu undir sig fótum hér á landi í skjóli jafnréttis innan Efnahagsbandalagsins?

Morgunblaðið sló því föstu í sumar, að hér á landi væru engir andvígir inngöngu Íslands í Efnahagsbandalagið nema þjónar heimskommúnismans. Skv. þessu ættu einnig allir þeir, sem nú berjast gegn inngöngu landa sinna, t.d. Bretlands, Danmerkur og Noregs, í þetta bandalag að vera þjónar heimskommúnismans. En þjónar heimskommúnismans gerast þá háskalega fjölmennir um þessar mundir, því að í öllum þessum löndum hafa myndazt sterkar hreyfingar gegn inngöngu þessara landa í Efnahagsbandalagið undir forustu sumra þekktustu leiðtoga jafnaðarmanna- og verkamannaflokka þessara landa. Ég gæti nefnt marga tugi slíkra manna, sem flestir hér mundu kannast við. Ég nefni aðeins einn, Attlee lávarð, fyrrv. forsrh. Bretlands, sem gengur nú fram fyrir skjöldu og varar flokk sinn og þjóð við inngöngu í Efnahagsbandalagið, ekki vegna brezka samveldisins, heldur vegna þess, að hann telur, að sömu öflin sem studdu Hitler hafi náð raunverulegum yfirráðum í Efnahagsbandalaginu og ætli að nota það til þess að ná sínum pólitísku markmiðum. Svo getur Morgunblaðið og Alþýðublaðið titlað Attlee lávarð sem aðalþjón heimskommúnismans í heiminum í dag, ef það vill.

Fyrir sex mánuðum töldu stjórnarblöðin þjóðhættulegt að draga það stundinni lengur að leggja fram inntökubeiðni Íslands í þetta bandalag. Hvers vegna hefur það verið dregið? Við vitum ástæðuna. í septembermánuði s.l. var ríkisstj. ekkert að vanbúnaði. Hún var við því búin að senda þá þegar frá sér inntökubeiðni fyrir hönd Íslands í Efnahagsbandalagið. Og hún sendi þá tvo hæstv. ráðh., Gylfa Þ. Gíslason og Gunnar Thoroddsen, ekki til höfuðstöðva Efnahagsbandalagsins í Brüssel, heldur til höfuðborgar V.- Þýzkalands, Bonn, þar sem þeir náðu tali af Erhard ráðherra í stjórn V.- Þýzkalands og tjáðu honum, að ísl. ríkisstj. væri reiðubúin til að sækja um inngöngu í Efnahagsbandalagið, en hún vildi af innanlandsástæðum semja um hana með vissum undanþágum frá skuldbindingum aðildarríkja. Hinn vestur-þýzki ráðherra sagði þá hinum íslenzku sendimönnum, að ef svo væri, vildi hann ráða íslenzku ríkisstj. frá því að senda umsókn sína, því að ekki mundi svo mikið sem litið á hana að svo stöddu og alls ekki fyrr en inntökubeiðnir Breta og Dana hefðu verið afgreiddar. Ýmsir munu telja, að varla hafi íslenzkir ráðh. farið sneypulegri för en þessa, en þessir hæstv. ráðh. hafa raunar siðan verið jafnborubrattir hér og jafnan áður.

En ef skoðun Morgunblaðsins í ágúst var rétt, að það væri þjóðhættulegt að biða með umsóknina í Efnahagsbandalagið, þá eiga þessir hæstv. ráðh. eftir að gefa þjóðinni skýringu á því, hver býr nú þjóðinni þann háska, sem af þessum drætti stafar. Ég skora á þá hæstv. ráðh., sem tala síðar hér í þessum umr., að gefa þjóðinni skýringar á þessum þjóðhættulega drætti, eins og Morgunblaðið nefndi það á sinum tíma. En ég skora jafnframt á alla, sem mál mitt heyra, að vera á verði í þessu máli, kynna sér vel allt, sem fram kemur um það, og ef þeir komast að sömu niðurstöðu og ég að athuguðu máli, að fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar sé háski búinn af innlimun Íslands í Efnahagsbandalag Evrópu, að taka þá höndum saman til að koma í veg fyrir það óhappaverk.